Alþýðublaðið - 13.05.1944, Síða 5
Lalgudagnf 13. mai 1944.
AIÞÝ8UBU8IB
ANHKi
t/h
IA'
JJLJBÍf
;?r
Nu á æskulýður íslands að rísa upp til starfs og dáða!
Þjóðaratkvæðagreiðslan — og Landgræðslusjóðurinn —
' «j» <
Furðulegt siðleysi siðameistara —
ALGER EINHUGA þjóðarsam-
tök um ræktun skóga í lanðinu,
eeíti atf vera afmælisgjöf þjóðar-
Inar til hins nýja íslenzka lýð-
veliiis. LandgTæðslusjóður Skógr-
ræktarfélagsins er fögur hugmynd
•g mikil, og það vekur mjög for-
Vitni mina, að sjá hvernig þjáðin
tekur henni, því að það verður
vottur um þroska hennar og til-
Hnningu fyrir landinu, sem við
eigum.
BJARKARLAUFIÐ, sem Arn-
grímur Kristjánsson vakti máls á
i þjóðaratkvæðagreiðslunefndinni,
og nefndin samþykkkti og gerði að
sinni tillögu, er einnig ágæt hug-
mynd, bezt hefði verið, að kjós-
endurnir hefðu keypt merkið um
sama leyti og þeir greiddu at-
kvæði, en ég viðurkenni alveg
sjónarmið nefndarinnar, að það
var ekki hægt að koma því við,
enda varla tilhlýðilegt að vera
með fjársafnanir í beinu sambandi
við atkvæðagreiðsluna.
EN ÚR ÞESSU getur þjóðin
sjálf bætt, hver einn og einasti
einstaklingur. Atkvæðagreiðsludag
ana verður unnið að fjársöfnun til
Landgræðslusjóðsins, og þá getum
við sem einstaklingar gefið okkar
gjöí — okkar afmælisgjöf, fyrir-
fram. Skógræktarfélagið gefur út
tseðla upp á 5 krónur, 10, 50 og
100. Það á að vera ásetningur
okkar að leggja eitthvað fram,
liver einn og einasti — og ég.hygg,
að engir séu svo illa staddir, nema
gamalt, uppgefið fólk, sem lifir á
ellilaunum eða löryrkjarnir, sem
lifa á örorkubótum, að við getum
ekki lagt okkar 5 krónur fram —
Og það eigum við að gera. Við
skulum hvert og eitt kaupa okk-
ur fimm-krónu-miða. Hinir, sem
betur geta, mega gjarna kaupa
Jhærri miða.
f FYRSTA LAGI vantar starfs-
íólk til að vinna að atkvæða-
greiðslunni, ekki aðeins sjálfa
kosningadagana, heldur og núna
þessa daga, þar til hún á að hefj-
ast. Æskulýðsfélögin og íbrótta-
félögin, ættu að skipuleggja út-
vegun á þessu fólki, þó að vitan-
lega sé einnig rúm fyrir þá, sem
eldri eru. Allir verða að leggjast á
eitt í þessu efni — og íramar öllu
öðru kjósendurnir sjálfir. Það
geta þeir með því að kjósa strax
fyrsta daginn — á laugardaginn
kemur, láta kjörsóknina vera öra
allan daginn.
MEÐ ÞESSU erum við ekki að
berjast gegn rieinum, heldur að-
eins fyrir því, að sýna einhug okk-
ar og vilja, svo að ekki verði um
villzt. Þetta er okkur nauðsyn-
legt vegna umheimsins. Það verða
allir að skilja. Köpuryrði og ógeðs-
legt tal um menn eða þjóðir í þéksu
sambandi, er óþarft og skaðlegt,
og setur á okkur skrælingja-
stimpil. Það skulum við forðast.
MIG FURÐAR Á ÞVÍ, að mað-
ur, sem oft talar um siðleysi okk-
ar Islendinga, vankunnáttu í hátt-
vísi og hálfgerðan skrælingjabrag,
skuli jafnvel hafa föryslu í slíkri
framkomu. Hér á ég við H. K. L.,
sem nýlega sagði í blaðagrein: ,,En
þeim dólgslegu orðum um okkur
íslendinga, sem Svíar þykjast
þurfa til þessara mála að leggja,
er því til að svara, að vér íslend-
ingar þekkjum þá þjóð ekki neitt,
og kærum okkur ekki mikið um
að kynnast henni —• sem stendur.“
SLfK UMMÆLI eru rítings-
stunga i bak þjóðarinnar, um leið
og hún greiðir atkvæði með sam-
bandsslitum og stofnun lýðveldis-
ins, vegna þess, að við þurfum að
þekkja allar þjóðir og njóta vin-
áttu þeirra, er við höfum tekið
öll okkar mál í okkar hendur og
endurreist lýðveldi okkar — og
það ekki sízt nú, þegar tímamir
eru þannig og aðstæður sam-
bandsþjóðarinnar, að möguleikar
eru á því, eins og dæmip sanna, að
framkoma okkar geti valdið mis-
skilningi. Og Svíar hafa aldrei
sýnt okkur annað en vináttu — og
í ummælum sænskra blaða nú,
hefur ekkert komið fram, sem
sýnir annað en vináttu Svía f okk-
ar garð, þó að hins vegar kenni
misskilnings í sumum blaðaum-
mælunum.
