Tíminn - 27.11.1963, Blaðsíða 2
Sjáifvirkni og kaup-
gjald
S.l. fösfcudag birtist hér í
blaðinu athyglisvert samtal við
ungan rafvirkja Ásgeir Sigurðs-
son, nýkoniinn frá námi í
Bandaríkjunmn. Hann ræðtr
þar meðal annars um þá miklu
sókn, sem þar er hvarvetna við
að koma á sjálfvirkni og segir
m.a.:
„í Bandaríkjunum er þró-
unin sú, að fyriirtækin kaupa
dýrar og afkastamiklar vélar
en fækka starfsmönnum, vegna
þess hversu l-.aupgjald er þar
hátt! Hér er kaupið svo lágt,
að atvinnurekendur láta undir
höfuð leggjast að kaupa hinar
dýru vélar Þessi þróun er mjög
hættuleg fyrir framtíðina. auk
þess sem vinnuhagræðing og
framleiðni er látin sitja á hak-
anum. Minnir þetta á ástandið
í vanþróuðu Inndunum. Þetta
verður að brevtast“.
Þarna hreyfir þessi glöggi,
ungi maður máli, sem vert er
að gefa mikinn gaum og kemur
heim við það, sem t.d. Helgi
Bergs minntist á f útvarps-
ræðu á Albingi fyrir nokkru:
Lágt kaupgjald hamlar gegn véi
væðingu atvinnuveganna, því
að þá sjá atvinnurekendur sér
ekki sama hag í vélvæðingunni
og ef kaupið er hátt. En á vél-
væðingunni, vínnuhagræðing-
unni og framleiðninni byggist
batnandi hagur og lífskjör.
aióaferill
Morgunblaðið ræðir f for.
ystugrein f gær um atburðina
í Dallas f Texás og þau ömur-
legn mistök. er Oswald, grun-
aður morðingi forsetans var
skotinn í höndum lögreglunna.
Blaðið segir m.a. um þetta:
„Því miður vaknar sá grun-
ur, að beir, sem ábyirgð báru
á morði forsetans, hafi viljað
koma Lee Harvev Oswald fyrir
kattarnef. svo að erfiðara yrði
að rekja blóðferilinn. Engu
verður um það spáð, hverjir
þessir menn séu, og ef til vill
sannast bað aldrei.
Slfk sönnun hefði þó verið
mikilvæg, vegna þess að of-
beldisöflum vex ásmegin, þegar
þau fá hulizt undir yfirborðinu
en hljóta réttmæta fordæm-
ingu, þegar þau eru afhjúpuð.
Út af fyrir sig má ef til vill
segja, að ekki skipti megin-
máli, hvers konar ofstækisöfl
hafa verið að verki, hvort þau
hafa verið kommúnistísb eða
fasistísk. Þar er um að ræða
greinar á sama meiði. En ef um
skipulagða glæpastarfsemi hef-
ur verið að ræða, sem hlýtur að
hvarfla að mönirum, hefði að
sjálfsögðu oltið á miklu að
komast fyrir rætur hennar“.
Símaskrár upp-
skroppnar
Samkvæmt auglýsingu frá
Landssfmanum hefur símanot-
endum í Reykjavík og Kópa-
vogi að minnsta kosti, verið gert
að sækja hina nýju símaskrá
sína á ákveðnum degi niður f
inheimtusal símans við Austur-
völl. Að sjálfsögðu hafa ekki
allir getað orðið við þeirri
kvaðningu og farið síðar. Nú
hafa ýmsir þá sögu að segja,
að er þeir koma á seinnl skip-
unum þessa dagana og vilja
helzt fá sína símaskrá, þá er
hún ekki til reiðu, og svörin
þau, að ekki verði til eintök af
henni fyrr en eftir hátfðar.
Pramhald á 13. sfðn.
KJÖRDÆMISÞING
Framsóknarmenn í Suður-
landskjördæmi héldu kjör-
dæmisþing sitt að þessu sinni
í Vestmannaeyjum, um síð-
ustu helgi. Fulltrúar af landi
fórju með Herjólfi frá Reykja-
vík á föstudagskvöld og tók
skipið fæpast fleiri. Um átta-
1iu fulltrúar sátu þingið og
hátt á annað hundrað manns
sóttu samsæti þingfulltrúanna
á laugardagskvöldið.
Þetta er íjórða kjördæmisþing
sunnlenzkra Framsóknarmanna, en
kiördæmissambandið var stofnað
T. maí 1960. Matthías Ingibergs-
son, lyfjafræðingur, sem verið hef
u>- formaður frá stofnun, baðst nú
undan endurkosningu og var kos-
inn Sigurfinnur Sigurðsson, sem
gegnt hefur erindrekastörfum fyv
i» kjördæmissambandið um skeið
Fundarstjórar voru Sveinn Guð-
mundsson og Óskar Jónsson, og
ritarar Einar Þorsteinsson og Þór
rrinn Sigurjónsson..
Fjölmörg mál voru rædd í nefnd
um þingsins og síðan tekin til
ályktunar. Verða þau mál rakin
> blaði sunnlenzkra Framsóknav-
manna, Þjóðólfi.
Ritari Framsóknarflokksins,
Helgi Bergs. flutti afburða snjallt
og fróðlegt erindi um stjórnmál-
in Að loknum þingfundum var á
iaugardagskvöldið haldið sameig-
inlegt hóf þingfulltrúa og gesta
Voru margar ræður fluttar og
mikið sungið Síðan var stiginu
oans. Á sunnudagsmorgun skoðuðu
sðkomumenn sig um undir leið-
sogn heimamanna. Kl. 1 á sunnu-
Jólamerki
Thorvaldsensfél.
