Alþýðublaðið - 09.07.1946, Blaðsíða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur, 9. júlí 154S.
Þegar flugvöllurinn var afbenfur
Mynd þessi var tekin í Stjórnarráðinu 4. júlí s. 1., þegar Ólafur
Thors forsætisráðherra og Sir Gerald Shephard sendiherra Breta
hér undirrituðu samninginn um afhendingu Reykjavíkurflugvall-
arins, en eins og skýrt var frá í blaðinu & sunnudaginn fór afhend-
ing vallarins formlega fram á laugardaginn.
FyrrS hluti SvíamétsSris í fr|áSsíþróttum:
Svlar mm i oærkvelði ívœrsrelnar
00 Isleadinoar tvær.
------4»-----
Gunuar Huseby varpaéi kúlunni 3LS,69 meftra,
sem @r nýtft, gEæsilegft islandsmet.
FYRRI HLUTI SVÍAMÓTSINS í frjálsíþróttum fór
fram á íþróttavellinum í gærkvöldi eftir að forseti Í.S.Í.,
Benedikt Waage, hafði 'boðið hina sænsku íþróttagarpa vel-
feomna. Úrslit urðu þau, að Olof Lindén vann 800 metra
hlaupið og Ragnar Björk hástökkið, en Gunnar Huseby vann
kúluvarpið og setti nýtt, glæsilegt íslandsmet og Finnbjörn
Þarvaldsson 100 metra hlaupið.
Úrslit í einstökum íþrótta-
greinum urðu þessi:
100 metra hlaup:
1. Finnbjörn Þorvaldsson,
ÍR. 11.3 sek. 2 Stig Danielsson,
S. 11.6 sek. 3 Haukur Clausen,
ÍR. 11.9 sek. 4 Pétur Fr. Sigurðs
son, KR. 12.0 sek.
Hástökk:
1. Ragnar Björk, S. 1.90 m.
2. Skúli Guðmundsson, KR. 1.
90 m. 3. Örn Clausen, ÍR. 1.70
m. 4. Árni Gunnláugsson, FH.
l. 70. m.
800 metra hlaup:
1. Olof Lindén, S. 1:56.8 mín.
2. Kjartan Jóhannsson, ÍR. 1:
58.9 mín. 3. Óskar Jónsson, ÍR.
2:0.06. 4. Brynjólfur Ingólfs-
son, KR. 2:03.0 mín.
Spjótkast:
1. Jóel Sigurðsson, ÍR. 56.27
m. 2. Jón Hjartar 52.37 m. 3.
Gísli Kristjánsson, ÍR. 47.46 m.
4. Friðrik Guðmundsson, KR.
43.65 m.
Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby, KR. 15.69
m. (nýtt íslandsmet). 2. Herbert
Willny, S. 14.30 m. 3. Sigurður
Sigurðsson, ÍR. 13.26 m. 4. Frið
rik Guðmundsson, KR. 13.24
m.
Langstökk:
1. Oliver Steinn, FH. 6.77 m.
2. Björn Vilmundarson, KR. 6.
72 m. (nýtt drengjamet). 3.
Magnús Baldvinsson, ÍR. 6.49
m. 4. Þorkell Jóhannesson, FH.
6.43 m.
3000 metra hlaup:
1. Stefán Gunnarsson, A. 9:
Hörmuflegft slys:
Tvelr skipverjar a SkallaprlEÐ
blðo baaa á laiprðai
Tveir aörir sflösuðust aivariega.
31.8 mín. 2. Indriði Jónsson,
KR. 9:39.8 mín. 3. Sigurgísli Sig
urðsson, ÍR. 9:45.6 mín.
4X100 metra boðhlaup:
1. Sveit íslendinga (Finn-
björn, Kjartan, Skúli, Húseby)
46.3 sek. 2. Sveit Svía (Daniels-
son, Lindén, Björk, Benson) 46.
.3. sek. 3. Drengjasveit Í.R. 47.
0 sek. (nýtt drengjamet).
