Alþýðublaðið - 19.03.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.03.1943, Blaðsíða 5
r Föstudag’ur 19. marz 1943» ALÞÝÐUBLAÐIO s —f KÆEA SYSTIR! Þú spyrð mig að því, hvernig lífið sé núna í því Frakklandi, sem þú þekktir einu sinni. Ef þú kæmir hingað, mynd- irðu veita því strax eftirtekt, að þeir, sem áður óku í bifreið- um ferðast nú á reiðhjólum. Það eru engir einkabílar til lengur, engir leigubílar og fáir almenningsvagnar. Menn hafa reiðhjól sín með sér, hvert sém þeir fara, og þegar þeir koma heim, fara þeir með þau ofan í kjallarann, inn í íbúðina eða jafnvel inn í svefnherbergið. Kvikmyndahúsin og gistihúsin hafa ráðið til sín sérstaka menn til þess að gæta reiðhjólanna, því að þeim er stolið, ef þau eru skilin eftir andartak. Hinsvegar eru til handvagn- •ar og farþegavagnar, sem knúð- ir eru með handafli eins og kín- verskir farþegavagnar. Þeir ör- fáu vagnar, sem enn þá eru í umferð, eru svo hlaðnir, að að- eins helmingur farþeganna fær sæti, og þeir, sem sitja, verða að taka í kjöltu sína alla böggla farþeganna. I Frakklandi snýst allt um skömmtunina um þessar mund- ir, enda hugsa fáir um annað. Allar vörur eru skammtaðar og skammturinn er svo naumur, að allir sem efni hafa á, reyna að fara í kringum skömmtun- ina, þrátt fyrir strangt eftirlit og þungar refsingar, ef upp ’Jkemst. í öllum búðum og markaðs- torgum eru þýzkir lögreglu- menn, sem njósna um kaup- mennina og viðskiptavinina. Sérhvert veiðiskip er rannsak- að af Gestapomönnum, þegar það kemur að landi. Einkennis- búnir lögregluþjónar gæta fiski mannanna og leynilögreglu- men ngæta einkennisbúnu lög- reglumannanna og sjá um, að þeir geri skyldu sína. Allsstað- ar er þýzka lögreglan á verði. Eins og áður er sagt, er •skömmtunin mjög takmörkuð. JEn hitt er þó verra, að engin trygging er fyrir því, að vör- urnar fáist, sem menn hafa ,-skömmtunarmiða fyrir. Til þess að byrja með verða menn að standa í löngum röð- um og bíða lengi eftir því að þeir fái skömmtunarbækur sín- ar. Því næst þurfa menn að bíða lengi eftir því að fá bækurnar áritaðar. Svo verða menn að lok um að bíða lengi fyrir framan búðimar áður en þeir komast inn til þess að kaupa nauðsynja vörurnar. Þannig geta menn eytt hálfum degi í vörukaup og fá þó ekki nærri því allt, sem þeir þurfa að fá. Ef menn eiga reiðhjól, geta þeir farið á verzlunarstað utan borgar. En það getur borgað sig, því að þar geta menn til vill fengið nýja ávexti í stað þurkaðra ávaxta. Þó er þessi Nimitz heiðraður. Nimitz, sjóliðsforingi, sá sem stjórnar flota Bandaríkjamanna á Suðvestur-Kyrrahafi, hefir getið sér góðan orðstír fyrir stjórn sína á flota Bandaríkjamanna í hinum mörgu viðureign- um við Japana þar. — Á myndinni sézt King yfirflotaforingi Bandaríkjam. vera að sæma Nimitz heiðursmerki. Neyðin í Frakklandi uncU ir obi þýzbu nazistanna. E FTIRFARANDI GREIN er sendibréf frá franskri konu íil systur hennar, sem er eiginkona þekkts fram- leiðanda í New York. Bréfið lýsir vel ástandinu í Frakk- landi undir oki Þjóðverja. S % Kven-Hosnr Baraa-Sokkar Drengja-MSt (BirQðir takmarkaðar). s VERZL, Grettisgötu 57. SKðnpnm tnskur í hæsta verði. BaldorsQots 30. verzlunaraðferð áhættusöm, því að ef lögreglan kemst á snoðir um þetta, er úti um sökudólg- inn. Mánuðum saman, eftir að Þjóðverjar hertóku landið, sá ég ekki kartöflur eða grænmeti á markaðinum. Gerfikaffi er allsólíkt kaffi að öðru en litnum. Það er selt í pökkum. Á botni pakkans er ryk, svo er malað bygg, en of- an á liggja