Alþýðublaðið - 23.03.1944, Page 7
fffen?atqdigIlr
AioToimi^yp
ZZimm.
*
| Bœrinn í dag. |
Naeturlæknir er í Læknavarð-
atofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki
Næturakstur annast Aðalstöðin,
aámi 1383.
ÚTVARPIÐ:
33.00—15.00 Bænda- og hús-
mæðravika Búnaðarfélags-
ins: Ýmis erindi.
38.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
39.25 Hljómpliötur: Söngdansar.
39.45 Lesin dagskrá næstu viku.
®Q(.20i Útvarpshljómsveitin (Þólr-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar); b) „Wein, Weib und
Gesang", vals eftir Strauss.
c) Mars eftir Sousa.
£9.50 Frá útlöndum (Axel Thor-
s:einson).
81.10 Hljómplötur: Lög leikin 6
cello.
31.15 Lestur íslendingasagna (dr.
Einar Ól. Sveinsson).
31.40 Hljómplötur: íslenzk lög.
Nánari saisivinna Ung-
verja og Þjóðverja,
segir Parísarýtvarpið
Frh. af 3. síðu.
ENN BERAST litlar fregnir
um atburðina í Ungverja-
landi. Er helzt að fá upplýs-
ingar um þá í útvarpssending-
um frá ýmsum löndum, sem
Þjóðverjar höfðu hertekið. Út-
varpsstöðin í París hefir t. d.
látið þess getið, að hér eftir
verði nánari samvinna milli
Ungverjalands og Þýzkalands
ígegn bolsévíkahætunni og í
hollenzku útvarpi var frá því
greint, að hernaðarsamvinna
Ungverja og Þjóðverja yrði nú
með öðrum og nánari hætti.
í öðrum fregnum segir, að
hershöfðingi sá, er stjórnar
hðsafla Þjóðverja í Balkanlönd
unum, sé nú staddur í Buda-
pest. Jafnframt var þess getið,
að allmargir ungverskir Jafn-
aðarmenn hefðu verið hand-
teknir.
Aðalfundur Byggíngar
Byggingarsam-
VINNUFÉLAG Reykja
vikur hélt aðalfund sinn í
fyrrakvöld.
Mikið var rætt um mögu-
leika fyrir nýbyggingum og
voru flestir á þeirri skoðun, að
heppilegast væri að bíða þar til
eftir styrjöldina.
í stjóm félagsins voru kosn-
ir: Guðlaugur Rózinkrans, for-
maður, Elías Halldórsson, skrif-
stofustjóri, Vilhjálmur Bjöms-
son verzlunarmaður, Ólafur Jó-
hannesson lögfræðingur og
Guðmundur Gíslason bygginga
meistari.
47 máiverk
„Varnarsigrar" >
Þjóðverja
Frh. af 3. síðu.
að skólum, sjúkrahúsum og
listasöfnum, fomfrægum
höllum og öðru því, sem lík-
legt var til þess að varðveita
minninguna um evrópska
menning og listfengi. Fyrir-
lesarinn minntist að sjálf-
sögðu ekki á aðfarir Þjóð-
verja í Rotterdam, Coventry
og Belgrad, eða í Peterhof
Detskoye Selo við Leningrad
ekki alls fyrir löngu. Þessar
borgir teljast bersýnilega
ekki til þess, sem kalla má
evrópsk menningarverðmæti.
HVAÐ SVO SEM bolsévika-
hættunni viðvíkur hafa eng-
ir gengið jafn rösklega fram
í því að tortíma menningar-
verðmætum og mannslfum
og nazistarnir þýzku og vita
það allir, sem eitthvað hafa
fylgzt með síðan Hitler hóf
ofbeldisferil sinn. En nú er
svo komið að gamli áróður-
innreynist næsta haldlítill,
fólk er hætt að trúa á fregn
imar um ,,varnarsigrana“ og
ýmislegt bendir til þess, að
á þessu ári hefjist nýtt tíma-
bil í framfarabaráttu Evrópu,
þegar hið nazistiska skrímsli
hefir verið að velli lagt.
MÁLVERKASÝNING Jóns
Þorleifssonar faefir nú ver
ið opin í 4 daga og hefir mikiU
fjöldi manna heimsótt sýning-
una, þar á meðal ríkisstjóri ís-
lands Sveinn Björnsson, sendi- |
herra Rússa og Menntamálaráð
íslands, sem hefir keypt eitt
með stærri verbum sýningarinn
ar á 4,500 krónur, Kvöld við
Breiðafjörð. Auk þess hafa
selst á sýningunni 46 verk.
Sýningin verður opin til
fimm t udagskvölds í næstu viku.
■' ..... \ •.
BráöabirgðarMsnæðið
Bráðabirgðahúsnæði þessu hef
ir verið úthlutað fólki, sem ým-
ist vofði útburður yfir höfðinu
á eða þá því, sem algjörlega var
vegalaust, en ennþá hefir ekki
verið hægt að sinna óskum
þeirra, sem eitthvað þak höfðu
yfir höfðinu, hversu lélegt sem
það reyndist vera. Þá hefir einn
ig verið reynt að fækka í þei-m
húsakynnum, sem voru óhæfi-
lega þröng, enda þar oft sam-
ankomnar 2, 3 og allt upp í 4
f jölskyldur í 1, 2 og í mesta lagi
3 faerfbergjum.
