Alþýðublaðið - 24.06.1944, Side 2
1
Vörubifreiðasljórar í Reykja-
vík, boða verkfali i Júli
SamniBigaiflmleitanir meS þeim @g at~
vinnurekendum Ihafa fariS út um þúfur
UNDANPARIÐ hafa farið fmm samningaumleitanir
milli Vörubifreiðastjórafélagsins „Þróttur“ og Vinnu-
veitendafélags íslands, um kaup og kjör bifreiðastjóra, en
ekki borið árangur.
Dagana 20.—22. júní fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla
innan „Þróttar“ um heimild handa stjórn félagsins til að
lýsa yfir vinnustöðvun frá og með morgni þess 1. júlí n. k.,
ef samningar hafa þá ekki tekizt milli aðila.
Úrslit latkvæðagreiðslunnar urðu þau, að af 181 félgs-
manni, er þátt tóku í atkvæðagreiðslunni, greiddu 174 at-
kvæði með verkfallsheimildinni en 5 á móti, 2 seðlar voru
auðir.
Stjórn félagsins hefir ákveðið að nota heimildina, og
með bréfum dagsetttum í gær tilkynnti það Vinnuveitenda-
félagi íslands og öðrum þeim, er hlut eiga aðallega að máli.
Hæstaréttardómur um
Réttindi fil Mar i verka-
mannabúsfööunum
MaSur, sem hefir tekjur yfir tiltekið iiámark?
getur ekki krafizt ifoúi&ar í þeim.
|J[ ÆSTIRÉTTUR kvað í
*■"' gær upp dóm í málinu
Alexa.nder Guðmundsson
gegn Bygginarfélagi verka-
manna. Málavextir er í stuttu
máli sem hér segir: Alexand-
ander hafði krafizt þess, að
honum yrði úthlutað íbúð í
nýju verkamannabústöðun-
um, en stjórn byggingafélags
verkamanna synjaði því, þar
eð Alexander hafði hærri
tekjur en tilskilið er í sam-
þykktum félagsins að menn
megi hafa, ef þeir eiga að
geta orðið félagar með full-
um réttindum. ,
Alexanilcr gerði þá tilraun til
að fá Byggingarfélagið dæmt til
að afsala honum íbúð með al-
mennum kjörum félagsins. Þeirri
kröfu hans var synjað af hálfu
undirréttar og staðfesti hæsti-
réttur þann dóm í gær. — Guðm.
í. Guðmundsson flutti málið af
hálfu Byggingarfélags verka-
manna fyrir báðum réttum.
Dómur hæstaréttar er svo-
hljóðandi:
„Áfrýjandi, sem skotið hefir
máli þessu til hæstaréttar með
stefnu 18. apríl þ. á., krefst þess,
að stefnda verði Sæmt að afsala
honum með álmennum kjörum
Byggingarfélags verkamanna í-
búð á neðri hæð hússins nr. 5
við Meðalholt, Reykjavík, gegn
4000 króna greiðslu til viðbótar
áður greiddum 6000 krónum svo
og til að greiða honum skaða-
bætur, 500 krónur fyrir hvern
mánuð, frá því að greind íbúð
var fullger í byrjun júní 1943
og þar til hún verður afhent á-
frýjanda. Loks krefst áfrýjandi
málskostnaðar úr hendi stefnda
bæði í héraði og fyrir hæstarétti
eftir mati dómsins.
Sltefndi krefst staðfestingar
héraðsdóms og málskostnaðar úr
hendi áfrýjandi fyrir hæstaréittá.
