Alþýðublaðið - 23.02.1946, Side 2

Alþýðublaðið - 23.02.1946, Side 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ Laugardag 23. febrúar 194$, Terkfall i Reykjavífe, samkomnlag i Halnarfirði. Lögbrot meirihlutans i bæjar Forseti bæjarstjórnar gat engar laga- greinar lagt fram fyrir framfferði hans. —.—.—*------------- Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. ÍSAFIRÐI í gær. IGÆRKVELDI var framhald bæjarstjórnarfundarins, sem frestað var í fyrrakvöld vegna þess, að forseti bæj- arstjórnar treystist ekki til að kveða upp úrskurð um lög- mæti kosningar annars varaforseta og ráðningar bæjarstjóra. Forseti tilkynnti, að það væri utan valdsviðs síns, að kveða upp umbeðinn úrskurð og neitaði því að gera það að aflokn- um frestinum, sem veittur var að hans ósk til þess eins. Miklar umræður urðu um neitunina, að viðstöddum fjölda áheyrenda. Alþýðuflokksmenn endurtóku kröfu sína til forseta um að hann nefndi lagagreinar þær sem lögmæti umræddra athafna bæjarstjórnarmeirihlutans byggðust á, en forseta varð svarafátt. Útvarpið tilkynnti, að Sigurður Bjarnason hefði ekki mætt á þingfundum í gær; mun hann hafa haft ærjð að starfa vegna úrskurðarins, sem þó aldrei sá dagsins ljós. Margvísleg lagabrot meirihlutans verða nú kærð fyrir félagsmálaráðuneytinu. HANNIBAL. tjtyegsroeDn nm faatí allt stofna sameiglnlega inskaupadelld fyrir dtgerðarvðrur. ---:----4-------- Viðtal við Baldvin t>. Krinstjánsson erindreka Landssambands íslenzkra útvegsmanna. LLANDSAMBANDI ÍSLENZKRA ÚTVEGSMANNA eru nú 33 félög víðsvegar um landið, auk Félags íslenzkra hotnvörpu skipaeigenda og 11 einstaklinga. Á síðasta ári hefur fjölgun út- gerðarmannafélaganna verið mjög mikil. Um þessar mundir er verið að undirbúa stórfeld sameiginleg innkaup á útgerðarvör- um gegn um nýstofnaða innkaupadeild landsamhandsins. í tilefni þessa sneri tiðinda- maður blaðsins sér til Baldvins í>. Kristjánssonar erindreka sam bandsins og spurðist fyrir um stabfsemi sambandsins, en hann hefir ferðast viðsvegar um landið fyrir L. I. U. „Það er áhugaefni mitt og at- vinna, að segja hverjum sem vill fræðast um hin merku fé- ■lagssamtök L. I. U., sem hafa vissulega þýðingarmiklu hlut- verki að gegna í þjóðfélaginu. Sjávarútvegurinn er óumdeilan lega stórfeldasti atvinnuvegur þjóðarinnar, þess vegna hlýtur aílt, sem gert er til þess að efla og tryggja islenzkan útveg, að vera þjóðnytjaverk. Og einmitt slíkt verk er L. I. U. ætlað að inna af höndum. í lögum sam- bandsins segir m. a. „Tilgangur Landsambandsins er að efla öryggi sjávarútvegsins sem at- vinnuvegar.“ Hér er ekki um nein músarholusjónarmið að ræða ,enda er forystulið L. I. U. skipað frjálslyndum dugnaðar- mönnum, sem skilja hlutverk sitt.“ — Hvenær var Landssam- band íslenzkra útvegsmanna stofnað? ,Það er nú 1 ára gamalt, stofnað í janúar 1939. í fyrstu lét sambandið lítið á sér bera út á við, þó vann það alltaf meira og minna þýðingarmikil störf í þágu útvegsins, þótt þau væru ekki metin eða skilin eins og vert var. Hefir vafalaust- sambandsleysið við flesta smá- útvegsmenn landsins valdið miklu um það. En ríkisvaldið hefir fyrir löngu skilið starfsemi L. I. U. Beldvin Þ. Kristjánsson. með þv)í að gera því að tilnefna fulltrúa í ýmsar opinberar nefndir sem fjallað hafa um út- vegsmál. Styrjaldarárin drógu að sálf- sögðu úr eðlilegri þróun sam- takanna, þar secm útgerðin gekk yfirleitt vel. Velgengnin mun því hafa glapið mörgum sýn í félagslegu tilliti. Þótt margt megi vel og mak- lega segja um útvegsmanna- stétt landsins hefir hún þó til skamms tíma sem heild ekki verið til fyrirmyndar um félags samtök — einstaklingshyggjan hefir verið rík — og eru þó 'í þessu efni undantekningar.