Alþýðublaðið - 28.02.1943, Blaðsíða 2
AU»YÐUBLAÐID
Sunnudagur 28. febrúar 194S„
styrkjanna milll fé-
lagideilda pess.
Of litlar npphœðlr
i of marga staði.
AFUNDI menntamála-
ráðs síðastliðinn fimtu-
dag var upphæð þeirri, sem
alþingi fól ráðinu að skipta
milli hinna ýmsu deilda lista
manna til úthlutunar eftir
mati þeirra sjálfra, skiptist
þannig:
Til rithöfúnda kr. 62.500,00
Til myndlistarm. kr. 20.000,00
Til tónlistarm. kr. 10.000,00
Til leikara kr. 5.000,00
Þetta er í fyrsta sinn, sem fé-
lagsskapur leikara fær styrk til
úthlutunar.
Það er ekki út vegi að taka
það fram í sambandi við þessa
skiptingu menntamálaráðs, að
upphæðin er smánarlega lítil,
en það er ekki sök menntamála
ráðs. Það var aldrei öfundsvert
af því að úthluta laununum til
listamannanna og nú eru félög
listamannanna það ekki heldur.
m*.
manaa næstkom-
andi fímmtndag.
Jóhann Sæmnndsson félags
málaráðherra flytur ræðu.
ARSHÁTÍÐ Blaðamanna-
félags íslands verður
að Hótel Borg næstkomandi
fimmtudag.
Verður henni hagað eins og
venja er um árlegar samkomur
hlaðamanna í höfuðborgum er-
lendis, en þá mæta ýmsir helztu
forystumenn þjóðarinnar, full-
trúar erlendra ríkja, auk 'blaða-
mannanna, en forsætisráðherra
flytur þá venjulega ræöu um
helztu viðfangsefni þess tíma.
Jóhann Sæmundsson, félags-
málaráðherra flytur aðalræðuna
á hátíðinni.
'Mjög mikil samvinna er
venjulega milli blaðamanna og
listamanna og munu leikarar
og aðrir listamenn mæta á árs-
hátíðinni og skemmta. Verður
nánar skýrt frá því síðar. Gert
er ráð fyrir að hægt verði að
afhenda aðgöngumiða á mið-
vikudaginn.
Nýstárleg songskemmtnn næst-
komandi priðjndagshvolð.
------•-----
Fru Hallbjorg Bjarnadóttir stæiir radd-
ir heimsfrægra söngvara.
Samtal við frúna um söngskemmtvmina.
REYKVÍKINGAR eiga kost á' nýstárlegri skemmtun
næstkomandi þriðjudagskvöld íGamla
Bíó. I (
Frú Hallbjörg Bjarnadóttir efnir þá
til næturhljómleika með aðstoð hljóm-
sveitar og kynnis og verður söngskemmt-
un hennar alveg einstök í sinni röð hér
á landi. Hinsvegar eru slíkar söngskemmt-
anir víðkunnar erlendis og mjög vinsælar.
Frú Hallbjörg Bjarnadóttir er
fyrir löngu orðin þekkt söng-
kona hér.
Alþýðublaðið kom að máli
við frúna í gær og spurði hana
um þessa söngskemmtun henn-
ar:
„Aðalviðfangsefnið á slíkum
söngskemmtunum er kynning
eða stæling radda þekktra
sönglistarmanna. Þetta krefur
mikillar raddleikni og söng-
skilnings. Mér er það fyllilega
Ijóst að ég ræðst x erfið hlut-
verk, en þessi grein söngmennt-
ar er mjög kunn erlendis og
álitin sérstök listgrein hennar
— og mjög vinsæl. Eg mun
syngja bæði klassisk lög og
gleðisöngva og yfirleitt leggja
mig alla fram um að skapa sem
mesta fjölbreytni.“
— Raddir hvaða sönglistar-
manna ætlið þéu að kynna?
„Þær eru flestar þekktar hér.
Kvikmyndalistin hefir gefið
okkur íslendingum tækifæri til
að kynnast þeim. Gestir mínir
munu þá og geta borið saman!
Eg mun kynna raddir margra
þekktustu söngvara innlendra
og erlendra, en að sjálfsögðu
hef ég orðið að velja þá, sem
liggja næst raddsviði mínu. —
Get ég þó minnzt á ummæli
kennara minna og annarra, —
sem vit hafa á að raddsvið mitt
er allvítt. Raddir þessara söngv
ara mun ég kynna:
María Markan, Marion And-
erson, Greta Keller, Elsa Sig-
fúss, Marlene Dietrich, Stefano
Islandi, Eggert Stefánsson, Ink
Spots, A1 Jolsson, Bing Crosby,
Carmen Miranda og ef til vill
fleiri.“
— Þér syngið þá á allmörg-
um tungumálum?