Samkvæmt 5. gr. samþykkta
Byggingarfélags verkamanna,
Reykjavík, sem er í samræmi við
3. tl. 6. gr. laga nr. 3/1935, er
það eitt skilyrða fyrir því, að
menn geti orðið félagar með
fullum réttindum, þar á meðal
rétti til að koma til greina, þegar
félögum er úthlutað íbúðum, að
þeir hafi ekki haft yfir 4000
króna árstekjur að viðbættum
300 krónum fyrir hvern ómaga,
þó samtals ekki yfir 5500 krón-
ur, miðað við meðaltal 3 síðustu
ára, en fjárhæðir þessar hækka
samkvæmt lögum nr. 81/1941 í
samræmi við meðalvísitölu næsta
árs á undan, meðan vísitala
kauplagsnefndar er 110 eða
hærri.
Áfrýjandi er talinn framfæra 4
ómaga, og var það því skilyrði
fullra félagsréttinda hans, að
meðalárstekjur hans næstu 3 ár-
in, áður hann gæti komið til álita
við úthlutun íbúða, færi ekki
fram úr kr. 5200,00 ásamt verð-
álagi eftir nefndum lögum.
Það er ekki ágreiningur um
það, að áfrýjandi hefir ekki full-
nægt þessu skilyrði, sem óheim-
ilt er að víkja frá, og er því ekki
unnt að taka kröfur hans til
greina. Ber því að staðfesta hér-
aðsdóm að niðurstöðu til.
Eftir atvikum þykir rátt, að
málskostnaður fyrir hæstarétti
falli niður.
Því dæmist rétt vera:
Hinn áfrýjaði dómur á að vera
óraskaður.
Málskostnaður fyrir hæstarétti
fellur niður.“
SuHusykur
VIÐSKIPTAMÁL ARÁÐU -
NEYTIÐ hefir ákveðið, að
vei(ttur verði aukaskammtur af
sykri til sultugerðar, og nemur
skammtur þessi 3 kg.
Sykurinn verður afhentur
gegn afhendingu á stofnauka nr.
4 af núgildandi matvælaseðli og
gildir hann þar til 1. ágúst næst-
komandi.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 24. júní 1944
Fyrsti sendiherrann afhendir for-
sefa Íslands embæflisskilríki sín
Það var sendiherra Breta, Mr. Shepherd, sem*
gekk á fund forsefans kl. 11 f. h. í gærmorgun
SENDIHERRA BRETA í REYKJAVÍK, Mr. Gerald
Shepherd, gekk í gær.kl. 11 á fund forseta íslands í
embættisskrifstofu hans í alþingishúsinu, og afhenti hon-
um embættisskilríki sín. Mr. Shepherd er fyrsti sendiherr-
ann, sem afhendir forsetanum embættisskilríki, eftir að Is-
land varð lýðveldi.
Utanríkisráðherra Vilhjálmur Þór var viöstaddur athöfnina.
Ávarp seeidiierraos
Brezki sendiherrann ávarpaði
forsetann á þessa leið:
„Herra forseti.
Nú er lýðveldi hefir að nýju
verið stofnað á Islandi og þér,
herra, hafið verið kjörinn fyrsti
forseti þess, leyfi ég mér að
leggja fram umboðsbréf kon-
ungs, er veitir mér útnefningu
sem sérstakur sendiherra hans
og ráðherra með umboði hjá
hinu íslenzka lýðveldi. Mér er
ljós sú mikla sæmd, sem mér
hefir verið sýnd með því að fá
að halda áfram að vera fulltrúi
Hans Hátignar hjá yður.
Hans Hátign biður mig að
endurnýja vináttu- og árnaðar-
kveðjur sínar bæði til yðar, herra
forseti, persónulega og til ís-
lenzku þjóðarinnar, og fullvissa
yður um lifandi áhuga sinn fyrir
velferð og framtíðarhag lýðveld-
isins, sem yður, herra, hefir ver-
ið falið að veita forsæti.
Vegna hinnar miklu góðvildar
og skilnings, sem mér hefir ver-
ið sýnd hvarvetna síðan ég kom
fyrst til íslands, held ég áfram
starfi mínu í trausti þess, að sú
góða samvinna, sem ég hefi
fengið að njóta hingað til, muni
í framtíðinni reynast mér til
jafnmikils léttis í störfum mín-
um. Eg mun á allan hátt leitazt
við að styrkja og viðhalda vin-
samlegum viðskiptum milli þjóða
okkar og efla gagnkvæman hag
þeirra.
