Alþýðublaðið - 24.07.1946, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 24.07.1946, Qupperneq 2
2 _____________________________ . ' — ' Afgreiðslu inntökubeiðnar Islands i nýja þjóðabanda- lagið frestað í gær. ;lftjanrikismálaiiefiid mæKr nieð sam- þykkt hennar, en breytingartillaga og j dagskrártiflaga komnar fram. SAMEINAÐ ÞING tók til annarrar umræðu á fundi sín- um í gærkvöldi tillöguna til þingsályktunar um inn- tökubeiðni íslands í bandalag hinna sameinuðu þjóða, en við fyrstu umræðu málsins hafði forsætis- og utanríkismálaráð- herra, Ólafur Thórs, haft framsögu, en utanríkismálanefnd því næst fjallað um málið. Utanríkismálanefnd lagði til, að þingsályktunartillagan yrði samþykkt með lítillegri orða- breytingu, og hafði Stefán Jóh. Stefánsson framsögu fyrir hennar hönd á fundinum í gærkvöldi. Miklar umræður urðu um málið. Hannibal Valdimars- son, 3. landkjörinn þingmaður, bar fram breytingartillögu við þingsályktunartillöguna þess efnis, að aðild íslands að bandalagi hinna sameinuðu þjóða verði bundin því skilyriði, að ísland þurfi hvorki að láta í té hernaðarbækistöðvar fyr- ir erlendan herafla né heldur sjálft að taka þátt í neins kon- ar hernaðaraðgerðum gegn öðrum ríkjum, svo og að ríkis- stjórnin krefjist þess, að herlið það, sem enn dvelur í land- inu, hverfi þegar á brott samkvæmt gerðum samningum, ísvo að ísland geti sem alfrjálst ríki gerzt aðili að bandalagi hinna sameinuðu þjóða. Pétur Ottesen, þingmaður Borg- firðinga, bar hins vegar fram dagskrártillögu um að af- greiðslu málsins kyldi frestað til næsta reglulegs alþingis, þar sem þjóðinni hefði ekki gefizt kostur á að kynna sér málið til hlítar. Að framkominni þessari hreytingartillögu og dagskrár- tillögu fór forsætisráðherra þess á leit, að þingfundi yrði frestað um sinn, svo að þingflokkarnir ættu þess kost að ræða málið frekar. Var því næst fundi frestað í eina klukku- stund, en að þeim tíma liðnum tilkynnti forseti, að afgreiðslu málsins yrði frestað þar til í dag. 25 ísl. hjnkfiinarkoiiir sitja nor- rcent hjnkrsnarkfennamót I Oslö. -----——♦-------— t»ær fara ytasi me9 Esjy í dag ©g sitja méiS dagana 4.--8. ágúsf. MEÐAL FARÞEGA, sem fara utan með m. s. Esju í dag eru 25 íslenzkar hjúkrunarkon- ur, og munu þær sitja mót nor- xæna hjúkrunarkvenna, sem háð verður í Oslo daganna 4—8 á- gúst næst komandi. Mótið er haldið á vegum Samvinnunefndar hjúkrunar- kvenna á Norðurlöndum, og sitja það fjórir fulltrúar frá hverju landi, en þeir mætast einnig milli aðalmótanna og undirbúa þau. Af íslans hálfu eru þessir fulltrúar: Sigríður Eiríksdóttir, form. Fél. ísl. hjúkrunarkvenna, Elísabet Guðjohnsen, forstöðu- kona Hvítabandsins, Sigríður Bachmann, kennsluhjúkrunar- kona við Landsspítalann og Bjarney Samúelsdóttir, berkla- varnarhjúkrunarkona við Líkn. Auk fulltrúanna mæta svo á mótinu margar aðrar hjúkrunar konur víðs vegar að af landinu og eru þær alls 25, sem fára ut- an eins og áður segir, og munu þær kynna sér nýjungar í heilsu vernd og sjúkrahúsahjúkrun, á meðan þær dvelja erlendis. Er þetta fyrsta hjúkrunar- kvennamótið, sem haldið hefur verið á Norðurlöndum frá því fyrir stríð, en síðasta mótið var haldið hér á landi árið 1939. Var þá ákveðið að næsta mót skyldi haldið í Oslo 1943, en það hefur ekki getað orðið fyrr en nú. Meðal þess, sem Samvinnu- nefnd hjúkrunarkvenna á Norð- urlöndum beitir sér fyrir, eru skipti á hj úkrunarkonum milli landanna. Þannig eru t. d. 14 danskar hjúkrunarkonur hér á landi og álíka hópur íslenzkra hjúkrunarkvenna dvelur nú í Danmörku og í Svíþjóð. Þá munu og nokkrar