Alþýðublaðið - 24.12.1943, Page 4

Alþýðublaðið - 24.12.1943, Page 4
v.r. 7*»*> ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudagur 24. desember 1943 Otgefandi: Alþýðuflokkiuinn. Ritstjóri: Stefán Pétursson. Ritstjórn og afgreiðsla í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu. Símar ritstjórnar: 4901 og 4902. Símar afgreiðslu: 4900 og 4906. Verð í lausasölu 40 aura. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Fimmtn strfðsjólin. ALDREI hefir boðskapur jólanna um frið á jörðu átt brýnna erindi til hins hrjáða mannkyns en einmitt nú. í fimmta sinn eru haldin heilög jól meðan sortaský ófriðarbáls- ins grúfa yfir gervöllu mann kyni. Enn láta hærra í eyrum vorum dunur fallbyssnanna og dynur flugvélanna en hinn látlausi og sígildi boðskapur hátíðarinnar, sem í hönd fer. í brjóstum tugmilljónanna vakir ein og sama þrá: von um frið, von um það, að grið verði sett og vopnin slíðruð. Sama bænin bærist á vörum allra: að tekinn verði frá þeim hinn beiski kaleikur styrjaldarinnar. Fyrir fórnarlömbum vilh- mennskunnar hafa orðin „frið- ur á jörðu“ öðlazt nýtt inntak nýja fylling. Þau eru takmark allra þeirra vona, uppfylling allra þeirra óska. Þau fela í sér þá enduriausn, sem h:ð hrjáða og þjáða mannkvn þráir í dag. En það eru sorglega litlar líkur til þess, að fylling þess- ara vona sé í nánd. Engum fölskva hefir enn slegið á vítis bál styrjaldarinnar. Hver nýr dagur geymir í skauti sér nýj- ar þjáningar nýjar ógnir. Itaust friðarins er kæfð í dyn válegra vígvéla. * Þó að styrjöldin hafi kraf- izt fórna af oss Isiendingum, er þó lífi voru allt öðruvísi iarið en lífi ófriðarþjóðanna. Vér efnum til venjulegs jólahalds tiltölulega áhyggjuiítið. Og vér höldum meira að segja íburðar- meiri jól en tíit hefir verið. Vér kaupum dýrari og íjöl- skrúðugri gjafir en nokkru sinni fyrr. Vér höldum oss betur í fæði og klæðum en áð- ur. Vér skemmtum oss meira og eyðum meiri verðmætum en dæmi eru til áður í sögu vorri. En þrátt fyrir þetta má óhætt fullyrða, að þjáningar þeirra meðbræðra vorra, sem eru fórn arlömb hins vitfirrta stríðs, iáta ekki ósnortið hjarta eins ein- asta íslendings. Hver einasti maður á íslandi er áreiðanlega svo alvarlega hugsandi, að hann mundi ekki hika við að fórna óhófi jólahaldsins. ef hann mætti með því stytta þjáningarstundir mannkynsins. Hinn óvenjulegi munaður hefir væntanlega ekki forhert hjörtu vor. En það má samí sem áður gera ráð fyrir, að hans vegna höfum vér beðið tjón á sálu vorri. Vér höfum sennilega glatað þeim hæfi- leika að geta glaðzt yfir litlu. Það þarf meira en eitt tólgar- kerti og grjónalummur til að skapa jólagleði á íslandi í dag. En eitt er víst: Munaður yfir- standandi ' tíma skapar ekki jafn fölskvalausa jólagieði eins og tólgarkertin og grjónalumm urnar fyrir 50—60 árum síðan. Það er umhugsunarefni. En látum það ekki dreifa huganum frá sjálfum jólunum. Sameinlumst heldur í þeirri ósk, að hátíðin, sem nú fer í ■hönd, verði oss í raun og sann- leika GLEÐILEGJÓL! Aramótadansleikur stúdenta verður haldinn í anddyri Háskólans á gamlárs- kvöld n.k. og hefst klukkan 10 e. h. Sala aðgöngumiða fer fram í skrifstofu Stúd- entaráðs þessa dagana: Fyrir Háskólastúdenta mánudaginn 27. þ. m. kl. 4—6 e. h. Fyrir candidata þriðjud. 28. þ. m. kl. 4—6 e.h. Samkvæmisklæðnaður. Skemmtinefndin. D ANSLEIKUR verður haldinn á 2. jóladag í Tjarnarkaffi kl. 10 sd. D a n s a ð bæði uppi og niðri. Aðgöngumiðar verða seldir í Tjarnarkaffi á 2. jóla- dag aðeins frá klukkan 4—6. Írshátíð 09 jðlatrésfagnaðnr Stýrimannafélags íslands verður haldin í Tjarnarkaffi þ. 30. des. Aðgöngumiðar að skemmtuninni fást hjá: Þóri Ólafssyni, Miðtúni 15, Óskari Sigurgeirssyni, Hörpugötu 8, Pétri Jónassyni, Bergstaðastræti 26 B, Halldóri Sigurþórssyni, Hringbraut 198, Ragnari Kjærnested, Grettisgötu 77. Jólatrésskemmtnn: heldur DAGSBRUN fyrir börn félagsmanna í Iðnó dagana 29. og 30. des. n.k. ^ Aðgöngumiðar fást í skrifstofu félagsins í Al- þýðuhúsinu frá 27. des. — Féiagsmenn sýni skírteini. ^ • í Dansleikur værður á etfir, þann 29. Skemmtinefndin. S. K. T. DANSLEIKUR verður haldinn í G.T.-húsinu ANNAN JÓLAOAG. Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 6.30 þann dag. Sími 3355. / Dökk föt áskilin. Jóladansleiknr í Alþýðuhúsinu annan jóladag klukkan 10 síðdegis. Aðgöngumiðar seldir klukkan 6—7 sama dag. — Sími 2826. Hljómsveit Óskars Cortes. TILKYNIING fil nofenda Hifaveifunnar Um jólin og nýjárið munu viðgerðarmenn Hitaveit- I unnar aðeins sinna kvörtunum um alvarlegar bilanir eða truflanir. Kvörtunum vegna slíkra bilana er veitt móttaka yfir helgidagana í síma 5359. Hitaveita Reykjavikur V é'l Ljósakrónur Þeir, sem hafa pantað þær hjá okkur, tali við okkur strax, annars seldar öðrum. Jón Halldórsson h.f. Skólavörðustíg 6 B. Sími 3107.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.