Alþýðublaðið - 23.02.1946, Síða 5

Alþýðublaðið - 23.02.1946, Síða 5
Heimilislaus. Laugardag 23. ícbrúar ÍMS. ð Nokkur orð af tilefni kvikmyndar. — Umhugsunarefni einnig fyrir okkur. — Um trjárækt í bænum og varnir gegn kvillum. — Sjáið þið „sóða“-nafnið skrifað á bak ykkar? ANNARS ER.ÞAÐ RANGT, að KVIKMYNDIN GATAN, eftir síjg’U Ivar Lo-Johanssons, sem saú er sýnd í Gamla Bíó, dregur ekki silkislæðu yfir gráan veru- leikann. Þetta er hörð mynd og miskunnarlaus, en alveg eins og lífið sjálft, eða það afbrigði þess, aem sagan og myndin vilja sýna. Slík list hefur mikinn boðskap að ílytja og þó að margir segi: „Listin fyrir. listina eingöngu,“ þá hef ég aldrei getað fellt mig við þá skoð- un. Ef listin er ekki fyrir lífið, þá á hún svo lítið erindi til fólksins, múgsins. Hins vegar er það hár- rétt, að það er alltaf hægt að deila mn það hvenær list sé aðeins fyrir listina og hvenær fyrir lífið sjálft. BOÐSKAPUR þessarar myndar ú erindi til okkar á þessum tím- nm. Við ' eigum að vísu enga „igötu“, þar sem igengið er blóðug- nm fótum og flögrandi au-gu, reik- «lla sálna leita eftir viðskiptum, en reikular, uppflosnaðar sálir ■ei'gum við meira en nógu margar — og ógæfan tætir nú sundur heimili í Reykjavík, en saklaus náttúrubörn, sem (hingað ieita, far- ast í flaumi kvöldanna í villtri leit aff 'gleði, sem ber í sér eitur. Það er svo ákaflega margt, sem ekki er svo létt að skrifa um, jafnvel þó að.þess þyrfti; ef til vill skortir rnann djörfung og hugrekki. MÓÐIR SAGÐI við mig fyrir •nokkru: „Ég er alveg að gefast upp. Ég ræð ekki við neitt, er bú- in að gera allt, sem í mínu valdi ^stendur. Heimili okkar hefur allt- af verið rólegt og reglusamt, en simhverfið hetfur eyðilagt iþað. Ég verð að taka við veslings dóttur minni um miðjar nætur og stund- um undir morgun og 'hjálpa henni í rúmið. Við hjónin liggjum and- vaka á næturnar og hlustum eftir fótataki á götunni. Maðurinti minri er fariinn að lýjast, og svona vöku- nætur eyðileggja hann alveg. Við getum ekki meira. Hvað eigum við að gera?“ OG HVERJU ER HÆGT að svara? Engu. Að minnsta kosti á ég ekki ráð. Eiga ef til vill aðrir ráð? Tilraunir hafa verið gerðar til hjálpar, en þær hatfa vakið hat- rammar deilur og jafnvel æsingar. Jafnvel þeir, sem bezt áttu að ganga fram í björgunarstarfi, sner- nst hatrammlegast gegn því. Bong- arljósin mála alls konar myndir í svart asfaltið á kvöldin. Þetta verða kynjamyndir fyrir augum ýmissa ungmemia. Og þær tala. Festuna vamtar í 'þetta fólk, alveg eins og festu vantar í alla þjóðfé- lagsbyggingu okkar, heimilin og saimfélagið. hrópa alltaf á samfélagið og kenna því um hvert slys. Með því er ver- ið að slæva ábyrgðartiifinningu einstaklinganna. Og nóg er til af ábyrgðarleysi, þó að það sé ekki egnt upp #með slíkum hrópum. Gatan er góð mynd, og boðskap hennar ættum við að nema. S. V. SKRIFAR: „Allur heimur- inn er „dús“ við þig, Hannes minn. Allir eiga iþig, eða er það öfugt? Svo að þú eigir alla þá, sem kynn- ast ,,horninu“ þínu. Þorrinn er að telja út. Hvítur í daig, másk-e rauð- ur á morgun. Það hef-ur verið lítið um, að snjórinn breiddi hvíta blæju yfir syndir þessa bæjar í v-etur. Og eftir rúman mánuð held- ur almanaksvorið innreið sína. Þá fer bráðum að líða að því, að fara megi að úða tré og runna í görðum bæjarins. ÞAÐ HEFUR EKKI ALLTAF verið svo auðvelt, að fá það -gjört. En