Tíminn - 24.11.1963, Síða 15
MORÐINGjAR kennedys
Framhald af 1. síðu.
hálsi Oswalds í von um að finna
merki um púðurreyk. — Lögreglu-
stjórinn í Dallas, E Curry, sagði,
að lögreglan áliti sig hafa fund-
ið morðingja Kennedys, þar sem
Oswald væri, þótt hann hefði enn
j ekki játað, og líklega hægt að
: finna nógar sannanir fyrir því.
Hins vegar eru uppi meiningar
um það innan lögreglunnar, að hér
hafi verið að verki atvinnumorð-
ingi í þjónustu annars eða ann-
arra, því morðið hafi verið of
vandlega út reiknað, til þess að
vitstola maður hefði framið ódæð-
ið. — Það hefur hins vegar hvergi
komið fram, að Oswald sé talinn
vitskertur.
Þegar ákæran á hendur Oswald
hafði verið birt, var hann færður
í sal til blaðamanna og Ijósmynd-
ara. Hann var náfölur, kýttur í
herðum og hvíslaði svo varla
heyrðist, að hann hefði hvorki
drepið forsetann né lögreglumann-
Wade saksóknari sagði, að eng-
ar líkur bentu til þess, að fleiri
hefðu staðið bak við Oswald eða
aðstoðað hann við morðið, og alls
ekkert benti til að það hefði verið
framið á vegum kummúnistískrar
stofnunar að baki Oswalds eða sem
liður í kommúnistískum skæru-
hernaði gegn Bandaríkjunum, þótt
hins vegar væri það staðreynd,
að Oswald væri formaður Fair
Play For Cuba. Og þótt Oswald
væri grunaður, væri leitinni að
mögulegum morðingja forsetans
enn haldið áfram af fullum krafti.
M.a. hefur landamærunum yfir til
Mexico verið lokað, og fær þar
enginn að fara á milli, hvorki á
landi né í lofti.
Samkvæmt frétt frá NTB í dag
var hinn 24 ára gamli Lee Harvey
Oswald, sem grunaður er um
morðið á Kennedy forseta í Dallas,
rekinn úr varaliði landgönguliðs
bandaríska flotans árið 1960, þar
eð hann hafði ákveðið að afsala sér
bandarískum borgararrétti og
sækja um að fá ríkisborgararétt
í Sovétríkjunum.
Tal'smaður landgönguliðsins
sagði í dag, að Oswald hefði verið
talinn óæskilegur, og að tvisvar
sinnum hefði hann verið dreginn
fyrir herrétt á meðan hann var í
landgönguliðssveitunum í Japan.
Oswald gekk í herinn 24. októ-
ber, 1956, þá aðeins 17 ára gam-
all. Hann var leystur úr hernum
samkvæmt eigin óskum einu ári
áður en herskyldutíma hans var
lokið, þar eð hann ætlaði að ann-
ast móður sína, og var hann þá/
fluttur í varaliðið, en rekinn úr
því 13. september 1960 eins og
' fyrr segir. Oswald var rafeinda-
fræðingur, en var samt mjög lágt
settur, vegna framkomu sinnar í
hernum.
Oswald fór til Sovétríkjanna ár-
ið 1959 með það fyrir augum, að
gerast sovézkur ríkisborgari, þótt
bróðir hans reyndi að fá hann of-
an af því. Samkvæmt upplýsingum
bandaríska sendiráðsins í Moskvu,
hafði Oswald ákveðið að gerast
sovézkur borgari og afhent sendi-
ráðinu hið bandaríska vegabréf
sitt. Honum hafði þó ekki líkað
vistin í Sovétríkjunum, og komið
aftur til Bandaríkjanna eftir nokk
urn tíma.
Oswald segist ekki vera komm-
únisti heldur marxisti, og á því
sé mikill munur.
Oswald er kvæntur rússneskri
konu. Hún hefur verið kölluð fyr-
ir til að bera vitni, og sagði, að
maður hennar ætti riffil, en hélt
að hann hefði verið af Mauser-
gerð. Það kemur í bága við fram-
sögn annarra vitna, sem telja riff-
il Oswalds japanskan.
ÆTTINGJAR KENNEDYS
Framhald af 1. síðu.
Frú Kennedy missti einnig fóstur
árið 1959.
Enn fremur hefur Rosemary,
Fólki f ækkar ört
vestur á fjörðum
FB-Reykjavík, 23. nóv.
