Alþýðublaðið - 22.08.1943, Blaðsíða 2
ALÞYÐUBLAÐIf)
Stutaudagur 22. ágúst 1948»
fUJrijðnblaðft
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Rttstjérl: Stefáa Pétursson.
Etitstjórn og afgreiðsla í A1
þýðuhúsinu viö Hverfisgötu *
Símar ritstjómar: 4901 og
»
Simar afgreiöslu: 4900 og
4906.
Verö í lausasölu 40
Alþýðuprentsmiðjan
Stungið upp i
kommúnista.
VERKAMENN 1 REYKJA-
vík munu seint gleyma
þeim ræfilshætti og svikum
kommúnistaforsprakkanna í
Dagsbrún, að segja ekki upp
samningum við atvinnurekend-
ur í sumar, vitandi það, að kaup
Dagsbrúnarmanna er svo lágt
samkvæmt þeim samningum,
sem kommúnistar gerðu fyrir
þá í fyrra, að þeir geta alls ekki
við það lifað, svo framarlega,
að átta stunda vinnudagurinn,
sem í þeim samningum var í
orði viðurkenndur, eigi að
vera nokkuð annað en nafnið
tómt, og vitandi einnig það, að
einstætt tækifæri var nú í velti-
árinu til þess að rétta hlut Dags-
brúnarmanna, ef samningum
hefði verið sagt upp og af nokk-
urri festu verið haldið á málum
þeirra. En því var ekki til að
dreifa af hálfu hinna kommún-
istísku forsprakka í Dagsbrún.
Þeir hliðruðu sér hjá að segja
upp samningum, þrátt fyrir yf-
irlýstan vilja félagsfundar, og
það eina, sem Dagsbrúnarmenn
fengu, voru falleg loforð „for-
ingjanna“ um endurskoðun
vísitölunnar, sem enginn veit,
hvað út af kemur, og í öllu falli
getur aldrei fært Dagsbrúnar-
mönnum annað en ómerkilegar
sárabætur fyrir þá grunn-
kaupshækkun, sem þeir áttu
siðferðislega kröfu til.
❖
Það hefir alltaf verið að
koma betur og betur í ljós í
blaðaumræðunum um þetta
mál, hve ótrúlega lélega hefir
verið haldið á málum Dags-
brúnarmanna af hálfu hinna
núverandi, kommúnistísku for-
sprakka félagsins.
Það hefir verið uplýst í þess-
um blaðaumræðum, að ekki
aðeins hefir hinum marglöstu
„kratabroddum“ tekizt að
tryggja sjómönnum í Reykja-
vík langsamlega miklu lífvæn-
legri kjör, en hinum komm-
únistísku byltingarhetjum hef-
ir tekizt að tryggja verka-
mönnum höfuðstaðarins. Það
hefir meira að segja verið upp-
lýst, að verkamenn á Akureyri
hafa undir forystu Erlings Frið
jónssonar, sem kommúnistar /
leggja sérstaka fæð á, mun
hærra kaup, en stéttarbræður
þeirra hér í Reykjavík undir
hinni rússnesku forystu.
Þrátt fyrir þessar staðreynd-
ir, var hirrn kommúnistiski
‘ niðursetningur hjá Dagsbrún,
Eggert Þorbjarnarson, svo
seinheppinn, að afsaka ræfils-
hátt flokksforingja sinna í fé-
laginu með því, að Sjómanna-
félag Reykjavíkur hefði heldur
ekki sagt upp samningum. En
þetta varð til þess, að einn af
meðlimum Sjómannafélagsins
stakk upp í kommúnista með
þeim upplýsingum hér í blað-
inu í byrjun þessarar viku, að
lágmarksháseti hér í Reykja-
vík hefði á tímabilinu frá 1.
janúar til 1. júlí fyrir samn-
inga „kratabroddanna“ haft
13 239 króna tekjur fyrir utan
áhsettttþóknun (17 638 krónur
■inniDoarrlt nm 40 ðra starf
samvinnahrevfinaarionar.
Gisli Guðmundsson alþmgismaður hefir
samið ritið, en S. í. S. gefur það ut.
SAMBAND íslenskra samvinnufélaga hefir gefið út mik-
ið og fagurt rit til minningar um 40 ára starfsemi
sína í landinu.
