Alþýðublaðið - 29.10.1943, Qupperneq 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
9
F«studagoir 29. október 1943.
Mynd þessi er af ítölskum stríðsföngum, sem bandamenn höfðu náð á vald sitt. Yar hún
tekin í tilefni þess, er þeim bárust tíðindin um uppgjöf ættjarðar sinnar. Það dylst ekki,
að þeim þykja tíðindin góð. Þeir eru glaðir og reifir, end$ er þess getið, að vel hafi farið
á með þeim og bandamönnum.
Fundur um mennla-
mál í Bandaríkjunum
Bandamenn hrekia Djóðverja
ssfellí lessgra np@ I flalllendið.
.♦
Kesselrisig stefnt til Beriínar vegna
skoðanamunar við Rommel.
■ ♦ ....
HERSVEITIR BANDAMANNA á Ítalíuvígstöðvunum
hafa enn treyst aðstöðu sína síðasta sólarhringinn og
náð nokkrum bæjum á vald sitt, m. a. Mafaldo og Riardo,
svo og Torella, sem stendur úti við strönd Adríahafsins.
Loftsóknin gegn Norður-Ítalíu og stöðvum Þjóðverja í
hermmidu löndunum við Miðjarðarhaf heldur áfram. Voru
í gær harðar loftárásir gerðar á járnbrautin frá Austur-
ríki til Rómaborgar, svo og á staði í Júgóslavíu og Grikk-
landi og á Tylftareyjum.
T^T ÝLEGA komu fræðimenn
™ frá þrjátíu og einni þjóð
saman til fundar í hinu frið-
sæla fjallahéraði Iiarpers Ferry
í Ve^tur-Virginíu í Bandaríkj-
unu. Var efnt til fundar þessa í
því skyni að leggja fram áætl-
anir um endurskipulagningu
menntamála um víða veröld og
eflingu tengslanna millum há-
skóla allra þjóða heims.
Fræðimenn frá Bandaríkjun-
um og öðrum hinna sameinuðu
þjóða, voru boðaðir á fundinn
af Alheimsmenntamálasamband
inu til þess að ræða vandamál
sín og leggja fram áætlanir um
stofnun nefndar, sem allar þjóð ]
ir heimsins eigi sæti í pg ann-
ast skuli þróun menntunar og
menningar.
■ Samþykkt var fundarálykt-
Un, þar sem fundarmenn létu í
ljós sanna aðdáun á hugrekki
og hollustu kennara i hinum
hernumdu löndum . Enn frem-
ur var samþykkt að upprætt
skyldi kennslukerfi óvinanna,
sem kæmi í veg fyrir allar fram
farir á vettvangi menntamála
og menningar. Hins vegar var
ákveðið að eigi skyldi haggað
við kennsluaðferðum hinna
sameinuðu þjóða, og hétu fund-
armenn aðstoð sinni við endur-
heimt alls þess, sem með þarf,
til þess að halda uppi kennslu
og endurheimt hinna lýðræðis-
legu reglna í fræðslumálum.
F REGNIR frá Tokyo í gær
greindu frá landgöngu
bandamanna á eina af Salomons
eyjunum, og segjast Japanir
hafa lagt til harðrar atlögu við
' landgöngulið þetta.
Fréttir frá aðalbækdstöðv-
um MacArthurs hershöfðingja
Þýzku hersveitirnar hörfa
hægt lengra upp í fjalllendið,
þar sem þær hyggjast koma
sér upp hinni nýju varnarlínu,
sem fyrr hefir verið frá skýrt
í fréttum. Bandamenn halda
hins vegar uppi vasklegri loft-
sókn gegn þeim á undanhald-
inu. Miðar sókn hersveita
bandamanna nú einkum að því
að 5. og 8. herinn nái sem fyrst
saman. Hafa þær treyst aðstöðu
sína vel með töku bæjanna
Mafaldo og Riardo. Einnig hef-
ir 8. herinn náð á vald sitt bæn-
um Torella, sem stendur úti
við strönd Adríahafsins. Býst
hann nú sem vendilegast um
norðan Trignoárinnar og veitir
þar sífellt betur í átökunum
við þýzka herinn. Tefla báðir
aðilar einkum fram stórskota-
skýra frá mikilli loftsókn
bandamanna gegn Rabul. Eyði-
lögðu flugvélar þeirra 21 flug-
vél fyrir Japönum á jörðu óg
skutu að auki 37 niður í loft-
orrustum í árás þessari. Ein
flugvél bandamanna fórst í árás
inni, en áhöfn hennax varð
bjargað.
liði á þeim slóðum.