Það er Steinþór Sigurðsson, leik
tjaldamálari, sem teiknar jóla-
merki Thorvaldsensfélagsins á
50 ára afmæli þess, en ágóði þess-
ara merkja rennur aðallega til
vöggustofunnar, sem félagið er nú
að reyna að fullborga. Venjulega
hefur salan gengið vel og vonazt
er til að svo verði einnig i ár. —
Fyrsta merkið kom út árið 1913,
og þá var á því mynd af Fjallkon
unni, en nú er myndin af barni,
sem fagnar hækkandi sólu, en í
hægra horninu er fjögurra Iaufa
smári.
dag fóru aðkomufulltrúar heim
með Herjólifi, um Þorlákshöfn.
I->eir kvöddu Eyjamenn með söng
er skipið !agði frá bryggju
Framsóknarmenn í Eyjum önn
uðust allan undirbúning kjördæm-
isþingsins þar og móttökui að-
komufulltrúanna Var mjög róm
v.ð fyrirgreiðsla þeirra og gest-
risni. Eru allir þingfulltrúar sam
mála um, að þetta hafi verið sér
staklega athafnasamt og ánægju
Ifegt kjördæmisþing, og að auki
skartaði náttúran því fegursta.
sem hún á þennan árstíma, með
'■eðurbiíðu til að gera för ..land-
manna“ sé.ni bezta.
HARAI.DUR BJÖRNSSON
Sá svarti
senuþjófur
Nýlega er komin í bókaverzlan
ir bókin Sá svarti senuþjófur,
eftir Njörð P. Njarðvík. Þetta er
ævisaga Haraids Björnssonar leik-
ara og rekur feril hans allt frá
æskudögum og fram til ársins
1961, er hann lét af störfum sem
fastráðinn ieikari við Þjóðleikhús
ið. Haraldur tók sig upp með fjöl
skyldu sína á fertugs aldri, fór
úr vel launaöri stöðu á Akureyri
til að nema leiklist við Konung-
lega leikhúsið í Kaupmannahöfn.
Hann er fyrsti atvinnumaður í
leiklist, er tók til starfa á íslandi
og því brautryðjandi í því erfiða
starfi að breyta íslenzkri leiklist
úr því að vera stundargaman á-
hugamanna í meðvitaða listsköp
un menntaðra leikara. Þess vegna
er bókin öðrum þræði saga ís-
lenzkrar leiklistar á þessari öld.
Framhald á 15. sISu.
Á VEGUM Félagsmálastofnun-
arinnar kom í dag út bókin
FÉLAGSSTÖRF OG MÆLSKA,
eftir Hannes Jónsson, félagsfræð
ing. Er hún 208 bls. að stærð,
skiptist í þrjá hluta og 14 kafla,
og í henni eru um 20 myndir,
sem mest rnegnis eru teikningar
af heppiregri sætaskipan og fyrir-
komulagi a mismunandi stórum
fundum.
Fyrsti hluti bókarinnar nefnist
FÉLÖG, FUNDIR OG FUNDAR-
SKÖP. Er þar m.a. fjallað um
félagshópa, forystumenn félaga,
félagsandann, embættismenn
funda, fundarsköp, félagslegt á-
hugaleysi óg sætaskipan í fundar
Laugardaginn 16. nóv. s. I. var tekln I notkun matvöru- og búsáhaldadeild í nýrri kjörbúð hjá Kaupfélagl A-
Skaftfellinga, Hornafiröi. Aðrar deildir I hlnu glæsilega verzlunarhúsl verða teknar : notkun á næsta árl.
Verzlunarstjóri er Sverrir Guðnason. — Myndin er tekin við opnunina.
sal.
Annar hluti nefnist MÆLSKA.
Þar er m.a. fiallað um kennslu í
mælsku t'yrr og nú, undirstöðuat-
riði góðrar ræðu, tilgang og teg-
undir ræðu, ræðuskrekkinn, fram
söguræðuna o fl.
Þriðji hlutinn nefnist RÖKRÆÐ
UR OG ARÓÐUR. Er þar m.a.
fjallað um undirstöðuatriði rök-
fræðinnar, nelztu áróðursaðferðir
nútíðar og fortíðar og þátttöku í
umræðufundum
í bókinni er auk þess VIÐBÆT
IR, sem er fróðleg endursögn
á mælskukenningum gríska meist
arans Aristoteles.
í formála bókarinnar bendir
höfundur á, hversu örlagaríkt það
geti verið fyrir Iýðræðisríki, að
ábyrgir borgarar hafi staðgóða
þekkingu á fólagsmálum og fund
arsköpum og nokkra þjálfun í að
tjá sig í formi ræðunnar. Telur
hann okkur íslendinga hafa verið
fremur hirðulausa um að mennta
uppvaxandi kynslóðir í félagsstörf
um og undirbúa þær undir ábyrga
þátttöku í félags- og stjórnarstarfi.
Bókin er prentuð á góðan papp-
ír í prentsmiðjunni Eddu, og er
öll hin smekklegasta. Er þetta
þriðja bókin í Bókasafni Félags-
málastofnunarinnar, sem hefur
einkunnarorðin BÆKUR, SEM
MÁLI SKIPTA.
2
TÍMINN, miðvikudaginn 27. nóv. 1963.