Alþýðublaðið - 29.10.1943, Síða 8

Alþýðublaðið - 29.10.1943, Síða 8
8 ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudagur 29. október 1943. TJARNARBfÓ Byssa til leigu (THIS GUN FOR HIRE) Ameríski lögreglumynd. Veronica Lake, Robert Preston, Alan Ladd. Sýning klukkan 5, 7 og 9. Bönnuð fyrir börn innan 16 ára. Aukamynd: NORSKT FRÉTTABLAÐ (m. a. frá Akureyri). ÓHEIÐARLEG SAMKEPPNI „Það var einu sinni, að prestr einn í Manchester átti að gefa hjón saman. Brúðhjónin voru komin og boðsfólkið, en rétt í því er ganga átti til hjónavígsl- unnar, víkur prestur sér að brúðurinni og biður hana að tala við sig einslega. Síðan fer brúðurin til brúðgumans og segir honum upp. Það varð ekki af brúðkaupinu, en skömmu síðar giftist hún prest- inum. Söfnuðurinn kærði prest inn fyrir biskupi fyrir þetta at- hæfi. * * * Gömul og guðhrædd hefðar- kona segir við milljóxiamæring: „Ég er kominn í nafni ,Félagsins til trúarboðseflingar á meðal heiðingja‘; ætli þér vilduð láta nokkuð af hendi rakna að styrkja þetta góða málefni‘?“ Milljónamæringurinn: „Með ánægju, — en hvað á það að vera, frú mín góð, — peningar, — bíblíur — eða skotvopn?“ * * * HJÁLP í NEYÐ „Hvers vegna liggur svo illa á þér, Eyjólfur minn?“ „Æ, minstu ekki á það, það eru þessar bannsettar tvö hundruð krónur sem ég skulda honum Ólafi í Gröf og get ekki borgað. Hann eltir mig á rönd- um og heimtar þær núna, svo að ég veit engin sköpuð ráð. Bara hann vildi láta mig hafa mánaðargjaldfrest, þá létti mér fyrir hjartanu.“ „Heldurðu þá að þú gætir borgað honum til þess tíma? „Ónei, síður en svo en ég verð þá kominn til Ameríku“. f íCKl'A®AOM: i wíasssí" ^ í sfraumi örlaganna skyldur. Tré voru gróðkirsett meðfram götum, en þau höfðu komizt til lítils þroska og höll- uðust upp að staurum, sem þau leituðu stuðnings hjá. Þetta var kaldur og sólbjartur febrúar- morgunn og gjörvallur sandur- inn, sem var samankominn á hinum forsögulega sjávarbotni virtist rjúka eftir götunum. Hann lamdist inn í andlitið á mér og tók sér síðan bólfestu i augum mínum. Hverfið virt- ist vera vel skipulagt og hrein- legt, en eigi að síður var það ekki sambærilegt við hinn gamla og vingjarnlega hluta borgarinnar. Að baki húsanna voru matjurtagarðar og í sér- hverjum garði voru þvottasnúr- ur, þar sem nýþveginn þvottur blakti í storminum. Þar gat að líta fatnað alirar fjölskyldunar: skyrtur húsbóndans og síðar uliarnærbuxur, millipils hús- freyjunnar og nærföt barnanna, mismunandi að stærð og gerð, allt niður í voðir og baðmullar- skyrtur hvfttvoðjungsin^. Fjöl- skyldurnar í Giessheim voru barnmargar og það var mikið að þvo. F 12 var tveggja hæða hús, byggt úr rauðum tígulsteini. í grenndinni voru mikil vöru- geymsluhús og nýtt skólahús hinum megin við götuna. Ég nam staðar og hikaði ofurlítið við. Ég sléttaði úr jakkanum mínum og setti upp hvítu hanzkana mína. Á þessum tím- um voru hvítir hanzkar ómiss- andi fyrir unga og snotra stúlku. En ég hafði samt sem áður óljósa hugmynd um það, að þeir ættu ekki sem bezt við í þessu umhverfi. Á gangstétt- inni hinum megin götunar voru þrír smá drengir að leik sínum. Þeir kölluðu eitthvað til mín, sem ég skildi ekki og hlupu því næst flissandi brott. Ég gekk inn í F 12., Hér var