Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Eksemplar
Hovedpublikation:

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 19.05.1935, Side 6

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 19.05.1935, Side 6
0 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Vorveizla í Hvita húsinu. Þessi mynd sýnir hóp kátra Washingtonbúa, sem safnast hafa saman umhverfis Hvíta húsið. Samkvæmt siðunum koma forsetahjónin fram á tröppumar og heilsa gestunum. ÉG LEGG TIL Frh. af 3. síðu. Fátæktin var skipulaginu að kenna, sögðu félagssystur henn- ar, og því þyrfti að breyta og það mundi breytast smátt og smátt. Hún sá nú litla breytingu til batnaðar hjá sér, ómegðin óx, kraftarnir minkuðu og' erfiðleik- arnir urðu meiri með hverju ári sem leið hjá þeim. Og gnð, sem öllu á að stjórna. Hvers vegna lét hann þetta vera svona? Hvers vegna lét hann aðra hafa meira en nóg —1 aðra minna en nóg? Var það af því, að þeir sein höfðu meira en nóg, væru betri menn?------ Prestarnir sögðu nú raunar stundum að þessum ríku mönn- urn liði oft ekki vel. Og þeim Benedikt leið heldur ekki oft vel þegar þau gátu ekki borgað húsa- leiguna, sem var fimmtiu krónur á inánuði, fyrir lítið kjaliaraher- bergi og eldhúskríli, og þau höfðu ekki nóg að borða eða klæðast handa sér og börnunum sínum. Fin guð vildi samt ekki breyta þessu skipulagi, og úr því að hann gerði það ekki, ])á var nátt- úrlega ekki von að mennirnir gætu það þó þeir vildu. En mennirnir breyttu líka oft á móti boðum hans; það var líka satt, og þó lét hann það viðgangast. — Undarlegur guð. Var þá ekki krafa þeirra um kauphækkun réttmæt, þessara fátæku fjöl- skyldufeðra? Þeir voru ekki að fara fram á neina gjöf . — Þeir ætluðu að vinna þrælá eins og áður. Jú, krafan þeirra hlaut að vera sanngjörn og réttmæt. Þóra stundi og reyridi að byrgja sig i svefninn. Mórguninn eftir var Bensi kominn á fsétur klukkan finun, samkvæmt sinni áætlun. Hann hitaði sér kaffisopa áð- ur en hann fór. Um leið og hann kvaddi konu sína mælti hún: Farðu nú varlega, góði minn, eg er svo hrædd um að það verði eitthvað uppistand þarna. Og svo er lögreglan, — ekki læt- ur hún sig vanta við svona tæki- færi, og notar kannske bvssur! Ég er svo hrædd! — Blessuð vertu! Þú mátt al- veg vera óhrædd, við erum ó- smeikir við þesskonar dót. — Ég þekki þig, Benedikt minn. Þú ert svo kappsfullur. Þú gleymir öllu þegar út í bardagann er komið. Þú gleymir mér og börnunum okkar! Heldurðu að mig langi til að sjá þig limlestan? — Vertu nú Skynsöm kona! Það er engin hætta á ferðum. Við tökum þessa peyja bara i bónda- beygju, því við erum nriklu mannfleiri, og svo er það, sko, búið. - - Ég er samt hrædd! Viltu lofa mér því, að fara varlega? — Jæja, hættu þá þessu. Ég skal fara eins varlega og ég get. Þegar Bensi kom að höfninni, þar sem togararnir lágu, voru menn sem óðast að strevma að í stórhópum af flestum stéttum bæjarfélagsins, auðvitað að kven- stéttinni undanskilinni. Þó var augljóst að sjómenn og verka- inenn voru þarna í yfirgnæfandi iheiri hluta. Öll lögregla bæjarins var einn- ig komin á vettvang. Stóð hún á- lengdar, aðskilin frá mannfjöld- arium, og béið átekta, ef á henni þyrfti að halda, til að skerast í leikinn. Bensi gaf henni Jjótt auga. — Hvern fjandann vildi hún vera að flækjast þarna? Skyldu útgerðarmenn hafa beðið hana að hjálpa sér? En þeim skyldi nú ekki verða kápan úr því klæðinu. Þeir skyldu gefa henni svo dug- lega ráðningu, ef hún færi að sletta sér fram i það, sem henni kæmi bókstaflega ekkert við, — . að hún myndi eftir því næsta daginn. En hvað átti nú eiginlega að ske? Þariia stóð jú stjórn Sjómanna- félagsins, eins og henhi bar. Og þarna stóðu líka útgerðarstjórar, skrifstofustjórar og -þjónar, verzhmarmenn og kaupmenn. Þeir höfðu þó nent að skríða úr bælunum þennan morgun. Þarna stóðu þeir, gláptu og þögðu. Sveitamenn, sem þarna voru staddir, þögðu líka. Sjómenn og verkamenn þögðu. Allir þögðu. ----- Og stöðugt voru nienn að bæt- ast við hinn þögula mannfjölda til að þegja líka. Um borð i togurunum voru ekki aðrir en vélamenn, stýri- menn og skipstjórar. Það var öll þeirra áhöfn og liðsafli eins og nú stóðu sakir. Vatnsbátur hafnarinnar kom öslandi og lagðist við síðuna á öðrum togaranum. Sver slanga var lögð úr bátn- um yfir öldustokk skipsins. Það átti að fá vatn. Bensi stóð framarlega á hafn- arbakkanum með hendur fyrir aftan bak og ívisté. — Áttu þeir að láta þá taka vatn? Og alt í einu skaut upp- reisriarandanujn upp i huga hans. Þögnin var rofiri. Nú var það Bensi, sem lagði til: Eiguni við ekki að skéra sundur slönguskrattann, piltar? Og þá kom líf i tuskurnar. Það var engu líkara en þegar stífla er tekin úr tröllaukinni flóðgátt þar sem ógurlegur vatns- þungi þrýstir að og brýst fram með feikna afli. — Fjöldi manna ruddist um borð í togarann og eftir örfáar sek- úndur lá slangan í tvennu lagi. Annar búturinn varð eftir á þil- fari skipsins, en hinum var kast- að ofan í vatnsbátinn með þeiin formála, að þeir sem á bátnum væru skyldu hypja sig óðar burtu með allt sitt vatn, að öðrum kosti mundu þeir hljóta illt af, og þeir létu sér það að kenningu verða. Á hafnarbakkanum lenti allt i uppnámi, en eftir nokkrar rysk- ingar höfðu sjómenn og verka- menn yfirhöndina. Lögreglan. út- gerðarmenn og þeirra hjálparlið var borið ofurliði, og sáu sitt ó- vænna og bardaganum lauk án blóðsúthellinga. Mannfjöldinn dréifði sér og eftir stutta stund var kyrð komin á. — Fólk gekk að störfum sínum eins og ekkert hefði i skorist. Togararnir lögðu samt ekki á veiðar þann dagiiin. En að kvöldi þessa sama dags gengu iitgerðarmenn að kröfum sjómanna. Björninn var unninn. Bensi á Urðarstígnum hafði lagt rétt til málanna.- Hvað nú - ungi niaður Kostar að eins 3 krónur fyrir skilvísa kaupend- ur Alþýðublaðsins. Llósinpdasíofa Sigurðar Guðmundssonar Lækjargötu 2, sími 1980, heima 4980. Nú í kreppunni verða menn að hafa pað hugfast, að fá sem mest verðmæti fyrir sem minsta peninga. Verðmæti myndarinnar er ekk- ert sé hún ekki góð. Atelier-ljósmyndin er hin eina fullkomna, hvað sem öllu skrumi líður.

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.