Alþýðublaðið - 12.03.1946, Side 7
t
Þriðjudagur, 12. marx 1946.
alþydublaðid
Bærinri í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Næturakstur annast B. S. í.,
ními 1540.
ÚTVAiBPIÐ:
8.30'—8.45 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
1530—16.00 Miðlegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. £1.
1925 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.30 Dagskrá Aiiþýðusamibands ís-
lands. — 30 ára afmæli: Á-
vörp og ræður (Hermann
Guðmundsson, Jón Rafnss.).
Viðtal (Ottó Þorláksson og
Sverrir Kristjánsson). —
Upplestur. — Tónleikar.
22.00 Fréttir.
22.05 Lög og létt hjal (Einar Páls-
son o. fl.j.
23.00 Dagskrárlok.
50 ára
er í dag frú Þóranna Símonar-
dóttir, Guðrúnargötu 8, kona Þor-
steins J. Sigurðssonar, kaupmanns.
Ferðafélag fslands
heldur skemmtifund í Oddfell-
ow-húsinu í kvöld og hefst hann
kl. 8.45.
Verkefnin óþrjóiandi.
(Framh. af 4. síðu.)
vægðarlaust bratin á bak aftur.
Eingöngu skoðanir einvaldans
fá að koma fram í ræðu, riti og
útvarpi, en þjóðirnar eru leynd
ar sannleikanum um það, sem
gerist í umheiminum. Þánnig
•er skapað voldugt afl, sem er
notað til ills eða góðs, eftir því,
sem einvaldanum, sem öllu
stjórnar, þóknast; og hefur
■ slíkt einræði hvað eftir annað
steypt heiminum út í blóðug-
ar styrjaldir og vandræði. Hugs
unalausir uppalningar einvald-
ans eru viljalausir og er teflt
fram eins og peðum á skák-
tafli. Enginn veit, hvenær
næsta ógnin skellur yfir og tor-
tímir miklum hluta mannkyns-
ins.
Gegn þeirri hættu er aðeins
ein vörn, framkvæmd jafnaðar
stefnunnar, þar sem enginn fær
leyfi til að sitja yfir annars
hlut í fjarmálum eða atvinnu-
málum og öll áherzla er lögð á,
að efla andlegan þroska, menn
ingu og frjálsa hugsun. Þetta
eru verkefni Alþýðuflokks-
manna í öllum löndum.
Finnur Jónsson.
til frjálsrar hugsunar.
í rauninni má tákna stefnu
Alþýðuflokksins með einu orði:
Frelsi, frelsi fjöldans til að
vilja og hafna í opinberum
málum, frelsi hvers einstaklings
til að lifa sómasamlegu lífi.
Að þessu takmarki vinna
jafnaðarmenn allra landa með
markvissum þjóðfélagslegum
umbótum á lýðræðisgrundvelli.
Án hernaðaræðis, án ofbeldis.
Gandhi, hinn indverski, sagði á
dögunum í ræðu: „Frelsið
vinnst ekki með grjótkasti,
frelsið vinnst aðeins með sann-
leik og ofbeldisleysi.“ Það er
gaman að rbera þessi orð sam-
an við orð Jóns Baldvinssonar,
er voru á þessa leið: „Eðli verka
lýðshreyfingarinnar eru ekki
skyndiupphlaup, og hávaða-
fundir, heldur markvís barátta
fyrir málefnunum sjálfum.“
Úrslit kosninga úti í heim-
inum nú eftir styrjöldina sýna,
að fleiri og fleiri skipa sér
undir merki jafnaðarstefnunn-
ar. Fleiri og fleiri sjá, að þar er
að finna öruggustu verndina
gegn því öryggisleysi, óstjórn og
ófrelsi, er þjakað hefur löndin
undanfarið. Vonandi gengur ný-
liðin ógnaröld ekki aftur yfir
heiminn. En manni finnst þó
enn mjög skorta á það frelsi og
öryggi, sem þarf til þess, að
lönd og ríki lifi saman í gagn
kvæmum friði og skilningi. Þau
, öfl. virtust koma fram á ráð-
' stefnu hinna sameinuðu þjóða,
að fulltrúarnir þar gætu lítt
skipað sínum málum. Þar virt-
ist grjótkast og hávaði. Stór-
veldisdaumar einræðisherra,
hvort sem þeir heita Hitler eða
Stalin, eru friði og samlyndi
hættulegir.