“ — Hvað hefir aðallega vald- ið þeim straumhvörfum, sem orðið hafa í samtökunum á síð- asta ári? — Þau eigg fyrst og fremst Frh. á 6. síðu. * Engar samningaumleilánir með Dagsbrún og alvinnurekendum í gær --------- . ... En Hlíf komsf að samningum um hádegi og hófsf vinna íHafnarfirði þá á ný --------ó—------ Grunnkaup hafnfirzkra verkamanna hækkar úr kr. 2,40 upp í kr. 2,55 á klukkustund. . ------4------- VINNA var 'ekki hafin af Dagsbrúnarmönnum á nein- um vinnustað í Reykjavík í gærmorgun og var verk- fall 'þeirra algert í gær. Engar samningaumleitanir munu hafa átt sér stað með stjóm félagsins og atvinnurekendum í gær og ekki er ‘heldur kunnugt, að ríkisstjórnin hafi látið deiluna neitt til sín taka eftir að tilmæli hennar um að fresta verkfallinu til sunnudagskvölds voru felld á Dags- brúnarfundinum í fyrri nótt. í Hafnarfirði stóð verkfallið hins vegar ekki nema til há- degis í gær. Hafði þá náðst samkomulag með stjórn Hlífar og atvinnurekendum og var það samþykkt af félagsfundi hafnfirzkra verkamanna með 102 atkvæðum gegn 16. Var vinna að því búnu þegar í stað tekin upp í Hafnarfirði. Hækkar grunnkaup hafnfirzkra verkamanna í almennri vinnu úr kr. 2,40 upp í kr. 2,55 á klukkustund. Sámkomulag stjórnar Hlífar og hafnfirzkra atvinnurekenda sem náðist fyrir milligöngu sáttasemjara ríkisins, var sam- þykkt á fundi, sem haldinn var í verkamannagkýlinu og hófst klukkan ellefu fyrir hádegi, og var vinna hafin í Hafnarfirði eftir hádegi. Auk hækkunarinnar í al- mennri vinnu fengu hafnfirzk ir verkamenn ýmsar minni kjarabætur í samningi þessum. Meðal annars fengu þeir viður- kenndan taxta fyrir fagvinnu, sem ekki hefur verið samnings bundin til þessa, og verða grunn laun ifyrir slíka vinnu kr. 2,90 á klukkustund. Einnig hækkar grunnkaup hjálparmanna í vél- smiðjum úr kr. 2,85 upp í kr. 2,90 á klukkustund. Kaffitímar hafnfirzkra verkamanna eru ó- breyttir eða tveir hálftímar á dag. Grunnkaup fyrir bryggju- vinnu er óbreytt eða kr. 2,85 á klukkustund, og aðrir hærri kauptaxtar eru óbreyttir. Eftir- vinna verður 50% hærri en venjuleg vinna, og næturvinna 100%. • Þá er jog ákveðið í hinum nýja samningi, að sumarmánuð ina frá 1. maí til 30. september byrji vinna i Hafnanfirði kl. 7,30 í stað kl. 7,20 eins og ver- ið hefur. Þá voru og gerðir sér samn- ingar um öryggi hafnfirzíkra verkámanna, sem vinna að ferm ingu og affermingu skipa. Er svo fyrir mælt, að ekki megi hefja slíka vinnu fyrr en fram hafi farið' skoðun á skipum | þeim, sem til Hafnarfjarðar | koma. Þá eru og á samningi þessum ákvæði um, að „lúgu- menn“ og „vindumenn“ verði að vera samþykktir af stjórn Hlífar. Sirælijvagnasijórarnf ir krefjast nýrra launasamninga innair viku TNUM á fimmtudaginn var til umræðu bréf frá bifreiða- stjórafélaginu Hreyfli, með til--- lögum um nýjan samning um kaup og kjör strætisvagna- stjóra. Er samningurinn útrunninn eftir viku og munu vagnstjór- arnir þá leggja niður vinnu, ef' samningar hafa ekki tekizt fyr- ir þann tíma. Borgarstjóri skýrði