Alþýðublaðið - 09.05.1943, Page 3
Smmudagur 9. mai 1943. ________ALÞYÐUBLAÐIÐ
c
í
heflr verið pjappað saman
á Hammametskaga.
> ..........—■» — "
Frægustu. herdeildir 8. hersins
börðust með 1. hernum og urðu
fyrstar inn i Tunisborg.
LONDON í gærkvöldi.
LEIFUM ÞÝZKU OG ÍTÖLSKU hersveitanna hefir nú
verið. þjappað saman á Hammametskaga. Litlar líkur
eru fyrir því að þær eigi sér nokkurrar undankomu auðið.
Bandamenn hafa tekið þúsundir fanga, að minnsta kosti 10
ítölskum tundurspillum hefir verið sökkt, sem gerðu tilraun
til þess að flytja möndulherjana á brott. Það voru herdeildir
úr 8. hernum, sem fyrstar ruddust inn í Tunisborg.
Þjóðverjar hand-
teknir í Túnis.
Leifom möndulíierjanna
Þýzku flugmennirnir, sem sjást á myndinni ásamt einum þýzkum starfsmanni voru tekn-
ir hönduin í Tunis af amerískum hermöhnum eftir að þeir urðu að nauðlenda ]>ar.
liirif Svfa á Fiuna
í strfðÍHB.
álii fjogurra ameríshra
blaðamanna, sem nú
dvelja í Svijtjóð.
JÓRIR amerískir blaða-
menn eru nú í Svíþjóð
1 boði sænsku stjórnarinnar
• og gagnkvæmt munu fjórir
sænskir blaðamenn heim-
sækja Bandaríkin. Þessir
fjórir amerísku blaðamenn
eru Charles Gratke frá
Christian Science Monitor,
Raymond Clapper fyrir
Scripps-Howard blaðasam-
steypuna, Marque Childs,
frá New York Herald-Tri-
bune, og Blair Bolles frá
■ Washington Post.
Hér á eftir fer útdráttur úr
grein Gratke, sem birtist nýlega
í Christian Science Monitor:
„Hinar stjórnmálalegu tilraunir
Þjóðverja til að slá loku fyrir
norðurdyrnar á „virki Evrópu“
hafa mistekizt. Jafnvel skó-
sveinar Göbbels, sem reynt hafa
að knýja Svía til meira sam-
starfs við Þjóðverja, gera sér
þetta ljóst. Ahrifa hinna sam-
einuðu þjóða gætir stöðugt
meira í Svíþjóð, þrátt fyrir til-
raunir Þjóðverja að eyðileggja
þau.
I Svíþjóð var yfirlýsingum
Stalins um, að hann myndi
ekki semja sérfrið við Þjóð-
verja, tekið með miklum fögn-
nði, því að Svíar telja, að hætta
þeirra myndi aukast, ef slíkur
sérfriður yrði saminn, og Þjóð-
verjar fengju tóm til að snúa
sér að Svíþjóð. í þessu sambandi
minnast þeir orða Per Albin
Hansons á dögunum, er hann
sagði, að Svíar myndu grípa til
vopna, ef á þá yrði ráðizt. For-
sætisráðherrann lýsti því yfir
með berum orðum, að þjóð
. hans sé tilbúin að skerast í leik-
inn, þegar nauðsyn ber til. Han-
son nafngreinir enga, en allir
vita að hann á við Þjóðverja.
Það er talið að 95% af þjóð-
inni séu fylgjandi Bandamönn-
um. Þetta er álit eins af glögg-
skyggnustu fréttariturum Sví-
þjóðar, en hann játar, að hann
sé ef til vill of bjartsýnn. En
þegar svartsýnin er mest, þá er
ætlað, að ef til vill séu um 10
af hundraði fylgjandi málstað
,• möndulveldanna.
Hlutleysisstefna stjórnarinn-
, ; ar, sem leyfir póstflutning á
Mssar sækja ör 3
áttom til Novorossik
LONDON í gærkv.
RÚSSAE sækja nú úr þrem-
ur áttum til hafnarborg-
arinnar Novorossisk. Þeir sækja
bæði að borginni úr suðri,
norðri og eftir dalnum frá
Krimskaya.