það er einmitt riauðsyn, að þar séu allir samtaka, því að óþrifin berast úr einum garði í annan, svo að heita má, að unnið sé fyrir gý-g, ef ekki fer fram -almenn úðun. Lauflausir runnar og rytjuleg tré- eru engin bæjarprýði. ÞAÐ VAR í FYRRA stungið upp á því, af einhverjium' manni, mig minnir helzt, að það væri af garðyrkjuráðunaut bæjarins, að bezt færi á, að bærinn taki þetta -starf að sér. Fen-gi til þess fljót- virk áhlölld, og léti fram'kvæma úð- unina fyrir ’gaxðeigendur, en þeir igreiddu fyrir vinnu og efni. Ætti öllum að vera það ljúft. ÞÁ KEM ég að þrífnaðinum í bænum. Reykjavík er víðáttumik- ill.bær. Þótt göturnar séu sópáðar og sorpílátin tæmd, verður bærinn aldrei þriflegur, nema að íbúarnir séu þrifni-r. Það veit og skilur hver heilvita maður. Við verðum að 'hætta að kasta óþrifnaði á göt- urnar og í 'kringum húsin. ÞAÍ) VAR SAGT við börnin, að þau fengju svartan blett á tung- una, -ef þau blótuðu. Nú skal ég segja ykkur, þér, sem k-astið pappír, ávaxtaberki eða sígarettu- hylkjum eða öðr.u slíku frá ykkur, 'þar sem þið standið. Það er hönd, sem skrifar á bakið á ykkur „Sóði“. ÞAÐ GETUR VERIÐ, að þið eða félagar ykkar, sjái þetta ekki, en þeir, sem skyg'gnir eru, sjá það. Það heyrir til pérsónulegum þrifn- aði, að láta ekki þurfa að ganga á sér með sóp og reku .til að tína og táka óþrifnað eftir sig.“ Hannes á horninu. Anglýsifls til ðtvegsfflafloa. Fiskimálanefnd hefur að undanfönu aflað tilboða í hjallaefni til fiskherzlu. 'Þeir útvegsmenn, sem hafa hug á slíku, geta snúið sér til nefndarinnar um upplýs- ingar í þessu efni. FISKIMÁLANEFND. Myndin sýnir heimilislaust fólk í kjallaraholu í i'Ústum Berlínar. Ellefu manns, tilheyr- andi þremur fjölskyldum, hafast þarna við, sofa þar og matast. iðjarðarh NIKULÁSI I. — „járnkeis- , aranum“ svokallaða, — sem tók við af Alexander, varð nokkuð mikið ágengt í tilraun- um sínum. Hann lýsti því yfir, að hann vildi leggja út i styrj- öld „með það fyrir augum að tryggja hagsmuni keisaraveld- is síns.“ Herlaus og stuðnings- laus undir skrifaði tyrkneski soldáninn Ackermans-samning- inn, sem viðurkenndi Serbíu áhrifasvæði Rússa; á sama tíma viðurkenndu Bretar og Frakk- ar keisarann sem verndara ort- hodox-kirkjunnar, en þeirri veg tyllu hafði keisarinn sótzt mjög eftir. Gríska frelsisstriðið gaf Niku -lási tækifæri til að lýsa yfir striði á hendur tyrknesku stjórn arvöldunum. Rússneski herinn náði Adrianope.l á sitt vald og komst í 60 rrálna nálægð við Bosphorus. Soldáninn leitaði hófanna um frið, og með Adria- nopel-samkomulaginu, þ. 14. september árið 1829, varð Rúss land yfirráðaríki tyrkneska keisaradæmisins. Nú gátu rúss nesk kaupskip siglt óhindruð um Svartahafið og sundin inn i það. Rússar létu herlið setjast að á Serpento-eyjunni í Dónár- ósnum. Einnig höfðu þeir all- mikil yfirráð yfir Moldavia, Wallaohia og Grikklandi. Keis- arinn var verndari erkibiskups- ins af Montenegro. Þessum for- réttindum hélt Rússland alls í 10 ár, eða til ársins 1839. * Stórveldin lögðu ekki niður vopn sín. í Egyptalandi studdu Frakkar Mohammed Ali til and stöðu gegn soldáninum, á með- an Palmerston í London hafði á prjónunum ráðagerðir um að hagnýta óeiningarástandið á { meginlandi Evrópu til þess að ‘ frægðarljómi Bretaveldis mætti aukast þar af. Ein aðferð hans var sú, að reyna að egna Tyrkja soldán sem mést á móti Rússa- keisara. Hið