Alþýðublaðið - 22.10.1943, Side 7

Alþýðublaðið - 22.10.1943, Side 7
IFöstudagur 22. október 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ iBœrinn í dag.í Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni í Austurbæj arskólanum, sími 5030. Næturvörður er í Reykjavíkur- .Apóteki. ÚTVARPIÐ: 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 ísl.-kennsla, 1. fl. 19.00 Þýzkukennsla, 2. fl. 20.00 Fréttir. 20.30 íþróttaþáttur ÍSÍ <Sigurður Bjarnason fár Vigur.). 20.45 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 19. C-dúr, eftir Mozart. 21.00 Erindi: Kennslueftirlitið — Snorri Sigfússon skólastjóri. — Helgi Elíasson, fulltrúi). 21.20 Symfóníutónleikar (pl.). — Faust-symfónían eftir Liszt. 22.20 Fréttir. — Dagskrárlok. Fæffissala: Viðskiptaráð hefir ákveðið nýtt verð á fæði, samanber auglýsingu Á öðrum stað hér í blaðinu. Verðiagseftirltið og samnastoforDar. Ur .T AF frásögn í blaðinu í gær, um að nokkrar sauma ;stofur ihafi verið sektaðar fyrir íbrot ,á verðlagslögunum hefir folaðinu verið skýrt frá að til- drög málsins gegn þessum saumastofum hafi verið þau, að þegar að verðlagsnefnd þann 20. ap. s.l. setti verðlagsákvæði um saumalaun töídu saumastof urnar að saumalaunin væru á- kveðin svo lág, að framleiðslan svaraði ekki kostnaði, ef fara ætti eftir þeim. Þessvegna hættu saumastofurnar að selja kjóla. Þann 12. júní s. 1. setti verðlagsstjóri því sérstaka verð lagningu á kjóla saumastofanna og samkvæmt þeim mátti yfir leitt taka hærri saumalaun en ákveðið var í tilkynningunni frá 20. apríl. Saumastofurnar töldu þetta fullnægjandi og hófu kjólasölú á ný, en varð- lagsstjóri kærði þær fyrir að hafa hætt að selja. Dómurinn í málinu var á þá leið, að sauma stofunum hafi verið heimilt að hætta sölu á þeim kjólum, er þær áttu er verðlagsákvæðin frá 20. apríl gengu í gildi, ef tilgangurinn hafi verið sá að hafa vöruna ekki framar á boð stólum, sem verzlunarvöru, en með því að hefja sölu á kjólun- um er varðlagsstjóri heimilaði saumastofunum hærri álagn- ingu, en gert var 20. apríl, hafi saumasíofurnar gerst sekar um forot á verðlagslögunum. Fyrir þetta voru saumastofurnar sektaðar. Beimboð norskra og daiskra barna. Frá Jóhanni Sæmunds- syni tryggingayfirlækni foefir Alþýðublaðinu bor i izt eftirfarandi athuga- send: ViEGNA þess, að sleppt hefir verið upphafi greinar þeirr ar um heimboð norskra og danskra barna, er Alþýðublaðið foirti 19. þ. m. eftir tímaritinu Helgafelli, gæti litið s’fco út sem hugmyndin væri frá mér runn in. Hlutdeild mín í málinu er aðeins sú, að ég rakti lauslega að beiðni ritstjóranna hvernig hugsanlegt væri að haga fram kvæmdum. Jóhann Sæmundsso*. fiafmagnið. Frh. af 2. síSu. Vér viljum nú í stuttu máli skýra áður nefndar reglur fyrir notendum: Fyrsta atriðið í reglunum er að taka allar rafmagnshitunar- ofna úr sambandi frá kl. 10 til 12. Við það að taka ofnana úr sambandi léttir álagið á línun- um, svo meiri orka verður á suðuvélum, hreyfivélum og ljós um. Eins og áður er sagt, þá er bannað að nota ofnía frá kl. 10.45 til 12. Annað atriðið er dreyfing matsuðunnar á tímann frá kl. 9.30 til 12, og að nota sem minnstan straum á suðuhellurn ar eftir að suðan er komin upp. Þetta atriði er mjög mikilsvarð andi eins og nú á stendúr, sér- staklega að nota sem minnstan straum á hellurnar eftir að suðan er komin upp. Verður því ávallt, þegar suðan byrjar að stilla rofa hellunnar á nægir til að halda við suðunni, þá stilla á næsta stig og mun fullum straum er óþarfa straum eyðsla og óþörf útgjöld fyrir notendur, og eins og nú á stendur, er beinlínis nauðsyn- legt að gæta þessa atriðis