Alþýðublaðið - 21.11.1944, Side 2
£
ALÞYÐUBLAPIP
ABþjóða flugmálaráóstefnan:
Islendingar bera fram filmæli
um þrjár flugleiðir fil úflanda
ISLENZKA sendinefndin á flugmálaráðstefnunni í Banda-
ríkjunum bar í gær fram þau tilmæli íslendinga, að þeir
fengju leyfi til flugferða á þessum leiðum:
Reykjavík til Kaupmannahafnar, um Stavangur og
Gautaborg, Reykjavík til Prestwick og Reykjavik til New
York um Grænland og Labrador eða Nýfundnaland.
Tillögur milliþinganefndar:
Mjög miklar umbæfur á pósf-
samgöngum um landið
■.——....
Póstur á a$ komast vikulega um allt land
MILLIÞINGANEFNI) í póstmálum, sem skipuð var 1. sept.
1943, en í henni áttu sæti Daníel Ágústínusson, Gísli Jóns-
son og Gunnar Benediktsson, hefur skilað áliti.
Eimskip æflar a3 reka
flugferðir
r
ÍÐASTLIÐINN laugardag
var haldinn aukafundur í
Eimskipafélagi íslands til þess
að taka ákvörðim um lagabreyt-
ingu þá, sem ekki var imnt að
taka íil meðferðar á aðalfundi í
stunar.
Áður en gengið var til fund-
ar minntist ritari þess hörmu-
lega atburðar, sem varð 10 þ.
m., þegar Gfoðafossi var sökkt
af þýzkum kafbáti og hins sorg
lega manntjóns er þá varð.
Minntust fundarmenn hinna
látnu og vottuðu eftirlifandá
ástvinum þeirra hluttekningu
sína með því að rísa úr sætum.
Eina málið, sem fyrir fundin
um lá, voru tillögur til laga-
breytinga.
Guðmundur Vilhjálmsson
framkvæmdastjóri félagsins
skýrði tillögurnar og kvað þær
hafa verið lagðar fyrir aðalfund
í sumar, en hafi þá ekM fengið
afgreiðslu sökum þess, að þá
hafi ekki nógu margir hlutahaf
ar mætt til fundar samkv. 15.
gr. félagslaganna.
Jón Asbjörnsson ritari félags
ins skýrði einnig tillögumar og
viðaukatillögumar, sem hann
lagði fram
Tii viðbótar 3. gr. tun til-
gang féíagsins, þar sem rætt er
um að tilgangurinn væxi sá, að
reka siglingár, aðailega milli ís
lands og annarra landa og við
strendur landsins, komi „enn-
fremur að reka flugferðir, ef
henta þykiy, í félagi við aðra“.
Var tillaga þessi samþykkt
þannig.
Síðari liður viðbótartillögunn
ar var á þessa lund: „Félags-
stjórnin getur með samþykki
félagsfundar ákveðið að félagið
reisi og reki gistihús, eða gerist
þátttakendur í slíku fyrirtæki,
enda sé það samþykkt af fimrn
stjórnendum a. m. k. og standi
sá gisti'húsrekstur í sambandi
við farþegaflutning félagsins að
dómi féiagsstjórnarinnar. ‘ ‘ Til-
laga þessi var einnig samþykkt.
Björgunarbátsflak úr
Goðafossi f innst
IFYRRADAG fann vélbátur-
inn Ársæll Siguxðsson báts-
flak norðvestur af Akranesi. Er
þessa björgunarbátur úr Goða-
fossi, og er talið að hann muni
ekki hafa losnað frá skipinu
fyrr en löngu eftir að það var
sokkið.
Háskólafyrirlestur.
Símon Jóh. Ágústsson flytur
fyrirlestur í dag kl. 6.15 í 1.
kennslustofu háskólans. Efni:
Gáfnapróf og hæfileikakönnun.
Öllum heimill aðgangur.
Operettan sýnd í síð-
asla sinn í kvöld
ISLENZKA ÓPERETTAN
„í álögum", verður sýnd í
síðasta sinn í kvöld. Sýningár
á henni hófust síðla vetrar í
fyrravetur, eins og menn muna,
og svo hefur hún verið sýnd
nokkrum sinnum í haust.
Þessi fyrsta íslenzka óperetta
hefir hlotið góða dóma meðal al
mennings og má búast við, að
'færri komist að en vilja í kvöld,
en þá er síðasta tækifæri til
að sjá óperettuna, eins og áður
segir.
Nýbyggingarráöiö:
FrumvarpiS verður
væntanlega afgreitt
frá neðri deild í dag
jO RUMVARP ríkisstjórnar-
*- innar um nýbyggingarráð
fer væntanlega gegnum 2. og
3. umræðu í neðri deild í dag og
verður afgreitt til efri deildar.