Veður í gærkvöldi. var mjög
óhagstætt, stormur og kuldi, og
háði það keppendum mjög. Mót-
ið heldur áfram í kvöld og verð-
ur þá keppt í 400 m. hlaupi,
kúluvarpi, 200 m. hlaupi, há-
stökki, stangarstökki, kriglu-
kasti,, 1500 m. hlaupi og 1000
m. þoðhlaupi. Mótið hefst í
kvöld klukkan 8.30.
FerðaféBag fslauds:
Lagt al stað í ferð lil
norður- og austur-
landsins á morgiin.
P YRSTI FLOKKURINN,
sem ferðast á vegum Ferða-
félags íslands til Norðurlands-
ins á þessu sumri, kom i bæinn
aftur um síðustu helgi, eftir 9
daga ferðalag.
Næsta ferð til Norður og
Austurlandsins hefst á morgun,
og er það 12 daga ferð. Ekið
verður þjóðleiðina norður og
austur, og á þeirri leið allir
merkustu staðir skoðaðir. M. a.
verður farið að Mývatni, Detti-
fossi, Ásbyrgi um Fljótsdals-
hérað og komið að Egilsstöðum,
Hallormsstað og víðar.
SÍÐASTLIÐINN LAUGARDAG um kl. 11 fyrir hádegi
vildi það sviplega slys til um borð í togaranum Skalla-
grími, har sem hann var á veiðum út af Vestfjörðum, að
„vírapolli“ út við borðstokkinn stjórnborðsmegin losnaði
skyndilega upp úr þilfarinu með þeim afleðingum að tveir
skipverjanna biðu bana og tveir aðrir slösuðust alvarlega.
Skipverjarnir, sem fórust
voru Brynjólfur Guðjónsson
frá Eyrarbakka og Óskar Magn
ússon Víðimel 31 Reykjavík.
Brynjólfur Guðjónsson var 31
ára að aldri og lætur hann eftir
sig konu og 1 barn.
Óskar Magnússon var 32 ára,
og lætur hann eftir sig konu og
tvö börn.
Mennirnir, sem slösuðust
heita Gunnar Gissurarson og
Sigursteinn Jónassón og eiga
báðir heima í Reykjavík.
Eins og áður segir var Skalla-
grímur að togveiðum út af Vest
fjörðum á laugardagSmorguninn
þegar slysið vildi til. Voru
menn þeir sem fyrir slysinu
urðu við fiskiaðgerð í kössunum
á fram þilfari, og urðu þeir fyr-
ir „pollanum11 og vírnum þegar
„pollinn“ losnaði.
Strax og slysið vildi til hélt
Skallagrímur inn til Önundarfj.
og þangað stótti flugvél hina
slösuðu menn, og flutti þá til
Reykjavíkur. Er líðan þeirra nú
talin góð eftir atvikum, en
meiðsli þeirra eru þó mikil, eink
um Gunnars Gissurarsonar, sem
hlaut mikinn áverk á höfði.
Síðdegis á sunnudaginn kom
Skallagrímur til Reykjavíkur
með lík hinna tveggja skipverja,
sem fórust í slysinu.
Brynjólfur Guðjónsson
Óskar Magnússon.
Síldiei ér komin:
Fleiri skip m á úlimBm en
m sjd3i aoiir.
: BVfllkil síld fearst á Eand um
i
landi, einkum á
feelgina á NortSur-
MEIRI ÞÁTTTAKA virðist nú ætla að verða í síldveið-
unum en nakkru sinni fyrr. Alls eru nú 245 skip farin
til síldveiða, og eru þau saimanlagt 15691 brúttó rúmlest.
Til samanburðar má geta þess, að í fyrra voru aðeins 167
skip, samltals 6819 brúttó rúmlestir, skráð á síldveiðum. —
Herpinótatala skipa þeirra, sem nú eru farin á sí'ld, er 225,
en var í fyrra 151.
Þess skal getið, að enn getur
bætzt við tölu skipanna, en það
sem að framan segir, er sam-
kvæmt bráðabirgðatölum um
þátttöku í síldveiðunum, sem
blaðið hefur fengið hjá Fiski-
félagi íslands.
