Alþýðublaðið - 23.02.1946, Side 4

Alþýðublaðið - 23.02.1946, Side 4
ALfrTOUBLAPIÐ Laugardag 23. £el»áar i$4£. fUfrijðukladið Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pétursson. Símar: Ritstjórn: 4901 og 4902. Afgreiðsla og auglýsingar: 4900 og 4906. Aðsetur í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Verð í lausasölu: 40 aurar. Alþýðuprentsmiðjan hf. Hver vill í einingar dans við „séra" Sigíús! Ritstjóri „stjórnmála RABBSINS“ í Þjóðviljan- um, „séra“ Sigfús Sigurhjartar son, sem glopraði því út úr sér einn daginn fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar, að „eining al- þýðunnar væri ekki hugsanleg annars staðar en innan vébanda Sósíalistaflokksins,“ þ. e. Kom- múnistaflokksins, eins og þessi annars sihræsnandi einingar- postuli orðaði það, er í gær rétt einu sinni að fara á fjörurnar við unga jafnaðarmenn og hvetja þá til þess, „að snúa sér að einingarstarfinu“. Þarf nú, eftir hin óvenjulega hreinskilnu orð „séra“ Sigfús fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar, ekki að fara í neinar grafgötur um það, hvað sldk hvatning þýðir: Þeim er boðið upp á að láta innlima sig, þegjandi og hljóðalaust, í hið rússneska útibú hér á landi. * Það er náttúrlega ágætt, að tala um „einingu alþýðunnar“; það lætur vel í eyrum og er því vinsælt svo lengi, sem menn ekki sjá í gegnum óheilindin og svikavefinn. En hver skyldi halda áfram að taka einingar- hjal „séra“ Sigfúsar alvarlega eftir að hann er búinn að játa það svo hispurslaust, að fyrir honum vaki ekkert annað, en að eyðileggja þann flokk, sem upp á samkomulag og einingu er boðið, og innbyrða meðlimi hans, það er að segja þá þeirra, sem náð finna fyrir augum hinna rússnesku útsendara, í Sameiningarflokk alþýðu, öðru nafni Sósíalistaflokkinn, en réttu nafni Kommúnistaflokk- inn? Skyldu þeir ekki verða heldur fáir, Alþýðuflokksmenn- irnir eða ungu jafnaðarmenn- irnir, sem kæra sig um að stiga slíkan einingardans með „séra“ Sigfúsi Sigurhjartarsyni og hans salufélögum? * „Séra“ Sigfús talar gjarnan um það, þegar hann er að reyna að rugla hrekklausa alþýðumenn og verkamenn með einingar- hræsni sinni, að menn megi „ekki vera rifja upp gamlar kennisetningar, sem að ýmsu og raunar mestu leyti séu orðnar úreltar fyrir viðburðanna rás“. Það má nú vera, að fyrir „séra“ Sigfús séu flestar kenni- setningar orðnar úreltar, svo mjög sem hann hefir ekið segl- um eftir hinum nólitíska vindi. En úti um heim hefir ekki orðið neitt vart við það, að það bil, sem er á milli einræðisdýrkunar innar og kommúnismans ann- ars vegar og lýðræðishyggjunn- ar og jafnaðarstefnunnar hins vegar, væri að mjókka. Þvert á móti hafa kosningar úti um heim síðan d striðslok sýnt, að þjóðirnar gera skarpan greinar- mun á þessum tveimur stefn- um og fylkja sér nú fastar um Eflir bæjarstjornarkosningarnar; Spreigifraaboð komraúnista. KOMMÚNISTAR hafa mjög gumað af því eftir nýaf- staðnar sveita- og bæjarstjórna kosningar, að þeir hafi aukið bæjarfulltrúatölu, um hitt geta þeir minna, að fylgi þeirra óx ekki nema 17%, en Al- þýðuflokksins 35%. Hins varast þeir að geta, hvernig a. m. k. nokkuð af þessari bæjar- fulltrúaf j ölgun þeirra er feng- in. Verður þo ekki annað sagt en áð aðferð þeirra sé all at- hyglisverð og táknræn fyrir „sameiningarstefnu11 íslenzku kommúnistanna. Enginn íslenzkur stjórnmála- flokkur er jafnfrægur fyrir sprengiframboð sín og komm- únistaflokkurinn. Hvar sem þeir megna að fá meðmælendur á lista eða með framjóðanda, hvort heldur er við bæjar- stjórnay eða alþingiskosningar, þar