Alþýðublaðið - 22.10.1943, Qupperneq 2
t
Hver hreppti hnossið?
& 'o'
flÞað var 33918, sem upp kom, þegar dregið var um húsið í happ-
drætti Hallgrímskirkju um hádegið í gær. En seint í gærkveldi
hafði eigandi þess happdrættismiða enn ekki gefið sig fram.
Dómsmálastðrfin í Reykjavik;
NeOri deild sampykkir að Iðgregla
stjöri sknli vera lðgfræðiBgor.
-----.....—
In paO á pé ekki að ná til nú>
verandi lðgreglust|óra.
Bolli Thoroddsen kos-
inn bæjorverkfræð-
ingur í einu hljóði.
BOLLI THORODDSEN verk
fræðingur var eini um-
sækjandinn um bæjarverkfræð
ingsembættið hér í bænum. en
það losnaði, er Valgeir .Bjerns-
son var kosinn hafnarstjóri.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var Bolli Thoroddsen kjörinn
bæjarverkfræðingur með 15
samhljóða atkvæðum.
Kennara vikið frá
sfarfi sínu fyrir marg
endurtekna vanræksiu
Aðalsteini hallssyni
fimleikakennara hefir af
skólanefnd Austurbæjarskólans
verið vikið frá starfi fyrir marg
endurtekna vanrækslu.
Um þetta segir í fundargerð
skólanefndar Austurbæjarskól-
ans frá 11. þ. m.
„Skólastjóri skýrði frá því, að
Aðalsteinn Hallsson kennari
hefði ekki mætt til starfs frá
því á þriðjudag 5. þ. m. og eng-
inn boð gert skólanum um for-
föll, en þann dag gekk hann um
skólann og tilkynnti börnunum
í samráði við skólastjóra hve-
nær þau ættu að mæta til leik-
fimisnáms. Skyldi kennsla hefj-
ast samkvæmt stundaskrám
daginn eftir, miðvikudag. 6. þ.
m. Skólastjóra hefir ekki tekist
að ná sambandi við hann. Þar
sem hér er um marg endur-
tekna vanrækslu að ræða hjá
Aðalsteini Hallssyni. ákveðúr
skólanefndin að víkja honum
úr kennarastöðunni um
stundarsakir, samkvæmt heim-
ild í lögum nr. 75, 28. nóv. 1919
og felur form. að skjóta málinu
undir úrskurð stjórnarráðsins.“
♦VTEÐRI deild samþykkti í
gær og afgreiddi til efri
deildar friunvarp ríkisstjórnar-
innar um dómsmálastörf, lög-
reglustjórn, gjaldheimtu o. fl.
í Reykjavík. Er með frumvarpi
þessu gert ráð fyrir skiptingu
núverandi lögmannsemhættis í
borgardómaraembætti og borg-
arfógetaembætti, eins og áður
hefir verið frá skýrt.
í frumvarpinu er svo ráð fyr-.
ir gert, að lögreglustjórinn í
Reykjavík skuli fullnægjá lög-
mæltum dómaraskilyrðum, en
hins vegar haggi það ekki skip-
un núverandi lögreglustjóra í
embættið.
Sigurður Bjarnason frá Vig-
ur bar fram þá breytingartil-
lögu við frumvarpið, að þegar
lög þessi hefðu öðlazt gildi,
skyldi „auglýsa lögreglustjóra-
embættið í Reykjavík laust til
umsóknar með hæfilegum fyrir
vara, enda hafi þá núverandi
lögreglustjóri verið veittur kost
ur á öðru starfi.“ — Tillaga
þessi var felld að viðhöfðu
nafnakalli með 21 atkv. gegn
13.
Þá var og felld breytingartil-
laga frá Þóroddi Guðmundssyni
þess efnis, að lögreglustjóra-
embættið skuli „aðeins veitt að
fengnu samþykki bæjarstjóm-
ar Reykjavíkur.“
Eftir þetta var frumvarpið
samþykkt í neðri deild og af-
greitt til efri deildar, eins og
áður getur.
Veizlan á Sólhaugum,
leikritið eftir norska stórskáldið
Ibsen, sem Norræna félagið sýnir
um þessar mundir, er leikið í
kvöld. Verður leikritið sýnt aðeins
örfá skipti enn og er því hver síð-
astur fyrir fólk að sjá þennan vin-
sæla sjónleik.
