Tíminn - 05.10.1963, Blaðsíða 7
ÚtgefEndi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Frarokvæmdastjóri: Tómas Arnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjómarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300, Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Fóík á götunni
Á hverjum degi berast mönnum til eyrna uggvænlegar
fréttir af því, að fleira og fleira fóik fái ekki þak yfir
höfuðið, og að sífellt fleiri séu á götunni. Húsnæði fæst
ekki, og um hverja einustu íbúð, sem auglýst er laus
keppir fjöldi manna, svo að stundum er löng biðröð við
húsdyr. En jafnvel þó að íbúð táist leigð, er hún ærið
ort a uppsprengdu verði, sem ekki verður kallað neitt
annað en okurleiga, miðað við tekjur almennings.
Síðast í fyrradag voru þessi mál rædd í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Það kom í ljós, að hundruð fjölskyldna
hafa á síðustu mánuðum leitað til bæjaryfirvalda um
neyðarhjálp í húsnæðisvandræðum, en mjög fáum hefur
verið unnt að liðsinna, og borgarstjórinn sjálfur lýsir yfir,
að sífellt verði örðugra að finna ráð til bess að liðsina
þessu fólki.
Þetta er saga Reykjavíkur á þessum haustdögum. En
ástandið í húsnæðismálunum er litlu eða engu betra í
öðrum kaupstöðum og kauptúnum landsins. Þar stendur
húsnæðisskorturinn byggðarlögum víða fyrir eðlilegum
vexti, og sömuleiðis uppbyggingu atvinnulífsins á þess-
um stöðum. í ýmsum blómlegum kauptúnum og kaup-
stöðum, þar sem hin beztu skilyrði eru til atvinnu og
framleiðslu, er svo ástatt, að fólk, sem þangað vill flytja,
getur það ekki vegna þess, að þar er ekkert húsnæði
að fá. Mikilvæg atvinnu- og tramleiðslufyrirtæki fá
heldur ekki nauðsynlegt starfsfólk af sömu sökutii, og
eðlilegur vöxtur getur ekki átt sér stað.
Engum blandast hugur um, hver er rót þessa ástands
Á árunum fyrir valdatöku núv. ríkisstjórnar var byggt
því sem næst eins mikið í landinu og nauðsyn er talin,
vegna endurnýjunar og fólksfjölgunar. Það stafaði af
skilningi og meiri stuðningi hins opmbera við þessi mál.
Með kverkataki sínu kippti þessi ríkisstjórn íbúðabygging-
um niður um helming, og svo hefur verið undanfarin ár,
að ekki hefur verið byggður nema helmingur þeirra íbúða,
sem fólkið í landinu þarfnast . Þessu ári jukust bygging-
ar litið eitt aftur, því að sívaxandi þörf rak menn af
stað, hvað sem það kostaði, en þó vantar mikið á enn,
að í réttu horfi sé, hvað þá að bætt sé upp vanræksla
siðustu ára.
Afleiðingin af þessu óafsakanlega kverkataki ríkis-
stjórnarinnar á byggingamálum landsmanna kemur nú
fram af fullum þunga.
Engin íslenzk ríkisstjórn hefur á síðustu áratugum
úthýst eins mörgum eSa rekiS eins margt fólk út á
götuna. Kunnur norrænn stjórnmálamaSur sagSi fyrir
skömmu, aS meSal þyngstu saka, sem unnt væri aS
bera á nokkra ríkisstjórn, væri sú aS hún legSi sig
ekki fram um þaS, aS öll þjóSin hefSi sæmilegt þak yfir
höfuSiS. Þann áfellisdóm hefur þessi ríkisstjórn óum-
deilanlega kveSiS upp yfir sjálfri sér meS verkum sín-
um.
Húsvana skólar
En ófremdarástaridið í byggingamálum í tíð þessarar
ríkisstjórnar nær ekki aðeins til ibúða fólksins. Á þessum
árum hefur raunverulega verið dregið stórlega úr bygg-
ingum skólahúsnæðis, og hvergi nærri byggt svo að
haldi til jafns við nemendafjölgun. Afleiðingin er sú.
að nú ríkja meiri húsnæðisvanoræði í skólum landsins
en nokkru sinni fyrr, og vísa verður írá tugum og hundr-
uðum nemenda svo að segja í hverjum einasta framhalds
skóla landsins, og á skyldunámsstigmu verður sums stað
ar að draga úr kennslu.
i
ANGI kirkjuþlngslns
í Róm er nýhafinn. Hér sést rðS
kardínálanna tólf, sem eru í for-
sætisnefnd þingsins. Búizt er vlS,
að kirkjuþing þetta leggi til ýms
ar breytingar á starfsháttum
kaþólsku kirkjunnar og geta þær
haft töluverS áhrif á gang helms
mála. — Hér til hliðar er mynd
af Nelson Rockefeller, ríkisstjóra
í New York, en hann er [ Evrópu
ferð ásamt frú sinni, og hefur
komið til ýmissa landa. —
Fyrir mánaðamótin var hann I
Í'talíu og gekk á fund Segni for-
seta. Hér er hann að koma til
Belgíu og bandaríski sendiherr-
ann tekur á móti honum. Evrópu
ferð bandarísks forsetaefnis þykir
góður undirbúningur undir kosn
ingabaráttu. — Neðsta myndin
er af leikurum í því fræga leik-
riti Teenagerlove, sem sýnt hefur
verið í Konunglega leikhústnu í
Kaupmannahöfn við miklar og
góðar undirtektir, og einnig hafa
sýningar hins danska leikflokks
vakið óvenjulega athygli í Stokk
hólmi. Myndin sýnir Birgltte
Reimer, Preben Neergaard og
Buster Larsen í hlutverkum. —
Teenagerlove verður sýnt f Þjóð
leikhúsinu hér bráðlega, og munu
mfínnar cann Unf í -> r- 4-
/
T í M I N N, lauoardaginn 5. október 1963. —