„Nokkrum, íslenzku, dönsku,
ensku og þýzku. Eg vil geta þess
að á söngskemmtuninni verða
mjög tíð búningaskipta, því að
ég verð að skipta um búninga
við hvert hlutverk, eins og leik
ara í leikhúsum — eða söngv-
arar á söngleikum.“
— Þér hafið þurft að hafa
mikinn undirbúning að þessari
söngskemmtun ?-
„Já, langan og erfiðan,“ seg-
ir frúin og brosir. „Eg vil ekki
Iiggjá á liði mínu — og ég þrái
að láta aðeins það bezta í té,
en svo verður reynslan að
skera úr um hvernig mér tekst
það.“
— Syngið þér lög eftir yð-
ur sjálfa?
„Já, ég ætla að syngja þrjú
ný lög, sem ég h»f samið. Eg
nýt aðstoðar ágætrar hljóm-
sveitar, sem Einar Markússon,
stjórnar. Kynnir minn verður
hinn vinsæli skopleikari, Lárus
Ingólfsson.“
Frú Hallbjörg Bjarnadóttir
kom heim frá Danmörku 1940,
.eftir 7 ára dvöl erlendis. —
Stundaði hún þar söngnám um
hríð. Söngskemmtanir héllt frú
Hallbj. Bjarnad. hér við mikla
aðsókn, enda er rödd hennar
mikil og sérkennileg. Faðir
hennar, Bjarni Hallsteinsson,
Frh. á 7. síðu.
Nýtt þjófafélag
Sex ungir menn uppvis
Ir aO
Ðæmdir í gær í samtals tæplega
tveggja ára fangelsi.
.,♦.........
SAKADÓMARI kvað í gær upp dóm yfir 6 mönnum,
sem allir, annað hvort hver og einn eða í félagi höfðu
gerzt sekir um þjófnaði.
Allt eru þetta kornungir
menn, flestir mjög óreglu-
samir og nokkrir, sem lög-
reglan hefir áður komist í
kynni við.
Hér var raunverulega um
nýjan þjófafélagsskap að ræða,
þó að hann væri ekki eins mik-
ilvirkur og sá, sem dsémdur var
um áramótin.
Þessir 6 ungu menn heita:
Þorvaldur Marinó Sigurbjörns-
son, Jón Ág. Ágústsson, Ragn-
ar Emil Guðmundsson, Ólafur
Byron Guðmundsson, Svavar
Hafsteinn Björnsson og Hörður
Guðm. Guðmundsson,
Afbrot þeirra voru í aðalat-
riðum þessi:
Svavar H. Björnsson braust
í janúar inn í veitingastofu Al-
þýðubrauðgerðarinnar, Lauga-
vegi 63 og stal hann þar tveim-
ur vindlakössum, sígarettu-
pökkum, súkkulaði og um 10 kr.
í skiptimynt. Þá stal hann í
des. kventösku á dansleik í
Iðnó og var í henni nokkuð fé.
Rétt fyrir jólin stal hann vín-
flösku úr vasa erl. sjómanns og
var sá þjófnaður framinn á
billiardsstofu.
I nóvember fór Svavar þessi
ásamt Þorvaldi Sigurbjörnssyni'
um borð í vélbát hér við hafn-
argarðinn og stal þar úr fötum
um 60 krónum í peningum.
Þorvaldur Sigurbjörnsson og
Jón Ágústsson fóru saman í
janúar um borð í vélbát, sem
þá lá hér við bryggju og stálu
þar tösku, sem í var iatnaður.
Þorvaldur seldi síðan fatnað-
inn til fornsala og fékk fyrir
hann 60 kr. Þetta var eina af-
brot Jóns.
I des. hafði Þorvaldur einnig
farið um borð í vélbát og stolið
þar skinnúlpu og var hún talin
um 200 kr. virði. Þá stal hann
þar og peningaveski, sem í voru
450 kr.
Þorvaldur fór og eitt sinn
með Ólafi Byron enn um borð í
vélbát og stálu þeir þá veski,
sem í voru 300 kr. Virðist þessi
fylgd Ólafs við Þorvald hafa
verið eina afbrot hans.
Ragnar Emil Guðmundsson
stal fjórum sinnum úr verzlun-
inni Leó & Co.,/ Laugavegi 36.
Náði hann þar veskjum, næl-
um og sokkum. Hörður G.
Guðmundsson var tvisvar með
Ragnari vfð þessa iðju, en hin
skiptin var Þorvaldur með
honum.
Þessir 6 piltar voru dæmdir
eins og hér segir:
Þorvaldur Marinó Sigur-
björnsson sæti 6 mánaða fang-
elsi og er sviptur kosningarétti
og kjörgengi.
Jón Ágústsson sæti 4 mána'ða
fangelsi og er sviptur kosninga-
rétti og kjörgengi.
Ragnar Emil Guðmundsson
sæti 3 mánaða fangelsi, skil-
orðsbundið, og er sviptur kosn-
ingarrétti og kjörgengi.
Ólafur Bvron Gvð™" ~ '7"?on
sæti .2 mánaða fangelsi, skilorðs
bundið, og er sviptur kosning-
arptti og kjörgengi.
Svavar Hafsteinn Björnsson
sæti 4 mánaða fangelsi og er
sviptur kosningarrétti og kjör-
gengi.