frá þvír að bærinn hefði boðið vagn- stjórunum, að þeir yrðu settir í launaflokk með öðrum fastráðu: um bílstjórum hjá bænum, em því hefur verið hafnað. Verður lögsagnarum dæmi Hafnarfjarðar Verða Sláiol! og Hólar aðseturs staðir vigslnbiskupaiiaa ? Frumvarp um endurreisn "hinna fornu biskwpsstóla fram komið á alþingi. --------4----------- SIGURÐUR ÞÓRÐARSON, Jörundur Brynjólfsson, Sig- urður Guðnason, Sveinbjöm Högnason og Jón Sigurðs- son flytja í neðri deild alþingis frumvarp til laga um endur- reisn hinna fornu biskupsstóla að Skálholti og Hólum í Hjaltadal. Samkvæmt frumvarpi þessu skulu vera á íslandi, auk bisk- ups landsins, tveir vígslubiskupar, annar í Skálholtsbiskupsdæmi hinu forna, er situr í Skálholti, hinn í Hólabiskupsdæmi hinu forna nieð aðsetri að Hólum. Jafnskjótt og fé er til þess veitt á fjárlögum og eigi síðar en árið 1950, skulu reistar biskupsíbúðir að Skálholti og Hólum. Ennfremur skal ríkið reisa í Skálholti vand- aða dómkirkju og láta fulllnaðaraðgerð fram fara á Hóladóm- kirkju. Skal þá og aftur flytja heim í dómkirkjurnar hina fornu gripi heirra. Vígslubiskupar skulu kjörnir af öllum þjónandi prestum þjóð kirkjunnar. Kjörgengir eru all- ir þeir, sem rétt hafa til prests- embættis í þjóðkirkjunni, án til lits til þess, hvar búsettir eru í landinu. Um kosningu vígslu- biskupa fer eftir gildandi lög- um um biskupskosningu. Verði kosning eigi lögmæt, af því að enginn fái áskilinn hluta greidda atkvæða, skal embætt- ið veitt eftir tillögum biskups. Biskup landsins vígir vígslu- biskupana. Vígslubiskupar vígja biskup landsins, er svo stendur á, að Framh. á 7. sí@u. Frumvarp fflutt aff Emil Jénssyni afi ósk hæjarstjórnar Hafnarfjarðar. P MIL JÓNSSON flytur að:‘ beiðni bæjarstjórnar Hafn arfjarðar frumvarp til laga um breytingu á lögum frá 1. febrút ar 1936 Um eignarnámsheimildt á nokkrum löndum og á afnot- arétti landsvæða í Hafnarfirði,. Garðahreppi og Grindavíkur- hreppi um stækkun lögsagnar- umdæmis Hafnarf jarðar. Er með frumvarpi þessu ákveðið að innlima Krísuvíkur- og Stóra-Nýjabæjarland í lögsagn- arumdæmi Hafnarfjarðar. Frumvarpið er flutt sam- kvæmt tilmælum bæjarstjórn- ar Hafnarfjarðar eins og fyrr segir og fylgir því bréf bæjar- stjórans í Hafnarfirði til þing- , manns kaupstaðarins sem fylg- j iskjal, en í greinargerð flutn- ings manns segir á þessa lund: . „Þegar lög nr. 11. 1. febrúar ' 1936, um eignarnámsheimild á nokkrum löndum og á afnota- rétti landsvæða í Hafnarfirði, Garðahreppi og Grindavíkur- hreppi og um stækkun lögsagn- arumdæmis Iiafnarfjarðarkaup staðar, voru sett, var frestao að innlima Krísuvíkur- og Stóra- Nýjabæjarland í lögsagnarum- dæmi Hafnarfjarðar, meðal ann> ars vegna þess, að þá var eng- inn vegur að þessu landsvæði og engar framkvæmdir hafnar^ Nú er landið komið í vegar- samband, hefur allt verið girt og undirbúningur hafinn und- ir ýmiss konar framkvæmdir þar í stórum stíl, svo sem orku- vinnsla og jarðrækt. Þykir því ekki mega lengur fresta að inn- lima land þetta í lögsagnarum- dæmi Hafnarfjarðarkaupstað- ar, en hann er eigandi jarðarinn ar og hefur með höndum allar framkvæmdir. Land þetta er nú óbyggt með öllu, og er því ekki um neina tekjuskerðingu fyrir Grindavík urhrepp að ræða, þó að landið verði innlimað í Hafnarfjarð- arkaupstaðJ'"

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.