Alþýðublaðið - 09.03.1944, Qupperneq 2
2
FimmtadagTir S, umube XÉ44.
Lýðveldisstjórnarskráin afgreidd:
Forsetinn fær ekkert synjunarvald!
Sendiherra Rússa lók á
móli blaðamönnum í gær
. —--
Hann býr til bráðabirgða að Hótei Borg.
Hinn nýkomni sendiherra rússa, krassilnikov,
átti í gær tal við fréttamenn blaða og útvarps að Hótel
Borg, þar sem hann hefir aðsetur sitt. Sendiherrann ræddi um
hríð við blaðamenn og kvaðst fagna því, að beint stjórnmála-
samband hefði nú verið tekið upp milli íslands og Sovétríkjanna.
Hann er hér með konu sinni og ungum syni, ásamt starfsliði.
Ekki hefir enn verið ákveðið, hvar sendisveitin verði til húsa,
en unnið er að útvegun húsnæðis.
Hinn nýkomni sendiherra
Rússa er ungur maður, fæddur
árið 1909 í Kasan við Volgu,
sonur doktors í læknisfræði.
Árið 1929 hóf hann nám í verk
fræði í Leningrad og vann um
hríð við verkfræðilegt tímarit.
Árið 1940 hóf hann starf sitt á
vettvangi utanríkismála og í
hitteðfyrra var hann fulltrúi
sovétstjórnarinnar í viðskiptum
við bandamenn í Arkangelsk.
Nú hefir hann verið skipaður
fyrsti sendiherra Sovétríkjanna
á íslandi. Hann hefir tvívegis
átt tal við Pétur Benediktsson,
í annað skiptið var það í hófi,
sem haldið var í sendisveitar-
skrifstofu Rússa í London í til
efni af nýafstöðnu afmæli rauða
hersins. Lætur sendiherran
mjög vel af kynnum sínum af
Pétri og taldi að honum
myndi vegna vel í hinu nýja
starfi sínu í Moskva.
Sendiherrann ávarpaði frétta
menn fyrir sína hönd og stjórn
ar sinnar, og mælti á ensku.
Kvaðst hann gleðjast yfir því,
að nú væri hafið beint stjórn-
málasamband milli ríkjanna.
Vonaðist hann til, að, þao yrði
Krassilnikov sendiherra.
til aukinnar samvinnu. Hann
kvaðst vera mjög feginn því að
vera kominn til Islands og
vænti hann þess, að aukið sam
band myndi verða hvortveggja
ríkjunum til gagns.
Krassilnikov sendiherra mun
hafa allmargt starfslið, bæði
ritara og blaðafulltrúa, Koroh-
agin, að nafni; auk þess ýmsa
ráðunauta.
rið vará
em «r
ralSer á
WT IÐURJÖFNUNAR
“ NEJFND Reykjavíkur
er byrjuð að leggja útsvör á
Reykvíkinga. Útsvarsstig-
jmin var tilbúin síðastliðinn
laugardag — og á mánudag
var fyrsta útsvarið ákveðið.
Vinnur nefndin' nú af full-
um krafti að því að jafna nið
ur útsvörum.
Eins og kunnugt er, var út-
svarsskráin ekki tilbúin fyrr en
í júnímánuði síðastliði ár, enda
hóf nefndin starf sitt í fyrra-
vetur miklu seinna en nú. Nú
byrjar hún útsvarsálagningar
sínar heilum mánuði fyrr en í
fyrra.
„Það, hvað við getum byrjað
fljótt nú, þakka ég að miklu
leyti skrifum Alþýðublaðsins í
vetnr, og hvatningum þess til
fólks að skila skattskýrslum
sínum sem fyrst, og á tilsettum
tíma. Þetta bar mjög góðan á-
rangur, og var fólk miklu fyrr
en venjulega með skýrslur sín-
ar, þó að nokkuð væri um eftir
legukindur."
Neðri deild féll í gær frá sinni
fyrri samþykkt nm það.
Tillaga forsætispáðtieipra um að
setfa pað aftur i stjéruarskrána
var felld fiieð 18 atkir. gegu 14.