Frumvarpið var á dagskrá
neðri deildár í gær, og var út-
býtt á fundinum áliti meiri
hluta fjárhagsnefndar deildar-
innar, þeirra Ásg. Ásg., Jóns
Pálmas., Jak. Möller og Sigf-
Sigurhjartarsonar. Leggja þeir
til, að frumvarpið verði sam-
þykkt óbreytt. Hins vegar var
ekki komið úr prentun álit
minnihlutans, Skúla Guðmunds
sonar, en hann mun leggja tilj
að breytingar verði gerðar á
frumvarpinu. Málið var því tek
ið út af dagskrá, en verður tek
ið á dagskrá aftur í dag, og er
svo ráð fyrir gert að það gangi
gegnum tvær umræður, eins og
áður getur.
Nefndin er skipuð samkvæmt
þingsályktunartillögu, sem sam
þykkt var á alþingi 14. apríl
1943, og átti hlutverk nefndar-
dnnar að vera, að athuga í sam-
ráði við póststjórnina póstsam-
göngur landsmanna og gera til
lögur um breytingar, er miði
að því að póstsendingar berist
um iandið ’hxaðar og tíðar en
nú er.
Nefndin hóf fundi sína síð-
ari hluta októbermánaðar 1943
og byrjaði með þvi að snúa sér
til allra sveitastjórna á landinu
og spyrjast fyxdr um álit þeirra.
Fyrirspurnirnar voru á þessa
leáð:
Hvað tiltækilegt og æskilegt
teldist að póstferðir væru tíðar
í viðkomandi héraðd og aðstöðu
mun í þeim efnum eftir árstíð-
um?
Hvort óskað væri eftir nýjum
póstleiðum eða framiengingu
eldri leiða.
Hvort heppilegt væri að
breyta póstleiðum frá því sem
nú er vegna breyttra samganga
(með bifreiðum, bátum, flug-
vélum).
Hvort hagkvæmt væri að
breyta til um póststöðvar, koma
upp nýjum, færa þær úr stað
o. s. frv.
A'lls báruist svör frá 162
hreppsnefndum, 5 bæjarstjórn-
um, 19 pósthúsum og 6 sýslu-
mönnum
Tillögur nefndarinnar um
póstsamgöngur í landinu eru í
höfuðdráttum þessar: Pósti
verði komið vikulega árið um
kring um öll héruð landsins og
á flest heimili, að undanskild-
um nokkrum erfiðum og strjál-
býlum stöðum, sem fá ekki póst
nema hálfsmánaðarlega yfir
vetrarmánúðina. Með strönd-
um gangi strandferðaskip milli
kaupstaða og stærstu þorpa að
minnsta kosti hálfsmánaðar-
lega. Milli aðalviðkomustaða
strandferðaskipaxma fard flóa-
bátar eða landpóstar minnst
vikulega, svo framt póstur ber-
ist svo oft til viðkomandi lands
hluta. Meðan sérleyfisbílar
ganga, skulu þeir fara með póst
milli landshluta í hverri ferð
sinni og dreifa pósti um víðar
en verið hefur. Allar þær bif-
reiðar, sem annast vöruflutn-
inga með reglulegum ferðum
daglega eða sjaldnar innan hér
aðanna, skulu dreifa pósti á
bæi með leiðum sínum. Og á
milli viðkomustaða bifreiða og
báta og út frá þeim sé póstur
borinn með viðkomu á flestum
bæjum í hverju héraði.
Byggingamálasýning-
unni iokið
Asunnudagskvöld
lauk byggingamálasýning-
unni í Hótel Heklu. Alls sáu
sýninguina um 4600 manns. Voru
sýningargestir yfirleitt mjög
hrifnir af sýningu þessaxi, og
vakti hún óskápta athygli þeirra
er hana sáu. Einna mesta at-
hygli munu skipulagsuppdrætt
imir ihafa vakið, þótt allir séu
ef til vill ekki samþykkir þeim
hugmyndum sem þar koma
fram. Þá voru og ýmsar deildir
sýningarinnar með íslenzku
byggingarefni og íslenzkum
framieiðsluvörum mjög athygl-
isverðar.
Baráttan gegn rottu-
plágunni er nú hafin
Tilkynnið þegar í
í sta$ ef rottur eru
í húsum yðar
ROTTUGANGUR fer mjög
minkandi í Reykjavík og
má efalaust fyrst og fremst
þakka það ágætu starfi Aðal-
steins Jóhannssonar meindýra-
eyðis, sem vinnur í þjónustu
bæjarins að útrýmingu þessarar
plágu.
