Alþýðublaðið - 09.07.1946, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.07.1946, Blaðsíða 3
3 ÝriSjudagur, 9. júl-í 1946. t%L>yD’JFh&r^D Brezkt stórblaS segir: Segir, aS stórkestleg i®gbr©4 @g falsanir DANSKA blaðið ,,Politiken“ birti fyrir nokkrum dögum grein um þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem var látin fara fram á Pól- landi 30. júní, sem höið er eftir fregnritara brezka blaðsins ,,Daily 'Telegrapb“ í Varsjá. í grein þessari er sagt, að úrslit kosninga þess ara verði að teljast marklaus, þar hafi svo gróflega verið brotið gegn öllum lögum um kosningar og víða hafi hrein svik átt sér stað. Geti því niðurstöðutölur kosninga þessara engan veginn talist lýsa skoðunum kjósenda almennt, heldur séu þær í mörgum til- fellum tilbúningur einn eða stórkostlega falsaðar. Fer hér á eftir útdráttur úr grein þessari úr „Politiken.“ Greinin, sem hér um ræðir birtist fyrir nokkru í brezka blaðinu „Daily Telegraph“ og segir þar berum orðum, eins og fyrr getur, að kosningaúrslitin verði að teljast markleysa ein. Meðal annars er þess getið í verði að teljast markleysa ein. grein þessari, að starfsmaður við kosningarnar í Poznan (Pos- en)-héraði, sem nefndur er með nafni hafi veitt því eftirtekt, að úrslitin, er bárust úr nærliggj- andi héruðum, hafi verið skrif- nð rneð sömu hendi. Nánari at- bugun leiddi í ljós, að skipt hafði verið um já- og nei at- Ttvæði. í einu héraðinu fundu drengir nokkrir 20—30 at- kvæðaseðla í snyrtiherbergi einu. Voru seðlarnir sendir til blaðs Mikolajczyks, bændaleið- togans pólska, „Gazeta Ludova“, en þar sáu brezkir blaðamenn þá. Á nær öllum þessum at- kvæðaseðlum hafði verið svarað nei víð spurningunni um það, bvort leggja bæri niður öldunga deild pólska þingsins. Ennfremur er þess getið í •grein þessari, að í annari kjör- deild hafí starfsmaður nokkui við kosningí ar, opnað at- kvæðaumslög, stungið atkvæða seðlunum í vasann, en síðan lát íð auða seðla í stað þeirra, en samkvæmt kosningareglunum, voru þau atkvæði talin já-at- kvæði. Á götu í Varsjá fundust atkvæðaseðlar í rennusteinum. Víða bar svo til, að kjörseðla- kassarnir voru sendir beint til leynilögreglunnar. — Yfirmað ur áróðursdeildar pólska utan-, ríkisráðuneytisins hefur reynt að afsaka sig með því, að víða hafi komið til ofbeldisverka á kjörstað, en tilkynnt er, að hvorki brezkir né amerískir 8 stjórnmálamenn og blaðamenn hafi orðið varið við slík ofbeldis verk. Allt þykir benda til þess, að óbreyttir jkjósendur hafí komið algerlega löglega fram, en það hafi starfsmenn við kosningam ar ekki gert, segir í hinni brezku grein. Mikolajczyk hefur lýst yfir því, að ef úrslitin yrðu gerð heyrinkunn fyrir hvert kjör- dæmi og hverja kjördeild, myndi hann geta sannað, að töl u mhefir verið breytt og þær falsaðar. ¥--——-------------------- frmait og Byrnes vilja !ánveiíi|u ii! Brefa. IJifiræðiir ttm þetla á Bauciarflciaþiiagi í gær EUMAN Bandaríkjafor— -®- seti og Byrnes, utanríkis- málaráðherra Bandaríkjanna, hafa sent þinginu orðsendingu um það, að samþykkja án tafar lánveitingu þá, til Breta, sem nú er til umræðu í þinginu. Samkvæmt brezkum fregnum um þetta mál, var mikill hiti, er málið var rætt í þinginu í gær og lögðust flestir þingmenn gegn því. Einstaka þingmenn, meðal annars fulltrúi Virginíu- ríkis, fylgdi fast fram frumvarp inu um lánveitinguna og minnti þingmenn á, hvern hlut Bretar ættu í sigrinum í styrjöldinni. Sagði hann, að ekki bæri að meta framlag Brcta í stríðinu í dollurum, heldur í blóðdropum. Þeir Truman og Byrnes lögðu áherzlu á það í áskorun sinni til þingsins, að búazt mætti við auknum erfiðleikum í alþjóða- viðskiptum, ef frumvarp þetta næði ekki fram að ganga. Enn ræfi um Palesiínu vandamálið ULLTBÚI BANDABÍKJ- ANNA i umræðunum um Palestínumálið mun koma til London á fimmtudag til við- ræðna við Breta. — Dr. Weiss- mann, aðalleiðtogi Gyðinga í Jerúsalem, mun koma til Lond- on næstu daga til viðræðna