Tíminn - 22.12.1963, Qupperneq 12
I
Sunnudagur 22. des. 1963.
260. tbl.
47. árg.
Póstflutningar að
komast í rétt horf
GOSASKAN
SKEMMIR
BÍLALAKK
KJ-Reykjavík, 21. des.
Enn heldur Skúfsey áfram að
gjósa, og í morgun virtist gosið
vera engu minna en undanfarið,
séð frá Vestmannaeyjum. Loft var
að vísu töluvert þungbúið, en samt
sást vel suður á Skúfsey frá Eyj.
um.
Stöðugt öskufall er frá gosinu,
og cr farið að sjá á bílalakki af
þeim sökum sums staðar er jafn-
vel farið að sjá á húsum af völd
um öskunnar, og má búast við að
r.okxurt tjón verði af, ef gosið
heldur áfram eins og undanfarna
daga. Nýja eyjan er orðin stór og
tignarleg, og sómir sér vel
Jólasvipur er nú kominn á Vest
mannaeyja.'íaupstað," og setja mest-
an svip á bæinn jólatré, sem kom
ið hefur verið fyrir víðsvegar á
almannafæri. Rafveitan í Vest-
mannaeyjum, hefur ætíð nokkurn
viðbúnað við aCsetur sitt austar-
lega í bænum um jólin. Nú verður
skreyting rafveitunnar veglegri en
nokkru sinni fyrr, og er það vel,
því þetta eru fyistu jólin sem Vest
mannaeyingar búa við Sogsraf-
inagn. Á gamlárskvöld er ætlunin
að koma f.vrir gjallarhornum hjá
rafveitunni, og útvarpa þaðan
klúkknahljómum Landakirkju og
tónlist.
HF-Reykjavík, 21. des.
PÓSTMÁLIN eru nú að fær-
ast í eðlilegt horf, eftir þá
röskun, sem verkfallið olli. —
í dag fer flugvél héðan til Dan
merkur, Þýzkalands og Eng-
Iands og í fyrramálið fer önn-
ur til Noregs, Svíþjóðar, Dan-
merkur og Þýzkalands. Þetta
eru aukaferðir, en að sjálf-
sögðu eru nú áætlunarferðir
eins og venjulega- Flugferðir
Felix og Frank vígðir
HF-Reykjavík, 21. des.
Á morgun kí. 10,30 verða tveir
kandidatar vígðir til prests í dóm-
kirkjunni. Þeir eru Felix Ólafsson
nýkjörinn prestur í Bústaðasókn
og Frank M. Halldórsson, nýkjö'r-
inn prestur í Nesprestakalli. Séra
Óskar J. Þorláksson mun lýsa at-
bö'ninni, en vottar verða séra Jón
Thorarensen, séra Magnús Run-
óifsson og séra Guðmundur Ó. Ól-
afsson, Felix Ólafsson mun
préuika.
Prestar þeir, er kjörnir voru í
prestskosningum 1. des. s.l. hafa
nú verið skipaðir í embætti sín,
hæði þeir er náðu löglegri kosn-
ingu og þeir er flest atkvæði hlutu
í sinni ^ókn, en náðu þó ekki lög-
mætri Kosningu.
Nú eru póstmennlrnir f Reykjavlk farnlr að bera út póstlnn og eru
þá heldur betur klyfjaSlr, elns og sjá má hér á myndlnnl.
(Ljósm.: TÍMINN-GE).
verða einnig á liverju kvöldi til
Bandaríkjanna dagana fram að
jólum.
Þó að verkfallið hafi raskað
póstsamgöngum, hefur póstur
samt ekki safnazt fyrir á póst-
stofunni, því að það sem inn
hefur borizt, hefur jafnóðum
verið sent út með Pan Ameri-
can-véhim. Á mánudag, Þor-
láksmessu, verður allur póstur
til Evrópu, sem þá er eftir,
sendur til Glasgow, en sá póst
ur verður ekki kominn til við-
takenda á aðfangadag.
Posti innanlands er enn
hægt að koma áleiðis. í kvöld
fer Hekla til Vestfjarða og
tvær skipaferði: verða til Vest-
mannaeyja fyrir jólin. Lang-
ferðabílar munu og halda uppi
póstsamgöngum með einhverj-
um aukaferðum og eitthvað
mun verða um strjálar flugferð-
ir. Samkvæmt upplýsingum
póststofunnar borgar sig að
leggja allan ósendan póst inn,
hann verður svo sendur út á
land við fyrsta tækifæri sem
gefst.