Að endingu vil ég láta í ljós
einlægt þakklæ.ti mitt fyrir hin
sérstaklega vinsamlegu og lof-
samlegu ummæli um brezku
þjóðina, sem þér, herra forseti,
viðhöfðuð í ræðu yðar til ís-
lenzku þjóðarinnar 18. júní, og
fullvissa yður um, að það er ein-
læg von mín, að þær óskir, sem
þá komu fram Islandi til handa,
megi rætast til blessunar fyrir
hið endurreista lýðveldi um alla
framtíð.“
Svar forseta
Ræðu sendiherra svaraði for-
seti þessum orðum:
„Herra sendiherra.
Það er mér mikil ánægja að
veita viðtöku frá yður umboðs-
bréfi yðar hæstvirta konungs
með útnefningu yðar til að vera
sérstakur sendiherra Hans Há-
tignar og ráðherra með umboði
njá íslenzka lýðveldinu. Þetta er
fyrsta umboðsbréf sendiherra,
ssm ég veiti viðtöku frá þjóð-
höfðingja, síðan ég var kjörinn
forseti hins íslenzka lýðveldis, og
það gleður mig, að yðar hátigni
konungur hefir valið yður til
þessa trúnaðarstarfs, þar sem
bæði ég og ríkisstjórnin metum
mikils starf yðar hér á landi, nú
rúmlega árlangt.
Þegar ég undirritaði samning
við land yðar í London fyrir
meira en 10 árum, lét sá Brezki
ráðherra, sem einnig undirritaði
samaiinginn, svo um mælt við
mig,- að norræn lönd tæru með-
al þeirra landa, sem sér þætti
ávallt vænt um að undirrita
samning við, þar sem traustið á
því, að samningurinn yrði hald-
inn út í æsar, væri þar gagn-
kvæmt.
Þar sem hinn hátigni konung-
ur yðar hefir vinsamlegast beðið
yður að endurnýja vináttukveðj-
ur til mín og íslenzku þjóðarinn-
ar, svo og að fullvissa mig og
þjóðina um hinn lifandi áhuga
sinn fyrir velferð og framtíðar-
hag Islands, langar mig til þess
að taka það fram, að vér tökum
kveðjum þessum í fullú trausti
til Hans Hátignar, brezku þjóð-
arinnar og ríkisstjórnar Bret-
lands, sem hafa sýnt okkur svo
mikla vináttu við stofnun hins
íslenzka lýðveldis, og að tiltrú
vor til lands yðar er ekki minni
en það traust, sem hinn btezki
ráðherra lét í ljós til Norður-
landanna fyrir meira en 10 árum.
Fyrir allt þetta bið ég yður að
færa hæstvirtum konungi yðar
vort innilegasta þakklæti og
einnig að endurnýja mínar ein-
lægustu óskir um velferð Hans
Hátignar og um velfarnað hinnar
brezku þjóðar.
Eg get fullvissað yður um, að
ég og íslenzk stjórnarvöld munu
einnig í framtíðinni vilja gera
allt, sem í voru valdi stendur til
samvinnu við yður í hinu mikil-
væga starfi yðar.“
Forsefi Islands hefir
boð inni að
Bessasföðum
ORSETI ÍSLANDS hélt
* fyrsta boð sitt að Bessa-
stöðum fimmtudaginn 22. þ. m.
Meðal boðsgesta voru ríkis-
stjórn, forseti sámeinaðs al-
þingis, forseti hæstaréttar, full-
trúar erlendra ríkja, formenn
stjórnmálaflokkanna, fulltrúi
Vestur-íslendinga próf. Richard
Beck og nokkrir íslenzkir em-
bættismenn, auk þeirra, er
nefndir voru.