skyndilega fráfall Mah- mouds soldáns, í júní árið 1839, kom Palmerston að lokum til - þess að hefjast handa fyrir al- grein; afsdraannr BÉssa. REIN sú, sém hér fer á eftir, birtist nýlega í Parísarblaðinu „La Bataille“, og ef hún eftir Philippe Brinquant. Er liér rakin í stórum dráttum sagan um áhrif Bússa við austanvert Miðjarðarhaf á síðustu öld- um. Þetta er síðari hluti greinarinnar. vöru. Hann fékk Frakka og A usturríkismenn til fylgis við sig, og kom síðan æðstu yfir- ráðum í Konstantínópel í hend- ur þessara þriggja stórvelda, Bretlands, Frakklands og Aust- urríkis. Þar að auki fengu Bretar Mohammed Ali til þess I að hætta við ráðagerðir sínar varðandi Sýrland. Frakkar, sem hér með sáu úrslitatilboð Breta, ' neyddust til að sam- þykkkja þetta. Brezkur floti hélt inn í Svartahafs-sundin, og Metternick sendi hótunarorð- sendingu til St. Pétursborgar. Nikulás lét undan síga, og mi'eð Lundúnasamningnum 15. júlí 1840, var yfirráðasvæði Rússa yfir Balkanskaga og Tyrkja- veldi, endursamþykkt með því, að önnur stórveldi hefðu sam- eiginlegt eftirlit með stjórn Rússa. Sundin inn í Svartahaf voru lokuð fyrir öllum her- skipum, hverrar þjóðar sem væri. — Rússneski flotinn var þar með innikróaður í Svarta- hafi. Tilraunir, sem unnið hafði verið að um aldir, voru þar með orðnar að engu. * Valdhafarnir í St. Péturs- borg urðu að bíða hentugra tækifæra til ársins 1848. Á eftir Parísarbyltingunni, sem átti sér stað á því ári, gusu upp bylt- ingar í hverju Balkanríkinu á fætur öðjru. — — Á þessu augnabliki átti zarinn sína óskastund. Undir því yfirskini, að komið skyldi á lögum og reglu, komu rússneskar her- sveitir af stað byltingum í Ung- verjalandi og Rúmeníu og sett- ust að sem alvaldar í Búkarest. Serbar og Slóvenar kölluðu hina rússnesku bræður sína sér til hjálpar. En meðal stjórnar- valdanna í St. Pétursborg var þjóðrækni nokkurra smáríkja sízt á stefnuskránni. Miklu frekar var reynt að tryggja hin rússnesku yfírráð í hvívetna. Hugtakið „kynþáttur“ var sett ofar en hugtakið ,,þjóð“. Stór- Slava-stefnan var risin upp. Um líkt leyti réðist hið ka- þólska Austurríki- gegn Serbíu. Síðan tók Krímstyrj öldin við, sem veitti Bretum, Frökkum og Austurríkismönnum enn þá einu sinni tækifæri til þess aS hrekja rússneska herinn til baka að bökkum Dniester. Verndar-réttindi Rússa í Ser- bíu, Wallachia og Moldavia voru afnumin. Keisarinn afsal- að sér verndarnafnbótinni yfir orthodox-kirkjunni, neyddist til þess að leyfa frjálsar siglingar um Dóná og staðfesta gildirigu sáttmála, sem útilokaði það, aS Rússar hefðu réttindi til að sigla um Bosphorus. * Rússland var þó ekki þar með brotið á bak aftur. Það hélt kröfum sínum áfram ó- trautt. Alexander II, undirbjó fyrirætlanir um að halda áfram starfi fyrirrennara síns. Ignat- iev hershöfðingi, sendimaður hans, lét stjórnarvöldin í Kon- stantínópel finna styrkleika járnhandarinnar í silkihanzk- anum. Hugmyndin um Slava- keisaradæmið í suðri var end- urvakin af nýju. Ignatiev veitti búlgörskum og serbneskum byltingamönnum stuðning. Her- zegovina sótti um að samein- ast Montenegro, — Bosnia um að sameinast Serbíu. Júgóslav- ar sögðu soldáninum stríð á stríð á hendur. Austurríkiskeis- ari varð skelfdur, leitaði á náð- ir Bismarcks um stuðning, og hlaut málamiðlunartilraun a£ Frh. á 6. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.