fáeinar kaffibaun- ir, sem hellt er á dag eftir dag. Sykúrinn er þannig, að hann bráðnar ekki. Brauðið er grá- brúnt á lit, þungt í sér og hart og í því eru strá og hár. Það er eins ‘og leir á bragðið. En þrátt fyrir þetta er það ágætis verzlunarvara. Það er hægt að selja það fyrir vindlinga, sard- ínur eða nærri því að segja hvað sem er. Sérhver maður fær, sam- kvæmt skömmtuninni, eitt egg á mánuði. En menn fá sjaldnast eggið sitt. Hænurnar eru svo illa fóðraðar, að þær verpa yfir- leitt ekki. Menn eru svo gráðug ir í skömmtunarseðla, að það verður að geyma þá undir lás og slá. Þjóðverjar hirða bezta vínið. Frönskum verkamanni, sem er vanur að fá einn lítra af léttu víni með hverri máltíð, þykir iítið að fá aðeins fjóra lítra á mánuði. Og ekki fær hann meira en, sex pakka af vindling- um á mánuði. Konur fá enga vindlinga. í búðum kostar pakki af vindlingum sjö franka. En þeir, sem ekki reykja, selja sína pakka 70 franka hvern — til veitingahúsþjóna, sem selja þá aftur á 100 franka. Fataskömmtunin kemur harð ast niður á kvenfólkinu, sem alltaf vill ganga vel til fara. Konurnar þurfa alltaf að hafa einhver undanbrögð til þess að geta fatað sig sæmilega og föt- in eru þeim afar dýr. Ekki er hægt að fá skó öðru- vísi en með trésólum, Gas og rafmagn er skammtað og verð- ur að fara mjög sparlega með það. Matarílát og föt eru þveg- in úr köldu vatni. Á vetrum fá menn frostbólgu í hendur, á þær dettur sár og stundum hleypur eitrun í sárin. Unga fólkið þjáist af kirtlaveiki, sem er afleiðing af bætiefnaskorti. í fyrravetur var gerður ofur- lítill skurður á öðrum fótlegg mínum. Til þess að losna við að fá kvef, fór ég loðfeldinum mínum til sjúkrahússins. Eg þarf að fara þangað daglega dálítinn tíma, til þess að láta skipta um umbúðir. En það var aðeins skipt um umbúðir yfir sárinu. Hinar umbúðirnar voru alltaf hinar sömu. Og þegar ég var orðin heilbrigð, varð ég að skila umbúðunum, svo að hægt væri að nota þær á aðra. Erfitt er að ná til lækna, en þó er erfiðara að fá lyf. Lækn- ar láta venjulega þrjá lyfseðla í þeirri von, að einhver þeirra verði afgreiddur. Tannlæknar eiga ekkert gull til þess að láta í tennur fólks og verða menn því að koma með dýra skart- gripi, sem eru bræddir og not- aðir til tannviðgerða. Ef kona ber gulltönn í munni er jafnan sagt, að hún hafi látið bræða giftingarhringinn sinn, og menn segja sín á milli: Hún er gift, þessi kona. í Frakklandi hafa menn ekki enn þá dáið úr hungri, en hús- dýrin eru að hverfa úr sögunni. Hestar fá ekki nægilegt viður- væri og eru því að hverfa úr sögunni. Þeim er slátrað til mat ar fyrir aldur fram. Kettir eru orðnir sjaldséðir bæði vegna þess, að þeir fá ekki nægilegt viðurværi og auk þess líkjast þeir mjög kanínum í/ suðunni. Það er bannað með lögum að gefa dýrum brauð eða annað mj ölmeti. Allt samkvæmislíf má heita úr sögunni vegna skorts á mat- vælum. Ef vinir eða kunningj- ar bjóða manni til kvöldverð- ar, verður maður að koma með matvæli með sér eða að minnsta kosti skömmtunar- seðla. Stöku sinnum kemur það fyrir að gestirnir gleyma þessu, en þá er þeim ekki boðið oftar. Stundum banna þýzku yfirvöld in allt í einu umferð um göt- urnar, og verða gestirnir þá að dvelja alla nóttina í heimboð- unum. I þessum heimboðum er naumast um annað rætt en mat eða fatnað. Stöku sinnum er þó minnst á stjórnmál. Allir gera sér það ljóst, að enga hjálp er að £á fyrr en hún kemur ut- an frá. Eg þekki fáar manneskjur, sem ekki fyrirlíta Þjóðverjana af öllu