Rússum hefir tekizt að rjúfa
aðalsamgönguleiðin á milli
hersveita Þjóðverja fyrir norð-
an og sunnan Kubanfljót. Með
þessum sigri Rússa verða varn-
ir Þjóðverja mjög erfiðari en
áður.
Þá hafa Rússar það eftir föng
um, sem þeir hafa teki.ð að
Þjóðverjar leggi svo mikið
kapp á að halda stöðvum sín-
um í Vestur-Kákasus að þýzku
herforingjarnir hafa fengið
skipun um að skjóta hvern
þann hermann sem gæfist upp
eða reyndi að flýja.
í fyrrinótt vörpuðu sprengju
flugvélar Rússa sprengjum yfir
Dnjepropetrovsk og Kremenc-
hug. *
Rússar segjast hafa eyðilagt
377 flugvélar fyrir Þjóðverjum
ó tveimur dögum.
Kisenhower afheodir
Frökknm vop.
London í gærkveldi.
ISENHOWER hefir í tilefni
af því að franska hernum
í Norður-Afríku hafa verið af-
hentar miklar birgðir hergagna
haldið ræðu, þar sem hann fór
miklum lofsorðum um frammi-
stöðu Frakka í styrjöldinni í
Tunis.
Eisenhower kvaðst vera sann-
færður um það, að ekki yrði
langt að bíða þar til frönsku
hersveitirnar í Norður-Afríku
færu sigurför inn í Frakkland
allt til Parísar að leiði óþekkta
hermannsins.
Bðodaríkjameoohafa
komið sér opp flog-
velli 100 km frá
Kiska.
LONDON í gærkv.
O AMKVÆMT opinberri til-
^ kynningu frá Washing-
ton í gærkvöldi hafa Banda-
ríkjamenn komið sér upp flug-
velli á Anchitká-ey, sem er ein
Aleuteyjanna.
Taka þessarar eyju er m.jög
mikilvæg ,þar sem hún liggur
aðeins um 100 km. frá Kiska.
þar sem Japaiþr hafa bæld-
stöðvar.
Bandarikjamenn fóru þarna
á land í janúarmánuði en ekki
var sagt frá því fyr en þeir
höfðu lokið við flugvallargerð
á eynni.
Bandaríkjamenn eru nú byrj-
aðir árásir frá þessari bækistöð
sinni á Kislca en liún á þó fyrst
og fremst að vera útvörður
gagnvart siglingum til setu-
liðs Japana á Kiska með því
að hindra að skip komist til
þess frá Japan.
Bandaríkjamenn halda þó
jafnframt áfram árásum frá
þeim stöðvum, sem þeir liöfðu
áður komið sér upp á Aleuta-
eyjum nær Alaska.
Fögnuður meðal
Bandamaima.
MIKILL FÖGNUUR ríkir í
Bretlandi og Bandaríkjun-
um yfir sigrunum í Tunis.
Einnig í Rússlandi liefir sigur
þessi vakið mikinn fögnuð.
Stjörnarhlaðið ‘ „Isvestia“
segir að sigur Bandamanna í
Tunis sé mjög snjall.
Hersveitir Bandamanna hafa
sýnt mikla hæfni. og lietjuekap
í þessum hardögum og fram-
úrskarandi skipulag liafi verið
á hernum .
hermönnum, sem fengið hafa
heimfararleyfi, og flutning á
þýzkum vörum og hernaðar-
tækjum, hefir sætt mótmælum
almennings, og færast þau mót-
mæli sífellt í aukana. Þessi
mótmæli eru látin í ljós aðal-
lega af verkalýðssamtökunum.
En stjórnin hefir ekkert gert til
að bæla þessa andúð niður, því
að hún styrkir fremur en veikir
afstöðu stjórnarinnar gegn Þjóð
verjum. Afstaða Svía.til Finna
er nokkuð óljós, en bandamenn
álíta að hversu lítið Finnar hafa
hjálpað Þjóðverjum við Lenin-
grad, þar sem þýzka hernaðar-
vélin var ekki alltaf heppin í
framkvæmdum, eigi rót sína að
rekja til afstöðu Svía.
