Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Eksemplar
Hovedpublikation:

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 20.03.1938, Side 4

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 20.03.1938, Side 4
4 ALÞÝÐIfBLAÐIÐ Elinborg Lárusdóttir; Um Islendinga vestanhafs. LANDIÐ OG ÞJÓÐIN, sem byggir landið, eru venju- lega tvö hugtök nátengd hvort öðru. Það eru því sennilega nojckuð margir, sem minnast þess ekki að jafnaði, að íslend- ingar búi svo neinu nemi ann- arsstaðar en á íslandi. Þó mun óhætt að fullyrða, að einn fjórði hluti íslenzku þjóðarinn- ar eigi heima erlendis. Lang- flestir þeirra eru í Vesturheimi. Af þeim, sem vestra búa, er aft- ur meginhlutinn í Kanada. Skömmu eftir miðja 19. öld tóku menn að flytja búferlum frá íslandi til Ameríku. Voru það í fyrstu örfáir menn, en eftir 1870 byrjaði straumurinn vestur fyrir alvöru og stóð ó- slitinn fram yfir aldamót. Þá dró nokkuð úr, en allmargir fluttust þó vestur síðasta ára- tug fyrir heimsstyrjöldina. En þá lokaði hún leiðum vestur um haf. Meginorsakir þessa mikla útstraums voru: annarsvegar óánægja manna á meðal með hagi sína, en hinsvegar von- leysið á framtíð þessa lands. Deilan við Dani um sjálfsfor- ræði þjóðarinnar átti sinn þátt í þessu. Á þessu tímabili var erí'itt árferði hér á landi, og litl- ir möguleikar til bjargar — enn sem komið var. Aftur á móti var mikið látið af frelsi, landskostum og gæðum vestan hafs. Enda verður varla annað sagt með sanni, en að skilningur manna á högum þeirra, sem minna máttu sín efnalega í þjóð félaginu, hafi verið harla lítill. Þeir voru ekki lattir vesturfarar, ef þeir áttu stóran barnahóp, en lítil efni og rýrt bú. Fólkinu var ekki ósjaldan smalað eins og búfé vestur um haf. Enginn veit með vissu, hversu margir íslendingar hafa flutt vestur. Dr. Rögnvaldur Pét- ursson telur í tímariti Þjóð- ræknisfélagsins árið 1932, að tala íslendinga, sem til Kanada hafa fluzt á tímabilinu frá 1872 —1920, nemi fullum 20 þúsund- um. Dr. Rögnvaldur Pétursson gizkar ennfremur á, að eftir þeim upplýsingum, sem hægt hefir verið að afla, megi telja 37 þúsundir íslendinga þar í landi við árslok 1931. Auk þess búa nokkrir ís- lendingar í Bandaríkjunum, og mun því varla ofmælt, þótt sagt sé, að um 45 þúsundir menn séu búsettir Vestanhafs, íslenzkir eða af íslenzku bergi brotnir. Þetta íslenzka þjóðarbrot er stórt — og framtíðarmögu- leikar þess miklir. Það er nokk- uð á okkar valdi, hvort draum- urinn um íslenzka heimsþjóð rætist. Það er undir því komið, hvort Island er sér með- vitandi um skyldur sínar sem miðstöð íslenzku þjóðarinnar úti um heim. Ekki aðeins til þess að taka við þeim gjöfum, og sæmdum, sem íslendingar vestra hafa rétt því, heldur líka sem aflstöð, er sendi lífg- andi afl sitt út til sinna fjar- lægu þegna, út til allra manna með íslenzku blóði. Bregðist ísland ekki þessari skyldu, þá rætist draumur Is- lendinga í Vesturheimi um ís- lenzka heimsþjóð. Þjóð, sem viðheldur tungu sinni og menn- ingu, fjarri föðurlandi sínu — heldur þjóðerni sínu um allar ókomnar aldir, eins og t. d. Gyðingar, Grikkir og fleiri merkisþjóðir hafa gert. íslendingar vestanhafs tala hreint og fagurt mál, þeir, sem annars tala íslenzku. Þeir eru að vísu færri nú en fyrir 30 árum síðan. En þeir leggja þeim mun meiri áherzlu á það, að tala tungu feðra sinna hreina og óbjagaða. Þetta fólk er hreyk- ið af því að vera íslendingar, og ekki fyrir nokkurn mun vill það við annað þjóðerni kannast. Ást þess til íslands, íslenzkr- ar menningar og alls þess, sem íslenzkt er, er bæði einlæg og sterk. Blöð íslendinga í Vestur- heimi taka langt fram blöð- um hinna norrænu þjóðanna þar, og þó eru þeir þar fámenn- astir. Þessi blaðakostur Vestur-ís- lendinga hefir verið eitt hið öfl- ugasta vopn þeirra í þjóðbarátt- unni. Öflugustu félög þeirra eru Kirkjufélögin — og svo Þjóð- ræknisfélagið, sem dr. Rögn- valdur Pétursson gekkst fyrir að stofnað yrði. Þeir gefa út tímarit, stórt og vandað, sem kemur út einu sinni á ári, í