hjarta. Vegna áhrifa Þjóþyerja gerði franska stjórn- in ítrekaðar tilraunir í þá átt að gera þjóðina vinveitta Þjóð- verjum. En sú tilraun mistókst . gersamlega. Frakkar fyrirlíta allt, sem þýzkt er. Þegar ég er búinn að skrifa þetta bréf, ætla ég í bað, en ég á enga sápu og get ekki hitað vatnið. Eg verð því að baða mig úr köldu, sápulausu vatni. Að því loknu verð ég að þurka mér með þurku úr pappír og bera krem á andlit mitt. Hárnálar á ég engar aðrar en þær, sem ég hefi fundið af tilviljun á göt- um úti, en auðvitað hefi ég soð- ið þær og sótthreinsað. Rekkju- voðirnar, sem ég hefi í rúmi mínu, eru úr gerfibaðmull. Líf okkar er ekkert annað en heimskuleg bið í þeim kirkju- garði, sem einu sinni vár kall- aður Frakkland. Menn eiga eng ar þrár eða langanir, aðrar en þær að öðlast daglegt viður- væri. Og þrátt fyrir þetta veit ég að landar mínir eiga eina vonarstjörnu, sem þeir mæna á — frelsið. Ekkert ameríkskt útvarp a íslenzku. Allt í lagi með það! Einangrunin og hinir erlendu menn. Þeir, sem beita bitrustu egginni. E G HEFI EKKERT lagt til mál- anna í skrifunum um amer- íkska útvarpið1 frá íslenzku út- varpsstööinni. I*að er þó ekki vegna þess að ég hafi ekki ákveðna skoðun á því máli. Hinn duglegi forstöðumaður upplýsingaskrif- stofu Bandaríkjamanna hér hefir hefir nú skrifað Jónasi Þorbergs- syni og tilkynnt honum, að í tim- um Ameríkumanna verði ekki út- varpað neinu á íslenzku. Allt í lagi. Við erum ánægðir með það. Svona eiga menn að snúast við málunum. Hann segir, að fyrst það hafi komið í Ijós, að íslenzka þjóð- in sé ekki öll ánægð með það fyr- irkomulag, þá sé bezt að sleppa þessum liðum. Þetta er gott. EN SVO ER, eins og einhver smágremja leynist á bak við. Hann vitnar í útvarpstíma frá ameríksk- um útvarpsstöðvum handa vin- veittum þjóðum. Við látum okkur alveg á sama standa um útvarps- tímana frá London og Berlín á ís- lenzku — okkur er gersamlega sam ; um þá. Nærri allir, sem hlusta á þessa tíma frá London og Berlín — og þeir eru ekki margir, sem það gera, eru alveg undrandi yfir því hvers vegna mennirnir eru með þessa fyrirhöfn. Þessir út- varpstímar hafa gersamlega mis- íekizt. Efni þeirra er oft á tíðum svö einfeldnislegur áróður, að undrum sætir. ÞEIR GETA hvenær sem er þyrjað að útvarpa á íslenzku frá Moskvu eða New York. Við látum okkur alveg á sama standa um það. Moskva þarf þess þó ekki. Hún hefir hér heilan stjórnmála- flokk, sem sér um áróður hennar. Það er nauðsyrilegt að íslendingar gleymi því ekki í þeirri þjóðernis- baráttu, sem þeir heyja nú. Þar er ef til vill bitrustu egginni stefnt að brjóstum okkar. Þar halda ís- lendingar um hjörinn. í andlegri baráttu stafar okkur ekki eins mikil hætta af erlendum mönnum og frá mönnum, sem kalla sig ís- lendinga. ÞAÐ ER ALVEG ÓÞARFI að vera að ræða þetta miklu meira. Ef hinir erlendu. menn skilja ekki aðstöðu okkar, þá þeir um það. Við höldum okkar strik. Ég sagði það 11. maí 1940, daginn eftir að Bretarnir komu hingað, að eina vopn okkar gegn erlendu fjölmenni í landinu væru heimilin okkar. Einangrun okkar á heimilunum og við vinnuna væri eina vopn okkar. REYNSLAN HEFIR áþreifan- lega sannað, að þetta var og er rétt. Heimilm okkar eru svo fá. Hinn erlendi her er svo fjölmenn- ur. Við skiljum fullkomlega að- stæður hermannanna, en við get- um ekki gert heimilin að her- mannaskálum. Ef við gerðum það, værum við búnir að vera. Ég hygg jafnvel að íslendingar myndu Fdá. af 5. sá$u.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.