í samtali, sem Alþýðublaðið
átti í gær vifi Aðalstein, sagði
hann, að einmitt vegna þess að
sæmilegur árangur hefði náðst
í baráttunni gegn rot+,iT,"rn.
væri nauðsynlegt að herða nú
sóknina gegn þeim.
Kvað hann hafa fengist sér-
staklega mikill árangur af því
í fyrra, er sprautað var gasi
um sorphaugana vestur á
Granda. Síðan hefur rottugang
urinn minnkað mikið. Ríður nú
á því að sóknin gegn þeim sé
hert um allan helming. Er því
vænst að fólk, sem verðnr vart
við rottu í húsum sínum til-
kynni um það þegar í stað, því
að ný herferð gegn rottunnm
er nú hafin. Undir eins og til-
kynning berst ti lskrifstofmm-
ar um rottugang verður farið
að vinna að úfcrýminrm þeirra.
Kvartið í síma 3210 kl. 10 til
12 f. h. og 2 til 6 e. h. til 24, þ,
m,
Fimmtíu ára
er í dag (21. þ. m.) Kristján
Guðmundsson frá ísafirði, nú til
heimilis í Skála 13 við Eiríksgötu,
Skólavörðuholti.
Þriðjudagur 21. nóvember 1944
Alþýðusambands-
þingið verður sett
í dag kl. 2
A TJÁNDA þing Alþýíhi-
sambands ísland verður
sett í dag kl. 2 í Alþýðuhús-
inu Iðnó við Vonarstrætí.
Undirbúningsstörf ein mtmu
að líkindum fara fram í dag,
kosningar á starfsmönnum
þingsins, nefndum o. s. fctr.
Innbrol og þjóhiaður í
KRON
Y FYRRINÓTT var framáð twn
hrot i búð Kron á Skóla-
vörðustíg 12.
Hafði verið brotin rúða á bak
hlið hússins. Þjófurinn gat náð
í um 600 kr. í peningum. Mál-
ið er í rannsókn
Hlufafélag á Reyðar-
firði um kaup á fiski
skipum og til úigerð
arreksfurs
IVÍ ÝLEGA hefur verið stofn-
að hlutafélag á Reyðar-
firði til kaupa á vélbát. Átti
Verkamannafélag Reyðarfjarð-
ar, ásamt hreppsnefndinni
frumkvæðið að stofnua félags-
ins.
Stofnfundur félagsins var
haldinn 5. þessa mánaðar og
hlaut félagið nafnið ,SnæfugT.
Voru stofnendumir 23, en hlut
hafar eru nú um 50.
Tilgangur félagsins er, eins
og áður segir, að kaupa skip til
fiskveiða og reka útgerð.
Hlutafé er ákveðið 75—100
þúsund krónur. Er lægri upp-
hæðin þegar fengin og lagði
Reyðarfjarðarhreppur fram 20
þúsund krónur. Félagið sótti
um kaup á 80 smálesta vélbáti
frá Svíþjóð og mun þegar hafa
fengið ákveðið svar um að það
fái hann.
í stjóm félagsins voru kosn-
ir: Bóas Jónsson, Guðlaugur
Sigfússon, Jónas Bóasson, Krist
inn Magnússon og Sigfús Jóels-
son.
í varastjórn voru kosnir:
Hjalti Gunnarsson, Jón Björns-
son og Thuiiu Johansen. Endur
skoðenduf eru Brynjólfur Þor-
varðarson pg Oddur Bjarnason.
Á Reyðarfirði eru nú aðeins
2 vélbátar, annar 12, en hinn
20 smálestir að stærð.
Féstbræður halda
samsöng annað
kvöld _
Karlakórinn fóst-
BRÆÐUR heldur samsöng
í Gamla Bíó annað kvöld kl.
11.30.
Á söngskrá eru um tuttugu
lög eftir íslenzka höfunda. Söng
stjóxi er Jón Halldórsson.
Goðafossslysið:
Sjódómur sfarfar fyrir luktum
dyrum að rannsókn málsins
SJÓDÓMUR REYKJAVÍKUR starfar fyrir luktum dyr-
um að rannsókn og yfirheyrslum vegna Goðafoss-
slyssins fyrra föstudag.
f sjódóminum eiga sæti Einar Amalds, fulltrúi borgar-
dómara, Sigurjón Á. Ólafsson og Hafsteinn Bergþórsson.
Það mun vera gert af hemaðarástæðum að dómurinn
starfar fyrir Iuktum dyram, en full ástæða virðist vera til
þess að almenningur fái að kynnast því af öðra en sögu-
sögnum hvernig björgunarstarfinu var hagað og hvemig
það fór yfirleitt fram.