bjóða þeir fram, alveg án tillits til þess að atkvæði þeirra, sem lista þeirra eða frambjóð- anda kjósa, gætu ráðið úrslitum milli hinna andstæðinganna. Segja má að þetta verði að fyrir gefast þeim, meðan svo var fyr- ir þeim ástatt að þeir höfðu stjórnarbyltingu á stefnu- skránni og áttu engan óvin á hinu pólitíska sviði öðrum verri. Allir andstæðingar þeirra voru þeim jafnóskyldir í af- stöðunni til lýðræðisins og því engin ástæða að sýna neina hlífð, ekki einu sinni þeim, sem þó höfðu sósíalisma á stefnuskránni eins og þeir sjálf ir. Þótt á greindi um leiðir fram að árinu 1937, kom það líka þráfaldlega fyrir, að frambjóð- endur Alþýðuflokksins náðu ekki kosningu vegna sprengi- framboða kommúnista, og var engu líkara oft og tíðum, en að kosningabandalag væri milli kommúnista og íhaldsmanna, þó þannig, að hver íhaldsmaður inn á fætur öðrum flaug á þing fyrir óbeinan stuðning komm- únista, þótt aldrei fengi þeir sjálfir neitt á móti, svo vitað væri að minnsta kosti. Og jafn- vel eftir að kommúnistar þykj- ast hafa snúið frá villu síns veg- ar, eftir að þeir þykjast vera orðnir lýðræðissinnaðir, og þeg ar þeir eru farnir að halda því fram að þeim og Alþýðuflokks- mönnum beri í raun og veru ekki annað í milli en það, hvort styðja eigi í öllu heimsvalda- sinnaða utanríkisstefnu Rússa eða ekki, þá hliðra kommún- istarnir sér ekki hjá að stofna til sprengiframboða, til þess að hlaupa undir bagga með þeim, sem nú er talinn vera höfuðó- vinurinn, sem sé íhaldinu. Má færa gildar sannanir fyrir þessu úr síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum. I Keflavík hafa sjálfstæðis- menn haft hreinan meirihluta undanfarin kjörtímabil. Vitað var, að þar væri Alþýðuflokkur inn í miklum uppgangi og væri orðinn viss með 3 bæjarfulltrúa af þeim 7, sem kjósa á í hrepps nefnd. Kommúnistar þóttust líka hreint ekki svo litlir karlar. Þeir myndu fá a. m. k. einn mann kjörinn og kannske tvo, til þess að þeir kæmu manni að, og þar með myndu þeir hafa oddaaðstöðu í hreppsnefndinni. Með sjálfum sér vissu þeir vit- árangurinn af framboði þeirra myndi því aðeins verða sá, að anlega að nær engar líkur voru annaðhvort myndi Sjálfstæðis- flokkurinn halda meirihluta sínum eða að Framsóknar- flokkurinn myndi fá oddaað- stöðu í hreppsnefndinni, og mætti virðast svo sem komm- únistum hefði þótt hvorugur þeirra kosta mjög góður. Eigi að síður buðu þeir fram, vegna rót gróins haturs á Alþýðuflokkn- um. Árangurinn varð sá, að Alþýðuflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn fengu sína 3 fulltrúa hvor og efsti maður framsóknarlistans komst í odda aðstöðu. Samtals fengu listar Alþýðuflokksins og Komm- únista 410 atkvæði, og hefði það nægt til þess að fá meirihluta í hreppsnefndinni. Þar með hefði kommúnistum ekki einungis verið hjálpað til þess að fá bæjarfulltrúa kjör- inn, heldur hefðu þeir ásamt fulltrúum Alþýðuflokksins háft meirihlutaaðstöðu í hrepps- nefndinni. Frá Akranesi er sömu sögu að segja. Vitað var að Alþýðu- flokkurinn hafði þar stóraukið fylgi sitt, ekki sízt fyrir ötult og fórnfúst starf fulltrúa hans í fráfarandi bæjarstjórn fyrir velferðarmálum kaupstaðarins og bæjarbúa almennt. Flokkur- inn myndi því vera viss með að halda bæjarfulltrúatölu sinni, og hafa allmikinn hóp atkvæða vísan á 4. mann sinn. Voru. því líkur til, þar sem vitað var, að kommúnistar áttu víst að fá einn fulltrúa kjörinn á eigin spýtur, að sameiginlega myndu flokkarnir hafa á bak við sig nægilega mörg atkvæði tíl þess að koma að 5 mönnum af þeim 9, sem kjósa átti, eða