Hörður Guðmundur Guð-
mundsson sæti 3 mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið, og er
sviptur kosningarrétti og kjör-
gengi.
Auk þess eru þeir dæmdir til
að greiða málskostnað og skaða
bætur til þeirra, sem hafa gert
kröfur til þess.
Aðalfnndar Alþýðu-
Alþýðuflokksfélag
REYKJAVÍKUR heldur
aðalfund sinn annað kvöld í
Iðnó, uppi, gengið inn fx*á Von-
arstxæti.
Fundurinn hefst klukkan 8V2
Formaður flytur erindi um störf
félagsins á árinu, sem leið, og
um stjórnmálaviðhorfið. Auk
þess verða venjuleg aðalfundar"
störf.
Félagar, fjölmennið á fund-
inn.
R a n dknattleiks raðtift
í gærkvðldi.
I
34 flokkar frá 9 félðgam
íaka gátt i þvi.
GÆRKVELDI kl. 9 hófst
handknattleiksmót Islands
1943 (innanhúss) í húsi Jóns
Þorsteinssonar. Að þessu sinni
senda 9 félög úr Reykjavík og
Hafnarfirði (Haukar, Fram, F.
F., Víkingur, K.R., íþróttafél.
háskólans, Valur, Ármann og
I.R.) 34 flokka til keppni. Keppt
verður í meistarafl. karla, I. fl.
og II. fl. og einnig kvenflokkar
A. og B. í fyrra vann Valur £
meistaraflokki, Í.R. í I. fl., Ár-
mann í II. fl. og kvenfl.
Líknarstarf Mæðrastyrksnefndar':
Dm jólin safoaði nefndin nm
16 pús. kr. aik annara gjafa
200 heimiii, 197 konur og 279
nutu hjálpar nefndarinnar.
börn
Meðrastyrks-
NEFNDIN, senx um
margra ára skeið hefir unnið
líknarstarf meðal einstæðra
og fátækra mæðra í Reykja-
vík séndi blöðunum í gær
greinargerð um síðustu jóla-
söfnun hennar.
Sanxkvæmt hemii varð söfn-
unin helmingi meiri en árið áð-
ur, en hjálpin gat þó ekki náð
til jafn margra og þá.
Sámkvæmt greinargerðinni
söfnuðust alls kr. 15.880.00 í
peningum, en auk þess bárust
nefndinni ávísanir á vörur í
búðum að upphæð tæpar 400
krónur og ennfremur ýmsar
aðrar gjafir, matur, fatnaður
o. fl. Hjálparinnar nutu alls
um 200 heimili, 197 konur og
279 börn.
Greinargerðinni lætur nefnd-
in fylgja eftirfarandi:
Kaup Dagsbrúnarmanna
marz 1943.
r
1
♦ * ♦
Nætur-
Dagv. Eftirv. helgidv.
Almenn vinna ....... 5.50 8.25 11.00
Setuliðsvinna 9.01 11.31
Kol, salt, sement .. .. . 7.21 10.82 14.42
Fagvinna 7.60 11.40 15.20
Boxa-katlavinna ..... 9.43 14.15 18.86
„Mæðrastyrksnefndin þakkar
hjartanlega öllum þeim, sem
gefið hafa til þessarar jólasöfn-
unar af svo miklu örlæti. En
þrátt fyrir það, að upphæð sú,
sem safnaðist í ár, var helm-
ingi hærri en upphæð jóla-
söfnunarinnar í fyrra, hefir
dýrtíðin aukizt svo, að úthlut-
unin urn þessi jól náði til þriðj
ungi færri heimila en í fyrra
(300 þá), og er því hætt við aö>
ýmsar konur hafi orðið útund-
an, sem þörf hefðu haft á aö
fá slíka hjálp, því þó batnað
hafi í búi hjá sumum, hefir
líka fjölgað í hópi hinna nauð-
stöddu. Það er óhætt að full-
yrða, að engir muni lifa við erf
iðari kjör, hér í bæ, heldur en
konur þær, sem hér er um að
ræða: ekkjur, ógiftar mæður,
fráskildar konur, húsmæður á
heimilum, þar sem heimilisfað-
irinn er óvinnufær, ömmur,
sem eru að ihafa fyrir ‘barna-
börnum sínum, sjúklingar og
öryrkjar, gamlar einstæðings
konur. Þó eru sennilega erfið-
ust kjör einstæðra mæðra, sem
eiga að framfleyta lífi sínu og
barna sinna á barnsmeðlögun-
um einum saman, að viðbættri
húsaleigu, þegar framfærslu-
nefnd vill veita slíkan auka-
styrk. Konur, sem hafa eitt
barn á framfæri sínu, munu þ®
sjaldan fá húsaleigu nema þær
séu alveg heilsulausar. Þegar
þess er gætt, að barnsmeðlög
eru nú 84 kr. á mánuði fyrir
börn á aldrinum 1—4 og 7—14
ára og lægri fyrir börn á öðrum
aldri, þá sézt bezt hve Iítið þær
Frh. á 7. síðu.
f