þeirra hjúkrunarkvenna er nú fara út dvelja áfram erlendis við fram haldsnám. Skffsf á kveðjum TILEFNI af þjóðhátíðar- JL degi Bandaríkjanna 4. júlí s. 1. sendi forseti íslands forseta Bandaríkjanna heillaóskir sínar og íslenzku þjóðarinnar. For- seti Bandaríkjanna hefur þakk- að kveðjuna. Forseti íslands sendi stjórnar forseta Frakklands, Georges Bidault, heilllaóskir í tilefni af þjóðhátíðardegi Frakka 14. júlí og hefur stjórnarforseti Frakk- lands þakkað kveðjuna. ALÞYÐUBLAÐIÐ Miðvikudagurinn 24. júH 19451 Poal Beumert ” (slenzku íþroita- bvöld i Gamla Bíð á föstud. II. 9s. d. ■ ---—- ■ Hann les upp léikþáttinn „Píiatus“ efir Kaj Munk. HERiRA POUL REUMERT, leikari við Konunglega leik- húsið í Kaupmannahöfn, hefur framsagnarkvöld í Gamla Bíó á föstudaginn kl. 9 síðdegis. Hann les upp leik- þáttinn „Pílatus“ eftir Kaj Mnk. Leikþátt þennan samdi Kaj Munk er hann var 16 ára að aldri, hefur þættinum ekkert verið breytt, frá því er hann lauk við samningu hans þá. Ákveðið er, að leikur þessi verði sýndur í Konunglega leikhúsinu á vetri komanda. Flestum mun kunnugt, að Kaj Munk var aðsópsmesti leikrita- höfundur Dana í seinni tíð, og ef til vill mesta leikritaskáld, sem uppi var á Norðurlöndum síðastliðin ár. Hann tók oft til meðferðar þau mál, sem efst voru á baugi með samtíðar- nönnum, ræddi þau og krufði til mergjar í leikritsformi, komst oft að óvæntum niður- stöðum og var ósmeikur við, þótt nokkur veðraþytur stæði um skoðanir hans. En þrátt fyr- ir einbeitta skoðanatúlkun brást hann aldrei listinni, og eru mörg af leikritum hans þegar talin til sígildra verka á því sviði. Og öllum er kunnugt hvernig æfi hans lauk. Hann þorði ekki að- eins að lifa fyrir skoðanir sínar og það, sem hann áleit sannast og réttast, heldur og að deyja fyrir þær. Um herra Poul Reumert er óþarft að fjölyrða, því öllum borgarbúum mun kunnugt, hví- líkur afburðamaður hann er á sviði leiklistarinnar. Til gam- ans skal þess getið, að þegar hann fyrir nokkrum árum lék sem gestur á einu mest metna leikhúsi í París, var ekki aðeins farið hrósyrðum um leik hans í frönskum blöðum, heldur og í énskum tímaritum, er um slíkar listgréinir fjalla. Þess er og skemmst að minast, að leikur hans í síðustu kvikmynd, sem hann lék í, vakti slíka aðdáuh á Norðurlöndum, að það afrek hans, er hiklaust talið jafnast á við hið bezta, sem unnið hefur verið á þeim vettvangi. Hann er og tvímælalaust bezti upplesari á Norððurlöndum, og má geta þess, að ekki alls fyrir löngu las hann upp í Kaupmannahöfn eitt af leikritum Kaj Munk, „Ric- helieu kardínáli“ og voru öll blöð þar í borg á einu máli um það, að upplestrarkvöldið hefði verið einstædur viðburður. Ekki þarf að efa, af f jölmennt verði á þessu framsagnarkvöldi hans í Gamla Bíó. Reykvíkingar hafa margsinnis sannað það, að þeir láta ekki sumarleyfi né ann ir aftra sér að sækja þangað, sem sönn list er í boði. Dömkis knatfspyrnu- mennirnir farnir héðan Dönsku KNATTSPYRNU- MENNIRNIR ,fóru héðan loftleiðis kl. 8 í gærmorgun. í fyrradag sáu þeir boð hjá for- seta íslands að Bessastöðum, en um kvöldið héldu íslenzkir knattspyrnumenn þeim kveðju samsæti að Garði, og var þar skipzt á gjöfum og margar ræð- ur fluttar. Telpan sem ihvairf frá barnaheimilmu Elliðaárvogi á laugardaginn kom fram á mánudagskvöld. Fannst hún hjá Vifilsstaðavatni Esja leggur af stað iil Kaupmannahafnar á hádegi í dag E SJA FER HÉÐAN áleiðis til Kapmannahafnar um há degi í dag, og er skipið full- skipað farþegum. Á útleið kemur Esja við í Vestmannaeyjum til þess að taka þar farþega. menmrmr, sem á Evrópumeisfaramóf