Tíminn - 22.12.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.12.1963, Blaðsíða 3
ISPEGLITÍMANS Maður nokkur kom inn á lög- reglustöðina í Frederiks'borg í Danmörku og skýrði frá því, að hann höfði myrt nágranna sinn með exi. Lögreglan hélt þegar á morðstaðinn, en sá engin vegs ummerki og skýringin á því var sú, að manninn hafði dreymt þetta allt saman. , Vittorio de Sica stjórnar nýj- ustu kvikmynd Sophiu Loren, en búningur Sophiu þar er svo umfangstnikill, að jafnvel hann, leikstjórinn verður að hjálpa henni P.ð koma honum í lag. Sophia leikur nefnilega barns- hafandi konu. FRITZ HANKE, 22 ára gamail landamæravörður frá Austur Berlín hefur verið á- kærður fyrir það í Vestur-Þýzka landi að hafa skotið niður manneskju, sem gerði tilraun til að flýja. Ein af afsökunum seoi hann bar fyrir sig, var sú, að austur-þýzkir landamæra- verðir skjóti ekki til að deyða, þeir miði alltaf fram hjá marki. ★ Úmferðaryfirvöld í Washing- ton hafa sent öllum akandi döm um þar í borg lítinn bækling, þar sem stendur m.a.: Heiðruðu dömur, það hefur komið í ljós, að mikiíl hluti slysa orsakast af því, að bílstjórarnir eru í vondu skapi og það hefur legið illa á þeim, áður en þeir lögðu af stað. Þess vegna ættuð þið, kæru dömur, alltaf að kyssa mann yðar í kveðjuskyni og láta sem þér séuð mjög ástfangnar af honum. Við það ekur hann betur. ★ Tony Perkins, kvennagullið frá Hollywood, sér mikið eftir því að hafa látið Frank Sinatra koma ofan í si.g eftirlætisdrykk hans. Eítir að hafa fengið sér drjúgan sopa missti Tony með vitund og þegar hann rankaði við sér lá hann í rúminu hjá Frank. Þá hét hann sjálfum sér að aldiei framar skyldi hann fá sér drykk, sem væri fimm hlutar af wisky á móti einum hluta af portvíni, það væri meira en heill fíll gæti þolað ★ Hollywood-leikarinn þekkti, Sir Cedric Hardwicke, er mik- ill föðúrlandsvinur og er þetta m.a. haft eftir honum: Eg er fæddur í Englandi og ég mun berjasí fyrir England og þar vil ég deyja, en fjandinn hafi að ég vilji búa þar. Rannsókn í Bandaríkjunum hefur leitt það í ljós, að 40 ára gamall karlmaður hefur 50% möguleika á því að verða verða áttræður og 8% mögu- leika á því að verða 85 ára gam all. Hluttöllin eru heldur betri hjá kvenfólkinú, en þær hafa 8% líkur til að lifa og verða níræðar. Það ríkir að vísu prentfrelsi í Portúgal, en íbúarnir njóta þeirrar ánægju tiltölulega lít- ið. Þó má sjá gagnrýni á stöku stað. Þetta stóð t. d. í einu dag- blaði í Lissabon: Landið okkar er of fátækt til að geta leyft sér þann munað að halda uppi skrifstofufargani, sem eingöngu hefur þann tilgang að sanna til- verurétt sinn. Judy Garland og dóttir henn- ar Liza Minelli leika nú saman í sjónvarpsþætti nokkrum í Bandarikjunum. Liza er talin lifandi eftirmynd móður sinn- ar, bæði hvað útlit og hæfi- leika snertir og á myndinni sit ur móðurin í skauti dóttur sinn ar, meðan smáfrí er frá upp- tökunni. Lítill rafmagnsheili vann fyr ir skömmu 15000 krónur ís- lenzkar í spilavíti nokkru í Las Vegas. Það tók hann 50 mínút- ur, og oigandi heilans, sem er rafmagnsheilanérfræðingur, á- kvað að það væri heilanum fyrir lieztu að hætta á meðan hann væri í gróða. Heilinn reiknaði það sjálfur út, hvenær rétt væri að draga nýtt spil og hann ákvað sjálfur upphæðirn ar, sem hann lagði undir. Það eina, sem faðir hans þurfti að gæta að var að hann fengi ekki of mikið sjálfstraust og setti upphæðirnar of hátt. Eigandi spilavítisins sagðist ekki hafa haft áhyggiur af þessum óvenju lega spilamanni, hann hefði ein ungis haft heppnina með sér í þetta skipti og það gilti líka um aðra Mikill stýr stendur nú um nýútkomna bók í Bandaríkjun- um, sem nefnist The Success of Marriage, og er eftir sálfræð inginn Virgil D. Damon. Sál- fræðingurinn heldur því fram, að gæfa hjónabandsins eða ó- gæfa sé í 90% tilfellum und- ir eiginkonunum komin, en þessu er kvenfólkið auðvitað ekki ‘ammála. Bandaríska öryggisþjónustan reiknar með því, að á vegum Sovétríkjanna séu 300.000 njósnarar, fyrir utan ýmsa milH göngumenn, sem staðsettir séu í kringum 4S sendiráð í hinum vestræna heimi. Sjálfir höfum við ekki nema sem svarar einum fimmta hluta af þessu fólki á okkar vegum, segja Bandaríkjamenn ófeimnir. Elzta barn Madame Nhu, dóttirin Le Thuy, var með móð- ur sinni á ferðalaginu um Bandaríkin, og þar hitti hún olíuframleiðandann Bruce D. Baxter, frá Texas. Þau fóru bæði í íerðalag til búgarðar frænda hans og voru þar við veiðimennsku. Á