FÓLKSFLÓTTINN af Vest-
fjörðum heldur enn áfram, og
í sumar hafa að minnsta kosti
20 fjölskyldur flutzt þaðan, og
þar af hafa 7 farið úr sveitun-
um. Átta fjölskyldur hafa farið
frá ísafirði I sumar og haust,
og liggja til þess ýmsar orsak-
ir.
í fyrra sagði blaðið frá því,
að 20 bæir hefðu farið í eyði
í Barðastrandar- og ísafjarðar-
sýslum, en það var þá 18. hver
jörð, en í upphafi þess árs voru
364 jarðir i byggð.
í ár fór Minni-Bakki í Hóls-
hreppi í Norður-ísafjarðar-
sýslu í eyði, en þá er aðeins
Meiri-Bakki eftir í byggð í
Skálavík. Þar voru eitt sinn 14
býli, reyndar ekki öll stór, en
þar er vel rúm fvrir 3—4 býli.
Bóndinn á Minni-Bakka hafði
búið þar í íuttugu ár, en er nú
fluttur til Bolungarvíkur.
Þrír bæir í Mosvallahrepp
fóru úr byggð í sumar. Hestur,
Betanía og Kot. Ótakmarkað
landrýxni er á Hesti, en hins
vegar er land
lega mikið. í
Kots ekki sér-
Mosvallahreppi
eru 20 býli enn byggð, en að-
eins 4 I Flateyrarhreppi og 8 í
Mýrarhreppi.
Byggð lagðist niður í sumar
a Klukkulandi í Dýrafirði, en
hins vegar hefur ungur og dug
andi bóndi, Tryggvi frá Ár-
múla byrjað að búa á Lauga-
landi við ísafjarðardjúp, sem
áður var orðið að hjáleigu.
Á síðasta ári fóru tveir bæ-
ir í eyði i Múlasveit í Austur-
Barðarstrandarsýslu. Var ann-
ar þeirra Bær á Bæjarnesi, en
hinn Litla-Nes. Bær var annar
af tveimur bæjum yzt á nes-
inu, og þegar hann var kom-
inn í eyði og tolldi fólk ekki
lengur á Kirkjubóli, enda orðið
eyðilegt á nesinu. Nú eru að-
eins 2 bæir eftir í suðurhluta
Múlasveitar, og á eflaust eftir
að reynast erfitt að halda þeim
í byggð, en fari þeir í eyði, er
stórt skarð höggvið í samfellda
byggð á þessum slóðum. Fjór-
ar eyjar eru enn í byggð í Flat
eyjarhreppi: Flatey, Skáleyjar,
Svefneyjar og Hvallátur.
í sumar og haust hafa 8
fjölskyldur að minnsta kosti
flutzt frá ísafirði. Yfirleitt hafa
þetta verið fámennar fjölskyld
ur, hjón með 1 til tvö börn,
þó var þar á cneðal ein 7
manna fjöiskylda.
íbúar'á Flateyri og í Flateyr
arhreppi eru nú eitthvað á 6.
hundrað, en þaðan hefur tölu-
vert verið um fólksflutning
bæði í ár og í fyrra. í fyrra
fluttu frá Flateyri 5 fjölskyld-
ur,_ eða um 20 manns.
í haust fluttu svo 4 fjölskyld
ur frá Flateyri, þar af ein 8
manna fjöiskylda, og gera má
ráð fyrir, að á iþessum tveimur
árum hafi ekki færri en 40—50
flutt burtu úr plássinu. Ástæð-
ur eru ýmsar fyrir þessum
brottflutningum, og engin ein
ástæða gildir fyrir alla. Nokkr
ir hafa flutt burtu vegna þess
að börn þeirra eru farin, og
vilia þá foreldrarnir flytjast í
nágrenni við þau, en yfirleitt
hefur ekki verið «n atvinnu-
leysi að ræða á Flateyri, og
það því ekki orsök brottflutn-
inganna.
FRAMTÍÐ STJÓRNMÁLA
Framhald af 16. síðu.
á morðinu yfir á óða afturhalds-
seggi, jafnvel þótt þeir viti ekki
enn þá .allar staðreyndir í sam-
bandi við þennan hrýggilega at-
burð. Barry Goldwater er mjög
dáður af hægra armi republikana-
flokksins.
Margar bitrar raddir heyrast í
Washington. Háværar ásakanir
eru uppi gegn áhangendum Birch,
systir hins látna forseta, í mörg
ár orðið að dveljast á heimili fyrir
vangefna. í desember 1961 fékk
Joseph Kennedy faðir John Kenn-
edys slag, en síðan hefur hann
ekki getað talað eðlilega, eða
gengið.