Gísli Guðmundsson alþiiigismaður hefir samið efni ritsins
og er það hið fróðlegasta og mjög myndarlegt að öllum frágangi.
Það er prentað á mjög góðan pappír, prýtt fjölda mynda af
forystumönnum samvinnuhreyfingarinnar, fyrirtækjum hennar
og öðru, sem hana snertir.
í Sambandinu eru nú um 20
þúsundir félagsmanna og er
það því tvímælalaust öflugustu
verzlunarsamtök á landinu, en
til þessa mikla fyrirtækis var í
upphafi stofnað, eins og kunn-
ugt er, af blásnauðum bænd-
um í afskekktu héraði — og
var það nauðvörn þeirra gegn
ofurvaldi þröngsýns kaup-
mannavalds, sem mat meira
sinn hag en þarfir og afkomu
almúgans.
Margt hefir drifið á daga
þessara samtaka frá upphafi og
þau verið miðdepill harðvít-
ugra átaka og deilna og eru
enn.
Hvaða skoðun, sem menn
hafa á því, er það þó víst að í
þessari sögu finna þeir ýmsan
markverðan fróðleik um sögu
og baráttu kaupfélaganna, sem
sjaldan er talað um í dægur-
þrasinu.
Gerir Gísli Guðmundsson
þessu góð skil í bókinni, enda
er hann vel ritfær maður.
Segir Gísli Guðmundsson og
í formálá sínum fyrir ritinu,
að með útgáfu þess sé Samband
íslenzkra samvinnufélaga að
gera „tilraun til að gefa þeim
20 þúsund félagsmönnum, sem
Sambandið vinnur fyrir, ýtar-
legri skýrslu en hingað til hafa
verið tök á, um þau verk, sem
unnin eru þar, og hafa verið
unnin, og þau viðfangsefni, sem
þar hafa verið til úrlausnar, —
um það, sem á hefir unnizt, og
um mátt og þýðingu Sambands-
ins nú fyrir þá, sem í því eru,
og fyrir þjóðina í heild. Það er
skilyrði fyrir framtíð alls sam-
starfs, að þeir, sem þar eru
þátttakendur, viti sem gerst um
allt það, sem samstarfið miðar
að. Með því einu fæst sá sam-
hugur, sem er lífgjafi alls fé-
lagsskapar.“
Tvö ummæli eru í þessu riti
tilfærð eftir tveimur minnis-
stæðustu forvígismönnum Sam
bands ísl. samvinnufélaga frá
liðnu árunum, Pétri á Gaut-
löndum og Hallgrími Kristins-
syni. Hállgrímur sagði: „Sam-
vinnumenn þurfa að vera
bjartsýnir.“ Pétur sagði: „Mér
hefir aldrei orðið að slysi að
treysta mönnum.“
Samvinnumönnum um land
allt mun þykja mikill fengur að
þessari nýju bók.
StefáB Jóbiflfl svar
ar 6lafi Thors eft-
ir helgifli.
OPIÐ SVARBRÉF frá
Stefáni Jóh. Stefáns-
syni við opnu hréfi Ólafs
Thors nr. 2 verður birt hér
í blaðinu strax eftir helgina.
Tngstn verkanefln-
iriir f hitaveitnnfli.
„Peir stasda sig ðtrðlega vel,
sogir bæjarverkfrxiiagnr.
ALLMARGIR ungir piltar
á aldrinum 12—14 ára
hafa undanfarið unnið í hita-
veitunni.
Hefur Hannes M. Þórðarson
kennari umsjón með þeim og
verkstjórn yfir þeim á hendi.. .
Piltarnir vinna 8 tíma og er
grunnkaup þeirra kr. 1,65 um
tímann, eða 45 aurum lægra
en fullgildra verkamanna. Pilt-
arnir vinna innanbæjar að
greftri og þess háttar.
Ýmsir hafa gagnrýnt vinnu-
brögð þessara pilta, en það má
ekki blekkja fólk, þó að þeir
séu ekki alltaf að, því að oft
kemur það fyrir að þeir þurfa
að bíða, þegar svo stendur á
um verkið. Enda sagði Valgeir
Björnsson bæjarverkfræðingur
í samtali við Alþýðublaðið:
„Þeir standa sig ótrúlega vel.“
Útiskemmtunin að Vífilsstöðum,
sem félögin Berklavörn og Sjálfs
vörn gangast fyrir að Vífilsstöðum
í dag fyrir félagsmenn og gesti
þeirra, hefst kl. 2 e. h. Ferðir eru
frá B. S. R. frá kl. 1 e. h.
