Alþýðublaðið - 01.10.1943, Síða 2
ALÞYÐ'UBLAÐIÐ
Föstudagúr 1. októbcr 1943.
$. október að margni?
Samþykkt við allsherjaratkvæða-
greiðslu í Sveinafél. múrara.
SVEINAFÉLAG M Ú R A R A hér í bænum sam-
þykkti við allsherjaratkvæðagreiðslu, sem fram hefir
farið undanfama daga, að hafið skyldi verkfall hjá öllum
þeim atvinnurekendum, sem ekki hefðu gert samninga við
félagið um kaup og kjör múrara að morgni þess 8. þessa mán.
Atkvæði voru talin í allsherjaratkvæðagreiðslunni í gær.
Höfðu 62 félagsmenn greitt atkvæði, þar af sögðu 60 já, en
2 seðlar voru auðir.
Múrarafélagið sendi í gær tilkynningu um þetta til
sáttasemjara ríkisins og þeirra aðila, sem verkfallið kann
að ná til.
Eins og kunnugt er hafa múrarasveinar þegar gert
samninga við marga atvinnurekendur, en nokkrir eru eftir,
sem ekki hafa viljað semja og eru meðal þeirra Múrara-
meistarafélag Reykjavíkur, Almenna byggingarfélagið og
Reykjavíkurbær.
Flutningadagurinn:
250-300 mmm íá inni í ófnll-
komtiii bráðabifflðahósBaBói.
Neyðarástand húsnæðisieysingjanna er
afleiðing þröngsýnl og vanrækslu.
Umferðaslysin og samhúðin:
-.....; 1 r .. .............. ""
HJjar varnir verða teknar
npp gegn umferðarslysum.
..— ■ ■ ■ --
Ágæt samvinna milii islenzkra lög-
regluyfirvalda og setuliðsihs.
....
Flest slysanna eru að kenna óaðgæzln.
------♦
ÓRI HJÁLMARSSON yfirmaður upplýsingardeildar
bandaríska hersins hér á landi, en með honum starf-
ar Valdimar Björnsson, hélt fund með blaðamönnum í
gær, aðallega til að ræða við þá xun umferðamálin og hvernig
best væri að koma í veg fyrir umferðaslys í framtíðinni.
Mættir voru á fundinum auk blaðamanna horgarstjórinn í
Reykjavík, Bjarni Benediktsson og lögreglustjórinn, Agn-
ar Kofoed Hansen ,og ennfremur Colonel Green yfirmað-
ur lögreglusveita hersins, Colonel White yfirmaður trygg-
ingadeildar hersins og majór Fischer frá verkfræðideild
hersins.
Undanfarið hafa farið fram viðræður milli hersins og borg-
arstjórans og lögreglustjórans um umferðamálin og er mikill
vilji fyrir hendi um það að taka upp nýjar aðferðir og aukið
eftirlit til þess að reyna með því að koma í veg fyrir umferða-
slys. Lýstu þeir yfir því, bæði borgarstjórinn og lögreglustjór-
inn, að hin ágætasta samvinna væri millum þeirra og setuliðs-
ins í þessum málum og teldu þeir ákaflega nauðsynlegt, að ís-
lendingar færu eftir þeim reglum, sem setuliðið og íslenzka lög-
reglan setja og kunna að setja um umferð, enda miðuðu þær
allar að því einu, að auka öryggi landsmanna og hermannanna,
enda gat Colonell Green þess, að setuliðinu væri mjög umhugað,
að forða slysum, fyrst og fremst vegna landsmanna sjálfra, en
einnig vegna hermannanna, því að reynsla Bandaríkjamanna í
ófriði væri á þá leið, að manntjón þeirra af völdum umferðaslysa
væri ekki langt frá því að vera í líkingu við manntjón á vígvöll-
um og þannig myndi reynsla annarra þjóða einnig vera.
1^ LUTNINGSDAGURINN
I. október er í dag. —
Þúsundir manna hér í bænum
hafa kviðið fyrir þessum degi
— og því miður hefir fáum
tekizt að útvega sér húsnæði
— þrátt fyrir daglega leit.
Reykvíkingar hafa undan-
farið fengið áþreifanlega að
kynnast vandræðum og ang-
ist hins húsnæðislausa fólks og
hefur það hvað eftir annað
komið opinberlega fram í aug-
lýsingum í blöðunum. Upp á
síðkastið hafa jafnvel birzt
auglýsingar, þar sem foreldr-
ar hafa beðið fólk að taka börn
þeirra til fósturs, vegna þess
að þau væru húsnæðislaus. —
Geta allir gert sér í hugarlund
hversu gífurleg neyðin er, þeg-
ar fólk neyðist til þess að aug-
lýsa börn sín þannig.
