Tíminn - 24.11.1963, Síða 8

Tíminn - 24.11.1963, Síða 8
— Hvað fannst þér nú skemmtilegast að skoða í þess- ari ferð, frá sjónarhóli jarð- fræðingsins'? — Ætli mér hafi ekki þótt mest spennandi að fljúga yfir og skoða Katmai. Það var að gjósa þar einhver gígur rétt hjá fjallinu, en það var nú bara smágos og heldur ómerki- legt. Mér fannst firna skemmti legt að fljúga í rellunni yfir Tíuþúsundreykjadalinn, og yf- irl'eitt er Alaska hrikalega fall egt land. Eins hafði ég mikið gaman af að fljúga heim á leið fyrst frá Anchorage í Alaska með þotu yfir norðurheimskaut ið til Kaupmannahafnar. Vegna þoku yfir ísnum var stefnan tek in sunnar, við flugum yfir öll- um eyjaklasanum nyrzt í Kan- ada, yfir Ellesmere-land og nyrzta odda Grænlands, feng- um ákaflega gott veður og sá- um furðuvel, þótt úr þotu væri, löftið tært og hreint, svo að við gátum nærri skoðað landið eins og á korti. Það var mikilfeng- árum sté fæti á gamla ísland. (Sigurður Þórarinsson tók myndirnar). Þeir eru Islendingar, það er ekki um að villast. Þó liggur það í augum uppi, að þetta fer óðum að breytast, einkum tungan, þegar gömlu tslend- ingarnir týna tölunni. En það sem ég undraðist mikið var, hve fólkið þar vestra verður ótrúlega gamalt. Þeir hafa enzt svo vel þessir gömlu land ar, að furðu gegnir. Það er svo mikið _af eldgömlum. spræk- um íslendingum, það sér maður svo greinilega, þegar maður kemur á íslenzku elli- heimilin, hvað þetta fólk er margt ungt í anda. Ég ferð- aðist frá Winnipeg út í Nýja ísland og aðrar íslendinga- byggðir með Haraldi Bessa- syni prófessor, sem er ákaf- lega vinsæll maður meðal st- lendinganna, enda vinnur hann feikilega mikið til að halda þessu lifandi. En það er ekki nema tímaspurning, hversu íslenzka málið lifir lengi þar úr þessu. Hins vegar er það rétt, sem Lindal dóm- ari sagði við mig, að við meg- Indíánmn vildi óðfús - en fékk ekki að fara til íslands leg sýn. En auk þessa, sem ég hef nefnt, var svo margt annað fagurt og furðulegt í náttúrunn ar ríki, sem ég sá á ferð minni. T. d. í Utah sunnanverðu, gljúfrirj þar og fjöllin, ég hef varla nokkurn tíma séð eins skrautlegt land, rautt og alla vega á litinn, það er ævintýri líkast. Eg hef áður minnzt á gljúfrin í Grand Canyon, en þetta hafði ég ekki hugmynd um, eða hrikafegurðin í Kletta- fjöllum og Sierra Nevada. — Úr því að þú minnist aft- ur á Utah, langar mig til að spyrja, hvernig kemur lýsing Kiljans í Paradísarheimt heim við það, sem landið kom þér fyrir sjónir? — Þær eru nefnilega undar- lega sláandi sannar og réttar lýsingarnar hans Halldórs á landslagi og öðru, sem þar kemur fyrir, hans skarpa auga bregzt ekki þar fremur en endranær. Tökum t. d. fjallið hjá Spanish Fork, Fjallið Bless aða, sem er íslenzkun á hinu rétta nafni, Sierra Benida. Hvað segir nú aftui Halldór um þetta, þegar Þjóðrekur er að segja Steinari bónda í Hlíð- um til vegar, er hann kæmi til mormónalandsins? „Þegar þú kemur á leiðar- enda í Saltsjódal, þá skaltu ekki skipta þér af neinu, utan spyrja hvar liggi þjóðvegur til Spánska Forks, sem stundum er nefndur Spánsforkur, og segj ast vera af íslandi Munu þá allir menn kyssa þig. Láttu þá vísa þér á póstvagninn til Pró- vóstaðar, en þaðan skaltu gánga. Nú geingur þú sem leið liggur eftir þjóðveginum. Þú hefur þér skáhalt á vinstri hönd hærra fjall en íslending- ar hafa séð, það heitir Timpanó gosfjall eftir rauðri drottningu. Þar eru gilin tíu sinnum dýpri en Almannagjá. Hér geta ís- lendingar veitt sér fagrar smala mennskur í laufskógum með aungum slagviðrum og þurfa þarafleiðandi ekki brennivín. Efst í þessu háfjalli, sosum Gutrormur skáld — nálfníræður á hláðinu á Víðivöllum. helmingi hærra uppi en á Ör- æfajökli, þar vex frómur óg hjartagóður viður, sem heitir piprandi ösp. Á þessu fjalli á ég tvær hjarðir. En skiftu þér ekki af því. Hvert varstu kom- inn? Passaðu þig bara að villast ekki út af veginum laxi. Þegar ■minnst varir er Timpanógos- fjall að baki þér og komið ann að fjall í laginu einsog það væri klippt út með skærum í blað, sem þú brýtur