myndinni eru þau á fuglaveiðucn- Bruce, sem er margmilljónamæringur fylgdist með þeim mæðgum um mörg nki, en ekki er vitað, hvort hann hefur fylgzt með þeim ti’ Rómar. Le Thuy er átján ára að aldri, en Bruce Baxter 24 ára. ítalska kvikmyndastjarnan Claudia Cardinale, sem oft hef ur verið nefnd arftaki Birgitte Bardot, hefur hingað til verið með slcgið hár niður að mitti, en nú, eins og sést á myndinni, hefur húr klippt það stutt og eftir nýjustu tízku. Þetta fer henni mjög vel og myndin er tekin á ftalíu, þar sem Claudia býr ásamt systur sinni. Hinn frægi hljómsveitarstjóri og tónskáld, Stravinski, hefur nú opinberað leyndarmál það, sem ríkt hefur í sambandi við ungæðislegt útlit hans. — Hann r.egist borða nokkrar rauðar rósir og heldur því fram, að þær séu enn betri til yngingar. en hinar lifandi frum ur, sem hinn frægi dr. Niehans í Sviss gefur öldruðum sjúkl- ingum smum. Einn af viðskipta vinum Niehans er Konrad Aden auer, fyrrverandi kanslari V- Þýzkaiands. Stravinski fær rós- irnar sínar sérstaklega frá KaH forníu og hver sending er 25 dollarar. en þegar æskan er ann ars vegar borga peningarnir sig. Hin kunnu sönghjón Mary Ford og Les Paul, sem m. a sungu Somewhere ther’s Music. how high the moon og ótal margt fleira, hafa nú ákveðið að slíta samvistum. Þau hafa verið gift í fjórtán ár og plötur beirra hafa selzt gífurlega. TIMINN, sunnudagur 22. desember 1963. 660 VINNA Framhald af 1. síSu. fy ir þá þrjá daga sem þeir hafa bá unnið. Er það töluverð búbót því víðast hvar er unnið til sjö á kvöldin og sums staðar meira að sogja til miðnættis. Samkvæmt lauHegum útreikningum munu þessir 660 verkamenn hafa borið úr oýtum rúm fjogur hundruð þús •,md alls yfir daginn. Verkamenn í byggingariðnaðinum hófu yfir- leilt ekki vinnu í dag sökum þess að þeir vinna ekki á laugardögum. Á morgun verður unnið við höfn- ina svo sem á venjulegum vinnu- degi. og fram að hádegi á aðfanga- dag. Eftirtalin félög undirrituðu samn inga í nótt: Félag afgreiðslu- stúlkna í brauð og mjólkurbúðum, Verkakvennafélagið Framsókn, Ve’kamannafélagið Dagsbrún, Fé- lag mjólkurfræðinga, Iðja, félag verksmiðjufólks í Hafnarfirði. Fé- Iag ísl. rafvirkja, Félag ísl. járn- iðnaðarmanna, Hlíf í Hafnarfirði, Sveinafélag húsgagnasmiða, Sveina félne skipasmiða, Verkamannafé- lag Vestmannaeyja og Verka- kvennafélagið Snót í Vestmanna- eyjum. Öll fengu þessi félög 15% kauphækkun og auk þess var um að ræða sérsamninga hjá hverju félagi eða hjá vissum hópum inn- an hvers félags. Dagsbrún fékk full yfirráð yfir Styrktarsjóði sínum og auk. þess hækka hafnarverkamenn um einn flokk. Almennt verka- mannakaup er nú kr. 32,20, en hja hafnarverkamönnum 34.00 kr. á klst. Eftirvinnuálag er 60% og nætur og helgidagavinna greiðist tneð 100% álagi. Félögin á Norður og Austurlandi hafa auglýst hjá sér 15% kauphækkun og smávægi- legar breytingar á eldri samning- um. Samningar þeir sem undirrit aðir voru gilda til 6 mán. eða til 21. ’úní. Prentarar og bókbindarar sömdu hins vegar til 1. okt. 1964 siikum þess að þeir töldu þann tíma heppilegri til uppsagnar. Samningar hafa enn ekki tekizt með mjólkurfræðingum og við- semjendum þeirra, og ef ekki scmst fljótlega lijá þeim, verður lík’egast engan rjóma að fá í Reykjavík um jólin. Trésmiðir hafa heldur ekki enn skrifað und- ir samninga. Fréttir berast stöðugt utan af landi að verkalýð'sfélögin þar hafi undirritað samninga um 15% kaup Iv^kkun o.r. auk þess með ýmsum sérsamningum. Undirbúningur að almanna- vörnum hefst Samkvæim lcgum nr. 94 1962 skal hefja láðstafanir til almanna- i'rrna, þar sem ríkisstjórnin ákveð ur, í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórn eð;* sýslunefnd. Hefur nú verið ákveðið, eftir að tngarstjórn Reykjavíkur liefur samþykkt að hún telji rétt, að hrfinn verði uodirbúningur að al- mannavörnnm í Reykjavík, að þar • kuli hafnar ráðstafanir til al- niannavarna Verði þær ráðstafan ir íyrst um sir fólgnar í eftirfar- andi framk’-ærr.dum: 1. Gengið frá viðvörunarkerfi 2 Hafin könnun á húsum, einkum kjallarahúsnæði. er talist gæti nothæft sem skýli gegr geislavirki' úrfalli. 3. Leið beiningar f jl almennings. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. 21. desember 1963. MINNINGABÓK Framh. at 24 síðu. ummæli forystumanna stjórn- málaflokkanna. Þá gengust Hornfirðingar fyrir undirskrift um í sérstaka bók og einnig Keflvíkingar. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.