ið æfa að Reykjum í R ÁÐGERT er að átta íslenzk ir íþróttamenn fari á Ev- rópumeistarmótið sem hefst í' Oslo 6. ágúst næstkomandi. Menn þessir eru Finnbjörn. Þorvaldsson ÍR. Gunnar Huseby KR, Jóel Sigurðsson ÍR, Jón Ólafsson UIA, Kjartan Jóhanns son Í.R., Óskar Jónsson Í.R., Oliver Steinn F.H. og Skúli Guðmundsson K.R. Eru íþróttamennirnir nú fam ir norður að Reykjum í Hrúta- firði og munu þeir æfa þar út þennan mánuð. Þjálfari þeirra er sænski íþróttakennarinn Ge- org Bergfors. Auk Oslóarfaranna dveljar nokkrir fleiri íþróttamehn norð- ur á Reykjum, meðal þeirra ent ungir íþróttamenn, sem em að- æfa undir drengjamótið. Skýrsfa Fiskifélags ísíands; Síldaraflino nm helgina orðínn lá- lega helmingi meiri en á sama tfma i fyrra. -------4------- Aflahæsta skipið er Dagný frá Siglufirðt me® §992 mál. O AMKVÆMT SKÝRSLU FISKIFÉLAGS ÍSLANDS ^ var bræðslusíldaraflinn hjá síldarverksmiðjum ríkisins orðinn samtals 427 þúsund hektólítrar á laugardaginn var,. og búið var að salta 8171 tunnu síldar norðanlands. Á sama tíma í fyrra hafði engin síld verið söltuð og bræðslusíldar- aflinn var þá ekki nema 246 þúsund hektólítrar. Sex skip höfðu á laugardag- inn aflað yfir 4000 mál og eru þau þessi: Dagný, Siglufirði, 5992 mál, Fagriklettur, Hafnar- firði, 4695 mál, Snæfell, Akur- eyri, 4447 mál, Friðrik Jónsson, Rvík, 4385 mál. Narfi, Hrísey, 4074 mál og Nanna, Rvík, 4066 mál. Fer hér á eftir afli einstakra skipa í flotanum. Tölurnar tákna mál, nema þær sem eru innan sviga, tákna tunnur í salt: Gufuskip: Alden, Dalvík, 3042. Ármann, Rv., 2779. Bjarki, Ak., 1946. Huginn, Rv., 2777. Jökull, Hf., 1320. Ól. Bjarnason, Akranesi, 2816. Sigríður, Grundarf., 1827. Sindri, Akranesi, 1629. Sæfell, Ve., 2432. Þór, Flatey, 2124. Mótorskip (1 um nót): Aðalbjörg, Akran., 1528. Áls- ey, Ve., 2377. Andey, Hrísey, 2314. Andey (nýja) s. st., 3300. Andvari, Þórshöfn, 1049 (144). Angila, Drangsnesi, 839. Ársæll Sigurðss., Njarðv., 30 (20). Ás- björn, Akran., 883. Ásbjörn, ís., 1527. Ásdís, Hf„ 520. Ásgeir, Rv„ 2467. Auðbjörn. ís., 2181. Austri, Seltj.nesi, 1152. Baldur Ve., 1592. Bangsi, Bolungavík, 498. Bára, Grindavík, 485. Birkir, Eskifirði, 2268v Bjarni, Dalvík, 1981. Bjarni Ólafsson, Keflavík, 1311. Björg, Eskifirði, 1800. Bjöm, Keflavík, 1392, Borgey, Hornaf., 1500. Bragi, Njarðvík, 908. Bris, Ak„ 1292. Dagný, Sigl., 5992. Dóra, Hf.y 423. Draupnir, Neskaupstaðr 728. Dröfn, Neskaupstað, 182T (391). Dux, Keflavík, 748. Dvergur, Sigl., 731. Edda, Hf.,. 1967. Eggert Ólafss., HL, 1542. Egill, Olafsfirði, 1264 (314). Erna, Sigluf., 639, Estef, Ak„ 2041, Fagriklettur, Hf., 4695s. Fanney, Rv„ 1261, Farsælþ Akran., 2585, Fell, Vestm., 1432, Finnbjörn, ís., 240, Fiskaklett- ur Hafnarfirði 4695, Fanney Reykjavík 1261, Farsæll Akra- nesi 2585, Fell Vesmannaeyj. 1432, Finnbjörn ísafirði 240, Fiskaklettur Hafnarfirði 1561, Fram Hafnarfirði 730, Freydís ísafirði 422, Freyfaxi Neskaup- stað 1606, Freyja Reykjavík 3479, Freyja Neskaupstað 930, (145) Friðrik Jónss. Rvík. 4385 (131), Fróði Njarðvík 820, Fylk- ir Akran. 556, Garðar Garði 860 (552), Gautur Akureyri 358 (267), Geir Siglufirði 1179 (228), Geir goði Keflavík 500, Gestur Siglufirði 627, Grótta ísafirði 3333, Grótta Siglufirði 1382 (235), Græðir Ólafsfirði 667, Guðbjörg Hafnarfirði 537, Guðm. Þórðarson Gerðum 1105, Guðný Keflavík 1025, Gullfaxi Neskaupstað 946, Gulltoppur Olafsfirði 244, Gunnbjöm Isa- firði 1578 (343), Gunnvör Siglu- firði 3818 (202), Gylfi Rauðavík 352 (73), Hafbjörn Hafnarfirði Frh. á 7. síSu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.