saman fyrst, það er Fjallið Blessaða þar sem sólin kemur upp yfir Spánarforksbyggð, þangað upp fór kelling ein með skjólu og reku að heya sér silfur og gulT‘. — Þetta er svo sláandi lýs- ing á Fjallinu blessaða að ég þekkti það strax og ég sá það úr fjarska, það er eins og klippt þríbrotið blað. Eins er um aðrar lýsingar í sögunni, þær eru mjög nákvæmar. Og það er sama sagan og um aðrar bækur Halldórs, að Islending- amir í Utah þóttust þekkja hverja persónu í Paradísar- heimt, svipað og Bjartur í Sumarhúsum, Jóhann Boge- sen og aðrir úr sögum hans komu mö”gum kunnuglega fyr- ir sjónir við lestur sagnanna. — Eru Islendingar fjöl- mennir í Utah? — Já, já, það eru um tvö þúsupd manns með íslenzkt blóð í æðum í SpaniSh Fork, og þar er biskup íslenzkur. — En eru ekki Mormóna- biskupar margir? — Jú, reyndar. Kirkjan ræður lögum og lofum i land- inu, hún greinist í margar deildir. Minnsta einingin er svokölluð „ward“, þær eru margar og yfir hverri er bisk- up. Nokkrar „wards“ mynda „stake" (sem Halldór kallar bara steikina), og yfir þeim er' president (forseti), yfir forsetunum eru svo postular og svo loks prophet (spámað ur) yfir öllu saman og æðsti maður i ríkinu og sá eini, get- ur fengið vitranir. Þegar setja þarf lög, fá 'þeir vitranir Þannig var fjölkvænið til- komið á sínum tíma. Svo fékk spámaðurinn aftur vitrun um að leggja fjölkvænið niður, þegar þeim var ekki stætt á því að hafa það lengur, vegna afskipta landstjórnarinnar í Washington. Þeir fá sem sagt nokkuð praktískar vitranir stundum. Ég las það t.d. í einu blaðinu, að spámaðurinn hefði fengið vitrun um að Negrar væru jafnréttháir, en það eru þeir ekki samkvæmt Mormónatrú, gott ef þeir eru ekki taldir afkomendur Kains, eða eitthvað slíkt athugavert við þá, þeir geta t.d. alls ekki orðið prestar í Utah. Að öðru leyti eru Mormónar ákaflega frjálslyndir og umburðar- lyndir í trúmálum. Og há- skólamenntun er almennari í Utah en nokkru öðru ríki heimsins. Af milljón íbúum ganga fimmtíu þúsund á há- skóla. Þannig hefur það ver- ið frá byrjun ,að mjög mikii áherzla er lögð á menntun. Velmegun er mjög jöfn í rík- inu, og ákaflega mikill þrifa og myndarbragur á flestu þar. — Svo að þú kynntist fyrst hinum gömlu byggðum Vest- ur-íslendinga í þessari ferð Voru þær líkar því, sem þú hafðir gert þér i hugarlund? Hafa þær enn rammislenzkt svipmót? — Ég varð ekki fyrir von- brigðum, leizt eiginlega betur á það en ég hafði búizt við. hélt aö þetta þjóöernistal væri meira í nösunum á þeim En það er enginn vafi á þvi að hávaðinn af þeim heldur ótrúlega fast við þjóðerni sitt. um alls ekki halda, að það sé búið með allt þó að málið hverfi. Það er hægt að halda menningartengslum áfram eftir það ,og við megum vara okkur á því að hrinda frá okkur þeim afkomendum, sem eru búnir að týna málinu, en hefðu þó hug á því að vera íslendingar að einhverju leytl fyrir því. — Þú hefur þá sjálfsagt heimsótt Guttorm skáld á Víðivöllum, úr þvi að þú fórst um Nýja ísland. — Já, ég held það verði mér nú minnisstætt. Það var 6- segjanlega mikið gaman að heimsækja gamla manninn, því að hann er enn svo spræk ur, að alveg lygilegt má kall- ast. Og þarna voru og í heim- sókn kunningjar hans á líku reki ,allir eldsprækir; þetta var fjörugasta kvöld. Gutt- ormur flutti alls konar gamla bragi og söng þá við raust. Hann notar Indíánarót, sem á að vera lækning allra meina. Mikið þótti mér fyrir því að ég gekk með magasár og mátti því ekki drekka með karlinum Et, hann taldi Indl- ánarótina allra meina bót. Það var mikið um Indiána í byggðinni, þar sem hann ólst upp, hans einu nágrannar fram eftir aldri. Það eru til þarna Indíánar, sem tala ís- lenzku. Það var t.d. einn Indi- áni, sem vildi komast hingað heim í fiskvinnu, þegar séra Róbert var að útvega unga Kanadamenn, og það var tek- ið fram, að þeir yrðu að tala íslenzku, það skilyrði setti GUNNAR BERGMANN Samtal við dr. Sigurð Þórarins- son um Ameríkuför. - Seinni hluti 8 T í M I N X, sunnudaginn 24. nóvember 1963.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.