Alþýðublaðið - 14.12.1944, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.12.1944, Blaðsíða 8
Ai-PYPUBLAPIÐ Fimmtudagur 14. des. 1944 • v'' ■ f ý; ■tMRHkiœfe. Henry eliir drauga (Henry Aldrich Haunts a House) Bráðfjörug og gamansöm reimleikasaga JIMMY LYDON sem HENRY ALDRICH og fleiri unglingar. Sýning kl. 5, 7 og 9 Bönnuð bömum innan 12 ára SMEKKUR Mannætur á Marques-eyjum í Kyrrahajinu vilja helzt ékki leggja sér hvíta menn til muhns, því þeim finnst of mik ið salthragð af þeim. \ * * * MÁTTl EKKI VIÐ ÞVÍ Á árinu 1933 hönnuðú þýzku nazistamir fólki að ganga nöktu (nudisme) eða liafa félög með sér, þar sem karlar, jafnt sem konur gengu í Adams og Evu- skrúðum. Báru þeir því við, að þetta drægi úr hæfileikum kon unnar til þess „að kunna að skammast sín.“ NÚTÍMA-TÓNSMÍÐAR Nýlega var leikin í útvarp í Ameríku fjórða symphonían eft ir George Antheil, en hánn er einn af þekktustu tónskáldum Ameríku, þeirra er leggja stund á „nútíma“ tónsmíðar. Þótti mörgum, er hlustuðu á tónverkið, nóg um „nútíma- mennskuna“ í verkinu, en ame- rísk hlöð létu sér fátt um finn- ast og töldu Antheil vera orðinn mjög afturhaldsaman og gamal dags. Bentu þau t. d. á, að þeg- ar verk hans ,Ballet Mécanique‘ var leikið í París fyrir mörgum árið síðan og þá í fyrsta sinni, var það leikið á: 10 píanó, 6 xylofóna, sjálfspilandi píanó, brunálúðuT1 með tilheyrandi bjöllum og flautum, flugvéla- hreyfil á fullri ferð og fjöldann allan af bifreiðaflautvm þangað áður. Það voru allmarg- ir að spila. Hann horfði á um stund og sá, að það var altoennt lagt miMð undir. „Má ég vera með núna“, sagði hann þegar næsta umferð var 'búin. Hann dró stólinn nær og athugaði spilin sín. Hinir spilamennirnir . gutu til hans augunum og virtu hann rann- sakandi fyrir sér. Fyrst í stað gekk honum ekki vel. Hann fékk afleit spil til að byrja með, en þegar leið á fór honum að ganga betur, og þegar hann fór heim hafði hann unnið nokkra dollara. Daginn eftir fór hann þang- að aftur, bséði sér til skemmt- unar og til að græða. í þetta skiþti fékk hann þrjár sam- tstæðiur, og iþað urðu örlög hans. Ungur Iri hinum megin við botrðið hafði betri spil. Hurst- wood var undrandi yfir þráa hans. Hann lagði undir með svo mikilli ró, að það var hrein asta list, ef hann var að blekkja. Hurstwood fór að ef- ast, en hélt þó ró sinni, eða hélt, að hann gerði það, en hann gat samt ekki varizt því að óttast, að hinn hefði betri spiÆ og hélt áfram, enda þótt hann missti alla peninga sína í borð. En hann vonaði þó, að hann ynni — hann hafði svo góð fepil. Aðeims fimm í við- bót? „Ég legg þrjá undir“, sagði ungi maðurinn. ,,Fimm“, sagði Hurstwodd og Jagði spilapemimgana fram. „Þrjá í viðbót“, sagði ung- lingurinn og ýtti fram hlaða af spilapeningum. „Fleiri spilapeninga“, sagði Hurstwood og rétti fram pen- ingaseðil Ungi maðurinn brosti háðs- lega. „Fimm í viðbót“, sagði hann. Enni Hurstwoods var vott af svita. Hann var illa kominn — mjög mlla kominn. Sextíu dollarar af hinum dýrmætu peningum hans voru í veði. Hann var engin raggeit að eðl- isfari, en það fór hrollur um hann við tilhugsunina um að tapa svo miklu. Loks gafst hann upp. Hann vildi ekki liggja lengur á þessum góðu spilum sínum. „Má ég sjá“, sagði hann. „Fullt hús!“ sagðá ungi mað- urinn og sýndi spilin sín. Hurstwood missti spilin. „Ég hélt, að ég hefðd yður í vasanum“, sagði hann dauflega. Ungi maðurinn sópaði spila- peningunum að sér og Hurst- wood fór burt. Á tröppunum stanzaði hann til þess að telja peningana sem hann átti eftir. „Þrjú hundruð og fjörutíu dollarar“, sagði hann. Þegar hann kom heim, ákvað hann að spila aldrei oftar. Carrie datt í hug, að frú Vance tæki ef til vdll upp á að koma, og kom nú með aðfinnslu til hans. Það var út af útliti Hur&twood. Þegar hann kom heim þennan dag, skipti hann um föt, fór í gömlu fötin og sat inni í borðstofu í þeim eins og hann var vanur. „Hvers vegna ertu alltaf í þessum gömlu fötum?