Alþýðublaðið - 28.09.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.09.1943, Blaðsíða 3
ALÞYdUBLAÐIÐ I»riðjudagur 28. sept. T943. Rússar komnir inn'ii Hvíta Rússland • « íi 4 5. berinn befir rekið fiejg inn í tlflllnn bjððverja. 8. herinn sækir fram á sogufrægum slóðum á austurströnd ítaliu. Það eru þýzkar leyniskyttur úr hinni frægu Herman Gör- ing herdeild, se mBretar hafa tekið til fanga í bardögun- um á Suður-Ítalíu. Þær eru særðar og Bretar eru að búa um sár þeirra áður en byrjað er að yfirheyra fangana. Bardagarnir um Napoli: ir fangar á Ítalíu. HERIR BANDÁMANNA Á ÍTALÍU hafa enn bætt að- stöðu sína yfir helgina. Fimmta hernum hefir tekizt að reka fleyg inn varnarlínu Þjóðverja austan við Napoli og er útlit fyrir, að hann muni innan skamms hafa allar hæðirnar við Napolisléttuna á valdi sínu. Áttundi herinn er lcominn yfir Ofanto-ána og sækir fram í áttina til Cannae og Foggia. Þjóðverjar hafa yfirgefið hina þrett- án flugvelli við Foggia. Áttundi herinn hefir tekið borgimar Muro, Cerignola og Margherita di Savoia. Frakkar hafa náð öll- um flugvöllum á Korsíku á vald sitt. Sókn bandamanna á vígstöðv unum á Ítalíu hefir miðað vel áfram frá því um helgi, þrátt fyrir torfærur þær, sem fimmti herinn hefir þurft yfir að fara og óhagstæð veðurskilyrði. Einkum hefir fimmta hernum orðið vel ágengt austan við Na- poli, en sunnan hennar halda Þjóðverjar uppi vasklegu við- námi. Þó er talið, að þess muni ekki langt að bíða, að banda- menn hafi allar hæðirnar við Napolisléttuna á valdi sínu. Fimmti herinn hefir nú rekið fleyg inn í varnir Þjóðverja austan við Napoli og mun tefla meginþunga sóknar sinnar þar fram næstu dægur. Áttundi herinn, sem sækir fast fram á austUrströndinni, er nú staddur á sögufrægum slóðum. Nálgast hann óðum hæinn Cannae, þar sem Hannibal háði hina miklu orrustu við hersveitir Róm- verja árið 218 f. Kr. og ger- sigraði þær. Er áttundi herinn nú kominn yfir Ofanto-ána, sem Cannae stendur við. Fréttir í gær greindu frá því, að Þjóðverjar hefðu yfirgefið alla hina þrettán flugvelli við Foggia og hörfi þaðan brott: Flugvellir þessir hafa orðið fyrir miklum skemmdum í loft- árásum bandamanna og sem gefur að skilja hafa Þjóðverjar eyðilagt allt það, sem þeim hefir reynzt framast auðið, áð- ur en þeir héldu brott. En hins vegar er talið, að góð skilyrði séu fyrir hendi til þess að auka og endurbæta flugvelli þessa á skömmum tíma. Fimmti herinn hefir sótt fram um fimmtán km. til norð- urs á Salernovígstöðvunum á skömmum tíma. Heyir hann nú harðar orustur í grennd við Casano og er staddur um tutt- ugu km. frá Avellino. Lengra austur frá hafa bandamenn náð borginni Calabrito á vald sitt. Tuttugu og fjóra km. austur af Calabrito hefir áttundi her- inn tekið borgina Muro og nálg- ast óðum strönd Adríahafsins. Sækja fram með járnbrautinni frá Smolensk til Minsk. Heftr pegar tekízt að komast yftr Dntepr á sjð stððam. .... »-------- RÚSSAR HAFA BRQTIZT inn í Hvíta-Rússland