Bráðabirgðahúsnæði þetta hef
ir verið úthlutað 91 fjölskyldu
og auk þess 12 einhleypingum.
— Að höfðatölu munu nú búa
í bráðabirgðahúsnæði eða vera
um það bil að flytja inn í það,
alls 383 manns, þar af 209 full-
orðnir (yfir 16 óra að aldri), 158
börn (undir 16 ára aldri) og 4
gamalmenni (yfir 60) og svo að
au-ki hinir 12 einhleypingar, sem
taldir eru hér að framan.
í br-áðabirgðahúsnæði þetta
hefir verið leitt rafmagn, bæði
til ljósa og eldamennsku, vatn
til sameiginlegra afnota fyrir
niokkrar fjölskyldur í hóp og sal
erni hafa verið byggð úti til
sameiginlegra afnota fyrir í
mesta lagi 2 fjölskyldur hvert,
en í f-lestum tilfellum sér-salerni
fyrir hverja fjösky-ldu. — Leigu
gjálds hefir að svo komnu ekki
verið krafizt fyrir íbúðarafnot
þessa bráðabirgðafaúsnæðis. —
Þegar hefir verið búið í nokkru
af þessu bráðabirgðahú.snæði um
missirisskeið. —
Qæstaréttard霜r
Frh. af 6. síðu.
Samkvæmt 2. tölulið 44. gr.
laga nr. 80, 1938 skal félags-
dómur dæma mál um gildi
vinnusamnings. Bar mál þetta
því undir félagsdóm, og verður
að vísa því frá héraðsdómi.
Þar sem hvorugur aðila hefir
krafizt málskostnaðar fyrir
hæstarétti, fellur hann niður.
Því dæmist rétt vera: Mál þetta
vísast frá héraðsdómi. Máls-
kostnaður fyrir hæstarétti fell-
ur niður“.
Frh. af 2. síöu.
sláturhúsum t. d. til refafóðurs.
d) markaðsski'lyrði fyrir lé-
legri kjöttegundir s. s. ærkjöt,
nautakjöt og hrossakjöt.
Bygging útihúsa í sveitnm.
Nefndin hefir ákveðið að
bjóða til verðlaunasamkeppni
um tillögur um haganlegt fyrir
komu'lag á byggingu fénaðar-
húsa svo og áburðar, hey- og
verkfærageymslu fyrir sveita-
heimili og þætti hexrni æskilegt
að teikningar eða minnsta kosti
riss fylgdi til skýringar. Áherzlu
skal leggja á að afstaða bygg-
inganna sín á milli og við íbúðar
faús, svo og fyrirkomulag þeirra
út af fyrir sig, sé þannig, að
verkadrjúg verði umgengni og
fairðing í húsunum.
Ekki gerir nefndin það að
skilyrði fyrir viðurkenningu, að
til-lögur nái lil allra þeir-ra húsa,
sem áður greinir, tillögur um
einstö-k hús og jafnvel um ein-
stök fyrirkomulagsatriði í bygg-
ingu þeirra verða einnig teknar
ta greina, ef vert þykir.
•Nefndin hefir til umráða kr.
3000.00 til verðlaunaveitinga, ef
faenni í samráði við forstöðu-
menn teiknistofu landbúnaðar-
ins, þykir til þeirra unnið með
væntanlegum tillögum.
Ýmis mál fleiri hefir nefndin
haft til athugunarm. a. tillögur
þeirra Steingríms Steinþórsson
ar búnaðanmálalstjóra og Pálma
Einarssonar ráðunautar um
byggðahverfa í sveitum, sem áð
ur hefir ve-rið skýrt frá, þær til
lögur eru svar tillö,gumanna við
fyrirspurn nefndarinnar tii
þeirra um það mál. Nefndin hef
i-r ekki enii tekið neina ákveðna
afstöðu til tillagna þessara, og
svo er um mörg mál önnur er
hún hefir til athugunar, eru þar
á meðal ýms mál, er alþingi hef
ir haft til meðferðar, varðandi
jarðræktarlögin og önnur jarð-
ræktarmál og er því ekkert um
þau að segja að sinni.
Tillögur skulu vera komnar
til Búnaðarfélags íslands fyrir
lok septembermánaðar n. k.
Fósturmóðir mín,
Ragnheiður Ólafía Jensdóttir,
frá Hnífsdal, andaðist að heimili mínu Laugavegi 69, þriðjudagúœ.
21. marz
Jarðarförin ákveðin síðar.
Jakobína Ásgeirsdóttir.
Þökkuin innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför konu minnar og móður,
€uAjargar Hannesdóttur,
Brekku Stokkseyri.
Jón Eiríksson. Hjálmar Jónsson.
frá SNÆFELLINGAFÉLAGINU
Umræðu og skemmtifundur verður kl. 81ú í
Oddfellowhúsinu.
Fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIN
Happdrætti
Trésmíðafélags Hafnarfjarðar
Dregið var í happdrætti hluta-
veltunnar 20. marz. Komu þessir
vinningar upp: 93 borðstofustólar,
1768 borðstofuborð, 1383 hjólbör-
ur, 290 1 tonn kol, 1782 1 tonn
kol, 2381 ltonn kol, 1181 Vz tonn
kol 459 Vz tonn kol. Munanna sé
vitjað til Þóroddar Hreinssonar,
Suðurgötu 19, Hafnarfirði.
StFrkveítingar til
iíssbum
Frh. af 2. síðu.
Þessi hlutu nýja styrki:
Alda Möller, leiklist ...... 1500
Baldur Líndal, verkfræði 3000
Benedikt Gröndal, blaðam. 1500
Björn Th. Baldvinss., listas. 3000
Björn Halldórsson, hagfræði 2000
Daníel Jónásson, viðskfr. . . 1500
Einar I. Siggeirsson, frærækt 1500
Finnur Kristinsson, leiktj.m. 1500
Guðjón Á. Kristinss., hagfr. 3000
Guðm. Sveinsson, smíðar 1500
Guðrún Þorsteinsd., hljóml. 1500
Gunnar Bergmann, blaðam. 1500
Gunnar Magnúss., iðnr.hagfr. 2000
Halldór Ó. Jónss., garðyrkja 2000
Halld. Sigui'jónss, flugvélavg. 1500
Ilaraldur Ásgeirsson, verkfr. 3600
Haukur Gunnarss., verzl.fr. 2000
Hjalti Pálsson, búfræði .... 1500
Hörður Ágústsson, -tciknun 2000
Inga Laxness, leiklist .... 1500
ívar Daníelsson, lyfjafræði 1800
Jón R. Guðjónsson, viðskfr. 3000
Fyrir nokkru síðan átti Bríet Bandaríkjamia, hin þekkta kven
réttindalcona frá Carrie Catt 85 ára afmæli. í tilefni af því
heiðraði frú Eleanor Roosevelt hana með heimsókn sinni. Frú
Carrie er konan til vinstri á myndinni.
Jón Pálsson, flugvélaverkfr. 3600
Jónas G. Kristinss. skipavkfr. 3000
Karl Stefánsson, verzl.fr. 1500
Kjartan Guðjónss., listteikn. 1500
Kjartan Sigurjónss., söngur 2000
Kolbrún Jónsd., dráttlist .. 1500
Lárus Bjamason, búfræði . . 1500
Njáll Símonars., verzlunarfr. 2000
Pálmi Möller, tannlæknisfr. 2000
Rögnv. Johnsen, byggingal. 2000
Rögnv. Sæmundss. uppeld.fr. 2000
Sigf. Halldórsson, leiktj.m. 1500
Sigr. Th. Ármann, listdans 1500
Sigurður Jónsson, lyfjafræði 1800
Sig. G. Norðdahl, kvikm.iðn 1500
Steinn Steinarr, bókmenntir 1500
Svafa Einarsdóttir, söngur 1500
Vigdís Jónsd., röntgennám 1500
Vigfús Jakobsson, skógrækt 3600
Viggó Maack, verkfræði . . 2000
Þór Guðjónsson, fiskifræði 3600
Þórður Einarsson, hagfræði 1500
Þráinn Löve, lífeðlisfræði 3000
Menntamálaráð íslands hefir
úthlutað þannig fræðimanna-
styrk þeim, að upphæð kr.
30 000.00, sem veittur er á 15.
gr. fjárlaga 1944.
Þessir hlutu fræðimanna-
styrk:
krónur
Ásgeir Hjartarson, sagnfr. 900
Árni Pálsson, fyrrv. próf. 1200
Arnór Sigurjónss., f. skólastj. 900
Björn Guðfinnsson, lektor . . 900
Björn Sigfússon, mag. art. 900
Björn Þórólísson, doktor . . 900
Einar Guðmundss., þjóðs.rit. 600
Finnur Sigmundsson, bókav. 900
Geir Jónasson, magister . . 900
Guðbrandur Jónsson, próf. 900
Guðm. Finnbogagon, doktor 1200
Guðni Jónsson, mag. art. . . 1200
Indriði Indriðason, rithöf. 900
J-óhann Hjaltason, rithöf. 600
Jóhann Sveinsson, mag. art. 1200
Jón Thorarensen, prestur . . 600
Kristján Albertsson, rithöf. 1200
Kristleifur Þorst.son fræðim. 600
Lárus Blöndal, bókavörður 900
Lúðvík Kristjánss., fræðim. 900
Pétur Jónsson, fræðimaður 600
Skúli Þórðarson, mag. art. 1800
Steingr. Þorsteinss., mag. art. 1800
Stefán Jónsson, fræðimaður 600
Sverrir Kristjánsson, sagnfr. 1200
Þorkell Jóhannesson, doktor 1800
Þorleifur Bjarnason, rithlöf. 1200
Þorst. Bjarnason, fræðim.\600
Þorst. Þ. Þorsteinsson, rith. 1200
Þorvaldur Þórarinss., lögfr. 900
ÚMSið AlbÝðubiaSiS.