Alþýðublaðið - 23.02.1946, Qupperneq 3
* U': •-?.»
X<augafdag
23. febrúar 1946.
AUÞYÐtJIILAOHi
Ryti
Tanner
fyrsia samnorræna
lisiasýningin eftir
slríðið opnuð í Oslo í
apríl ____________
Ji'rá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN í gær.
HIN fyrsta samnorræna list
sýning eftir styrjöldina
^verður opnuð í Osló í apríi næst
Icomandi. Verður listsýning
þessi á vegum Listabandalags
Norðurlanda, sem stofnað var í
Stokkhólmi x vetur.
Áformar bandalagið, að ár
livert verði haldin samnorræn
sýning í einni' af hinum fimm
liöfuðborgum Norðurlanda.
Auk sýninga, er gefa yfirlit yf-
ár listaafrek á árinu, mun banda
lagið einnig beita sér fyrir sýn-
Ingum, er sýna hið helzta er
gerzt hefur undanfarin ár í list
um á Norðurlöndum. Þá verður
einnig höfð um hönd víðtæk-
kynningarstarfsemi á norrænni
listastarfsemi, meðal annars
% i
með erindaflutningi, greinum í
bíöðum og tímaritum, útvarpi
og kvikmyndum.
VIKAR.
Monlgomery í Bern.
Sk AMKVÆMT Lundúnaút-
várpinu í gær, kom Mont-
gomery marskálkur til Bern í
gær í stutta heimsókn. Var hon-
iim veitt hátiðleg, opinber mót-
taka og hann hylltur af mikl-
um mannfjolda við komuna
þangað. Ekki er þess getið, hve
lengi hunn muni dvelja þar.
Finna á ofriðaráninom.
-----:—+----—
Rússar knúðu fram á síðustu stundu að dóm-
arnir voru þyngdir að mikkim mun.
---- .., ----
HHcill mannfjökii vottaði binum dæmdu sam-
úð sina eftir dómsúrskurðinn
U REGNIR FRÁ STOKKHÓLMI í gær herma, að dóm-
arnir hafi nú verið birtir ýfir finnsku stjórnmálamönn-
unum, sem kærðir voru fyrir að eiga sök á þátttöku Finna
í styrjöldinni á móti Rússum. V!ar Ryti, fyrrverandi Finn-
landsforseti, dæmdur í 10 ára betrunarhússvinnu, Rangell,
fyrrverandi forsætisráðherra, í 6 ára fangelsi, Tanner, fyrr-
verandi forsætisráðherra, í ðVá/árs fangelsi, Linkomies,
fyrrverandi forsætisráð'herra, í 514 árs fangelsi, Kivimaki,
fyrrverandi sendilherra, í 5 ára fangelsi, Ramsay, fyrrver-
andi utanríkisráÖherra, í 2x/2árs fangelsi og tveir aðrir þekkt-
ir stjórnmálamenn, þeir Kukkonen og Reinikka í 2 ára fang-
elsi hvor.
Það er til merkis um það, hvernig litið er á þessa dóma með-
al almennings í Helsingfors, að mannfjöldinn, sein beið fyrir utan
réttarsalinn til að sjá hina dómfelldu, eftir að dómarnir höfðu
verið kveðnir upp, vottaði þeim samiið með því að taka ofan, er
þeir voru fluttir burt.
Það er nú kunnugt, af frá-
sögn 'fréttaritara í Helsingfors,
að Finnar eru rauriverulega
kúgaðir til þess af Rússum að
kveða upþ þessa dóma yfir for-
ystumönnum sínum á ófriðar-
árunum. Þannig er það nú vitað,
að rétturinn hafði þegar ákveð-
ið að kveða upp miklu vægari
dóma. Höfðu þeir þegar verið
dæmdir og ákveðið, að Ryti
skyldi ekki fá nema 8 ára betr-
uinarhússvinnu, Rangell 5 ára
fangelsi, Tanner 3Vá ár, Linko-
mies 3 ár, en Kivimaki skyldi
sýknaður. En þegar hér var
komið, skarst eftMitsnefnd
Rússa i Helsingfors í leikinn og
taldi dóma þessa of væga og
ekki í samræmi við vopnahlés-
skilmála Finina og Rússa. Var þá
dómunum breytt, til þess að
friða Rússa.
Finriskum btöðum verður að
sjálfsögðu tíðrætt um dómana.
Segir hið þekkta „Hufvudstads-
bladet“, að hér sé um mikinn
harmleik að ræða, en eftir slika
dóma muni verða erfitt að
segja, að Finnar 'hafi ekki fært
fórnir til þess að koma sér sam-
an við Rússland. Aftur á móti
segir blaðið „Vapa Sana“, sem
stendur mjög nærri kommún-
istum, að dómarnir séu allt of
vægir, í öðrum löndum hefðu
verið kveðnir upp dauðadóxnar
yfir þesum mönraum.