Dean Rusx utanríkisráðherra,
ze.m var á ,'eið frá Honolulu tii
Tokio ásamt opinberri sendinefnd,
sneri þegav í stað við, er hann
írétti um morðið á Kennedy for-
seta, og kom til Washington
snemma í moigun. í fylgd með
honum voru Louglas Dillon, fjár-
n álaráðherra Orville Freeman
.andbúnaðarmáiaráðherra, Luther
Hodges, verzlunarmálaráðherra
Stewart Udall. innanríkisráðherra,
Willard Wirtz atvinnumála- og fé-
’agsmálaráðherra, Pierre Salinger,
olaðafulltriu Kennedys, var einnig
í sömu flugvél sem lenti í Was-
hington, ört'áutr tímum eftir að
bk Kennedy: kom þangað. Dean
Rusk hélt fund með Lyndon B.
Johnson, forseta, kl. 13,30 í dag
ssmkvæmt fsl. tíma.
— Lík forsetans sténdur nú uppi
i Austurhertteiginu svonefnda í
Hvíta húsintt. en jarðarför hans
mun verða eer? á mánudaginn frá
Si. Matthew? dómkirkjunni í
tVashington. að því er segir í frétt
frá NTB í dag Eftir hina opin--
r>eru jarðarrör St. Matthewskirkj
unni, þar se>n t rkibiskupinn í Bost
cn. Richard Cushing, kardínáli
n un flytja messu yfir líki Kenno
dys, mun hin eiginlega útför verðn
gerð í kyrrþey samkvæmt ósk
íjölskyldu hans Talið er líkleg*
að hann verði lagður til hinstu
hvíldar í graheit ætta' sinnar ;
Brookline i Massashusetts.
þ.e.a.s. meðlimum hins róttæka
þjóðernis- og hægrisinnaða John
Birch-flokks. Demókrataþingmað-
urinn Hale Boggs sagði við blaða-
menn í gærkvöldi: — Áhangend
ur Birch erp líklega ánægðir. núna.-
Það voru þeir sem lögðu fingur a
gikkinn. Menn segja, að enginn
geti spáð um stjórnmálalegt á-
stand á næstu vikum. En jafnvel
fyrir dauða Kennedys forseta voru
margir republikana áhyggjufullir
út af möguleikunum á stríði milli
hægri sinnaðra og hins frjálslynda
arms innan republikanaflokksins.
Eins og ástandið er nú, er mögu-
legt, að upp komi raddir um, að
Richard Nixon, fyrrverandi vara-
forseti, verði í kjöri fyrir repu-
blikana í forsetakosningunum að
ári.
Þakkarávarp
ambassadors
Bandaríkjanna
Þær fjölmörgu einlægu
samúðaróskir, sem sendi-
ráðinu hafa borizt frá ís-
lendiugum í öllum stéttum,
eru mjög ljós sönnun þess,
hve niikillar virðingar
Kennedy forseti naut hér í
Iandi. Samúðaróskir þessar
eru okkur til mikillar hugg
unar í sárum harmi. Fyrir
hönd Johnsons forseta og
amerísku þjóðarinnar óska
ég að færa innilegar þakkir
öllum þeim, sem hafa látið
í ljós samúð sína á svo hjart
næman hátt. Það er einlæg
ósk okkar, að þetta hörmu-
lega óhappaverk fái að
minnsta kosti snúið hjörtum
og hugum manna livarvetna
frá hatri því og beizkju, sem
Iiljó+a að hafa verið undir
rót bess
i'ames K. Penfield.
ambassador.
ynmmm johnsons
NTB-Wasíiington, 23. nóv.
Nú er Johnson er orðinn forseti
hafa menn hér rifjað upp, hvað
stjórnarskráin seglr um varamann
hans. Ellefu eru þeir talsins og
efstur á listanum er forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings, sem
nú er demókratinn John W. Mc-
Mormack. Ef hann félli frá, er
næstur forseti öldungadeildarinn-
ar, sem nú er demókratinn Carl
Hyden frá Arizona. Síðan komá
ráðherrar í ákveðinni röð. Fyrstur
er Dean Rusk utanríkisráðherra,
en sjötti maður á heildarlistanum
er Robert Kennedy dómsmálaráð-
herra.
G0SIÐ
KH-Reykjavík, 23. nóv.
Gosið við Vestmannaeyjar virð-
ist nú iíkjast æ meir gosi á landi.