norð- vestan og suðvestan við Smolensk. Sækja þeir þar fram í tveim fylkingarörmum. Stefnir annar þeirra í átt- ina til Vitebsk, en hinn til Minsk. Sunnar beina þeir harðri sókn til Gomel. Og enn sunnar standa yfir stórorustur á hökkum Dnieprfljóts og hefir Rússum þegar tekizt að komást á sjö stöðum yfir fljótið. Russnesku hersveitirnar sækja frarn af sömu hörku og fyrr. Hafa þær brotizt inn í Hvíta-Rússland norðan og sunn an við Smolensk. Stefna þær fram í áttina til Vitebsk og eftir járnbrautinni til Minsk, en sú borg stendur skammt frá landa- mærum Póllands. Nefna Rússar nyðri sóknina Vitebsksóknina en hina syðri Mohilevsóknina eftir borgum þeim, sem þeir leggja mesta á- herzlu á að ná á vald sitt. Rússar leggja einnig ofur- kapp á sóknina til Gomel, enda er sú borg mjög mikilvæg. Aust ur af Gomel eru víðáttumiklar mýrar á leið rússneska hersins. Eru þær venjulega mjög blaut- ar og illfærar um þetta leyti árs. Nú eru þær hins vegar sagðar þurrar venju fremur og munu Rússar hafa talið sig miklu skipta að leggja þær að baki áður en haustrigningarh- ar byrjuðu fyrir alvöru. Eru hersveitir Rússa nú á næsta leiti við Gomel. Harðar orrustur geisa einnig á vígstöðvunum milli Kiev og Dniepropetrovsk. Láta Þjóð- verjar þar undan síga og hraða liðflutningum yfir Dnieprfljót. Sókn Rússa á Tamanskaga heldur og áfram. Hafa þeir nú tekið hafnarbæinn Temriuk en þaðan hafa Þjóðvrjar flutt lið sitt úr Kúbanhéraðinu yfir Kershsund til Krím síðustu daga. Er hersveitum Þjóðverja, sem eftir eru á þessum slóðum enginn kostur annar búinn en gefast upp. Ólíklegt má líka telja, að Þjóðverjar muni koma liði sínu brott frá Krím nema gjalda mikil afhroð. Þjóðverjum hefur annað hvort reynzt ógerlegt að verjast á austurbakka Dniepr eða þeir hafa kosið sér aðrar varnar- stöðvar. Dniep er þriðja stærsta fljót álfunnar, örðugt yfirferðar og auk þess í miklum vexti á þessum árstíma, svo að ætla mátti, að varnarskilyrði þýzka hersins væru þar góð. Eigi að síður hafa Rússar unnið þann sigur að komast yfir fljótið vonum fyrr. Flugher Rússa hefur sig mjög í frammi. Hersveitir þeirra hafa komið stórskotabyssur sínum fyrir meðfram endilöngu Dnieprfljóti og halda uppi ægi- legri skothríð. Mun mega ætla að Rússar brjótist yfir Dniept á mun fleiri stöðum en orðið er, ef ekki verða skjótar breytingar í átökunum á austurvígstöðv- unum. Brezkur hernaðfræðingur lét svo um mælt í gær, að Þjóð- verjar hefðu nú aðeins þriðj- ung lands þess á valdi sínu, sem þeir hefðu tekið áf Rússum þegar sókn þeirra stóð sem best. Taldi hann einnig, að Þjóðverj- ar muni hafa misst alls um sex milljónir manna í orrust- unum á austurvígstöðvunum auk þess sem þeir hafi beðið mikið hergangnatjón. Sökn tili Finschaíei. Hersveitir Ástralíumanna á Nýju Guineu kreppa stöðugt meira að Japönum og eru nú staddar örskammt frá Finsc- hafen. Sækja þeir að borginni úr þrem áttum og telja sig hafa innikróað hersveitir Jap- ana, sem þar eru fyrir. Eftir töku