Flugher bandamanna er
einnig athafnasamur norðan
vígstöðvanna og gerði hann í
gær einkum harðar árásir á
járnbrautina, er liggur frá
Rómaborg til Austurríkis með
miklum árangri, svo og á ýms-
ar stöðvar Þjóðverja á Norður-
og Mið-Ítalíu. Einnig fór flug-
her bandamanna við Miðjarð-
árhaf í gær í árásarleiðangra á
staði í Júgóslavíu, Grikklandi
og á Tylftareyjum. í Grikk-
landi var mest árás gerð á
Saloniki, en á Tylftareyjum á
Kos og Stampalíu.
Þess var getið í fréttum
bandamanna í gær, að Kessel-
ring, yfirmanni þýzka hersins á
vígstöðvunum á Suður-Ítalíu,
hafi verið stefnt til ^erlínar.
Er talið að því valdi skoðana-
munur millum hans og Rom-
mels, sem skipaður hefir verið
yfirmaður hinna þýzku her-
sveita á ftalíu og í Júgóslavíu.
Er talið, að Hitler vilji gefa
Rommel tækifæri til þess að
rétta hlut sinn að nýju eftir
ófarirnar í Afríkustyrjöldinni,
enda sé Rommel einhver ötul-
asti stuðningsmaður hans með-
al þýzku hershöfðingjanna.
Rássar sækja hratt framjfrá
Pnleprbugðu 111 flzovshafs
Eru í þann veginn að loka hringnum
um Krivoirog.
13 ÚSSNESKU HERSVEITIRNAR eru í hraðri sókn á
AL gervöllu svæðinu frá Dnieprbugðunni til Azovshafs.
Miðar þeim einkum vel áfram vestur og suður af Melitopol
og hafa alla járnbrautina frá Melitopol til Zaporoshe á valdi
sínu. Rússar hafa einnig náð bænum Goriloya á vald sitt,
en eftir fall hans hefir aðstaða þýzku hersveitanna á Krím
versnað enn að miklum mun.
Átökin um Krivoirog halda enn áfram. Gera Þjóðverjar
þar hverja gagnárásina af annnari, sem Rússar hrinda þó
jafnharðan.
Rússar leggja ofurkapp á
framsókn sína syðst á vígstöðv-
unum og hyggjast auðsýnilega
koma í veg fyrir undanhald
þýzka hersins á Krím land-
leiðis. Hafa þeir sótt fast fram
suður og vestur af Melitopol
síðasta sólarhringinn og náð á
vald sitt bænum Goriloya og
hafa þannig bætt mjög aðstöðu
sína í tilraun sinni til þess að
loka síðustu undanhaldsleið
Þjóðverja frá Krím. Er sókn
þeirra á þessum slóðum auð-
sýnilega heitið til Perekop.
Treysta þeir mjög aðstöðu sína
á þessum slóðum með töku
járnbrauta og annarra sam-
gönguleiða.
Þjóðverjar freista undan-
halds úr Dnieprbugðunni sunn-
an við Krivoirog, en gjalda
mikil afhroð á mönnum og her-
gögnum. Var þess getið í frétt-
um í gær, að þýzku herirnir
væru á hröðum og algerum
flótta á gervöllu svæðinu frá
Kremenchug til Azovshafs, og
var talið líklegt, að Rússum
myndi auðnast að innikróa þá
innán skamms þannig að þeim
yrði engrar undankomu auðið
og ættu ekki annarra kosta völ
en gefast upp eða stráfalia elia.