Það er tilgangslaust að vísu
að fjölyrða meira en gert
hefur verið um þetta neyð-
arástand. Nú eru Reykvíknig-
ar að súpa seyðið af áratuga
stjórnleysi og vanrækslu í hús-
næðismálum höfuðstaðarins.
Alþýðuflokkurinn barðist fyrir
því að bærinn byggði ódýr og
hentug hús og leigði þau ’síðan
eða seldi. Þetta gerðu bæir um
öll Norðurlönd. En Alþýðu-
flokksfulltrúarnir í bæjar-
stjórn töluðu fyrir daufum eyr-
um. Því var svarað til, að hið
opinbera mætti ekki taka fram
fyrir hendurnar á einstakling-
unum! Og ekkert var gert.
Meðan atvinnuleysingjarnir
gengu þúsundum saman um
göturnar — og heimili þeirra
sultu — barðist Alþýðuflokkur-
inn fyrir því að hafizt væri
handa um byggingar —■ en það
var sama. Betra var að láta
vinnuþrekið ónotað en að búa í
haginn fyrir framtíðina með
því að nota það til íbúðarhúsa-
bygginga! Loks þegar allt var
komið í eindaga — og raun-
▼erulega allt um seinan, var
hafizt handa. Og allir þekkja
útkomuna.
Undanfarið hefir verið reynt
að útvega bráðabirgðahúsnæði
handa því fólki, sem nú er á
götunni. Þetta hefir tekizt. í
gær og í dag flytja húsnæðis-
lausar fjölskyldur í þetta bráða-
birgðahúsnæði, sem er þó betra
en að vera úti, þó að það sé
langt frá því að vera fullkomið.
Gert er ráð fyrir að hægt sé
að koma um 50 fjölskyldum,
eða um 250—300 manns, í
þetta húsnæði.
Og er þó óralangt frá því að
þetta hafi uppfyllt þörfina, eða
dregið að ráði úr neyðarástand-
inu.
Skélar bæjarins ern
settír í dag og
næsto daga.
Þeir ern fulisklpaðir
— ofl meira en pað.
C KOLAR bæjarins eru flest-
ir settir nú um, mánaða-
mótin. Eru þeir yfirleitt fúllskip
aðir nemendum — og sumir
meira en það.
Gagnfræðaskóli Reykvíkinga
verður settur í dag kl. 2. Nem-
endur eru um 150 og er það
raunverulega meiri nemenda-
fjöldi en skólinn getur tekið á
móti með góðu móti. Tvísett er
í tvo neðstu bekki skólans.
Kennaraskólinn verður sett-
ur 5. okt. Um neinendafjölda
er enn ekl.l vitað til fullnustu.
Samvinnuskólinn verður sett-
ur kl. 1 í dag. Nemendur eru
nálega 60. Er skólinn þá þétt-
ar setinn en góðu hófi gegnir.
Frh. af 2. síðu.
Yfirmenn hersins skýrðu frá
því, að innan skamms myndu
koma upp ýms merki á vegum
úti, sem ætluð væru til þess að
koma í veg fyrir slys. Skýrðu
þeir frá því, að sett yrðu upp
nákvæm merki á leiðinni frá
Reykjavík til Selfoss um hættu
og yrði þar farið eftir mishæð-
um á vegum, beygjum o. s. frv.
Sögðu þeir að séð myndi svo
um að bifreiðastjórar setuliðs-
ins færu eftir þessum merkjum
í akstri sínum og nauðsynlegt
væri að íslenzkir bifreiðastjór-
ar færu einnig nákvæmlega eft-
ir þeim.
Enn fremur skýrðu þeir frá
því að á vissum vegum, til
dæmis á veginum upp að Ála-
fossi og eins til Hafnarfjarðar
og jafnvel víðar yrði máluð gul
rönd í miðja brautina til þess
að bifreiðar gættu þess að aka
á sama vegarheilmingi. Einnig
myndu koma uþp merki hér í
bænum, meðal annars við öll
götuhorn og við skólana. Verða
merkin við skólana mýndir af
börnum, sem bíða að komast
yfir götuna og er reynt með
þeim að fanga athygli barn-
anna, svo að þau gæti sín sem
allra bezt. Colonel Green upp-
lýsti, að í ágústmánuði hefðu
orðið 49 bifreiðaárekstrar, sem
setuliðsmenn hefðu lent í, ann-
aðhvort af völdum þeirra
sjálfra, eða sem hefðu verið
sök landsmanna. Kvað hann
þetta allt of mikið og rannsókn
hefði sýnt að ekkert af þessum
slysum hefði verið óhjákvæmi-
legt, heldur hefði einhver sök
um óaðgæzlu verið hjá öðrum
hvorum aðilanum. „Við megum
ekki ganga fram hjá þessari
staðreynd. Við verðum að reyna
að koma í veg fyrir þetta, eins
og okkur er frekast unnt,” sagði
Col. Green.