Skip þau, sem nú hafa verið
skráð til síldveiða, skiptast
þannig: 236 mótorskip, 13826
brúttó rúmlestir, 8 gufuskip,
1624 brúttó rúmlestir, og í botn
vörpuskip, 241 rúmlest.
Mikill síldarafli var fyrir
Norðurlandi um helgina. Á
Raufarhöfn var landburður af
síld á sunnudaginn og í gær, og
höfðu yfir 30 skip landað þar
um miðjan dag í gær rúmlega
20 þúsund smálestir síldar, en
auk þess biðu nokkur skip þar
löndunar.
Á Siglufirði heíur einnig ver-
ið góð veiði, og lönduðu þar
nokkur skip i gær, bæði hjá
síldarverksmiðjum ríkisins og
hjá Rauðku samtals um 6 þús.
smálestir. Tölvert mikil síld
hefur sézt fyrir Norðurlandi
undanfarna daga, og má segja,
að þetta sé fyrsta síldarhrota
sumarsins, því fram að þessu
hefur lítið veiðzt, qg höfðu fyrir
helgina ekki borizt nema 14952
Skemmtiferð Alþýðu-
flokksfélagsins veslur
á Snæfellsnes
|>áfttftaka tilkyrsnist
fyrir miM
kvöld.
Alþýðuflokksfélaö
REYKJAVÍKUR fer um
næstu helgi skemmtiferð vest-
ur á Snæfellsnes. Alþýðuflokks
félögunum í Keflavík, Hafnar-
firði og á Akranesi hefur og ver
ið boðin þátítaka í ferðinni.
Farið verður til Stykkishólms
og Grundarfjarðar og ekið um
Borgarfjörð á heimleiðinni.
Þátttakendur leggi sér til nesti
og tjöld. Þátttaka tilkynríist,
skrifstofu Alþýðuflokksfélags-,
ins, sími 5020, hið fyrsta og
ekki síðar en á miðvikudags-
kvöld.
Esja komin úr Kaup-
mannahafnarfðrinnl
TJ1 SJA KOM úr Kaupmanna
á hafnarferð sinni upp úr há
deginu í gær. Með skipinu vora
157 farþegar og þeirra á meðai
var Söngfélagið Harpa.
Eins og getið hefur verið hér
í blaðinu söng Harpa á söng-
móti norrænna alþýðukóra, sem
haldið var í Kaupmannahöfn
daganna 30. júní og 1. júlí, og
hlaut söngur kórsins lofsamleg
ummæli í Danmörku.
Lætur kórinn mjög vel af
ferðalaginu og mótökunum, sem
hann fékk í Danmörku.
Um 70 íslendingar
slarfa við Reykja-
víkurflugvöllinn
EINS OG ÁÐUR hefur verið
skýrt frá var Reykjavíkur
flugvöllurinn afhentur íslenzk-
um stjórnarvöldum á laugardag
inn.
íslenzkir starfsmenn við flug
völlinn eru um 70 að tölu, en
auk þeirra starfa við flugvöll-
inn nokkrir brezkir sérfræðing-
ar til að byrja með. Flugvallar-
stjóri er Gunnar Sigurðsson frá.
Akureyri, en framkvæmdastjóri
flugvallarins er Sigfús H. Guð-
mundsson.
NýrbáturlilSúðavíkur.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
ÍSAFIRÐI í gær.
TIL SÚÐAVÍKUR kom £
gær nýr bátur 36 smálest-
ir að stærð. Nefnist báturinn
Sæfari og er eign Andvara h.f.
Báturinn er smiðaður í skipa-
smíðastöð Eggerts Jónssonar,
Innri Njarðvíkum, og er hann
mjög vandaður og hin falleg-
asta fleyta. Báturinn er fullbú-
inn til síldveiða, og verður
Jakob Eliasson skipstjóri á hon-
um.
hektólítrar bræðslusíldar á land
á öllu Norður- og Austurlandi.
Hefur veður og verið óhagstætt;
en í gær og í fyrradag var ein-
muna gott veður fyrir Norðirr-
landi.