Tíminn - 24.11.1963, Side 3

Tíminn - 24.11.1963, Side 3
Geimfarinn Alan Shepard, 39 ára að aldri hefur nú gerzt bankastjóri. Hann og tveir aðr ir Texas-milljónamæringar hafa keypt hlutabréf fyrir 9 milljónir króna í First National bankanum í Baytown. Bannað er sarnt að nota nafn Shepards í auglýsingaskyni, því birtist það eingöngu á pappírum bank ans. ★ Shirley Temple kcm þarna í mesta sakleysi til að kaupa miða á leiksýninguna „It’s a Mad, Mad, world“, og þá tóku þessir tveir lögregluþjónar sig til og hlupu alveg brjálaðir á eftir henni, svo að minnstu munaði, að eltingarleikurinn endaði í næstu borg. En Shir- ley hefur samt ekki brotið neitt Það hafði verið talað um það, að Elsa Maxwell hefði ósk að eftir því að láta brenna sig þegar hun væri látin, og dreifa svo öskunni yfir Miðjarðarhaf- ið. En ekki var hægt að finna neitt skrifað um þetta mál og því var Eisa jörðuð í Hartsdale í Nevv York. Ekki voru það nema i kringum 100 manns, sem söfnuðust saman til að kveðja Elsu í hinzta sinni, en hún hafði um ævina haldið þús undir aí veizlum fyrir þúsundir imanna. Nokkrar af þeim frægu persónum, sem Elsa hafði leyft sér að kalla dear og darling, voru --’iðstaddar, en einn syrgj andann vakti ekki mikla eftir- tekt, það var Dorothy Fell'owes- Gordon, en hún var vinkona og sambýliskona Elsu og erfði allar eigur hennar, sem ekki eru metnar á minna en 10,000 dollara. í Hollandi ríkir dálítil óá- nægja r.neð fimm daga vinnu- vikuna, því að framleiðslan vill minnka. Menn þar hafa því stungið upp á því, að láta fólk á ellilaunum vinna sjötta dag vikunnar. ★ Konrad Adenauer jók ekki vinsældir sínar, þegar hann eftirlét starf sitt til Ludwigs Er hard með þessum orðum: Ef þú þarft á einhverju að halda þá leitaðu bara til mín. ★ Sá, sem á heimsmetið í því að komast hjá flugslysum, ér danski forstjórinn Leif Skov, sem býr i Dragör. Fyrir sex árum ætlaði hann að fljúga til London, á síðustu stundu skipti hann samt um skoðun, og svo fór að umrædd vél hrapaði og fimmtán manns fórust. Síðar ætlaði hann að fara með sport flugvél til Feneyja, en rétt áð- ur en hann ætlaði að leggja ,af stað kom i ljós, að vegabréf ið var ekki gilt, svo hann sat heima. Nokkrum klukkustund um síðar fórst vélin í Ölpunum og enginn komst af. Hinn 9. október á þessu ári ætlaði hann með stórri flutningavél til Saudi-Arabiu, en aðstæður breyttust, svo að hann komst ekki með. Sama daginn hrapaði vélin eftir að hafa lent í Mar seilles og allir sem í henni voru létust. ☆ Carole Joan Crawford, jama- iska stúlkan, sem hlaut miss World-titilinn í London, er þarna komin í heimsókn til Parisar og er að kaupa sér minjagrip. Auðvitað er minja gripurinn eftirlíking af Eiffel- turninum, en það er hinn sí- gildi minjagripur frá París. Póstyfirvöldin í Bandaríkjun um hafa nú lýst því yfir, að þau börn, sem vilji skrifa „Santa Claus" þurfi ekki lengur að merkja bréfin til Norðurpóls- ins, heldur þurfi þau að merkja þau með númerinu 99701. Það virðist svo vera, að jólasveinn inn sé fluttur og framtíðar- heimili hans sé 99701- af sér, heldur er tekið upp á þessu i auglýsingaskyni fyrir leiksýninguna. Shirley hefur annars aldrei látið neitt á sér bera, síðan að frægðarferill hennar sem barnastjörnu tók enda. Það hefur eiginlega verið frekar hl.iótt um Birgitte Bardot upp á síðkastið, þó að við héma á síðunni minnumst hennar öðru hvoru. Síðast skýrðum við frá því, að hún væri að leika í kvikmynd í London, og þar var hún l'átin ww■! mw—wmimmmm smakka a wiský-flösku, svona i auglýsingaskyni. Hún gretti sig í framan um leið og hún renndi hinum ljúfu veigum nið ur, þvi að nú orðið drekkur hún enga srerka drykki, heldur einungis á-axtasafa. Tvö þýzk fyrirtæki hafa ný- lega byrjað að framleiða plast- lyikla fyrir venjulega smekk- lása. Þessir plastlyklar hafa marga kosti fram yfir þá gömlu. Þaö er enginn hávaði í þeim, þeir eru léttir, ryðfrí- ir og fást í öllum litum, svo hægt er að fá lykil, sem fer vel við hurðina eða lásinn, ef maður vil! hafa allt í stíl. ★ Samkvæmt nýafstaðinni skoð anakönnun í Bandaríkjunum eru 71% hvítu íbúanna á þeirri skoðun, að það sé vond lykt af negrum. 75% halda því fram, að negrar séu ekki eins vel gefnir og 39% halda því fram, að negrar kæri sig ekkert um fjölskyldur sínar og 85% halda því fram, að þeir séu hávær- ari. Skoðanakönnun þessi var gerð af bandaríska vikublaðinu Newsweek. ■HMnwmMm Vibeke Nielsen frá Ábenra í Danmörgu gætir í sumarfrí- um sínum dýra í dýragarðin- um í Kaupmannahöfn. Þessi atvinna hennar hefur leitt til þess, að henni hefur verið boð ið aðaihlutverkið í nýrri ame- rískri kvikmynd, sem gerð verður eftir hinni þekktu bók Joy Adamson um Ijónynjuna Elsu. Einr. af þekktustu kvik- . myndastjórum Walt Disneys, Tcm McGowan á að stjórna myndirmi. Hann hefur nú sent Vibeke handritið og ætlar svo að tala við hana eftir nokkra daga. Það virðist ekki vera neitt rafarnál, að Vibeke muni taka við hlutverkinu, að minnsta kosti ekki, þegar mað ur heyrir, að flest atriðin fari fram á meðal taminna ljóna í Afríku. Á þessari ipynd er Vibekc með einn af kópunum í dýragarðinum í Kaupmanna- höfn. r ★ Nelson Rockefeller, ríkisstjóri og kona hans Happy, skelltu upp úr, þegar blaðamaður spurði þau, hvort frúin ætti ekki von á barni. Ríkisstj. svar- aði því til, að hann hefði heyrt orðróm um þetta barn, sem þau ættu að eiga í vændum, síðan að þau giftu sig og hann sagð- ist búast við að heyra hann áfram. Við þetta tækifæri voru Roekefeller-hjónin að koma á flugvöllinn í Washington til að heimsækja nokkra vini sína. Roekefeller hefur eins og kunn ugt er lýst því yfir, að hann sé tilbúinn til að verða í fram boði fyrir repúblikana í næstu forsetakosningum, sem verða árið 1964 T í M I N N, sunnudaginn 24. nóvember 1963. 3 /

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.