febrúarmánuði. Það rit ætti að vera miklu þekktara og víð- lesnara, en það er hér á landi. Því auk þess, sem tímaritið fiytur mikinn og víðtækan fróðleik, flytur það einnig sög- ur og kvæði eftir ýmsa höfunda vestra — og einnig héðan að heiman. Tímaritið gefur okkur mjög nána þekkingu á Iöndum okkar vestra, á störfum þeirra og baráttu, og er ritað á mjög hreinu máli. Halda íslendingar vestra á- fram að vera íslendingar, ef þeir týna tungu sinni að ein- hverju eða öllu leyti? En þar sem skólarnir eru enskir og enska lögboðin í þeim öllum, er eins og allir sjá, erfiðleikum bundið, að varðveita sitt móð- urmál. Að vísu eiga íslendingar kost á því, að börnum þeirra sé kennd íslenzka 1 barnaskól- um í Manitoba. En sú undan- þága kemur sennilega einum mannsaldri of seint. íslenzk tunga heyjir nú baráttu fyrir tilveru sinni í Vesturheimi. Sú barátta stendur nú höll- um fæti. Þeim fækkar óðum, er lesa íslenzka tungu vestanhafs. Séum við íslendingar til sem þjóð, þá er þessi barátta mik- ilsvarðandi fyrir okkur í kom- andi framtíð. Er ekki hætt við, að þjóðernið glatist, ef tungan gleymist? Er ekki tungan und- irrót þjóðernisins, og ætíð sterk- asti þátturinn í því, að halda þjóðinni sameinaðri? Á þessi hluti þjóðarinnar, sem fluttizt vestur um haf, að hverfa í gleymskunnar djúp, týna móðurmálinu og glata þjóðerninu, blandast öðrum þjóðflokkum? Vestur-íslendingar hafa, enn sem komið er, haldið uppi drengilegri vörn fyrir þjóðerni sínu. Og það er engin hætta á, að þeir haldi því ekki áfram í náinni framtíð. En tómlæti og afskiftaleysi íslendinga hér heima er sízt til þess, að glæða vonir þeirra á sigurvænleg úr- slit, eða til þess að hvetja þá í þessari baráttu. Þetta þarf að breytast — og er nú þegar að færast í þá átt. Austur- og Vestur-íslendingar hafa meiri samvinnu nú en áð- ur. Enda ber íslendingum hér heima að styðja hvert framfara- mál Vestur-íslendinga. Hvert það mál, sem miðar að því, að auka samvinnuna og tryggja böndin á milli. Það er nú komið svo, að ís- lendingar vestra eiga erfitt með að gefa út rit höfunda sinna, sökum þess, hve íslenzkan er lítið lesin meðal yngra fólksnrs. En það ætti að vera okkur fagnaðarefni, að enn tala þeir og skrifa og yrkja á íslenzka tungu. Vestur-íslendingar haía átt og eigg engu síður en vi® hér heima afburða menn á þii sviði. Menn, sem vart muniu gleymast, meðan íslénzk tunga er töluð. Menn, sem sjálfir hafa reist sér ógleymanlegaia minnisvarða með verkum sík- um. Nú um þessar mundir er ver- ið að géfa út rit Stefáns G. Stefánssonar, rit Vilhjálnas Stefánssonar eru einnig a@ koma út — og auk þeirra manna, sem góðkunnir eru hér heima af skáldskap sínum, erw menn eins og t. d. Jóhan* Magnús Bjarnason, Guttormw J. Guttormsson, Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Jakobina Johm- son, Johannes P. Pálsson o. H. Og nú er komin út bóJr eftir vestur-íslenzku skáldkosi- una Guðrúnu Helgu Finnsdótt- ur. Hún er búsett í Winnipeg og gift Gísla Johnson prent- smiðjustjóra. Frú Guðrún er fædd og upp- alin á Geirólfsstöðum í Skrið- dal í Suður-Múlasýslu. Vestur um haf fluttizt hún 1904. Árið 1927 komu þau hjóni* heim til íslands og dvöldu þá hjá ættfólki sínu á Austurlandi. Frú Guðrún er mjög þekkt vestra af störfum sínum í ýms- um fél. Vestur-íslendinga, þar sem hún þykir ætíð óvenjugóður liðsmaður, að hverju, sem hú* snýr sér. Hún er vinsæl og hafa smásögur hennar, sem birzi hafa í ýmsum blöðum og tíma- ritum Vestur-íslendinga, hlotié miklar vinsældir. Þessi bók frú Guðrúnar er safn af smásögum, 14 að tölu. Bókin er um 224 blaðsíður í stóru broti. Það væri ánægju- legt, ef þessi bók frú Guðrún- ar H. Finnsdóttur fengi verðug- ar viðtökur hér heima og yrði víðlesin. Hún er vel þess virði og meira en það. Yrkisefni þau, er frúin tekur til meðferðar, eru íslenzk og úr íslenzku þjóð- lífi. Þess vegna á þessi bók sér- staklega erindi til okkar hér heima, og ætti að verða okkur kærkomin, einkum þó kvenþjóð (Frh. á 8. síðu.t

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.