Tveir nmdeildir listmálarar opna
máMasfningn um mánaðamðt.
♦.- —
Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur
Skúiason sýna um sjðtíu myndir.
TVEIR ungir listmálarar,
Gimnlaugur Ó. Scheving
og Þorvaldur Skúlason hafa á-
kveðið að efna til sameiginlegr
ar málverkasýningar í Listai-
mannaskálanum í hyrjun næsta
mánaðar — og verður hún opn-
uð 2. september.
. Þessir tveir listamenn eru
allmikið umdeildir, og voru
nöfn þeirra .oft nefnd í sam-
bandi við hinar miklu deilur,
sem stóðu milli listamanna og
Jónasar Jónssonar. Skrifaði og
Gunnlaugur Scheving greinar
hér í blaðið um þau deilumál.
Báðir þessir listamenn fara
mjög sínar eigin brautir og
troða lítt gamlar slóðir, í list
sinni eru þeir í leit — og þeir
grípa hvert sinn það, sem þeim
þykir tjáningarvert og festa
með litum á léreft. Þeir eru
hvorugur gefnir fyrir það að
leita eftir leyfi, en starfa sjálf-
stæðir og einir.
Alþýðublaðið sneri sér til
listamannanna í gær og spurði
þá um hina fyrirhuguðu sýn-
ingu þeirra.
„Við sýnum samtals um 70
með henni), láglaunaður verzl-
unarmaður, þrátt fyrir hin
veiku samtök þeirrar stéttar,
8 420 krónur, en Dagsbrúnar-
verkamaður, við átta stunda
vinnudag, undir forystu hinpa
kommúnistísku byltingarhetja
ekki nema 6 788 krónur!
Nú hefir Eggert Þorbjarnar-
son sett mjög hljóðan við þess-
ar upplýsingar, og segist
hann í Þjóðviljanum í gær
ekki ætla að láta „Sjómanna-
félaga“ „narra sig yfir á slíkan
umræðugrundvöll.“ Alþýðu-
blaðið skilur það vel. Umrseð-
ur á grundvelli hispurslausra
staðreynda koma kommúnist-
um aldrei vel. En þar eð Eggert
Þorbjarnarson er að reyna að af
saka undanbrögð sín með því,
að hann vilji engan ,,meting“
milli sjómanna og landverka-
manna um þessi mál, þá vill
Alþýðublaðið bara spyrja: Hver
byrjaði á þeim meting, nema
Eggert Þorbjarnarson sjálfur,
þegar honum hugkvæmist að
verja svik sín og hinna komm-
úinstísku kumpána sinna í Dags
brún með skírskotun til þess
að Sjómannafélagið hefði held-
ur ekki sagt upp samningum?
myndir — og verður sinn helm-
ingurinn frá hvorum. Allt eru
þetta nýjar myndir og flestar
nýlega gerðar. Þær lýsa því,
sem fyrir augu okkar hefir
borið, lándi og fólki, atvinnu-
tækjum, já — og deginum og
veginúm. Annars viljum við
sízt fara að skýra myndir okk-
ar. Þar verður hver að reyna
að finna það, sem hann leitar
að.“
Gunnlaugur . Scheving hefir
ekki haft opinbera, sjálfstæða
sýningu síðan árið 1934, eða
fyrir 10 árum, en þá sýndi
hann með konu sinni — og
vakti sú sýning mikla athygli.
Nokkrum sinnum hefir Gunn-
laugur þó átt myndir á sýn-
ingum.
Þorvaldur Skúlason sýndi
síðast 1938,- en síðan dvaldi
hann lengi erlendis.
Hvorugur þesara listamanna
átti myndir á sýningunni í vor
-— og munu menn því fagna
því að fá að sjá verk þeirra
beggja nú á sérstakri sýningu.
Tiðræóor Sir Sam-
nei Boare og Fran-
cos lekji atbygli.