vand- lega, þar sem með því að láta sjóða á óþarflegum miklum straum er lækkuð spennan að óþörfu. Uppsettar eru nú í Reykja- vík um 5000 eldavélar og mun- ar því miklu á álaginu, hvort þess er yfileitt gætt að láta sjóða í pottunum á sem minnst- um straum að hægt er. Þá er þriðja atriðið, að nota ekki bökunarofna til baksturs frá kl. 9.30 til 12. Bæði er það að baksturinn á þessum tíma eykur straumnotkunina og þar með spennufallið, og einnig er hætt við, að það sem baka skal skemmist, ef ekki er full spenna og er því hyggilegra að geyma baksturinn til þess tíma dags- ins, sem spennan erí lagi. Fjórða atriðið er um rafknú- in heimilisáhöld, að nota þau ekki, þegar spennan er lág. Þó þessi áhöld taki ekki mik- inn straum hvert, þá eru þau mörg, og safnast þegar saman kemur, einnig er hætta á, að mótorar þeirra hitni um of og eyðileggist. Það, sem hér hefir ,verið sagt, á aðallega við heimili og veit- ingastofur, en reglurnar frá 5 til 8 eiga aðallega við verzlun ar- og iðnaðarfyrirtæki. Fimmta atriðið þarf ekki að skýra frekar, en gert var í sam bandi við fyrsta lið, það er að nota ekki hitunarofna frá kl. 10 til 12. Sjötta atriðið aftur á móti er rétt að skýra sérstaklega, þó það að nokkru leyti falli undir skýringar á öðrum lið. Það at riði er um að taka öll rafmagns suðu- og hitatæki úr sambandi, sem með nokkru móti er hægt að vera án í iðnaðinum frá kl. 10 til 12. Sjálfsagt er að minnka straum á þeim tækjum, sem ekki er hægt að taka úr sam- bandi á þessum tíma, og gildir það að sama að nokkru leyti um ýmis afþessum tækjum, eins og sagt var viðvíkjandi öðrum lið. Þá er sjöunda atriðið, að nota ekki rafknúðar logsuðuvélar frá kl. 10 til 12. Þessar raf knúðu logsuðuvélar nota mik- inn straum, en stuttan tíma í einu og ætti enginn að nota þær á þessum tíma, því bæði valda þær spennufalli í leiðsl unum og svo er hætt við, að vinnan sem, unnin er með þeim þegar spennaner lág, verði ekki góð. Þá er áttunda og síðasta at- riðið í þessum reglum, um að stöðva alla rafmagnsmótora sem frekast er hægt að vera án, frá kl. 10 til 12 og létta sem mest álag á þeim, sem verða að vera í gangi. Það er mjög mikilsvarðandi, að iðnrekendur og aðrir, sem nota rafmagnsmótora, gæti pessa atriða, bæði til að minnka spennufallið í leiðslunum og einnig til að vernda mótorana fyrir ofraun. Ef mótorar eru látnir ganga með fullu álagi við of lága spennu, er mikil, hætta á, að æir ofreynist og í versta til- felli kvikni í þeim og, vinding- að spara raforkuna.“ Eins og nú er ástatt, eru það notendur raforkunnar, sem með 3ví að fylgja reglum þessum, geta afstýrt vandræðum. Eng- mn má hugsa sem svo, að ekk- ert muni um þó hann taki strauminn af ofninum sínum, eða láti sjóða á sem minnstum straum á suðuhellunni. Allir verða að gera sitt til ar þeirra eyðileggist. Þegar Sveinbjörn ætl- aði að leiða athyglina ser. Q SKÝRSLU þeirri, er stjórn ^ Mjólkursamsölunnar hef- ir látið birta í blöðum bæjarins nú síðustu dagana, er látið liggja að því, að kærur hafi komið fram vegna ástands mjólkur- búða, sem Alþýðubrauðgerðin rekur. Emil Jónsson upplýsti það í þingræðu í gær, að samkvæmt frásögn forstjóra Alþýðubrauð- gerðarinnar hefði engin slík kæra komið fram. Hins vegar er það. að þegar hætt er sölu á flöskumjólk í búðum og farið að selja smjólk í lausu máli, þá þurfa að fara fram nokkrar breytingar á búðunum. s. s. að flísaleggja þær. Það eina, sem komið hefir fram í sambandi við þessar umræddu búðir Alþýðubrauð gerðarinnar er það að farið hefir verið fram á, £$ sótt yrði um löggildingu á þess- um búðum. En það er auð- vitað allt annað en það, að kært hafi verið yfir ásig- komulagi þeirra. Þessi árás á Alþýðubrauð gerðina er því ekki annað en mishepnað herbragð Sveinbjarn ar Högnasonar. En þeir góðu herrar, sem hafa gert óreiðuna í mjólkursölumálum höfuðstað- arins að sáluhjálparatriði sínu, mega vel vita, að það þarf miklu oflugri „bornbur11 en þá sem hér hefir verið kastað, til þess að beina athygli almennings frá hinni ófrægilegu stjórn þeirra á mjólkursölumálunum. 