f ÖÐRU LAGI þarf Skógrækt-
arfélagið á miklum fjölda æsku-
manna og kvenna að halda, til að
standa fyrir stofnun Landgræðslu-
sjóðsins, Skátafélagsskapurinn, ung
liðadeildir Kauða krossins, ung-
liðadeildir Slysavarnafélagsins og
barnastúkurnar, eiga að skipu-
leggja útvegun þessara starfs-
krafta — og unglingarnir þurfa að
njóta góðrar stjórnar í þessu
starfi og bera sín einkenni.
YFIRLEITT á æskulýður ís-
lands, að rísa upp, nú þegar í al-
hliða þjóðlegu starfi, gerast sjólf-
boðaliði við atkvæðagreiðsluna um
land allt og í starfi Skógræktar-
félagsins við stofnun Landgræðslu-
sjóðsins. Vona ég, að þesar bend-
ingar mínar verði teknar til at-
hugunar. Hannes á horninu.
Fjórir herforingjar Brazilíu.
Á mynd þessari sjást fjórir af helztu harforingjum Brazilíu við heræfingar að Vila Militar,
skammt fna Rio de Janiaro. Mennirnir eru, talið frá vinstri til hsegri: Newton Cavalcanti,
Joao Baptista Mascarenhas, Valentin Benicio og Mario Jose Finto Guedes.
Suður-Ameríka i deiglunni.
Skálar og fleira
Kaffikönnur og fleira nýkomið.
Eioarsson & Björnsson
líiímX:TtTiY:YsíiíiTiTiT:TimiT:XiiiXsT:T:T:íUimi
Mriarsísssi Aiþflnbiaisins er 4fi.
SlÐUSTU mánuðina hafa þau
tíðindi gerzt, að einræðis-
stjórnir hafa setzt að völdum í
tveimur ríkjum Suður-Ame-
ríku, Argentínu og Bolivíu. 1
tveim öðrum ríkjum Suður-
Ameríku, Chile og Peru, hafa
stjórnirnar lýst því yfir að bæld
ar hafi verið niður uppreisnar-
tilraunir herforingja, sem
möndulveldin hafi staðið á bak
við. Vissulega er nokkur ástæða
til þess að freista þess að gera
sér grein fyrir því, hvað veldur
því, að einræðisstefnunni virð-
ist vaxa fylgi í Suður-Ameríku
á sama tíma og voldugustu lýð-
ræðisríki heimsins eru í þann
veginn að vinna glæsilegan sig-
ur á Þýzkalandi og Japan. Ilver
er orsök þessa? Og í hvaða ríkj-
um er líklegast, að einræðis-
stefnunni aukist fylgi?
Því verður ekki neitað, að
einræðisstefnan virðist eiga
nokkru fylgi að fagna í sumum
ríkjum Suður-Ameríku. Það er
mun nær sanni að ræða um ein-
ræðisstefnu 1 þessu sambandi
en fasisma, þar eð áhrif fasism-
ans í Evrópu eru nú mjög þverr
andi. En þess ber að minnast, að
f ástæðan fyrir áhrifum einræð-
isstefnunnar í sumum ríkjum
Suður-Ameríku, er fljótfundin,
j I engum ríkja þessara nema
| Peru eru sterkir vinstri
flokkar, er séu til þess færir að
mynda öfluga ríkisstjórn í
löndum þessum. Enginn einræð
isstjórnanna í ríkjunum í Suð-
ur-Ameríku nýtur fulltingis
fjölmennra flokka, er skipu-
lagðir séu að hætti nazista, fas-
ista eða falangista. Til þessa hef
ir einræðið í ríkjum þessum
komið til með þeim hætti, að
einstakur maður eða fámennur
hópur hefir hrifsað völdin í sín
ar hendur. Einræðisherrarnir í
Suður-Ameríku og klíkurnar,
sem að þeim standa, njóta fyrst
og fremst stuðnings og fullting-
is hersins. Fylgi almennings
þeim til handa leikur hins veg-
ar nokkuð á tveim tungum.