Það er altalað i Helsingfors,
að hinir dæmdu forystumenn
finnsku þjóðarinnar á ófriðar-
árunum hafi á margan hátt ver-
ið ihindraðir í vörn sinni fyrir
róttinum og blöðin haft mjög
takmarkað frelsi til þess að
flytja fréttir af varnarræðum
þeirra, sem þó síuðust út og
vöktu sterka samúð finnsku
þjóðarmnar, ekki hvað sízt
varnarræða Tanners, hins kunna
•finnska jafnaðarmanns, sem ár-
uim saman hefur verið einn
þeirra manna á Finnlandi, sem
kommúnistar og Moskvaútvarp-
ið hafa beint skeytum sínum
að-
ísland þríðja í röðinni
um innfluining til
Damnerkur
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN í gær.
ÖNSK blöð fagna því al-
mennt, að viðskipti íslands
og Danmerkur hafa aukizt svo
mjög eftir styrjöldina. Segja
blöðin, að ísland sé nú hið
þriðja í röðinni að vörumagni
innflutnings til Danmerkur.
Vona blöðin jafnframt, að ís-
lendingar muni einnig auka
innflutning sinn frá Danmörku,
er fram líða stundir.
VIKAR.
ðúlgarar halda ekki
gerða samninga. ,
FREGNIR frá London í gær
hermdu, að talsvert væri
um það rætt á Bretlandi og i
Bandaríkjunum, að Búlgarar
stæðu ekki við gerða samninga
um stríðsskaðabæturnar. Hafa
fulltrúar Breta og Bandaríkj-
anna í Soffía, höfuðborg Búlgar
íu, niinnzt á þetta þráfaldlega,
en árangurslaust.
Samkvæmt samningunum áttu
Búlgarar að sjá Grikkjum og
Júgóslövum fyrir ýmsum mat-
vælum, og auk þess áttu þeir
að skila aftur því, sem búlg-
arskir hermenn höfðu rænt í
styrjöldinni.
1 ............ . ....... . \.r
Hér réðu þeir ráðum sínum.
Mynd þessi er tekin, þegar allsherjarþing hinna sameinuðu
þjóða var sett á dögunum. Þingið, sem eins og kunnugt er,
er nýlokið, var haldið í Albert Hall í London
fulltrúar 52 þjóða frá öllum heimsáuum.
Heiltarlegir bardagar enn háðir i
Bombay eg Karachi í gærdag.
.
Kommunistar og róttækir blása að koiunum,
sagðá Attlee í gær.
------—«-------
1 SKYGGILEGAR horfur voru sagðar í Bombay og Karachi á
Indlandi í gær, vegna uppreisnar sjóliðanna. Voru víða háð-
ir snarpir bardagar, einkum eftir að æsingamenn höfðu ráðizt á
kornskemmur í Bombay og eyðilagt þar mikið af matvælum, enda
þótt vitað sé, að mikill kornskortur er ríkjandi víða á Indlandi.
Clement R. Attlee, forsætisráðherra Breta sagði í neðri málstofu
þingsins í gær, að sér hafði borizt vitneskja um, að óeirðirnar
væru ekki runnar undan rifjum Congressflokksins indverska,
heldur væri blásið að kolunum af róttækuni mönnum og komm-
únistum. Umferðarbann hefur verið sett í Bombay vegna óeirð-
anna.
Attlee sagði í ræðu sinni, að
hann harmaði það, að hinir ind
verksu sjóliðar hefðu gripið til
þeirra ráða, sem raun bæri
vitni. Þeir hefðu byrjað verk-
fall og óspektir áður en þeir
höfðu sett fram nokkrar kröf-
ur, en hvað sem því liði, yrði
að koma á reglu.
Þegar síðast fréttist voru
brezk beitiskip og tundurspill-
ar að koma á vettvang til
Bombay, en þar voru mikilar
æsingar 1 borginni.
Til snarpra bardaga kom
milli æsingamanna, er rændu
kornskemmur og frömdu ýmis
önnur spillvirki og brezkra her
manna en ekki er' vitað um
manntjón í .bardögum þessum.
Þá var og kveikt í banka ein-
um og rúður brotnar í mörgum
opinberum byggingum. Orrustu
flugvélar Breta svifu yfir borg-
inni og flugu margar þeirra
mjög lágt.
I borginni Karachi gáfust
uppreisnarmenn upp á herskip
inu „Hindustan“, eftir nokkra
viðureign. Höfðu þeim verið
settir úrslitakostir, sem þeir
sinntu ekki og var þá hafin skot
hríð á þá úr landi. Gáfust þeir
þá upp eftir nokkurn bardaga.
Höfðu þeir þá skotið af fallbyss
um, án þess þó að valda tjóni í
liði í Breta.
Fótgönguliðar og skriðdeka-
sveitir aðstoða lögregluna í
Bombay við að koma á reglu,
en miklar æsingar voru í mönn
um, er síðast fréttist.
Þá hafa og borizt fregnir af
því, að verkfall hafi verið haf-
ið í Punjab-fylki, í samúðar-
skyni við sjóliðana.
400 fárust í námaslys-
inu í Ruhr.
•TH ILKYNNT var á London í
gær, að öll von væri úti
um, að nokkur maður væri á
lifi af þeim, sem tepptir voru
i námaslysinu við Dortmund í
Ruhr, sem getið var um i gær.
Um 400 manins fórust þarna, af
um 500, sem tepptir voru.
Námagöngunum, þar sem
sprengingin varð, mun nú verða
lokað.