'á&V- -sz: —— Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðar- för móður okkar, Elísabetar Hafliðadóttur, svo og þeim, er reyndust henni vel í veikindum hennar, þökkum við hjartanlega. Fyrir hönd vandamanna. Jörgen Jónsson. i Hjörleifur Jónsson. Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ingeborg Mogensen, andaðist í gær, 21. október. Peter Mogensen, börn, tengda- og barnabörn. fvö ný mef á sundmófi Ármanns í fyrrakvöid. SUNDMÓT ÁRMANNS fór fram í fyrrakvöld fyrir fullu húsi áhorfenda. Tvö ný met voru sett á mótinu og voru það Ármenningar, sem stóðu fyrir þeim báðum. Hið fyrra var sett í 4X50 m. bringuboð- sundi, á 2:24,1 mín., en gamla metið var 2:27,6 og fór KR einn ig undir því. Hitt metið setti Ármann í 8X50 m. boðsundi á 3:59,2 mín. Ægir hafði sama tíma, en Ármann vann á hlut- kesti. Ægir á því líka þennan mettíma. TILKYNNING. Viðskiptaráðið hefir ákveðið nýtt hámarksverð á fÖstu fæðj. og einstökum máltíðum svo sem hér segir: I. Fullt fæði karla . kr. 315.00 á mánuði. Fullt fæði kvenna .... kr. 295.00 á mánuði. II. Einstakar máltíðir: Kjötréttur ..... kr. 4.00 Kjötmáltíð (tvíréttuð) .. kr. 5.00 Ákvæði tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og með 22. október 1943. Reykjavík, 20. akt. 1943. Verðlagsstjórinn. Aðvörun. Við athugun um framkvæmd bókhaldslaganna nr. 62 frá 11. júní 1938 hefir komið í ljós, að mjög verulegur hluti bókhaldsskyldra aðila hefir eigi enn komið bókhaldi sínu í löglegt horf. i Þegar á fyrsta ári eftir að nefnd lög öðluðust gildi, voru gerðar ráðstafanir til þess að auðvelda mönnum að koma fram lögskipuðum endurbótum á reikningsfærslu sinni. — Hafa síðan verið gefnar ýmsar leiðbeiningar og aðvaranir í þessu efni, sem hafa þó eigi enn borið tilætlaðan árangur, þótt við næstkomandi áramót séu liðin 5 ár frá gildistöku laganna. Bókhaldsskyldir átvinnurekendur, jafnt smærri sem stærri, eru því hér með aðvaraðir um það, að skattframtöl þeirra verða Héreftir ekki tekin til greina af Skattstofu eða Niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur, heldur verða tekjur þeirra og skattgreiðslur áætlaðar undantekningarlaust, án frekari viðvörunar, reynist bókhald þeirra ekki fyllilega lögum samkvæmt. Skattstjórinn í Reykjavík. Formaður Niðurjöfnunarnefndar Reykjavíkur. ) Halldór Sigfússon. Gunnar ViÓar. Keppnin í boðsundunum var mjög skemmtileg, sérstaklega í hinu lengra. Ármann fór langt fram úr í fyrstu, en Ægir var með alla gömlu kappana á end- anum og unnu þeir inn allt for- skot Ármenninga. Voru sveit- irnar dæmdar jafnar, en varp- að hlutkesti um verðlaunin og kom upp hlutur Ármanns. í 100 m. bringusundi var skemmtileg keppni milli Sig- urðar Jónssonar, KR og Magnúsar Kristjánssonar, Á, sem lauk með sigri Sigurðar á sæmilegum tíma. í 100 m. bringusundi sigrac hinn efnilegi sundmaður ÍI inga, Guðmundur Ingólfssoi sem er aðeins 14 ára, — og í 4C m. skriðsundi vann Guðm. Gu< jónsson, Á og þar með Vísi: bikarinn í fyrsta sinn. Bridgefélag Reykjavlkur helt aðalfund sinn í fyrrakvölc í stjórn þess voru kosnir: Höröu Þórðarson, form. og meðstjórnenc ur Einar Þorfinsson og Magnó Björnsson.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.