Aðalástæðan fyrir því, að
ævintýramönnum þessum hefir
tekizt að brjótast til valda er
sú, að stjórnmálaþroski er á
mjög lágu stigi meðal þessara
þjóða. íbúar landa þessara eru
flestir blásnautt fólk, og alþýou
menntun er þar mjög ábóta-
vant. Þjóðerniskennd er allrík
meðal þessara þjóða, vegna þess
að ríkin eru mjög háð erlend-
um þjóðum fjárhagslega. Sér-
GREIN ÞESSI, er fjallar
tun viðhorfin í Suður-
Ameríku, er hér þýdd úr
tímariíinu World Digest.
Mun mörgum Jþykja fróðlegt
að kynnast viðhorfunum í
ríkjum þessum, sem suni
berjast við hlið bandamanna
en önnur aðhyllast málstað
möndulveldanna að meira
eða minna leyti og verða að
una einræðisstjórn.
hvert þessara ríkja heldur uppi
her, sem þýzkir foringjar hafa
aðallega þjálfað. — Áhrifamenn
herjanna eru ekki svo mjög
önnum kafnir, að þeir geta hæg
lega látið stjórnmál til sín taka.
Margir foringjar herja þessara
eru mjög hlaðnir skuldum og
þrá ekkert annað fremur en að
verða fjárhagslega sjálfstæðir
menn. Þess vegna leggja þeir
áherzlu á það að freista þess að
láta stjórnmál til sín taka í von
um það að geta þannig bætt að-
stöðu sína og hag sem þegnar
þjóðfélagsins. Því er haldið
fram, að áróðursmenn nazista
hafi varið miklum fjárhæðum
í því skyni að greiða skuldir
þessara mana, og er það mál
manna, að sú iðja þeirra hafi
reynzt næsta árangursrík. Einn
ig ber' þess að gætá, að lönd
þessi eru byggð fólki af ýmsurri
þjóðum. Þjóðverjar eru fjöl-
mennir í öllum löndum Suður-
Ameríku. ítalir eru fjölmennir
í Argentínu og Brasilíu, og Jap-
anar eru allfjölmennir í Peru
og Brasilíu.
Því fer alls fjarri, að allt það
fólk af þýzkum, ítölskum og jap
önskum uppruna, sem dvelst í
löndum þessum, aðhyllist ein-
ræðisstefnuna. En nazistar hafa
lagt mikla áherzlu á að vinna
málstað sínum fylgi í ríkjum
þessum, óneitanlega með nokkr
um árangri.
»
TYRJ ÖLDIN hefir sem
að líkum lætur haft mikil
áhrif í þeim efnum, að lýðræðis
stefnunni hefir aukizt fylgi i
löndum þessum. Samband ríkj-
anna í Suður-Ameríku hefir
eflirt mjög eigi hvað sízt vegna
hinna þriggja ráðstefna að
Panama, Havana og Rio de Jan-
eiro. Bandaríkin hafa veitt ríkj-
um þessum verulegan fjárhags-
stuðning. En hins vegar hafa og
ýmis vandamál verið á baugi,
sem örðugt hefir reynzt að finna
lausnir á. Skipaskortur ríkja
þessara hafir valdið þeim mikl-
um erfiðleikum. — Markaðstöp
og vöruskortur hefir hvarvetna
þau áhrif,að framleiðendur og
neytendur una hag sínum næsta
illa að vonum og gerast óánægð
ir með allt og alla. Auk þessa
hefir þess nokkuð gætt, að menn
í ríkjum þessum óttast íhlutun
Bandaríkjanna í framtíðinni
vegna fjárhagsstuðnings þess, er
þau hafa látið þeim í té og flug-
valla þeirra, er þau hafa tekið á
leigu víðs vegar um Suður-
Ameríku. Áróðursmenn möndul
veldanna hafa líka rekið starf-
semi sína óspart, og það er ekki
fyrr en nú fyrir skömmu, að
iðju þeirra hafa verið einhverj-
ar skorður settar.
Það má skipta Suður-Ame-
ríku í tvo hluta, þar sem annars
vegar ríkir lýðræði en hins veg-
ar einræði eða horfur eru á því,
að einræði komist á. Ef Suður-
Ameríku yrði skipt þannig yrði
merkjalínan dregin frá mynni
1 Platafljótsins til landamæra
Ecuador og Columbía. Annars
vegar yrði þá Brasilía aðalríkið,
en hins vegar Argentína.
Niðurlag á morgun.
Auglýsingar,
sem birtast eiga f
Álþýðublaðinu,
verða að vera
konmar til Auglýs-
ingasltrifstofunnar
f Alþýðuhúsinu,
(gengið inn fxá
Hverfisgötu)
iyrSr ki. 7 að kvöidi.
Sími 16.
xwmmsmmírm
!iðið Alþýðubiaðið.