Það ér nú upplýst að það voru
frægustu hersveitir 8. liersins.
sem fyrstar brutust inn í Tunis
borg. Hersveitir þessar voru
sendar samkvæmt ósk Alexand-
ers yfirhershöfðingja frá En-
fidavillevígstöðvunum til víg-
stöðvanna við Medjes el Bab,
til aðstoðar við fyrsta herinn
og voru það þessar hersveitir.
sem voru í fararbroddi þegar
ráðist var inn í Tunisborg.
Þetta mun hafa blekkt Þjóð-
verja mjög þvi þeir hjuggust á-
valt við hörðustu árásunum frá
8. hernum á Enfidavillevig-
stöðvunum og höfðu þessvegna
mikið lið þar.
Þegar Bandamenn hófu sókn
sína frá Medjes el Bab voru
þeir u mlþað bil 32 kilómetsa
frá Túnisborg. Það tólc þá ekki
meira en 36 klukku stundir að
sækja til Tunis oð taka borgina. 1
Sóttu Bretar að jafnaði fram |
um 1 km á klukkustund.
Bardagarnir voru mjög harð
ir en hraði viðburðanna var
svo mikill að algert los komst
á varnir Þjóðverja.
Það var fluglið Bandamanna,
sem réði þó mest um úrslitin.
Bandamenn tefldu fram öllu
flugliði sínu og hélt það uppi
látlausum árusum dag og nótt
á lið möndulveldanna.
Bretar hafa sótt nær 20 km.
frá Tunis í suðaustur til
Hammanetskagans. Bandaríkja
menn hafa að mestu hreinsað
ströndina á mijli Bizerta og
Tunis. Þúsundir fanga liafa
verið teknir.
Leifum möndulherjanna lief-
ir nú verið þjappað saman á
iHammametskaganum. Möndul
herirnir liafa nú aðeins einn
liafnarbæ á valdi sínu er það
liafnarbærinn Kilihia, sem er
austanvert á skaganum. Litlar
líkur eru taldar fyrir þvi að
Þjóðverjum takist að koma
nqkkru að liði sínu undan.
ítalskir tundurspillar gerðu í
gær tilraun til þess að koma
hersveitum undan og var 10
þeirra sökkt að mimlsta kosti.
Alls var 16 herflutningaskip-
um sökkt fyrir möndulveldun-
um í gær.
í óstaðfestum fregnum er
er sagt frá því að liðsveitir frá
Malta hafi verið settar á land
á austurströnd Hammamet-
skagans til þess að skapa glund-
roða meðal möndulliersveit-
anna. Lið þetta var flutt frá
Malta á hraðskreiðum hátum.
Þjóðverjar segjast hafa hrakið
lið þetta aftur til háta sinna. i
Hersveitir Frakka hafa tekið
Pont du Fahs. Gerðu Frakkar
snöggt áhlaup' á borgina í gær'
og náðu henni með þvi á vald
sitt.
Flugvélar Bandamanna bæði
frá Malta og Norður-Afriku
hafa gert loftárásir á Ítalíu og
siglingaleiðirnar á milli Sikil-
eyjar og Tunis var i gær sökkt
25 skipum ýmissra tegunda.
Þegar Bretar fóru inn í Tun-
isborg var þeim ákaft fagnað
af íbúunum.
Japanir vinna
á i Burina.
LONDON í gærkv.
IHERST J ÓRNARTIL-
KYNNINGU Bandamanna
frá New Delhi að Japönum hafi
tekist að vinna nokkuð á i
Burma, en sókn þessi hafi orð-
ið þeim afar dýr og hafi þeir
misst margt manna.
5 íýzkar flnpéíar
skotnar niður.
LONDON í gærkv.
15 þýzkar flugvélar gerðu
loftárásir á Bretland i gær.
Voru 5 þeirra skotnar niður.
Frá vigstöðvunum í Tunis.
Bandaríkjamenn í Túnis sjást á myndinn vera að skjóta af einni
liinna kröftugu fallbyssna sinna.