Ljósatími ökutækja:
Frá og með deginum í dag breyt-
íst ljósatími ökutækja þannig, að
kveikja ber kl. 17.40 á daginn og
slökkva kl. 7.10 á morgnana.
Bók Alberts Engström,
„Át Heklefjáll“ kemur út innan
skamms í þýðingu Ársæls Árna-
sonar.
Föstudagtrr 22. október 1943.
AF AUKNEFNI:
Theédór Friðriksson dæmdur í
sekf eða í „Steininn" í 5 daga!
»■..- —
Theódór er að ráða það við sðg hvort hann áfrýjar mátinu.
'T’ HEODÓR FRIÐRIKS-
SON rithöfundur hefir
staðið í mörgu um æfina og
lent í ýmsum æfintýrum, en
eitt hefir honum víst áreiðan
lega komið mest á óvart —
og það bar við fyrir fáum
dögum.
Þá kvað lögmaðurinn í
Reykjavík upp dóm yfir Theo-
dóri, þar sem honum er gert
að greiða 100 krónur í sekt eða
að öðrum kosti að fara í „Stein-
inn“ í 5 daga, að greiða 60 kr.
fyrir að láta hirta sér dóm
þennan og loks að greiða 150
krónur fyrir það að honum var
sjálfum stefnt.
Theódór Frðiriksson.
Hermann og Eysieinn
gefaskýrslu í etðrofs-
málinu.
# mmmmmmmm
Verður birt i Tíman-
um innan skamms.
TÍMINN, sem út kom í gær
gerir að umtalsefni eið-
rofsmálið á alþingi og sérstak-
lega varnarræðu Ólafs Thors í
fyrradag. Blaðið getur þess að
innan skamms muni þeir Her-
mann Jónasson og Eysteinn
Jónsson „gefa ítarlega skýrslu“
um þetta mál í tilefni af skýrslu
Ólafs Thors — og verði hún
birt í blaðinu.
Tveir ölvaðir pillar
slela bifreið.
Annar þeirra slasast mHcið
— og bifreiðin siórskemmlsf.
Þetta er furðulegt mál. The- ♦
ódór Friðriksson gat dugnaðar-
manns nokkurs í sjálfsæfisögu
sinni „í verum” sem hann
þekkti í gamla daga, gat hann
um kosti hans og breyskleika og
loks um auknefni, sem sumir
höfðu gefið þessum manni fyrir
mörgum árum. Og nú las sonur
þessa manns bók Theódórs og
reiddist ákaflega fyrir hönd
hins látna föður síns, fór til lög
fræðings og keypti aðstoð hans
og úrræði til málssóknar gegn
skáldinu, en það keypti sér aft-
ur annan, þótt fjárhagurinn
væri þröngur, til að halda
skildi fyrir sig.
Hinn orrustuglaði sonur hrós
aði sigri yfir skáldinu: ummæli
þess voru dæmd dauð og ómerk
— og sektarkvaðirnar dundu
■yfir það.
Theodór Friðriksson sagði við
Alþýðublaðið í gær, að hann
væri enn ekki ákveðinn í því
hvort málinu yrði áfrýjað —
og heyrði hann dómsniðurstöð-
una fyrst, er Alþýðublaðið
sagði honum hana.
Hinsvegar kvaðst Theodór ef
til vill myndi birta varnarskjöl
sín í málnu, vottorð um upp-
uppnefni mansins og annað þar
að lútandi, myndir og fleira.
Myndi hafa farið betur á því,
að slíkur málarekstur hefði
aldrei verið hafinn.
yiSskipfasamningur
íslands og Banda-
ríkjanna gengur í
gildi 19. nóvember.
10 INS og frá hefir verið
skýrt var hinn 27. á-
gúst undirritaður hér í
Reykjavík verzlunar- og við-
skiptasamningur milli ís-
lands og Bandaríkjanna. Sam
kvæmt ákvæðum samnings-
ins skal hann ganga í gildi
30 dögu meftir að staðfesting
arskjölum hefir verið skipzt
á í Washington. Samkvæmt
tilkynningu, sem utanríkis-
ráðuneytinu hefir horizt
var staðfestingarskjölunum
skiþzt á í Washington í gær
og gengur þá samningurinn í
gildi hinn 19. nóvember 1943.