Jafnaðarmenn allra landa
þurfa.að vera vel á verði, Við
hér á íslandi mörkum að vísu
ekki rás heimsviðburðanna; en
þau öfl eru hér til og þau við-
fangsefni mörg í íslenzku þjóð-
lífi, er gefa fleiri og fleiri Jafn-
aðarmönnum nóg að starfa.
Megi dagurinn í dag verða okk
ur hvöt til nýrrar sóknar.
Meðal þeirra mörgu, er vilja i þess mjnnUgur ag Qf mikið
mmnast Alþýðuflokksms a ís-
Hægfara þróun -
ekki heljardökk.
'n
Framhald af 2. síðu.
krabbamein, að ráð við þeim er
að mestu ófundið enn.
En hitt þykist ég skynja og
skilja, að Alþýðuflokkurinn
hefur göfugt hlutverk að inna
af hendi: að styðja þá, sem
einkum þurfa stuðnings við, að
hjálpa þeim, sem verst eru
staddir í mannlegu félagi, en
vinna þó hin þörfustu verk, og
hin hættulegustu verk. Og þess
ber minnast, að samkvæmt
stefnu sinni vill flokkurinn
lyfta þessum stéttum, lágstétt-
unum, með lögum, en ekki ólög-
um, með iðni við kolann, hæg-
fara þróun, en ekki með heljar-
stökki né landskjálfta. Ég velt-
ist ekki í vafa um, að flokkur-
inn hefur fengið miklu áorkað í
baráttu sinni á liðinni tíð. Lög-
in um hvíldártíma háseta á ís-
lenzkum botnvorpungum (1921)
eru t. d. liiú merkustu, sem
mörgum sjómanni vorum hefur
án efa reynzt heilsuvernd og
heilsubót.
Að lyktum þakjta ég Alþýðu-
blaðinu, hve óhvikult það var
jafnan í baráttu sinni við Hitler
og ára hans. Þá er verstar voru
horfur á sigri bandamanna og
öll menningar- og mannúðar-
vé virtust ætla að hrapa og
hrynja, hressti bjartsýni bláðs-
ins mig — og án efa miklu
fleiri oft og tíðum. Ég óska
blaðinu þess, að það reynist á-
vallt jafn-geiglaust í bardaga
við kúgunar- og einræðiströll,
er þau teygja gráa hramma sína
og loðnar krumlur út úr klett-
_um og björgum, sem enn'er alls
ekki óttalaust um. Alþýðuflokkn
um óska ég þess, að honum
verði vel ágengt í sókn sinni
fyrir vaxandi þroska verka-
manna, að hann sí-vaxi að
frjálslyndi og- víðsýni, sitji
fastur við sinn laga-keip og
gæti lipurðar í samningum og
| samvinnu við aðra flokka, en
Hjartkær eiginmaður minn,
Vithjátmur Bjarnason,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 13.
þ. m. Athöfnin hefst með húskveðju á heimili hans, Loka-
stíg 28A, kl. 1 e. h. Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Guðný Magnúsdóttir.
Jarðarför mannsins míns,
. - Páls fVBágnússonar,
íer fram miðvikudaginn 13. Þ. m. og hefst með húskveðju á
heimili hans, Framnesvegi 26 B, kl. 9x/2 f .h.
Kirkjuathöfnin fer fram í Dómkirkjunni, en jarðsett í
Hafnarfirði.
Jóhanna M. Ebenesersdóttir.
Ffokkur frebislns.
f) ÞRJÁTÍU ÁRA afmæli A1
þýðuflokksins á íslandi
mun margur vilja minnast hans
í þökk og virðingu, — þökk fyr
ir mikið starf, mikla baráttu í
þágu íslenzkrar alþýðu, og virð
ingu fyrir stefnu flokksins, —
jafnaðarstefnunni.