nýstárlegur þefur innan dyra. Það var lykt af prentsvertu. Gegnum opnar dyr til hægri handar sá ég inn í herbergi, þar sem gamall mað- ur með græna augnahlíf var að sýsla við eitthvað verk. En drengur snéri handknúinni prentvél. Til vinstri handar voru dyr og á hurðinni var skilti er á stóð ,,Ritstjóri“. Ég drap á dyr og gekk inn. Ungur maður gyðinglegur útlits, leit upp úr bók, sem hann var að lesa í og glápti á mig f jarrænu augnaráði. Hann var snögg- klæddur og sat ekki við skrif- borð sitt, heldur á skriflislegum stóli úti við gluggann. — Ég heiti Marion Sommer. Ég fékk bréf frá yður — hóf ég máls. , — Erað þér vélritunarstúlk- an? spurði hann og horfði á mig á þann hátt. að mér fannst, sem mér hlyti að vera ákaflega áfátt í öllu tilliti. Ég kinkaði kolli og bjóst til að taka upp bréfið. — Upp á loft, sagði hann og benti með 'þumalfingrinum, sem angaði af bleki, upp í loftið. Ég lokaði dyrunum, dró ofan hanzkana og lagði á stað upp stigann. Howard Watson féll mér vel í geð þegar við fyrstu sýn. Útlit hans, klæðaburður. hreyfingar, framkoman. vöxtur og karl- mannleg íturmennska, allt féll mér þetta vel í geð. Hvernig hann hló. Hvernig hann dans- aði. Hvernig hann kyssti. Mér féll Walter Brandt illa í geð allt frá þeirri stund, er ég sté fæti inn í skrifstofu hans í fyrsta sinn. Hann var hirðu- levisislegasti lehlstaklingur í ;h|rðulieysisleigasta umlhverf-i1, sem ég hafði nokkru sinni séð. ’Hvert sem litið var, blöstu við hlaðar af bókum. tímaritum og gömlum handritum, á gólfinnu. á legubekknum, á stólnum, sem hann bauð mér sæti á. Hann sópaði sumum af þeim niður og um leið og þær féllu á gólfið gaus upp rykmökkur. En á nokkrum hluta bókanna sat ég, og það var ekki hægt sæti. Gólf- ið var þakið í pappírsblöðum, úrklippum úr blöðum og vindl- ingabútum. Grár, feitur köttur svaf á þerripappírnum á miðju borðinu. Og það var kækur Brandts að ýta kettinum í sí- fellu til hliðar. meðan hann tal- aði. En kötturinn dró sig stöð- ugt á sama blettinn aftur, án þess svo mikið sem opna augun, þó að hann yrði fyrir þessu ónæði. Legubekkurinn stóð að- eins á þremur fótum-. Undir fjórða hornið hafði verið skotið tómum ávaxtakassa. Gluggarn- ir voru gisnir og Giessheim- stormurinn blés inn um þá. í einu horninu var ofurlítil elda- stó. rauðkynnt. Ketill með sjóð- andi vatni stóð á stónni og gus- aðist í sífellu ofurlítið úr hon- um út á eldstæðið. Breyttist það þar í gufu og rauk upp í loftið með reiðilegu hvæsi. Mér var skapi næst að snúa þegar til baka og halda heimleiðis aftur. En ég þarfnaðist atvinnu og lét það því ekki eftir mér. — Ég heiti Marion Sommer. Ég fék-k iþetta bréf frá yður sagði ég aftur og otaði bréfinu framan í manninn, sem sat bak við skrifborðið. Hann var snögg klæddur og flibbalaus. Grósku mikill, jarpur hárlubbi huldi NÝJA Blð „Glettur". (You’ll never get Rich). Dans- og söngvamynd með FRED ASTAIRE og RITA HAYWORTH. Sýning kl. 5, 7 og 9. höfuð hans og djúpir drættir voru sitt hvoru megin við munn inn. — Þér komið tíu mínútum of seint. sagði hann. — Fáið yður sæti. — Það var engin klukka í herberginu, en síðar komst ég að raun um, að Walter vissi hvað tímanum leið með því að fýlgjast , með skólabjöllunhi hinum megin götunnar. — Mér þykir