hreinan meirihluta. Var talazt við um sameinginlegt framboð en án ár angurs. Var tilboði Alþýðu- flokksmanna um að sósíalistar skipuðu menn í 3. og 8. sæti list ans hafnað, en í því fólst viton- lega trygging fyrir að þeir fengju einn mann kjörinn í bæjarstjórn og varamann, svo framarlega sem listinn fengi 4 fulltrúa, sem alveg var öruggt. Sósíalistar gerðu hins vegar kröfu til þess að fá 2. og 4. mann, m. ö. o., að þeim yrði gert jafnhátt undir höfði og Alþýðuflokksmönnum, báðir hefðu 2 fulltrúa, ef listinn kæmi að 4 mönnum, en Alþýðflokk- urinn hefði mann í 5. sæti og kæmi því að þremur mönnum, ef svo færi, sem litlar líkur voru fyrir, að listinn kæmi að 5 mönnum. Niðurstaðan varð sú, að kommúnistar fengu 1 mann en Alþýðuflokksmenn 3 en samanlagt fengu listar þeirra nákvæmlega 500 atkvæði. Hefði sameiginlegur listi því fengið 5 menn, sé gert ráð fyrir að hann hefði fengið atkvæði allra þeirra, sem kusu flokkslistana jafnaðarstefnuna en nokkru sinni áður. Það er ekki heldur nein til- viljun, hvemig þær viðræður hafa endað, sem hjá frændþjóð- um okkar á Norðurlöndum hafa farið fram á síðasta hálfu ári til þess að sannprófa möguleik- ana á þeirri einingu, sem „séra“ Sigfús er si og æ að fimbulfamba um. Þar eru menn ekki í nein- um vafa um það lengur, hvað fyrir slíkum einingarpostulum vakir. Þau eru enn fullkomlega í sínu gildi orðin, sem Friedrieh Engels, hinn frægi samherji Karls Marx og brautryðjandi jafnaðarstefnunnar, sagði endur fyrir löngu: „Þeir, sem hæst gala um einingu, eru oft í verki ekki hvað minnstir sundrung- arsveppirnir.“ sinn í hvoru lagi, en fyrir því er engin vissa, að vísu nokkrar líkur. Þannig varð yfirlæti kommúnistann atil þess að ekki náðist samkomulag, og í bili a. m. k. hindrað, að vinstri meiri- hluti næðist. Hvergi dugði þó sprengifram- boð kommúnista þeim betur en á ísafirði. Þrátt fyrir það, að kommúnistar töpuðu þar bæj- arfulltrúa til íhaldsins, tókst þeim þó að ná því þráða marki að fá odda-aðstöðu í bæjar- stjórninni og mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum, m. a. um þá framkvæmd bæjarmála, að auka við útsvörin um kr. 600 000,00, samtimis því að framlög til verklegra fram- kvæmda standa í stað. Vitað var, að mikið af sjálfstæðismönnum hafði flutt úr nærsveitunum til ísafjarðar og listi þeirra stæði því mjög nálægt því að fá 4 menn kosna. Þrátt fyrir það einbeittu kommúnistar kosn- ingabaráttu sinni gegn Alþýðu- flokknum, og er ekki alveg grun laust um að þeir hafi meira að segja lánað íhaldinu nokkur at- kvæði, vitandi það, að sjálfir voru þeir vonlausir um 2 menn og því eina vonin um að kom- ast í hjónasængina með Sig- Takið eftir- Kaupum notuð húsgögn og lítið slitin jakkaföt. FORNVERZLUNIN Grettisgötu 45. Sími 5691. urði frá Vigur og Sigurði Vest- urlarids-ritstjóra, sú, að íhald- ið kæmi að 4 mönnum. Sú varð líka raunin á. Enda hafði þetta svokallaða spyrðuband tilbúinn málefnasamning frá því löngu fyrir kosningarnar, sem ekkert var að gera við annað en skrifa undir. Átti svo að heita svo sem Álþýðuflokknum væri boðið að vera með, þ. e. a. s. hann mátti aðeins segja já og amen við öllu- sem þessir félagar höfðu samið um, ella yrði hann ekki með í spilinu. Mundu þó fæstir undr- ast, þótt Alþýðuflokksménn á ísafirði þættust hafa nokkra á- stæðu til að> taka samkomulagi þessara þokkapilta um fram- kvæmd bæjarmála með nokk- urri tortryggni. Sama eðlis var tilraun komm- úinsta í Hafnarfirði; aðeins var munurinn sá, að þeim tókst ekki með sprengiframboði sínu að hindra það, að Alþýðuflokkur- inn