í morgun um kl. 10 tilkynnti eitt
varðskipanna, sem var á gosstaðn-
um, að stöðug gos væru í gígun-
um og sprengingar með miklum
hávaða. Sömu sögu var að heyra
um miðjan daginn, er blaðið hafði
samband við Eyjar, höfðu Eyjar-
skeggjar séð eldblossa og heyrt
miklar drunur. Þeim virðist mökk-
urinn dekkri í dag. Veður var gott,
en menn óttast, að vindurinn kunni
að snúast á suðvestan, og þá verð
ur öskufall í kaupstaðnum.
SAGT UM KENNEDY
Framhald af 16. síðu.
Alexei Adsjubei sent satmúðar-
skeyti eða látið sorg sína í ljósi
á annan hátt. Vestrænir menn í
Moskvu segja, að aldrei hafi dauði
vestræns leiðtoga haft eins djúp
áhrif á alla sovézku þjóðina og
fráfall Kennedys.
Svipaða sögu er að segja frá
öðrum löndum. • Segni, Ítalíufor-
seti; sir. Alec í Bretlandi; de
Gaulle í Frakklandi; Hækkerup
utanríkisráðherra Dana, staddur
nú í Moskvu; Tító forseti Júgó-
slavíu; Elisabet Bretadrottning;
Tage Erlander, forsætisráðherra
Svía; Kekkonen, Finnlandsforseti,
og margir, margir fleiri, hafa sent
samúðarskeyti vestur um haf.
Sir Winston Churchill sagði í
gær, að lieimurinn hefði misst
mikilhæfan stjórnmálamann og
skynsaman og góðan einstakling.
Harry Truman sagði, að landið
og þjóðin hefðu tapað miklu við
fráfall Kennedys. Eisenhower fyrr
uim forseti sagði: — Ég er viss
um, að adir amerískir borgarar
eru fullir sorgar og viðbjóðs á því
sem gerzt liefur. Ríkisstjórinn í
New York, Nelson Rockefeller
sagði: Þetta er hræðilegur sorgar
atburður fyrir þjóðina og allan
heiminn. Séra Martin Luther King,
svertingjaleiðtogi sagði: — Mesti
virðingarvotturinn, sem banda-
ríska þjóðin getur sýnt hinum
látna forseta, er að fylgja þeirri
stjórnmálastefnu, sem hann hefur
markað.
Þannig hafa leiðtogar þjóðanna
um heim allan lýst sorg fyrir
hönd þjóða sinná, en einnig má
geta þess, að í Vestur-Berlín tóku
um 70 þús. manns þátt í blysför
úr öllum úthverfucn til ráðhús-
torgsins í hjarta borgarinnar til
þess að minnast hins látna forseta.
Dagblöð heimsins hafa helgað
þessum snrgaratburði flestar síð-
ur, og kemur þar mjög víða fram
það almenningsálit, að Kennedy
hafi látið lifið vegna baráttu sinn
ar fyrir jafnrétti hvítra manna og
svartra, þeirri baráttu, sem einnig
kostaði íyrirrennara hans, Abra-
ham Lincoln, lífið fyrir 98 árum.
SÍÐASTI DAGUR
Framhald af 16. síðu.
in fyrr en hann væri aftur kom-
inn til Hvíta hússins á mánudag.
Kl. 10:30 óku forsetahjónin í
bílalest frá hótelinu til Carswell-
flugvallar, en þaðan áttu þau að
fljúga til Dallas.
Kl. 12:25 (þarlends tíma) var
skotið á forsetann, þar sem hann
var á leið frá flugvellinum í Dallas
að fundarstaðnum, þar sem hann
átti að halda ræðu.
Kl. 12:30 kom bíll forsetans til
Parkland-sjúkrahússins, og forset-
anum var gefið blóð.
Kl. 13:00 lézt forsetinn án þess
að hafa nokkru sinni komizt til
meðvitundar.
Kl. 1:35 tilkynnti ritari Hvíta
hússins dauðsfallið. Fimm mínút-
um áður hafði Lyndon B. John-
son svarið embættiseið sinn sem
næsti forseti Bandaríkjanna.
FöSurbróSir minn
Sigurjón Guðmundur Sigurðsscn
frá Húsey, Skipholti 14,
verSur jarSsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 25. nóvember
kl. 10,30 árdegis. — Athöfninni verSur útvarpaS.
Hjörtur Bjarnason.
Cltför móSur okkar
ÁstríSar Eggertsdóttur
fer fram frá Dómkirkjunni þriSjudaginn 26. nóv. kl. 10.30 f.h. —
Athöfninni verSur útvarpaS. — Þeir, sem vildu minnast hinnar
látnu, er bent á Slysavarnafélag íslands.
Börnin.
TÍMINN, sunnudaginn 24. nóvember 1963.
15