VIÐRÆÐUR þeirra Sir
Samuel Hoare sendiherra
Breta í Madrid og Francos ein-
ræðisherra á Spáni, sem byrj-
aðar eru vekja mikla athygli
; Það er bent á að viðræður
þessar eiga sér stað nú þegar
styrjöldin sé kpinin á nýtt og
þýðingarmikið srfág og annað
það að Sir Samuel farl rakleitt
heim til Bretlands að loknum
viðræðunum.
| Bœrinn í dag.\
Næturlæknir er í Læknavarö-
stofu Reykjavíkur í Austurbæjar-
skólanum, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
11.00 Morguntónlikar (plötur):
a) Mozart: 1. Blásturskvintett f
Es-dúr. 2. Lagaflokkur nr. 4. b)
Beethoven: Blásturskvintett í Ee-
dúr. 12.10—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Fríkirkjunni (séra
Árni Sigurðsson). 15.30—16.30
Miðdegistónleikar (pliötur): a) í
persneskum garði, tónverk eftir
Liza Lehmann. b) Drengurinn frá
Shropshi're, tónverk eftir Butter-
worth. 19,25 Hljómplötur: Lög
eftir Liszt. 20.00 Fréttir. 20.20 Ein-
leikur á píanó (Árni Björnsson):
Fantasía í c-moll eftir Mozart.
20.35 Erindi: Sisyfusarsteinninn
(Friðrik Á. Brekkan rithöfundur).
21.00 Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvarar. 21.15 Upplestur: Úr
kvæðum Davíðs Stefánssonar frá
Pagraskógi (Jón Norðfjörð leik-
ari). 21.35 Hljómplötur: Lög eftir
Chopin. 21.50 Fréttir. 22.00 Dans-
lög. 23.00 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR:
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofu Reykjavíkur í Austurbæjar-
skólanum, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30
—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25
Hljómplötur: Comedian Harmon-
ists syngja og líkja eftir hljóðfær-
um. 20.00 Fréttir. 20.30 „Þýtt og
endursagt“ (Steindór Steindórsson
menntaskólakennari). 20.50 Hljóm”
plötur: Lög leikin á bíó-orgel. 21.00
Um daginn og veginn (Friðfinnur
Ólafsson viðskiptafræðingur). 21.20
Útvarpshljómsveitin: íslenzk þjóð-
lög. — Einsöngur (Hermann Guð-
mundsson): a) Vor hinzti dagur
(Þór. Guðm.) b) Vorgyðjan kem-
ur (Árni Thorst.). c) I rökkurró
(Björgv. Guðm.). d) Móðursorg
(Grieg). e) Mens jeg venter
(Grieg). 21.50 Fréttir. Dagskrár-
lok.
MESSUR í DAG:
Dómkirkjan: Kl. 11 f. h. séra
Friðrik Hallgrímsson. Kl. 1,30 e.
h. í Elliheimilinu, séra Sigurbjörn
Á. Gíslason. Laugarnessprestakall:
Kl. 2 e. h. í Laugarnesskóla, séra
Garðar Svavarsson. Frjálslyndi
söfnuðurinn: Kl. 5 e. h., séra Jón
Auðuns. Kaþólska kirkjan: Kl. 10
í Reykjavík og kl. 9 í Hafnarfirði.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Kl. 2 e.
h., séra Jón Auðuns. Lágafells-
kirkja: Kl. 12.30, séra Hálfdánt
Helgason. Safnaðarfundur að lok-
inni messu. Bessastaðir: Kl. 2 e. h„
séra Garðar Þorsteinson.
Striiii gegn Jap-
ÖBiD á dagskráflii
í Qnebec.
BRETAR hafa enn lýst því
yfir að þeir mundu senda
allan herafla sinn gegn Japön-
um þegar stríðinu við Þjóð-
verja væri lokið. Það var
Brenden Bracken, upplýsinga-
ráðherra Breta, sem lýsti þessu
yfir á fundi með blaðamönnum
í Quebec.
Þeir Churchill og Roosevelt
halda áfram umræðum sínum
nú um helgina. Það er talið að
umræður þeirra snúist ekki
aðeins um innrásina á megin-
landið heldur einnig skipun
málanna á meginlandinu eftir
að Þjóðverjar hafi. verið lagð-
ir af velli svo og um stríði®
gegn Japönum.