NEÐRI DEILD alþingis samþykkti lýðveldisstjórnar-
skrána í gær eins og hún kom frá efri deild, þ. e. án
nokkurs synjunarvalds fyrir forsetann. og hefir hún þar með
hlotið fullnaðarsamþykkt þingsins, en öðlast ekki gildi fyrr
en alþingi ákveður á ný, að fenginni staðfestingu við þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Við úrslitaatkvæðagreiðsluna um það, hvort forsetinn
skyldi hafa frestandi synjunarvald eða ekkert, féll neðri deild
frá fyrri samþykkt sinni um það. Breytingartillaga forsæt-
isráðherra um að setja það aftur inn í stjórnarskrána var
felld með 18 atkvæðum gegn 14.
kréua jufraué
Þetta sagði skattstjórinn í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Starf niðurjöfnunarnefndar
er geysimikið — og fer sífellt
vaxandi. Nú mun hún verða að
taka um 20 þúsund skýrslur til
meðferðar, og ákveða útsvar
allra þessara skýrslugefenda.
Útsvarsupphæðin er og nú
miklu hærri en áður. Er hún
áætluð kr. 25 151 100 og til við-
bótar á að leggja á 5—10%.
Lágmark útsvarsupphæðarinn-
ar verður því 26.4 milljónir, en
hámark hennar 27.7 milljónir,
tæpar.
Einhverjir fá því hækkuð út-
svör á þessu ári — og líkast til
allir.
Innheimta útsvaranna er
byrjuð. Eins og kunnugt er,
byrjaði hún um leið og fyrsta
útsvarið var lagt á. Lögin mæla
svo fyrir um, og Reykjavíkur-
bær getur ekki beðið. Eru inn-
heimt nú á þremur mám’ðn-r«
fyrirfram 40% af útsvörum
þeim, sem menn höfðu miðað
við s.l. ár. Mun bærinn þegar
um s.l. mánaðamót, hafa fengið
hundruð þúsunda króna af út-
svöram þessa áfs.
Áður en umræðan hófst hafði
verið útbýtt i deildinni, einni
breytingartillögu enn, við 26.
gr. frumvarpsins. Flutnings-
maður var Jakob Möller, og var
tillagan þess efnis, að forseti
skyldi hafa óskorað synjunar-
vald, eins og konungur hefir,
samkvæmt núgildandi stjórnar-
skrá. Auk þess lágu svo fyrir
tvær aðrar breytingartillögur,
sem áður hefir verið lýst.
Atkvæðagreiðslan fór þann
ig, að allar breytingartillög-
ur voru felldar og frumvarp-
ið samþykkt óbreytt eins og
efri deild endursendi það
neðri deild. Breytingartillaga
forsætisráðherra, var felld að
viðhöfðu nafnakialli með 18
atkvæðum gegn 14. En fyrir
aðeins nokkrum dögum sam-
þykkti deildin samhljóða
breytingartillögu frá forsætis
ráðherra með 19 atkv. gegn
11!
Forsætisráðherra, Björn Þórð
arson, hóf umræðuna í deild-
inni. Hann kvaðst ekki þurfa
að fjölyrða um breytingartil-
lögu sína að þessu sinni, þar eð
hann hefði áður mælt fyrir
samhljóða tillögu í deildinni.
Ráðherrann benti enn á, hversu
ótilhlýðilega væri dregið úr
valdi og áhrifum forsetans með
breytingu þeirra, sem efri deild
hefði gert á stjórnarskrárfrum-
varpinu. Forsetanum væri sam-
kvæmt henni, ekki ætlað að
verða annað en eins konar af-
greiðslustjóri, og ríkisráðið yrði
aðeins afgreiðslustofnun.
Jón Pálmason mælti fyrir
breytingartillögu þeirri, sem
hann flutti ásamt Jóhanni Þ.
Jósefssyni. Kvað hann tillögu
þeirra flutta í því skyni, að hún
mætti verða samkomulags-
grundvöllur í ágreiningi þeim,
sem upp væri risinn.
Jakob Möller kvaðst líta svo
á, að ákvæði 26. gr., eins og efri
deild hefði breytt því, væri
hrein fjarstæða. Það væri með
öllu óeðlilegt, að lög tæki gildi
um stundarsakir, meðan verið
væri að gera út um það, hvort
þau skyldu standa til fram-
búðar.
Þá minnti Jakob á það, að
hér væri uppi hörkudeilur um
stjórnarskrána. En hjá því
hefði einmitt átt að komast. í
því skyni hefðu verið sett þau
ákvæði í síjórnskipulögin frá
1942, að engar breytingar
skyldu gerðar á stjórnarskránni
að þessu sinni aðrar en þær,
sem beinlinis leiddu af sam-
bandsslitum við Danmörku og
stofnun lýðveldisins. Jakob
Fzh. á 7. fiíðu.
Alþisfli írestað í
þessari fibo.
|| ÚIZT er við, að fundum
alþingis verði frestað í
lok þessarar viku. Forseti
sameinaðs þings lét svo um
mælt í gær, að þingfrestim
mundi væntanlega fara fram
á föstudag eða laugardag,
endá væri svo ráð fyrir gert,
að störfum í deildum, sem
ljúka á fyrir frestunina, yrði
lokið í dag eða í síðasta lagi
á morgun.