Á þessum tímamótum, sem
og oftast, er gott að gera sér
grein fyrir, hvað það er, sem
gerir jafnaðarstefnuna eftir-
sóknarverða og nauðsynlega í
hverju menningarþjóðfélagi. En
það*er í stuttu máli það, að hún
kappkostar að veita landsmönn
um meira öryggi í baráttunni
fyrir daglegu brauði með stétta
samtökum og skipulagningu at
vinnuveganna. Hún beitir sér
fyrir almennum tryggingum
handa þeim, er bíða á einhvern
hátt tjón.. Hún berst fyrir al-
mennum mannréttindum og
skýlausum rétti einstaklingsins
landi með þökk og virðingu á
þessum tímamótum og jafn-
framt flytja flokknum beztu
árnaðar og afmælis óskir, er
Kvenfélag Alþýðuflokksins. Yið
í því félagi vinnum að ýmsum
menningar- og framfaramálum
kvenna, en uppistaða okkar fé-
lags er stjórnmálastefna Alþýðu
flokksins, og það er hún, hvað
mörg mál sem við hofúm á
dagskrá, sem ber félagið uppi;
því hugsjón jafnaðarstefnunn-
ar er og verður stærsta viðfangs
efnið, hæsta takmarkið.
Ef við hjálpumst öll að því,
að túlka þessa skoðun, hjálp-
umst öll að því, að gera veg Al-
þýðuflokksins sem mestan,
verður það ekki einú flokkur
heldur öll þjóðin sem fagnar
næsta stóra afmæli flokksins.
Soffía Ingvarsdóttir.
af öllu má þó gera“, sem Hall-
dór læknir Gunnlaugsson kvað.
Sigurður Guðmundsson.
BraufrySjandi í nýrri
sljórnmálaþröun.
Heimsstyrjöldin FYRRI
1914—1918 markar tímamót
í sögu þjóðarinnar. Sambands-
sáttmálinn 1918 setur glögg skil
milli gamals tíma og nýs. Bar-
áttan um sjálfstæði þjóðarinn-
ar hafði lengi verið mál mál-
anna, skipað flokkum, velt ráð
herrastólum og reist á víxl. At
vinnu- og félagsmál voru frem-
ur háð áhuga og atorku ein-
stakra manna utan þings og inn
an, en skipulegri starfsemi
þingflokka, eins og reyndar
Hull—Reykj avik
%■. .
M/s. ,,NIEUWALL“ fermir í Hull um. miðja þessa
viku og e/,,CAVEB.OCK“ um næstu-mánaðamót.
Flutningur tilkynnist tii:
G. Krlstjánsson 8t Co. h/f.
skipamiðlarar.
Hafnaúhúsinu. Sími 5980, eða
The Hekfla Agencíes Ltd.
(G. Jörgensson)
St. Andrew’s Dock, Hull.
hafði tíðkazt frá upphafi hins
löggefandi alþingis. Nú á dög-
um mun ýmsum þykja furðu-
legt, að þannig væri á málum
haldið i 40 ár. En þegar betur
er að gáð, verður þetta mjög
vel skiíjanlegt. Frá 1875—1903
var alþingi svo mjög háð er-
lendri stjórn i löggjafarstarfi
sínu, að af þess hálfu gat naum
ast verið um að ræða skipulega
starfsemi að innanlandsmálum.
Baráttan um stjórnarskrárbreyt
ingu sat líka í fyrirrúmi og tók
mikið af orku þingsins alla tíð
frá 1883. Mönnum var ljóst, að
fyrsta skilyrðið til þess að hægt
væri að taka innanlandsmál-
in föstum tökum var það, að
stjórnin yrði innlend. Þá
fyrst var að vænta fastrar
stefnu í þessum efnum, í stað
höktandi fálms og sifelldra
lagasynjana af hálfu erlendra,
áhuigalausra og gerókunnugra
stjórnarherra. Þetta breyttist
að vísu með hinni nýju stjórn-
arskrá 1903, en liitt er sízt að
undra, þótt það tæki nokkurn
tíma að átta sig á breytingunni.
Flokkaskipan sú, er hér varð á
árunum 1895—1903, var miðuð
við lausn stjórnarskrármálsins
og valdabreytingu þá, er af
henni leiddi. Og upp úr þessu
hefst sjálfstæðisbaráttan fram
að styrjaldarárunum, sem háð
er með líkum hætti og stjórnar-
skrárbaráttan áður og að mestu
áf sömu mönnunum, sem leiddu
þá baráttu til lykta. Þegar alls
er gætt er reyndar meiri ástæða
til þess að undrast, hversu á-
gengt varð um ýmis framfara-
mál á þessum árum, heldur en
að lá þingi og stjórn reikult
ráð og lausa stefnu í þjóðmál-
unum. Undir niðri skynjum við
umbrot nýs tíma, upphaf og
þróun stórútgerðarinnar, vöxt
og viðgang þorpa og bæja, eíl-
ingu samvinnufélaga bændanna
og búnaðarsamtakanna, „ aukn
ingu framleiðsluvaranna og
verzlunarinnar — í stuttu máli:
öra félagslega og efnalega þró-
un, er hlaut fyrr eða síðar að
leiða til nýrrar skipunar í
stjórnmálum þjóðarinnar.
