Alþýðublaðið - 19.04.1920, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 19.04.1920, Qupperneq 4
4; ALÞYÐUBLAÐIÐ Fiskvinna. Nokkrar stúlkur geta fengið vinnu við fiskverk- un. Vinnan byrjar nú þegar. H. P. Duus. Koli konungnr. Eftir Upton Sinclair. Önnur bók: ' Prœlar Kola konungs. (Frh.). Aftur varð hljótt. „Þér vitið víst, að til eru lög. sem banna að greiða mönnum laun í ávísunum". Hinn varð að svara: „Við greið- um.ekki laun í ávísunum". „Það gerið þið víst. Það vitið þér mætavel". „V’ð gerum það, þegar krafist er fyrirfram borgunar". „Lögin krefja, að þið greiðið þeim laun tvisvar á mánuði, en það gerið þið ekki. Þið greiðið þeim þau einu sintii, og vanti þá svo fé, gefið þið þeim þessar stældu ávísanir". „Nú jæja, ef þeir eru ánægðir, hvað eruð þér þá að sletta yður framm í það?“ „Og ef þeir eru ekki ánægðir, setjið þið þá í eimreiðina og rekið þá út úr henni á afviknum stað". Eftirlitsmaðurinn drap fingrun- um órólegur á borðið. „Cotton“, hóf Hallur máls aftur, „eg er að leita mér þekkingar, og eitt er það, sem eg gjarnan vildi, að þér útskýrðuð fyrir mér — sálarfræði legt e(ni. Þegar þér ljúgið upp öðrum eins sögum og þessarí, hvert er þá eiginlega álit yðar sjálfs á henni?" „Þér verðið svei mér þá að af- saka mig, ungi maður", sagði Cotton, „en þér eruð að verða nokkuð þreytandi". „Það liggur fyrir okkur allsæmi- leg ferð, og ekki getum við þó setið þegjandi alla leiðina". Augnabliki síðar bætti hann við, mjúkur í máli: „Mér þætti svo skelfing gaman að vita það, og ekki er ómögulegt nema þér fær- uð sigri hrósandi af hólmi“. „Nei", sagði Cotton ákveðinn, „eg hætti mér ekki út í það“. „Því ekki?“ „Vegna þess, að eg kemst ekki í hálfkvisti við yður, að brúka munn. Eg hefi áður heyrt til endurbótamanna og hvatninga- manna, og þeir eru allir af sania sauðahúsinu. Þeir ímynda sér, að heirninum sé stjórnað með mál- æði—- en svo er ekki“. „Hlægilegt!” sagði Hallur. „Þér talið alveg eins og b'óðir rninn". „Svo þér eigið bróður?" ssgði eftirlitsmaðurinn, gripinn skyndi- legum fjálgleik. „Eg vildi svei mér óska, að hann væri kominn". Hallur hló. „Hann segir ætíð við mig, að eg hafi þekkingu mfna úr bókum, og þeir, sem skrifi þær, viti ekki meira en eg“ „Laukrétt!" mælti eftirlitsmað urinn. „Hann hefir alveg á réttu að standa. Og þér komið hingað og ætlið að segja G. F. C., hvernig það eigi að reka kola- námu. Ef þér þyrftuð, að eins eina viku að fást við þessa pilta. þá kæmust þér fljótt á aðra skoð- un, það get eg sagt yður. Aðra eins fantaþvögu! Þeir skilja ekk- ert menningarmál, það vakir að eins eitt fyrir þeim — að losna við svo mikla vinnu, sem (þeir geta, að fylla vagnana með grjóti og sandsteini og kenna svo öðr- um um, en hella brennivíni í sjálfa sig Þeir svíkja, þegar þeir spila, þeír reka hnífa hver í ann- an þegar þeir fara í handalögmál! Svo koma þessir hvatningamenn hingað, með alla sína meðaurnkun — því í fjandanum skyldu þeir koma hingað, nema vegna þess, að þeir vilja heldur vera hér, en heima hjá sér?“ l ------ 3 o r gars tj ó rako sniBgitu Það vakti almennan hlátur í bænum, er það spurðist, að Helgi Magnússon & Co. ætlaði að tefla Zimsen fram við borgarstjórakosn- ingarnar. Ekki af því, að hann sé nein hiægileg persóna, síður en svo, stjórn hans i bœjármálunum er alvarlegri en að hún sé neitt hlátursejni, heldur vegna þess, að engum kom til hugar, að hann myndi hugsa til þess, að hann yrði kosinn. Ekki var sfður brosað að Sjállstjórnarfundinum, þar sem 12 manns af 35 viðstöddum sam- þyktu að styðja framboð Zimsens. Einir 12 menn í Sjálfstjórn treyst- ast til að fylgja honum í Bak við alt gaman liggur samt ávalt einhver alvara. Hláturinn, sem Zímsen vakti, er máske of fljóthleginn. Zimsen ætlar sér énn einu sinni að hætta á það fylgi, sem reyndist honum svo lélegt 1916 þrátt fyrir hamfarir Péturs Zoþhoniassonar. Enginn dregur sjálfsagt í efa, að eins eða jafnvel ver muni fara nú, en samt er betra að hafa augun opin og láta ekki P. Z né sendla hans glepja sér sýn. Bæjarbúar! Knud Zimsen er í kjöri, rnaður, sem hefir reynst ónýtur nema fyrir sig og hlutafé- lög sía. Hefir ekki öll framkoma hans á liðrtum árum hlotið að hrinda, veg allrar veraldar, trausti þvf, sem þér eitt sinn sýnduð honum? Hvað hefir fautaskapur hans og klíkuskapur áorkað? Spyrjið.yður sjálfa, en hvorki P. Zophoniasson né neiun sendla hans. Þeir svara fyrir kaup, en sannfæringin er minni. Embœttismaður. "V ÖlltlLHi. Skattar þyngjast, skerpist neyð, skattpeninginn vantar, brauðleysingjans byrgja leið, bragðaslyngir fantar. J. Ritstjóri og ábyrgðaraiaður: Ólafur Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.