I
Ályktun alþingiss
Ríkisstjórninni falið
að greiða opin-
berum sfarfsmðnn
um ómagalaun.
P JÓRIR þingmenn, Sigurð-
Ja- ur Kristjánsson, Jörund-
ur Brynjólfsson, Sigfús Sigur-
hjartarson og Haraldur Guð-
mundsson, fluttu í sameinuðu
þingi tillögu til þingsályktunar
þess efnis, að alþingi ályktaði
að fela ríkisstjóminni að greiða
á þessu ári ómagauppbætur þær
til opinberra starfsmanna, sem
greiddar voru á árunum 1942 og
1943. En fjármálaráðherra hafði
lýst yfir því í sambandi við af-
greiðslu f járlaga, að hann muadi
ekki nota lagaheimild þá, sem
ríkisstjórnin hefir til að inna
þessa greiðslu af höndum......
Tillaga þessi kom til síðari
umræðu í sameinuðu þingi í
gær. Fjárveitinganefnd hafði
klofnað í málinu. Vildi meiri-
hluti nefndarinnar samþykkja
tillöguna er minnihlutinn lagði
til að hún yrði felld. Atkvæði
féllu þannig, að tillagan var
samþykkt að viðhöfðu nafna-
kalli með 38 atkv. gegn 10. Fjór
ir þingmenn voru f jarstaddir.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið „Ég hef komið
hér áður“, eftir Priestley, kl. 8 i
Jcvöld. — Aðgi^ngumiðasalajn er
opin frá kl. 2 í dag.
Vinnuheimilí berklasjúklinga.
Skrifstofa S. í. B. S., Laekjar-
götu 10 B. Opin kl. 2—4, sími
5535. Skrifstofan tekur á móti
gjöfum til vinnuheimilisins.
Happdrœtti háskólans
er að verða uppselt.
Aðeins eokkrir miðar eftir hjá um-
boðsmðBEum hér i bænum.
TM’IDAR í Happdrætti Há-
skóla íslands eru að
verða uppseldir. Allir miðax
í skrifstofu happdrættisins
eru búnir og getur hún ekki
uppfyllt óskir viðskipta-
manna sinna um fleiri miða.
Mörg umboð úti á landi bafa
þegar selt alla miða, og hér í
Reykjavík eru umboðin nærri
því ibúin að selja allt. Hins veg-
ar hafa umboðin haldið eftir
miðum viðskiptamanna sinna,
sem ekki hafa sótt þá enn,- en
vegna mikillar eftirspurnar
munu iþessir miðar verða seldir
nýjum viðskiptavinum upp úr
hádeginu í dag. Umboðin hér í
Reykjavík hafa beðið um fleiri
miða, en í gær gat skrifstofa
Happdrættisins ekki uppfyllt
þær óskir.
Eins og kuimugt er, eru núm-
erin 25000. Af þeim eru 2500
heiimiðar, 10 þúsund hálfmiðar
og 70 þúsund fjórðungsmiðar.
Sala happdrættismiðanna hef
ir verið þau 10 ár, sem happ-
drættið hefir starfað, eins og
hér segir: 1934: 44,6%, 1935:
64,8%, 1936: 67,7%, 1937: 67,2
.%, 11938: 75,9%, 1939: 77,2%,
1940: 75,9%, 1941: 84,4%, 1942:
86,2% og 1943: 89,3%. Ef raun-
in verður sú, sem nú er útlit fyr
i að 100% miðanna seljist, þá er
það mesta aukning aem orðið
hefir hjá Happdrættinu síðan
annað árið, sem það starfaði,
en þá óx salan um rúmlega 20%.
SkeBiBtífflnder
¥erkakveofl> auað
kvðld.
VERKAKVENNAFÉLAG-
H) Framsókn heldur
skemmtilfund fyrir félagskon
ur og gesti þeirra í Alþýðuhús
inu og hefst fxmdurinn kl.
20.30.
Til skemmtxmar verður:
Sameigixileg kaffidrykkja,
ræða, sem Helgi Hannesson
flytur, sýnd verður kvikmynd
frá íslendingum í Vestur-
heimi og er hún með íslenzku
tali, en loks verður f jöldasöng
ur og ýmsar aðrar skemmt-
anir.
UpplýsingastöS
Mngstúku Reykjavíkur, *r tpia
í kvöld kl. •—« í GóðWwplam-
hweinu.