Ég er ekki í neinum vafa um
/það, að sú skipan stjórnmálalífs
ins með þjóð vorri, er hófst fyr-
ir 30 árum með stofnun Alþýðu
flokksins- og Framsóknarflokks
ins litlu síðar, verður jafnan
talin merk timamót í íslenzkri
stjórnmálasögu. Árið 1916 ór-
aði að vísu engan enn fyrir at-
burðum ársins 1918, en hér var
hafinn viðbúnaður um skipu-
legra þjóðmálastarf en jafnan
fyrri, er kom vel að haldi þjóð,
sem var í þann veginn að verða
sjálfráð um öll sín efni. Það
er ekki mitt hlutverk að dæma
um starfsemi Alþýðuflokksins í
30 ár. Það gera aðrir. En þegar
ég hugsa til þess, þykir mér það
sannarlega lofsvert og til sóma
fyrir þjóð vora, að verkamenn-
irnir skyldu verða brautryðj-
endur í ’hinni nýju stjórnmála-
þróun, sú stétt landsins er
minnstra réttinda hafði notið
og að flestu leyti var verst á
vegi stödd. Sú breyting, sem
síðan er á orðin um réttindi og
allan hag verkamanna landsins,-
er að sjálfsögðu mjög að þakka
áhrifum Alþýðuflokksins og A1
þýðusambandsins. Happádrjúg
samvinna við Framsóknarflokk
inn árum saman á sinn þátt,
en óþarfi er víst að minna á
það, og líkast til ekki viðeig-
andi hér. En að svo mæltu
þakka ég ritstjóra Alþýðublaðs
ins fyrir að gefa mér tilefni til
þess að rita þessar ldnur og óska
afmælisbarninu allra heilla.
Þorkell Jóhannesson.
Alþýðuflokkurinn á
mikið hlulverk
að vinna.
MÉR hefur alltaf verið vel við
Alþýðuflokkinn. Þar hef
ég átt marga igóðkunningja
mina og haft likar skoðanir á
ýmsum málum, enda þótt önn-
ur hafi orðið og verði enn að
ágreiningi. Frá minni hlið
veldur þar vafalaust miklu, að
ég er „bónda borinn“.
Yarla mun það véfengt, að á
undanförnum þrem áratugum
hafi flokkurinn hrundið fram
mörgum málum, er til hagsbóta
hafa horft og menningarauka
fyrir alþýðuna í kaupstöðun-
um. Hins er og að minnast, að
hann hefur léð liðsyrði ýmsum
umbótamálum sveitafólksins,
oft svo, að úrslitunr réði, eink-
um á þeim árum, er hann átti
samstarf við Framsóknarflokk-
inn á alþingi og í ríkisstjórn.
En meðan þessir flokkar sneru
bökum saman og báru gæfu til
samþykkis, þokaði hér morgu
fram, og hygg ég, að þetta muni
síðar verða metið meira og al-
mennara en nú er.
Alþýðuflokkurinn á að mín-
um dómi mikið hlutverk að
vinna hér, ekki síður en í öðr-
um " lýðfrjálsum löndum: að
efla alþýðu hinna vaxandi bæja
til sannrar menningar, veita
henni hlutdeild í tækni tímans,
auka menntun hennar og
iglæða þjóðarvitund hennar.
Vissulega varðar það næsta
miklu, hversu flokknum tekst
að leysa þetta hlutverk af hönd
um. Eg óska einlæglega að það
takist og árna Alþýðuflokknum
heilla.
Pálmi Hannesson.
Ljósmynðir
þær, sem. birzt hafa í blöðunum
úr revýu Fjalakattarins, sem verið
er að sýna um .þessar mundir, em
allar teknar af Vigni Ij ósmyndara.