Alþýðublaðið - 07.03.1944, Síða 3
Jnsðjwiagijin U7. man -1844.
ALÞYBUBUBIÐ
M
Bágstödd
bræðraþjéö.
N
Ú FYRIR SKEMMSTU
hafa verið birt tilmæli um,
að íslendingar legðu lið
þeim landflótta Dönum, sem
nú dvelja um stundarsakir í
Svíþjóð. Áður fyrr hafa ís-
lendingar brugðizt vel við
og látið fé af hendi rakna
þegar um var að ræða bág-
staddar frændþjóðir okkar,
eins og Finna og Norðmenn.
Að þessu sinni er þörfin engu
síðri. Aðfarir Þjóðverja í
Danmörku eru öllum kunn-
ar og hafa vakið hrylling
allra þeirra Norðurlandabúa,
sem nú mega um. frjálst höf-
uð strjúka.
.AFSTAÐA DANA hefir sætt
nokkurri gagnrýni, og hefir
verið á það minnzt áður í
þessum dálkum, en vitað er,
að Danir gátu ekki annað
eins og á stóð og hefir fram-
koma þeirra og konungsins
vakið almenna aðdáun um
allan hinn siðmenntaða heim
Danir eru manna kurteisast-
ir og viðmótsþýðastir og má
geta nærri, hvernig þeim
hafi liðið, er holskefla styrj-
aldarinnar reið yfir þá.
Svar Kristjáns konungs við
• íilmælum Þjóðverja um að-
stoð við Gyðingaofsóknirnar
er löngu frægt orðið, er
hann sagði: „Ég þekki ekkert
Gyðingavandamál í þessu
landi.“
ÞJÓÐVERJAR voru þeim
undarlegu eiginleikum gædd
ir, að þeir fengu einhverja
Öfurást á Norðurlandaþjóð-
unum, sennilega það, sem
þeir myndu nefna á sinni
túngu „die rastlose Liebe“,
eða hina eirðarlausu ást.
Þeir þurfa endilega að
„mennta" menn eins og
Dani og Norðmenn, kenna
þeim „germanskar umgengn-
i isvenjur“, enda þótt þessum
þjóðum væri það mjög fjarri
skapi. Fyrst í stað fóru þeir
tiltölulega hægt að Dönum,
enda gumuðu þeir af því, að
landið væri einhverskonar
fyrirmyndar verndarríki á
'Norðurlöndum, sem hægt
væri að benda á öðrum til
eftirbreytni, en það mistókst,
svo sem alkunna er.
EN ÞÓ KEYRÐI um þvert bak,
er þeir hófu hinar ofboðs-
legu Gyðingaofsóknir á hend
ur Dönum af Gyðingaætt
og meira að segja þótti þeim
viðurkvæmilegt að ofsækja
og hrjá móður H. C. Ander-
sens-fyrirlesarans, Texi-
. éres, enda þótt hún væri orð
in 102 ára gömul, og senni-
lega tiltölulega óskaðleg í
þaráttunni gegn nazisman-
um. Sagt er, að hún hafi ver-
ið tekin föst og flutt í útlegð,
þrátt fyrir hinn háa aldur
sinn.
SVÍAR hafa unnið mikið og
gott starf sem bjargvættir
þjáðra meðbræðra á Norður-
löndum. Þeir hafa safnað fé
og greitt götu flóttabarna frá
Firmlandi og Noregi, svo og
bágstaddra manna í Lenin-
grad í Rússlandi, svo ekki
Til árásar á Beiiín.
>
A myndinni sjást brezkir flugmenn vera að koma fyrir tveggja smálesta sprengju í stórri
flugvél af Laneastergerð, svonefndri. Síðan er ferðinni heitið til Berlínar.
Þeir stefna fil braularinnar ntilli Varsjá og
;ssa 01 fara hratt yfir.
Á 2 sóSariiriiigism sóttu peir fram um 5® km
TVT Ú DREGIJR til stórtíðinda í Rússlandi. að því, er hermir
Á ™ f réttum í gærkveldi. Hafa Rússar nú byr jað sókn á mjög
breiðri víglínu og stýrir Zhukov herjum þeirra en Vatutin
er sagður veikur. Stefna Rússar til jánbrautarinnar milli
Varsjá og Odessa og hafa sótt fram um 50 km. fyrstu tvo
sólarhringana, og tekið um 500 þorp og byggð ból, sum
þeirra vestan pólsku landamæranna gömlu. Samkvæmt síð-
ustu fregnum eru Rússar komnir í skotmál við járnbrautina
og fara mjög hratt yfir.
Rússar hafa tekið mikið her-
fang og hrakið 12 herfylki Þjóð
verja á flótta, þar á meðal .4
skriðdrekaherfylki en um 6000
Þjóðverjar féllu í mann
skæðum orrustum. Einkum hafa
Rússar náð á sitt váld mörgum
fallbysum, sem Rúsar tókst ekki
tókst ekki að hafa á brott með
sér á lUndanhaldinu.
Sumir fregnritarar telja, að
brátt muni Rússum takast að
króa inni hinar þýzku hersveit-
ir, s'em enn hafast við í Suður-
Rússlandi ogrjúfa samgönguleið
ir Þjóðverja vestur á bóginn til
Rúmeníu og Ungverjdlands, en
til þessa hafa Þjóðverjar ekki
getað staðizt áhlaup Rússa og
hörfa undan.
halda Rússar áfram sókninni og
kreppa æ meir að Þjóðverjum
í Dniepr-krikanum. Þá hefir
Rússum og orðið vel ágengt á
Narva-svæðinu. Má nú heita, að
Þjóðverjar heyi algera varnar-
baráttu á öllum austurvígstöðv-
unum.