Átökin um Krivoirog halda
sífellt áfram og af sömu hórku
og fyrr. Gera Þjóðverjar þar
hvert gagnáhlaupið af öðru,
sem Rússar hrinda þó jafn-
harðan, og sækja rússnesku
hersveitirnar fast fram í borg-
inni. Jafnframt freista þær þess
að slá hring um hana til þess
að fyrirbyggja það, að Þjóð-
verjum verði undankomu auð-
ið. Voru þær í gærkvöldi sagð-
ar vel á veg komnar með að
loka hringnum um borgina og
munu að því loknu efna til úr-
slitaátakanna við þýzku her-
sveitirnar inni í borginni.
Fréttir frá hlutlausum lötid-
um skýra frá því, að hrakíarir
þýzka hersins á austurvígstööv-
unum og hin mikla loítsókn
bandamanna á Þýzkaland hnfi
mjög brotið siðferðisþrótt
þýzku þjóðarinnar. Láta þær
þess getið, að Göbbels hafi nú
hafið nýja áróðursherferð og
fullyrði, að engin líkindi séu til
þess að samkomulag náist á
þríveldaráðstefnunni í Moskva.
Á hann að hafa gefið í skyn,
að svo kynni að fara, að þýzki
herinn tæki þann kost að
hörfa til landamæra þeirra,
sem voru áður en styrjöldln á
austurvígstöðvunum hófst og
kynni þá svo að fara að leitað
yrði sérfriðar við Rússa. Er
Ráðstefnan við Hiller
19. júHvarð Mussolini
að falli
Frásögn Badoglios marskátks
■DREZKA blaðið „The.Man-
A-® chester Guardian“ hefir
nýlega birt frásögn Pietro Ba-
doglios marskálks um faE
Mussolinis. Segir Badoglio að
Mussolini hafi ákveðið að segja
af sér á fundi, sem haldinn var
í stórráði fasista í Feneyjahöll-
inni í Rómaborg hinn 24. júlí,
en þar hafði Mussolini mætt
harðri gagnrýni. Grandi, Ciano
og Bottai voru leiðtogar and-
stöðunnar og lögðu áherzlu á
það, að Mussolini hlyti að víkja
frá völdum. Fundurinn stóð vf-
ir í tíu klukkustundir og féllu
þar mörg orð og þung. .
Badoglio taldi aðalástæð-
una fyrir andstöðunni gegn
Mussolini innan stórráðsins
hina siðferðislegu uppgjöf hans
eftir ráðstefnu þá, er hann sat
með Hitler hinn 19. júlí. Mus-
solini hafði farið til ráðstefn-
unnar með þá ætlun í huga að
tjá Hitler, að Ítalíu væri ó-
mögulegt að halda styrjöldinni
áfram. Hitler lét móðan mása
í tvær klukkustundir og raus-
aði um nýlendur og þar fram
eftir götunum. Að lokum skorti
Mussolini svo siðferðilega dirfð
til þess að taka af skarið.
Morguninn eftir hinn sögu-
fræga fund í stórráðinu gekk
Mussolini á fund konungs til
þess að afhenda honum lausn-
arbeiðni sína. Konungurinn
gerði þegar boð eftir Badoglio
og fór þess á leit við hann, að
hann tækist stjórnarforustuna
á hendur. Var hervörður látinn
gæta Mussölinis til þess að
tryggja það, að honum yxði
eigi grand búið, en tíðindunum
um fall hans var almennt fagn-
að í Rómaborg og yíðs vegar
urn ftalíu.
Næstu nótt ritaði Mussolini
Badoglio bréf og tjáði honum
þakkir fyrir vernd þá, er hann
hafði fengið honum. Mussolini
var svo fluttur til eyjunnar
Ponza, þaðan til Maddelena á
Sardiníu og loks í gistihús á
Abruzzi, en þaðan námu Þjóð-
verjar hann á brott.
þetta talið bera glöggt vitni um
viðhorfin meðal þýzku þjóðar-
innar heima fyrir.,