Skömmu eftir að setzt var und-
ir borð stóð forsetinn upp og bað
menn að drekka skál Danakon-
ungs og Danmerkur, lék síðan
Lúðrasveit Reykjavíkur „Det er
et yndigt Land“. Síðan bað for-
seti veizlugesti að drekka skál
Bandaríkjaþjóðar og þjóðhöfð-
ingja hennar,.Breta, Norðmanna,
Svía, Frakka, Rússa, Hollendinga
og þjóðhöfðingja þeirra, og lék
lúðrasveitin eft.ir hverja skál
I þjóðsðng hlutaðeigandi þjóðar.
Þá bað forseti veizlugesti að
drekka skál allra þeirra ríkja,
er sýnt hefðu hinu unga lýðveldi
vináttuvott á einn eða annan
hátt. Loks bað forseti þess, að
drukkin væri skál hins íslenzka
lýðveldis, og var síðan leikinn
þjóðsöngur Islands.
Kveðjur og ámaðar-
óÉir frá Chrisfntas
Möiter og konu hans
Til forsefa íslands og ísienzku
þjóðarinnar
|7 ORSETA ÍSLANDS hefir
borizt skeyti frá Christmas
Möller og konu hans, þar sem
þau árna forsetanum og ís»
lenzku þjóðinni heilla.
I skeytinu segir m. a. á þessa
leið:
„Á þessum merkisdegi Islands
og hinnar íslenzku þjóðar langar
okkur að senda yður beztu kveðj-
ur og óskir. Við óskum yður allra
heilla -og vonumst til þess að
mega biðja yður að flytja ís-
lenzku þjóðinni beztu óskir okk-
ar um framtíð hennar og hins ís-
lenzka lýðveldis.“
B. J. Brandson látinn
SAMKVÆMT fregn frá
Wi'nnipeg er hinn frægi ís-
lenzki læknir, dr. B. J. Brands-
son, nýlega látinn. Hann varð
sjötugur 1. júní síðastliðinn og
var þá nýlega sæmdur heiðurs-
nafnbótinni „Doktor í lögum"
(LLD) af Manitobaháskólanum,
sem er eitt mikilvægasta heið-
ursmerki, sem háskólinn getur
veitt. Dr. Brandsson fluttist
vestur með foreldrum sínum,
Jóni og Margréti Brandsson, er
hann var 6 ára að aldri. Mennt-
un sína hlaut hann í Gustavus
Adolphus í Minnesota og í Mani
tobaháskóla og útskrifaðist það
an frá læknadeild skólans árið
1900. Hann var framarlega í
hópi beztu skurðlækna og var
valinn til að flytja fyrirlestra í
uppskurðardeild Manitobalækna
skólans 1910, en aðalprófessor
varð hann við skólann 1913. Ár-
ið 1934 sagði hann stöðu sinni
lausri vegna heilsubrests, en
hefir verið þar heiðursprófess-
or síðan.
Fullfrúaþingi Sam-
bandí ísf. Barna-
kennara lokið
ATTUNDA fulltrúaþingi Sam-
bands íslenzkra barnakenn-
ara, sem staðið hefir undanfama
daga, var slitið í gærkveldi.
Þingið sátu um fimmtíu fulltrú-
ar frá ýmsum kennarafélögum
víðs vegar um land.
Helztu mál þingsins voru:
Fræðsluskipunin nýja, launamál
kennara, skólamál að stríðinu
loknu og enn fremur var rætt
um alþjóðasamvinnu í skólamál-
um að stríðinu loknu. Þá var og
að sjálfsögðu rætt um ýms mál,
sem viðkoma kennarastéttinni
inn á við.
Náfnari fréttir af þinginu verða
birtar eftir helgina.
Laugarnesprestakall.
Messað í samkomusal Laugar-
neskirkju á morgun kl. 2 eftir há-
degi. Sera Valgeir Helgason pvé-
dikar.