Barletta hafa her- sveitir Montgomery náð borg- inni Cerignola á vald sitt, sem er skammt frá Bari-Foggia járnbrautinni, svo og hafnar- bænum Margherita di Savoia, sem stendur á suðurströnd Manfredoniaflóans, og sækja hratt fram í áttina til Foggia. Loftsókn bandamanna á ítal- íu heldur sífellt áfram eftir því, sem veðurskilyrði leyfa. Yfir helgina voru gerðar harðar loftárásir á borgir á Norður- ítalíu. Var árásum þessum einkum beint að þýðingarmíkl- um járnbrautarmiðstöðvum svo sem Bolzano, Verona og Bo- logna. ÐrottfÖr Þjóðverja frá ílug- völlunum við Foggia er mikil sigur fyrir bandamenn. Frá flugvöllum þessum gefst ban Ja mönnum kostur á að halda uppi harðri loftsókn gegn stöðvum óvinanna í Júgóslavíu, Albariu og á vesturströnd Grikklands, Einnig geta þeir sent þaðan langfleygar sprengjuflugvélar til árása á fjarri héruð Grikk- lands, Búlgaríu, Rúmeníu, Austurríki og Ungverjalanð. Fregnir í gærkveldi sögðu frá auknum sigrum skæru- flokka Júgóslava. Höfðu þeir náð fimm bæjum á vald sitt. Hersveitir Frakka á Korsíku hafa nú alla flugvelli eyjarinn- ar á valdi sínu. 2 Sumner Welles. Nýr virsoíanríkls- rððherra Roosevelts. Samner Welles hefur sagt af sér rTl ILKYNNT var í Washing- ton í gær, að Roosevelt forseti hefði skipað nýjan vara- utanríkismálaráðherra í stað Sumner Welles, sem hefði sagt af sér fyrir nokkrum vikum. Hinn nýi varautanríkismála- ráðherra er Edward Stettinus, sem gegnt hefir starfi sem framkvæmdastjóri láns- og leigustofnunarinnar. Roosevelt komst þannig að orði jafnframt því, sem hann skipaði hinn nýja varautanrík- ismálaráðherra, að hann harm- aði mjög, að Sumner Welles skyldi hafa látið af starfi. Hýtt met I herppa- framleiðsln í D.S.A. DONALD M. NELSON, for- maður hergagnafram- leiðslunefndar Bandaríkjanna, gaf í fyrri viku mánaðar- skýrslu um framleiðslu her- gagna. f skýrslunni segir, að hergagnaframleiðslan í ágúst hafi reynzt 4% meiri en í júlí og virðist framleiðslan því vera farin að aukast að nýju. Framleiðsla á flugvélum varð meiri en í júlí, 3% að fjölda og 7% að þyngd. Framleiðsla flug- véla á ákveðnum þyngdar- grundvelli óx meira síðastliðið hálft ár en á öllu árinu 1942. í ágúst var hinn samanlagði þungi framleiddra flugvéla 59 000 000 pund, en vélar flug- vélanna voru þó ekki þar með taldar. Síðustu fimm mánuði hefir meðalaukning á saman- lögðum þunga flugvélagrinda á mánuði orðið 3 500 000 pund, sem er meira en tvisvar sinn- um meira en aukningin á mán- uði árið 1942. Samkvæmt skýrslunni settu Bandaríkin nýtt met í ágúst með því að framleiða 7612 flugvélar. Mat, sem gert hefir verið tii bráðabirgða á afköstum á skipa- framleiðslunni, sýnir 4% aukn- ingu á framleiðslu herskipa og 1 % aukningu á framleiðslu kaupskipa frá því í júlí. Af- hending herskipa náði nýju há- marki með 234 000 smálesta burðarmagni, sem er 40% meira en í júlí. Afhending fylgiskipa tundurspilla komst 20% fram úr áætlun.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.