Tíminn - 20.11.1963, Page 6
r
TOMAS KARLSSON RITAR
Sp
PIINL
IR
VEGAMALADEILU
í gær or3u allfangar um-
ræður um vegamál í neðri
deild. Urðu þær við 1. um-
ræðu um frumvarp þeirra Hall
dórs Ásgrímssonar, Eysteins
Jónssonar og Lúðvíks Jóseps-
sonar um breyting á vegalög-
um þess efnis, að allmargir
sýslu- og hreppavegir á Aust-
urlandi verði teknir í þjóð-
vegatölu. Við umræðuna töl-
uðu auk Halldórs Ásgrímsson-
ar, sem hafði framsögu fyrir
frumvarpinu þeir Ingólfur
Jónsson, Halldór E. Sigurðs-
son, Sigurvin Einarsson og
Benedikt Gröndal.
Halldór Ásgríms-
son sagði, að
frumvarpið væri
nær óbreytt frá
því frumvarpi, er
flutningsmenn
höfðu flutt á síð
asta þingi, en það
hafði ekki náð
fram að ganga og
lét ríkisstjórnin í
veðri vaka, að hún myndi þá á
því þingi leggja fram frumvarp
til nýrra vegal'aga, er byggt yrði
á heildarendurskoðun laganna.
Reyndin varð hins vegar sú, að
‘ það frumvarp kom aldrei fram.
Breytingatillögurnar í frumvarp-
inu eru í 20 liðum og eru þær
allar fluttar samlcv. eindregnum
og ítrekuðum óskum hlutaðeig-
andi sveitarfélaga, en sveitarfé-
lögunum er orðið um megn vegna
hinnar ofboðslegu dýrtíðar að rísa
undir því verkefni að sinna þess-
um vegum.
Löggjafinn hefur einnig áður
viðurkennt í framkvæmd og greini
lega ætlazt til, að sýslu og hreppa-
vegir yrðu smátt og smátt teknir
í þjóðvegatölu og hefur stig af
stigi venjulega einu sinni á kjör-
tímabili opnað vegalög og tekið
inn nýja vegi. Nú eru hins vegar
liðin 8 ár síðan vegalög voru opn-
uð. Þessi mál þola hins vegar enga
bið og sýna þær tillögur, sem
fram koma á Alþingi árlega um
aukna þjóðvegi hina miklu þörf.
Lakast er ástand þessara mála á
Austurlandi og veldur því víðátta
fjórðungsins og hve sundurskorin
hann er af fjallgörðum og vatns-
föllum. Meira en fimmti hluti af
vegum í fjórðungnum eru hreppa-
og sýsluvegir eða samtals 485 km.
Af þeim eru 100 km. taldir óbíl-
færir, 285 km. ruddir vegir, sem
eru bílfærir aðeins um sumarmán
uðina og um 100 km. upphlaðnir
vegir, sem eru þó hvergi nærri
fullkomnir. Af þessu sést Ijóslega,
að ástandið í vegamálum Austur-
lands er með öllu óviðunandi og
úrbætur mega ekki dragast á lang
inn. Núverandi stjórnarflokkar
hafa sofið Þyrnirósarsvefni í þess-
um málum og er mál að þeir vakríi.
Ingólfur Jóns-
son, samgöngu-
málaráðherra,
sagði, að hann
hefði aldrei boð-
að það á síðasta
þingi, að frum-
varp um ný vega-
lög yrði flutt á
því þingi. Hins
vegar væri rétt,
að vegalögin hefðu verið í gndur-
skoðun hjá vegalaganefnd, en frum
varp yrði ekki lagt fram.fyrr en
þeirri endurskoðun yrði lokið. Þá
spurði ráðherrann Halldór, hvers
vegna hann hefði sofið Þyrnirósar-
svefni öll þau ár, sem hann hefur
setið á þingi og stutt ríkisstjórn,
en vakni svo upp við það þegar
hann er í stjórnarandstöðu, að
vegamál Austurlands eru í hinum
mesta ólestri. Það sem skiptir máli
í þessu efni eru au'knar fjárveit-
ingar til vegamála.
Halldóir Ásgrímsson taldi full-
víst, að allur þingheimur vissi, að
ríkisstjórnin hefði boðað nýtt vega
lagafrumvarp og staðið hefði til
að leggja það fyrir síðasta þing.
Taldi Halldór gott, að ráðherrann
gerði sér nú fulla grein fyrir því,
að það þyrfti að veita auknu fé til
þessara mála. Það hefði ekki svo
mjög borið á því við afgreiðslu
fjárlaga undanfarin ár, sem hann
hefur farið með stjórn þessara
mála, ef undan er skilin afgreiðsla
fjárlaga síðast, en þá voru kosn-
ingar fyrir dyrum.
IngóJfur Jónsson sagði, að fjár-
veitingar til vegamála hefðu stór-
aukizt í tíð núverandi stjórnar. Þá
fann hann að því, að Halldór Ás-
grímsson skyldi ekki gera neinar
tillögur um fjáröflun í þessu skyni.