C
ANDAMENN hafa skotið
niður 30 japanskar flug-
vélar í skæðri árás á stöðvar
Japana á Hainan-ey undan
ströndum Suður-Kína. Þá ber-
ast þær fregnir frá Burma,1 að
nú sér hlé á bardögum þar
eystra, eftir að Japanar fóru
hinar mestu hrakfarir nú á
Italías
Þjóðverjar hafa misst
21.000 menn á Anzio-
svæðinu.
"O RÁ Ítalíu er fátt frétta og
virðist aðstaða herjanna
ekki hafa breytzt neitt til muna
um helgina. Bandamenn til-
kynna, að Þjóðverjar hafi misst
21.000 menn í árásunum á land
göngusvæði bandamanna fyrir
sunnan Rómaborg, en um það
bil 3500 voru teknir höndum.
Þjóðverjar flytja lið úr
Noregi. ■
T^T Ú HAFA borizt fregnir um,
að Þjóðverjar vinni að
þeví að flytja herafla á brott
úr Norður-Noregi. Er sérstak-
lega getið þriggja bæja, Hamm
erfest, Tromsö og Harstad. En
þetta sett í samband við fyrri
fregnir um það, að Finnar vilji
hætta þátttöku í styrjöldinni og
að Þjóðverjar vilji flytja liðs-
afla þaðan til Finnlands, en.
fregn þessi hefir ekki verið stað-
fest.
Finnsk blöð gera sér enn tíð-
rætt um vopnahlésskilmálana
láta yfirleitt 1 ljós þá skoðun,
að þeir séu of harðir. Hins veg
ar eru menn í Bretlandi, Banda
ríkjunum og Rússlandi næsta
harðorðir í garð Finna, og telja,
að Finnar verði að samþykkja
skilmála Rússa. Meðal annars
segir „Times“, að Finnar geti
naumast vænzt stuðnings banda
manna, ef þeir hafni kröfum
Rússa. Hið kunna blað „Christ-
ian Science Monitor“ segir, að
Finnum hljóti að vera ljóst, að
það séu Þjóðverjar en ekki
Rússar, sem valdi því, að Finn-
ar geti ekki komizt út úr styrj-
öldinni.
ORÐRÓMUR hefir komizt á
kreik um það, að Búlgar-
ar hafi enn hernumið þrjú hér-
uð Grikklands. Brezk blöð, sem
um þetta mál hafa fjallað, segja
að ekki skipti máli, hvort nokk-
ur hæfa sé í þessu, en hins vegar
verði Búlgörum að vera ljóst,
að ef þeir vilja fá frið, verði
þeir að hverfa brott úr Júgó-
slavíu og Grikklandi.
Þrátt fyrir slæmt veður hafa
flugvélar bandamanna gert
skæðar árásir á mörg skip Þjóð
verja á Eyjahafi. Fáar fregnir
hafa borizt af verkfallinu á
Norður-ítalíu, en svo virðist,
sem þau hafi farið í vöxt og að
Þjóðverjar hafi neyðzt til þess
að senda liðsauka til Milano til
þess að bæla niður óeirðir.
Fyrir suðvestan Krivoi Rog dögunum.
verður þeim borin á brýn
fjandsamleg afstaða í þessu
tilliti. Ekki eru enn fyrir
hendi nákvæmar tölur um
fjölda danskra flóttamanna í
Svíþjóð, en talið er, að þar
dveljist nú um 10 þúsund
manns, sem sluppu nauðu-
lega lUndan ránshendi naz-
istanna þýzku.
EINS OG VÆNTA MÁ, var
■ erfitt að útvega þessu fólki
atvinnu, þótt allt hafi verði
til þess gert, en vitað er, að
skortur sverfur að þessu
fólki, sem nú hefir verið
svipt öllu sínu, vonandi ekki
nema nú í svip. Er því nokk
uð öruggt, að við íslending-
ar, sem farið höfum tiltölu-
lega vel út úr þessari styrj-
öld, bregðumst vel við, þeg-
ar iþað er í nauðum
statt.
Amerískar sprengjuflugvélar fóru fil
sfórárásar á Berlín í gær.
Grimmilegir terdagar viS þýzkar fSngvélar.
IGÆR FÓRU amerískar sprengjuflugvélar af stærstu gerð til
árása á Berlín, í annað skipti, sem Bandaríkjamenn ráð-
ast á þá borg. Mikill fjöldi orrustuflugvéla var sprengjuflugvélun-
um til verndar. Er talið að hér hafi verið um að ræða einhvem
mesta flugflota, sem noltkru sinni hafi farið til árása á Þýzkaland
frá stöðvum í Bretlandi. Miklir loftbardagar voru háðir, og áttu
flugvélar handamanna í sífelldum átökum við þýzkar flugvélar,
allt frá því að þær flugu inn yfir Zuiderzee í Hollandi.,
Veðurskilyrði voru hagstæð
og er talið, að árangur hafi orð-
ið mikill af árásinni. Þjóðverjar
játa og, að margar flugvélanna
hafi komizt inn yfir Berlín.
Annars eru það einkum brezk-
ar flugvélar, sem farið hafa til
árása á borgina að næturþeli og
varpað á hana þúsundum smá-
lesta sprengha.
Einn brezku ráðherranna,
Dingle Foot, sagði í neðri mál-
stofunni í gær, að loftárásir á
Þýzkaland nú, væru aðeins for-
boði þess, sem koma skyldi. Þá
drap ráðherrann á það, að Þjóð
verjum skorti mjög ýmisleg
hráefni og hefðu tilraunir
þeirra til þess að afla sér þeirra
frá Japán, brugðizt með öllu.
í gær var einnig ráðizt á
þýzkar herstöðvar í Frakklandi.
Voru það einkum amerískar
flugvélar af meðalstærð, sem
þar voru að verki.