Póstur sá, sem legið hefur í
strandferðaskipum, meðan á
verkfallinu stóð, er nú allur
kominn til skila. Lítið sem ekk
ert mun vera ókomið af pósti
utan af landi til Reykjavíkur,
en póstur sá er Drottningin
hafði meðferðis, þegar hún kom
frá Danmörku, en varð að snúa
við aftur, verður sendur með
flugvél frá Danimörku á mánu-
dagsmorgun. Hingað verður
hann líklega kominn á hádegi
og reynir þá pósbþjónustan að
gera sitt bezta til að koma hon-
um til skila samdægurs.
Ihaldsmarkið leynist ekki
— á fjárhagsáætlun Reykjavíkur, sem afgreidd var á borgarstjórnarfundi á föstudag
5 ÞÚS. NOFN Í
MINNINGABÓK
TK-Reykjavík, 21. des.
EFTIR iát Kennedys forseta
lá eins og kunnugt er frammi
í bandaríska sendiráðinu minn-
ingabók, er þeir, sem vildu
votta hinum látna virðingu sína
og votta bandarísku þjóðinni
samúð gátu ritað nöfn sín í-
Nú hefur verið gengið frá þess
ari minningabók og verður hún
send utan einhvern næstu daga.
í tilefni af því bauð James
Penfield, ambassador Banda-
ríkjanna, fréttamönnum að líta
á bókina. Snoturlega er frá bók
inni gengið og munu um eða
yfir 5000 hafa ritað nöfn sín í
bókina. Framan við nafnalist-
ann hafa verið þýddar á ensku
minningaræður biskupsins yfir
íslandi, herra Sigurbjörns Ein-
arssonar, forseta sameinaðs
þings, Birgis Finnssonar svo og
Framhald á 3 síðu.
Fiárhagsáætlun Reykjavíkur- á fimmtudag en stóð til klukkan I harðri gagnrýni minnihlutaflokk-
borgar fyrir árið 1964 var afgreidd háifátta á föstudagsmorgun. Um- anna.
á iundi borgarsíjórnar aðfaranótt ræður urðu miklar og ailheitar á Minnihlutaflokkarnir báru allir
fimmtudagsins 19. desember.
köflum, og sætri fjárhagsáætlunin fram allmiklar breytingartillögur
ílófst fundurinn klukkan 5 síðd. og fjármálastjórn borgarinnar I
Framhald á bls. 23.
Austfjarðapdstur selfluttur
MS-Reyðarfirði, 21. des.
í nótt og dag befur póstur verið
selfluttur á snióbíl frá Heljardal
á Hólsfjöllum að Gilsá í Jökuldal,
cn þaðan verður pósturinn fluttur
i vörubíl til Austfjarða. Fjallabíll
frá Akureyri hafði áður flutt póst-
inn austur, á meðan á verkfall-
inu stóð, en bilaði í gær og komst
ekki lengra en að Heljardal.
AKureyrarbíllinn hafði komið
með tvær lestir af pósti til Heljar-
dals á Hólsfjöllum í gær, og var
hann á leið til Austfjarða. En þeg
ar (.angað kom brotnaði öxuli bíls-
ins og komst hann ekki lengra.
í gær iagði snjóbíll upp frá
Reyðarfirði, og var ætlunin, að
hann selflytti póstinn frá Heljar
dal að Gilsá. Snjóbíllinn var flutt-
ur á vörubil að Gilsá, sem er efsti
bær við þjóðveginn á Jökuldal.
Þaðan voru svo farnar fjórar ferð-
ir eftir pósti að Heljardal, og lauk
flutningunum um miðjan dag í
dag Síðan verður snjóbíllinn aftur
seUur á vörubílinn, sem flytur
hain til Reyðaifiarðar, en annar
vöruhíll tekur póstinn. og kemur
honum til Austf'arða. Allir vegir
eru nú auð:i fv~ir austan.
Rílstjóri snjóbílsins er Stein-
grimur Bjarnason, en með honum
eru Gunnar Stefánsson og Stefán
Guirormsson, sem aka vörubílun-
um.
DRESIÐ IHAPPDRÆTTINU A M0RGUN
NU FER a3 verða hver síðastur geta annað kvöld. \ Miðbænum og kosta AÐEINS
að ná sér I miða I Happdrætti. * VINNINGAR ERU: Opel Record 25 KRÓNUR.
Framsóknarflokksins. 1964. Wlllys-jeppl og mótorhjól. SKRIFSTOFAN I Tjarnargötu
26 veröur opin til kl. 10 í kvöld,
■jlc DREGID verður hjá borgarfó- MIÐAR eru seldir úr bílunum og til mlðnættis á morgun.
I. v
t »
j j