Það væri fjáröflunin, sem öllu
skipti.
Sigurvin Einars
son kvaðst furða
sig á því, hve illa
ráðherrann hefði
tekið frumvarp-
inu. Það væri eng
in nýlunda á
þingi, að slík
frumvörp væru
fram borin og rif j
aði hann upp
flutning slíkra mála á síðasta kjör-
tímabili, en þá hefðu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins oft staðið að
slíkum frumvörpum sem þessu.
Sigurvin kvaðst ekkert vilja full-
yrða um. það, að ráðherrann wper-
sónulega hefði 'Íýst'T,,{$í,35ífhfl; að
frumvarp að nýJúW'óégali^um
skyldi íáTgt fyrir síðasta þing, en
hins vegar hefði það komið fram
hvað eftir annað hjá ríkisstjórn-
inni og stuðningsmönnum hennar.
Las Sigurvin upp úr nefndaráliti
meirihluta samgöngumálanefndar
efri deildar frá því ú fyrra, er
meirihlutinn lagði til, að frum-
varpi um vegagerð á Vestfjörð-
um yrði vísað til ríkisstjórnarinn-
ar. Meirihlutinn rökstuddi þá af-
stöðu til frumvarpsins þannig, að
þar sem búizt væri við að hið nýja
frumvarp að vegalögum myndi
lagt fyrir þetta þing, þ. e. í fyrra
o. s. frv. Þá sagðist Sigurvin furða
sig á því, að vegalaganefnd skyldi
enn starfa. Nefndin hefði skilað til-
lögum sínum til ríkisstjórnarinn-
ar 9. okt. í fyrra. Væri því furðu-
legt, ef þessari nefnd væri ætlað
að skila nýjum tillögum og öðrum
en hún hafði lagt fram. Eðlilegra
yrði að telja, að aðrir aðilar fjöll-
uðu um málið. Líklega hefur ríkis-
stjórninni ekki alls kostar fallið
við tillögur nefndarinnar og væri
ekkert við því að segja, en nokkuð
væri þetta skrýtin málsmeðferð.
Ingólfur Jónsson sagði, að það
væri rétt, að nefndin hefði skilað
tillögum í fyrra, en hún hefði
verið beðin um að athuga tillög-
urnar betur og myndi hún brátt
skila lokatillögum og frumvarpið
þá lagt fyrir þingið, hvort sem rík-
isstjórnin væri að öllu leyti sam-
þykk tillögum nefndarinnar eða
ekki.
Halldór Ásgrímsson taldi ráð-
herrann nú heldur bljúgari orðinn
en í fyrstu ræðu sinni, en ekki fær
ist honum að hrósa sér af afrekum
í vegamálunum. Nú væri svo kom-
ið, að sveitarfélögin hefðu tekið
milljóna lán til að ná lágmarks-
áföngum í vegamálum sínum og
yrðu að greiða vexti af þessu fé,
en borga það niður með væntanleg-
um fjárveitingum. Þótt nokkur
aukning hefði orðið undanfarið á
vegaviðhaldsfé hrykki það hvergi
nærri til að unnt. væri að annast
eðliíega uppbyggingu veganna.
ýíðiTværi svo komið, að allur of-
aníburður væri með öllu horfinn
úr vegunum og því ókleift að
hefla þá lengur.
Benedikt Grön-
dal virtist haf a
misskilið Halldór
Ásgrímsson og!
taldi að ekki j
mætti draga úr|
viðhaldi vega. ÞáJ
sagði hann, að j
ráðherra hefði |
beðið vegalaga-
nefnd að athuga
betur ýmis atriði og hefði nefndin
unnið að því að undanförnu. Þá j
sagði hann, að engu yrðum við
nær, þótt þetta frumvarp yrði
samþykkt. Svo margir vegir eru
nú í þjóðvegatölu, sem taka myndi
mörg ár að koma í akfært ástand.
Þetta frumvarp væri þvi nokkuð
yfirborðskennt.
Halldór E. Sigurðsson sagði, að
þjóðvegakerfinu hefði verið kom-
ið upp með frumvörpum eins og
þessu og væri því fjarri lagi nokk-
uð yfirborðskennt við það, heldur
væri fylgt þeirri reglu, sem mót-
azt hefði á undanförnum áratug-
um. Ekki sagðist Halldór vita,
hverjar hefðu verið tillögur vega-
málanefndar, sem Benedikt Grön-
dal ætti sæti í, en hitt vissi hann,
Framhalc* á 15. si8u.
AFUR9ALANIH TIL LANDBUN-
AÐAR ÓFÐLILEG OG OF MIKIL
Bankamálaráðherra boðar frumvarp um nýjar afurðavíxlareglur og lýsir yfir á þingi:
TK-Reykjavík, 18. nóv.