það leitt. sagði ég. — En ég átti í dálitlum erfiðleikum með að finna staðinn. Ég hefi aldrei áður komið í Giessheim. — Ég þykist sjá það, sagði hann. Og mér fannst hin dökki búningur minn brenna mig á bakinu eins og ég væri yfir eldi. Það fór illa um mig í sætinu ofan á bókunum og handritun- GAMLA BSÓ SS Fórnarlambið. LOUISIANA PURCHASE Amerísk gamanmynd, tek- in í eðlilegum litum. Bob Hope, Vera Zorina. Sýnd klukkan 7 og 9. kl. 3.30—6.30: BÓF AFORIN GINN (Bad Man) Wallace Beery. Bönnuð börnum innan 14 ára. um. — Mér þykir þetta leitt, sagði ég aftur., —■ Ég er Walter Brandt. sagði hann. — Hafið þér heyrt mín getið? — Nei — nei, ekki svo að ég muni, stamaði ég. — Ég hefi ekki verið lengi hér í Bergheim, bætti ég við. — Ég þykist sjá það. Hvaðan bar yður að? — Frá Austurríki, Vínarborg, svaraði ég og velti fyrir mér jafnframt, hvort það mundi ekki líka vera ásökunarefni á hendur mér. Brandt leit á mig. — Þér eruð mjög fjarri heimili yðar, sagði hann. — En hvað hann hafði skemmtileg augu, hugsaði ég. Þau voru svo undursamleg fjör- leg og kringlott. lík.t og fugls- BASSIJ„BOLLA“j Bassi og setti upp sakleysissvip hinn mesta. — En Mick hef- ir gert enn eina skömmina af sér. Apar eru svo sem alltaf apar. Börkur leit hvasst á Bassa og var svo sem ekkert árenni legur.-Hann átti óhægt með að sjá hvenær Bassi hafði gert sig sekan um yfirsjónir, eða ekki fyrr enn honum hafði hlotnazt frekari vitneskja. Því olli sakleysissvipur hans. — Þú getur látið dýrin í búr sín, þrumaði hann. — Og svo er bezt að þú snautir heim. Bassi varð dapur í bragði. , — Svo að þér vitið þá allt af létta! mælti hann undr- andi. — Það hefur þá einhver sagt yður sólarsöguna! Dýrakaupmaðurinn leit á hann, og var sem eldur brynni úr augum ’hans. , — Ég veit það eitt, að ég er tekin að þreytast á þessum atvinnuvegi, mælti hann. — Ég á nú ekki mörg dýr óseld, og ég fæ engin keypt í staðin, svo að ég þarf ekki á aðstoðar- manni að halda úr þessu. Bassa brá í brún. Þetta var í fyrsta sinn, sem Börkur hefði'gefið það greinilega í skyn, að uppsögn hans væri svo sem ákveðin. Börkur hafði auðsýnilega þagað yfir þessu þar til á síðustu stundu, svo að Bassi gæti ekki haft framkvæmd- --AND NOT MANY AIR MIUES AWAV, ANOTHER .PLANE IS WÍNGINO TOWARD AN IMPORTANT MISSION. WELL AHEAD SIR ! WE'VE GOT A HOT . TAILWIND/ ARE WE KEEPING ON SCHEDULE, . LIEUTENANT? 1 'After APJp°- GENERAt TODT ESCAPES, THE AIR-BASE FALLS INTO RUSSIAN HANOS, AND E-CORCHY, ARCHIE AND LUSYA 'INA REFÍTTEO PLANE HEAO eACK.ro COMPLETE THEÍR MISSION -íðíWK, Eftir flótta Toots hershöfð- ingja, náðu Rússar yfirhönd- inni á flugvellinum. Örn og Lusya fundu Archie út í skóg- inum, en síðan leggja þau öll þrjú af stað í flugvél til að Örn: Þarna eigum við að taka benzín. Þeim hefir verið skýrt frá komu okkar. Nei, sjá- ið þið bara hversu höfðinglegar móttökurnar era! --------En í nokkurra mílna fjarlægð er og önnur flugvél á flugi og hefir líka þýðingar- miklu hlutverki að sinna. — Hvernig gengur ferðin undirforingi? Haldið þér að við getum haldið áætluninni? — Já, herra, vð erum heldur á undan áætlun. Vindurinn stend ur í skottið á okkur! halda áfram ætlunarverki sínu. /

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.