Hann sagði enn fremur, að
það væri ákaflega eðlilegt, að
meira bæri á árekstrum nú en
áður í höfuðstað landsins. Hann
hefði á örskömmum tíma
breytzt úr lítilli borg í stóra
borg. Hér í Reykjavík væru
2700 farartæki innlend og til
viðbótar kæmu svo öll farar-
tæki hersins. Hins vegar bæri
að gera allt, sem mögulegt
væri til þess að forða árekstr-
unum, áetuliðið vildi gera allt,
sem í þess valdi stæði til þess
að það mætti takast. Honum
væri kunnugt um það að ís-
lenzk lögregluyfirvöld vildu
gera allt, sem þau gætu, og þá
kæmi að almenningi. Nauðsyn-
legt væri að almenningur skildi
hvert stefnt væri og vildi hann
Frh. á 7. síðu.
VERÐ Á SALTKJÖTI
hefir nú verið ákveðið, og
er það örlítið hærra en það
var í fyrra.
112 kg. tunna af saltkjöti á að
kosta kr. 786.00, en hálftunn-
an 400 kr. í fyrra kostaði
hálftunnan 390 krónur.
En hefir ekki verið ákveðið
verðið á saltkjöti í smásölu, en
gert er ráð fyrir að það verði
hið sama og í heiltunnum að
viðbættum 15%, en þannig
hefir vérðið áður verið ákveðið
í smásölu.
Þess skal getið, að af verði
saltkjötstunnunnar eru um 80
krónur, sem liggja í umbúðum,
Réttarhöldiii út af
árúsiDBi á
Iðgreginna.
Stóðu allan daginu í gær.
RÉTTARHÖLD stóðu allan
daginn í gær í málinu út
af árás þeirra Hrafns Jónssonar
Sigurjóns Þórðarsonar og An-
drésar Bjamasonar á lögreglu-
mennina aðfaranótt þriðjudags.
Aðeins einn lögreglumanna,
Aðalsteinn Jónsson var svo
hress að hann gat mætt við
réttarhaldið. Hinum lögreglu-
mönnunum tveimur líður eftir
öllum vonum.
AigýðnskáiiDB hefst
15. október.
Kennsia fer fram að Mdini
fimm kvðld] viknnnar.
ALÞÝÐUSKÓLINN verður
settur 15. þ. m. Verður
hann til húsa í Stýrimannaskól
anum eins og undanfarið.
Kennslan fer fram að kvöldlagi5
kl. 8—10, fimm kvöld vikunn-
ar. Námsgreinar eru íslenzka,
danska, enska, reikningur og
bókfærsla. Nemendum er
frjálst að velja sér námsgrein-
ar eftir eigin geðþótta. Skúli
Þórðarson magister veitir skól-
anum forstöðu. Nemendur vorii
í fyrra 36 talsins.
Alþýðuskólinn er stofnaður
og starfræktur í því skyni að
gefa fólki, er stundar vinnu að
deginum, kost á að afla sér
fræðslu á þeim tímum, sem því
er unnt að sinna slíku. Skólinh
veitir unglingum, sem eru
bundnir við störf á daginn, á-
kjósanlegt færi á að afla sér
nokkurrar menntunar. Hafa
margir unglingar notað þetta
tækifæri til að afla sér undir-
stöðuþekkingar áður en þeir
hófu nám í gagnfærðaskólum,
iðnskóla eða öðrum sérskólum.
Tilkynnið flutninga
í afgreiðslu Alþýðublaðsins, sími
4900 og 4906.
söltunarkostnaði og flutnings-
kostnaði.
Saltkjötið mun koma á mark
aðinn eftir tíu daga eða svo.
Eins og kunnugt er fá bænd-
ur verðuppbót á þetta kjötverð.
Kartöfluverð hefir verið á-
kveðið að nýju.
Tók ríkisstjórnin fullnaðará-
kvörðun um að lækka verðið
á innlendUm markaði í smásölu,
úr kr. 1.40 niður í kr. 1.00 kg.
Tunnan af kartöflunum hefir
kostað kr. 112,00, eri samkvæmt
þessari nýju verðlagsákvörðun
mun hún kosta rúmlega 80 kr.
Ríkisstjórnin hefir eins og áður
hefir verið skýrt frá, álcveðið
að verðuppbæta kartöflurnar
til framleiðenda.
Ný verðlagsákvæði:
Kjöttnnnan á að kosta 786
kr. og hálftnnnaa 466 kr.
Marföfðuriiai* i SBnásölra 1. kr.