næði glæsilegum meiri- hluta. Hefði Alþýðuflokkurinn Frh. á 6. síðu. DDAGUR, blað Framsóknar flokksins á Akureyri, gerir nýlega í aðalritstjórnargrein, sambúð sjálfstæðismanna og kommúnjsta að umtalsefni og er bersýnilega vel skemmt með þeim hnútum, sem þar fara á milli. Dagur skrifar: — „Það er kunnara en frá þurfi að segja, að síðustu vikurnar fyr- ir bæjarstjórnarkosningarnar hófu 'höfuðmálgögu kommiúnista annars vegar, en Sjálstæðisflokksins hins vegar, magnaða skothríð hvort á annars herbúðir. Engum smáskeyt um var þar á skipzt. „Morgunblað ið“ fullyrti með berum orðum, að kommúnistar væru aðeins ótíndir landráðamenn, er gengju hér erinda erlends stórveldis í einu og öllu. Færði Iblaðið fyrir því 'ljós rök, að forráðamenn Sósíalista flokksins skirrðust aldrei við að ganga í berhögg við innlenda hags muni og íslenzkan málstað, hve- nær sem fcippt væri í spottann, sem tengir þessa and'legu sprelli- karrla við stj órnarskri'fstofurnar í Moskvu. Á hinn þóginn spöruðu kommúnistar þá heldur ekki stór- yrðin í garð þessa sámstarfsflokks síns í ríkisstjórninni, hvorki í blaði sínu né öðrum áróðri, heldur völdu Sj álstæðisflokknium og for- ráðamönnum hans hæðilegustu og þyngstu skammaryrði íslenzkrar tungu, og flutu þá auðvitað land- ráðabrigzl með í þeim flaumi án þess að sérlega mikið væri eftir því tekið, þar sem allt orðbragð blaðsins var á hina einu og sömu bók skrílmennskunnar og strák- skaparins lært.“ Og enn skrifar Dagur: „Flestir munu hafa gert ráð fyr því, að hér væri um stutta leik- sýningu að ræða, sem einvörðungu væri „sett á svið“ í tilefni bæjar- stjórnarkosninganna, enda myndu þlöðin strax taka upp tiltölúlega friðsamleg og bróðurleg viðskipti, er kosningahríðin væri hjá liðin, svo sem bezt ihæfði bandamönn- um og samstarfsflokkum í ríkis- stjórn. Má og segja, að sú hafi einnig orðið raunin á af Mor.gun- iblaðsins hálfu. Hins vegar hefur Þjóðviljinn allur færzt í aukana og hert því meira árásimar og iLlyrða hríðina því léhgra sem leið frá kosningunum. Hér í blaðinu er á öðrum stað gerð nokkru nánari grein fyrir aðalefni þeirrar ófögru ákæru, sem blað þetta Lætur sér sæma að bera fram gegn samstaris flokki sínum í ríkisstjórninni. En' í stuttu máli sagt lætur Þjóðviljinn sér ekki nægja að kalla þessa pöli- tísku rekkjunauta sína „afdankaða nazis'taagenta", „peningaskríl“ og öðrum slík'Um nöfnum, sem talizt munu geta til tiltölulega rnein- lausra og hverdagslegra gæluyrða í munni kommúnistablaðs, heldur 'hamrar þetta málgagn og stuðn- ingsblað íslenzku ríkisstj órnarinn- ar á því dag eftir dag með sívax- andi krafti, að forráðamenn Sjálf- stæðisflokksins séu „landráðaLýð- úr“, sem „álltaf hafi verið reiðu- búinn til þess að selja landið því stórveldi, sem hann í svipinn hef ur treyst ti'l þess að níðast á ís- 'lenzkri alþýðu og vill nú frjálsar hendur til að geta svikið ísland í hendur Bandaríkja:nna“, Sjálf- stæðismenn „undirbúa landráðin af fullum kafti,“ stendur þdr o. s. frv. o. s. frv. í þessum sama dúr.“ Að endingu skrifar Dagur: „Óhætt mun að fullyrða, að það séu alger einsdæmi í stjórnmála- slögu allra þjóða, að samstarfsflokk ar í ríkisstjóm keppist við að bera hin svæsnustu og berorðustu Land ráðabrigzl hver á annan', án þ^s að samstarfinu sé samstundis slit- ið. Hér halda þessir flokkar, er svo haga sér, hins vegar áfram að styðja „landráðamennina“ sem dyggilegast til valda^ og forustu um málefni þjóðarinnar, og taka meira að segja upp nýtt og aukiff Frh. á S. áíSu. /

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.