Rannsókn brunans í
Austurslræti 6.
j|3 .ANNSÓKN út af brunan-
um í Austurstræti 6 fór
fram í gær, en var ekki lokið.
Það mun þó mega teljast
líklegt að kviknað hafi í kjall-
ara húsins út frá miðstöð.
Það hefir ekki reynst rétt að
brunnið hafi filmur frá Ama-
törverzluninni. Allar filmur,
sem verzlunin hafði undir hönd
um eru óskemmdar.
Rafmagnsveita
REYKJAVÍKUR legg-
ur mikla áherzlu á það, að
rafmagnsnotendur spari raf-
magn eftir ítrustu getu.
Horfir til stórra vandræðá
vegna skorts á rafmagni og
verður ekki hægt úr að hæta
fyrr en í fyrsta Iagi um ára-
mót, en þá er von um að lok-
ið verði við stækkun Ljósa-
fosstöðvarinnar.
Nýlega sendi Rafmagnsveitan
Alþýðublaðinu ítarlega greinar
gerð um það hvernig sparnað-
ur á rafmagni yrði fram-
kvæmdur með hægustu móti og
fer hún hér á eftir:
„Stækkun stöðvarinnar við
Ljósafoss hefir seinkað nokkuð
frá því, sem gert var ráð fyrir,
af óviðráðanlegum ástæðum.
Aftur á móti hefur álagið auk-
ist á stöðvunum frá því í fyrra,
vegna nýbygginga og iðnaðar-
fyrirtækja, sem sett hafa verið
upp. Þefta orsakad að! -efrfið-
leikar eru nú miklir á að skaffa
notendum á orkuveitusvæði
Rafmafrr^"-itu Reykjavíkur
"-i ralo .i.u, þar til stækkun
TVEIR piltar um tvítugsald-
ur stálu í fyrrinótt fólks-
bifreið, er stóð við húsið Mána-
götu 22.
Piltarnir voru báðir druknir
og óku þeir bifreiðinni, sem
leið liggur til Hafnarfjarðar og
suður í Hafnarfjarðarhraun. Og
þeir komu að Straumi stóð þar
vöruflutningabifreið á veginum
og óku þeir á hana með þeim
afleiðingum að önnur hlið fólks
bifreiðarinnar fór svo að segja
úr henni og annar pilturinn slas
aðist hættulega. Var hann flutt-
ur í Landsspítalann og hefir
ekki verið 'hægt að yfirheyra
hann, en hann mun hafa stýrt
bifreiðinni.
stöðvarinnar við Ljósafoss er
búin. Tekin hefir því verið upp
aftur skoðun í húsum, hvort
rafmagnsofnar eru notaðir frá
kl. 10.45 til 12 og leiðir sú skoð-
un í Ijós, að nokkuð er gert að
því ennþá Sérstaklega 1 verzl-
unum og skrifstofum, einnig í
smáiðnaði.
Það er mjög mikilsvarðandi,
að banni bæjarstjórnax Reykja
víkur um ofnanotkun á þessum
tíma, sé hlýtt til hins ítrasta.
Þá hefir bæjarráð Reykjavík
ur samþykkt að senda öllum
rafmagsnotendum í Reykjavík
og nágrenni hennar reglur, um
hvernig notendum sé bezt að
haga rafmagnsnotkun sinni,
meðan ástand það varir, sem
nú er svo þeim verði sem bezt
not af raftækjunum og er nú
þegar búið að senda þær til
flestra rafmagsnotenda og
verða þær sendar til allra not-
enda í Reykjavík.
Reglur þessar miða allar að
því að fá rafmagnsnotkunina
minkaða á tímabilinu frá kl.
10 til 12. Að spennan hefir
lækkað að kvöldinu stafar að
mestu leyti af vatnsskorti í Ell-
iðaánum, sem hefir nú lagast í
bili.
Framh. á 7. síðu.
Greinargerð Rafmagnsveitunnar:
Sparnaðnr rafmagnsins er
mjðg knýjandl naaðsyn.
Ef 5000 suðuvélaeigendur gæta itrasta
sparnaðar bætir það mjög mikið úr«