“ spurði Carráe. „Til hvers ætti ég að vera í skástu fötunum mínum hér heima?“ spurði 'hann. „Þér liði áreiðanlega betur.“ Svo bætti hún við: „Það gæti einhver komið.“ „Hver ætti það nú að vera?“ sagði hann. „Til dæmis frú Vance“, sagðá Carrie. „Hún þarf ekki að sjá mig“, sagði hann fýlulega. Carrie lá við að hata hann fyrir þetta kæruleysi og skeyt ingarleysi. ‘,Ó“, hugsaði hún. „Þarna sdtur hann. ,Hún þarf ekki að sjá mig,“. isagði hainn. Ég hélt nú, að hann myndi skammast sín fyrir sjálfan sig.“ En ástandið versnaði að mun, þegar frú Vance kom í raun og veru. H,ún var að gera innkaup. Hún gekk upp hinn lítilfjörlega stiga og barði að dyrum hjá Carrie. Carrie var ekki heima, og það átti eftir að gera henni mjög gramt í geði. Hurstwood opnaði dyrn- ar, og hélt, að Carrie væri að berja að dyrum. í fyrsta skipti skammaðist hann sín niður fyr- fyrir allar hellur. Hin horfna rödd æsku og metnaðar talaði ti! hans. „Nú“, sagði (hann stamandi. „Komið þér sælar.“ „Komið þér sælir“, sagði frú Vance, sem varla gat trúað sín- um eigin augum. Hún tók strax eftir vandræðum hans. Hann vissi ekki,. hvort hann ætti að bjóða henni inn eða ekki. „Er konan yðdr heima?“ spurði hún. „Nei,“ sagði hann. „Garrie er ekki heima, en váljið þér ekki koma inn? Hún kemur bráðum heim.“ „Nei, þökk fyrir“, sagði frú Vance, sem sá strax þreyting- una, sem orðið hafði á öllu. „Eiginlega er ég að flýta mér. _ mja mú moM 9 _ QAMLA BSO _ Æfintýri í Hollandi Tarzan í New York („Wife takes a Flyer“) Fjörug gamanmynd, með (Tarzan’s New York Adventure Johnny Weissmuller JOAN BENNETT Maureen O’SulUvan og • Aukamynd: FRANCHOT TONE FULGVIRKI YFIR Sýnd kl. 5, 7 og 9. ÞÝZALANDI Sýnd kl. 5, 7 og 9 B Ég ætlaði þara að lita inn sem snöggvast, en ég get ekki stanz- að neitt. Segið konu yðar, að hún verði að heimsækja mig einhvem tíma.“ „Ég skal gera það“, sagði Hurstwod' og fann til mikils léttis, þegar hún fór. Hann skammaðist sín svo mikið, að hann spennti greipar, þegar hann settdst í stólinn til þess að hugsa. Carrie kom úr annarri átt og sýndist hún sjá frú Vance koma út úr húsinu. Hún hvessti aug- un, en hún var ekki viss í sinni sök. „Hefur nokkur komið?“ Splurði hún Hursitwood. ,,Já“, sagði hann með sekt- arsvip. „Frú Vance,“ „Sá hún þig?“ spurði hún í örvæntingu sinni. Þetta hitti Hurstwood eins og svipuhögg og hann varð þrjósku fullur. „Ef hún er ekki augnalaus, þá hefur hún séð mig. Ég opn- aði dyrnar.“ „Ó“, sagði Carrie og kreppti Fyrsta ævintýrið. en bið skuluð ekkert hugsa um það heldur hraða ykkur sem bezt þið getið.“ Hann stakk við og studdist við staf, svo að bað varð ekki um bað efazt, að hann hafði satt að mæla um það, að hann ætti erfitt um ferlivist, Þegar við höfðum gengið að minnsta kosti í klukku- tíma eftir óuddum vegi, meðal kletta, yfir lyngbreiður og milli þéttra grenitrjáa, benti 'hann loksins á lítið hús, sem stóð niðri í dálítilli kvos. Hann bað okkur Eirík að hlaupa þangað og fá þar keypt brauð, mjolk, ost og brennivín. Hann tók, allmarga peninga upp úr vasa sínum og fékk okkur heilan ríkisdal. Hann sagði okkur að við skyldum láta svo um mælt, að við hefðum verið á skemmtiferð með fólki okkar í skóginum en gleymt að hafa nesti meðferðis og kvaðst þá ekki efast um það, að við fengjum þetta. Ég var vanur því að segja jafnan aðeins sannleikann, svo að samvizka mín bannaði mér að bregða þessari skreytni fyr- ir mig, en ég varð að játa það, að ég var orðinn svo sár- svangur, að freistingin bar mig ofurliði á skammri stundu. — Vesalings Eiríkur var vanari sultinum og hafði auk þess ekki-sömu góðu matarlystina og ég, svo að mér er næst að ætla, að hann hafi afborið hungrið mun betur en ég. S TRIKS 'OW; \ GOOD STUpf- pinto... iv. ; G-OIM& TC S,T J U5 POWN... MYNDA- SAG A PINTO (hefur skothríð á þýzku árásarflugvélina): „Allt í lagi, góði! Þú er mátulega nærri. hriðja?“ Hvemig líkar þér' þessi ÖRN: „Þetta var ágætt, Pin-to! a. > _,:ji

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.