þar. Æðsta ráð Araha er sagt hafa birt stjórnum Bretlands og Bandarikjanna orðsendingu, þar sem lýst er yfir því, að ráðið telji, að Bandaríkjamenn hafi akki umboð né leyfi til þess að skipta sér af innanlandsmálum Palestínu í sambandi við Gyð- ingavandamálið. Segir ennfrem- ur, aö ionistar, félagsskapur Gyðingia, vinni að árekstri við Araba með framferði sínu. Óróasamur staður. Mynd þessi er frá Tel Aviv, borginni í Palestinu, sem svo miklar róstur hafa verið í að undanförnu. í þeirri borg var, eins og menn muna, rænt fimm brezkum liðsforingjum fyrir skemmstu í hefndarskyni fyrir fangelsun nokkrsrra Gyðinga. — Breiðgatan á miðri myndinni nefnist Botschild Boulevard. Ekkert 1 em u ffni Molotovs Hann vill ákveSa dagskrá fundarins fyrir- fram og ekkl láfa bann ráða nelnu. -----;—---------- Bevin og Byrnes þveriaka fyrlr slíkl. —......<------- FUNDI hinna f jögurra utanríkismálaráðherra var haldið áfram í París í gær og þá rætt um væntanlega friðar- ráðstefnu. Voru haldnir tveir fundir, sá síðari í húsakynnum franska utanríkismálaráðuneytisins. Samkvæmt síðustu fregnum virðist ekkert samkomulag hafa náðst, aðallega vegna strfni Molotovs, sem lagðist á móti fulltrúum vestur- veldanna, sem vildu ákveða fundarboðun nú þegar, en Moio- tov vildi, að því er fréttaritari brezka útvarpsins segir, hafa eithvert það fyrirkomulag á fundinum, er gert gæti Rússum kleift 'að stöðva framgang mála og fara sínu fram. unni. Lundúnafregnir í gær um fund utanríkismálaráðherranna greindu frá því meðal annars, að fyrst hefðu ráðherrarnir set- ið á fundi í hálfan þriðja tíma, en ekkert samkomulag hefði orðið. Var það einkum vegna þess, að Molotov virðist hafa ætlað, að Bússar gætu ráðið til- högun og dagskrá friðarfundar- ins, sem áður hefur verið ákveð- inn í París 29. þ. m. Utanríkismálaráðherrar Breta og Bandaríkjamanna, Bevin og Bymes, svo og Bidault, utan- rikismálaráðherra Frakka, vildu hins vegar, að strax yrðu send út fundarboð til ríkja þeirra, er þátt ættu að taka í ráðstefnunni, án þess að gengið yrði að skil- yrðum Molotovs, en fréttaritari brezka útvarpsins í París skýrði frá því í gærkveldi, að bersýni- legt væri, að Molotov væri að tefja aðgerðir ráðherrafundar- ins ! 0 liess, að Rússar gætu ráð- ið sem mestu á friðarráðstefn- Seint í gærkveldi bárust svo fregnir um það, að ráðherram- ir væru á fundi fyrir luktum dyrum í híbýlum franska utan- ríkismálaráðuneytisins sam- kvæmt boði Bidaults, en ekkert hafði frétzt um, hvað umræðu- efnið hefði verið, seint í gær- kveldi. Breyftir sðjérnar- hættir á Curacao! BREZKA ÚTVARPIÐ sagði frá því í gærkveldi, að um 12 þúsund manns hefðu verið á fjöldafundi í borginni Willem- stad á Curacao í Vestur-Indíum og krafizt þess, að breytt yrði um stjórnarform á eynni. Var ekki krafizt fulls skilnaðar við Hollendinga, en mikillar breyt- ingar á núverandi stjórnar- háttum. Til sigurflugsýningar í Bandaríkjunum. AÐ var sagt frá því í Limd- únaútvarpinu, að Bretar myndu senda 16 Lancaster< sprengjuflugvélar til jjess taka þátt í sigurflugsýningu, ei ameríski flugherinn efnir til í Los Angeles í byrjun næsta mánaðar. Flugvélar þessar eru úr þeirri! sprengjuflugvélasveit, er þótt geta sér hvað beztan orðstír í styrjöldinni, en flugvélar úr sveit þessari fóru í fjölmargar árásarferðir til Þýzkalands allt frá árinu 1942. Með flugvéiun- um eru um 220 menn, þar með taldir flugmenn og þeir, sem sjá um viðhald og eftirlit vélanna. Iran vil! fá að taka þáff í friðarfundimim TILKYNNT hefur verið í Lo’ndon, að stjórn Iran (Persíu) hafi beint þeim tilmæl- um til stjórna stórveldanna fjögurra, að Iran fengi að sitja friðarráðstefnuna, sem ráðgert er að hefjist í París í lck þessa mánaðar. í orðsendingu sinni leggur iranska stjórnin áherzlu á þann þátt, er Iran hafi átt i því að bandamenn sigruðu Þýzkaland og Ítalíu, og að landið hafi beð- ið verulegt manntjón i styrj- öldinni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.