í umræðum um lánamál
iðnaSarins á Alþingi í dag,
lýsti Gylfi Þ. Gíslason, við-
skipta- og bankamálaráð-
herra bví yfir, að hann teldi
afurðalán til landbúnaðar
allt of mikil. Sagði hann, að
afurðaiánin til sjávarútvegs
ins væru með öllu með eðli
legum hætti en mikill hluti
afurðalána Seðlabankans
til landbúnaðarins væru
með öllu óeðlileg og enn
fremur, að ef ætti að veita
útí’lutningsgreinum iðnað-
arins svipaða fyrirgreiðslu
og Sjávarútveqi bá yrði það
að ganga út yfir afurðalán
til landbúnaðarins. Þá upp-
lýsti ráðherrann, að ríkis-
stjórnin hefði undanfarið
unnið að endurskoðun á
reglum Seðlabankans um
endurkaup á afurðavíxlum
og myndi innan skamms
leggja *ram frumvarp um
breytingar á reglum þeim.
sem Seðlabankinn hefur
farið eftir á þessu sviði.
Þessar vfirlýsingar gaf ráð-
herrann • sambandí við frum-
varp það ei þeir Sveinn Guð
mundsson og Jónas G. Rafnar
flytja um irreyting á ‘ausaskuld
um iðnaðarins í föst lán. Miki
ar umr’æðui urðu um málið og
þó frekar um þingsályktun fra
1958 um endurkaup á hráefna
víxlum iðnaðarins Deildi ráð
herrann ,g Sveinn Guðmunds
son hart á Framsóknarflokkinn
fvrir að nafa verið í algerri and
stöðu við þingsályktunina oe
andstaða ^ramsóknarmanns
væri þess valdandi, að málið
hefði ekki náð fram að ganga
Þessar rullyrðingar ráðherrans
voru afhiúpaðar á fundinum
sem algerar sögusagnir og
skreytni í nita þeirra umræðna
lét Gylti p Gíslason bess ba
getið. að allt fé Seðlabankans
væri nú hundið i afurðalán
um til s-jávarútvegs og tand
búnaðar oe að hin óeðlilegu ai
urðalán til landbúnaðarins
væru pess valdandi. að ekki
hefði verið unnt að leysa ur
rekstranánaþörf iðnaðarins. —
(Þessi frétt átti að birtast i
blaðinu i gær en varð að bíða
sökum brengsla).
Ymis ný þingmál hafa verið
lögð fram, sem ekki hefuir reynzt
kleift rúmleysis vegna að geta um,
en verður reynt eftir föngum að
gerg skij á næstunni. Þessi eru
þau he'Iztu:
★ Þingsályktunartillaga um nýja
’ rafvæðingaráætlun, flm. Skúli
Guðmundsson og 7 aðrir þing-
menn Framsóknarflokksins.
★ Frumvarp þeirra Ágústs Þoir-
valdssonar og Björns Fr.
Björnssonar um smíði nýs
strandferðaskips fyrii siglinga
leiðina Vestmannaeyjar—Þor-
lákshöfn.
★ Þingsályktunartil'Iaga um rann-
sókn á kali í túnum sem Ás-
geir Bjarnason flytur ásamt
þremur öðrum þingmönnum
Framsóknarflokksins.
★ Tillaga til þingsályktunar um
endurskoðun laga um aflatrygg
ingasjóð sjávarútvegsins, flm.
Gísli Guðmundsson og 5 aðrir
þingmenn Framsóknarflokks-
ins.
★ Frumvairp um heftingu sand-
foks og græðslu lands, sem
þeir Björn Fr. Björnsson og
Gísli Guðmundsson flytja.
★ Frumvarp Ólafs Jóhannesson-
ar um breyting á lögum um
landamerki og fl.
★ Þingsályktunartillaga Halldórs
E. Sigurðssonar o. fl. um jarð-
hitarannsóknir og jarðhitaleit
í Bcirgarfjarðarhéraði og athug
un á hitaveitu fyrir Borgarnes.
★ Þingsályktunartillaga þeirra
Ingvars Gíslasonar og Ólafs
Jóhannessonar um listasöfn og
listsýningar utan Reykjavíkur.
★ Tillaga til þingsályktunar um
æskulýðsmálaráðstefnu, sem
Páll Þorsteinsson og 9 aðrir
þingmenn Framsóknarflokks-
ins flytja.
★ Þingsályktunartillaga um nýja
héraðsskóla, sem Ingvar Gísla-
son flytur ásamt 4 öðrum þing-
mönnum Framsóknarflokksins.
★ TiIIaga til þingsályktunar um
tilraun til að hefja skipulagðar
ferðir með skriðbíl yfir Skeið-
arársand, sem þeir Jónas Pét-
ursson, Ragnar Jónsson, Páll
Þorsteinsson og Sverrir Júlíus-
son flytja.
T í IVI I N N, miðvikudagmn 20. nóv. 1963. —■