Alþýðublaðið - 24.07.1946, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 24.07.1946, Qupperneq 3
o J m VM—. A rf!íí'f-EVl Mynd þessi var tekin fyrir skömmu í Trieste, hinni ítölsku borg við Adriahaf, sem mikið hefur verið deilt um að undanförnu. Vilja Júgóslavar fá borgina, en hins vegar vilja ítalir ekki sleppa henni. Á mynd þessari má sjá áflog ungra ítala og Júgóslava. Júgóslavar hafa, undir vernd Titos og Rússa þar með, verið mjög herskáir i garð ítala og sýnt þeim ýmislegan ójöfnuð, eins og fréttir hafa borið með sér. og sex manns forust f ræði Syðinga i Jerúsalem i «1 Afttee forsæfisráSherra Brefa flufti ræðu um" þeifa mál í neðri málsfofunni í gær AÐ ER NÚ UPPLÝST, að uiri 46 manns fórust í ■*■ sprengjuárás Gyðinga í Jerúsalem í fyrradag. Fyrst vár talið að ekki hefðu farizt nema 39 menn, en samjkvæmt .síðustu fregnum frá London í gærkveldi var sagt, að 46 manns hefðu farizt. Flutti Cl'ement R. Attlees forsætisráð- Jherra Breta, ræðu um þetta mál í brezka þinginu í gærdag, og kvað hann þetta tilræði óþokkalegt. Attlee, forsætisráðherra Breta, flutti ræðu í neðri mál- stofu brezka þingsins í gær og gerði hann þar grein fyrir sprengjutilræði því, er Gyðing- ar gerðu í fyrradag í Jerúsalem. Attlee fórust meðal annars orð á þá leið, að sprengjutilræð- íð væri ómannúðlegt, það væri manndráp. Það var tilkynnt í London í gærkveldi, að 27 menn hefðu verið handteknir vegna spreng- íngarinnar, frunaðir um þátt- 4öku i henni. Gyðingaráðið í Palestínu hef- ur lýst yfir sorg sinni yfir þess- um atburði. Sir Alan Cunningham, land- stjóri Breta í Palestinu, er kom- inn aftur til Palestínu, en hann hefur verið í London til við- ræðna við brezku stjórnina Anthony Eden, fyrrverandi ut- anríkismálaráðherra Breta, spurði Attlee að því í gær, hvort vænta mætti svipaðra aðfara i Palestínu. Attlee svaraði þvi til, að brezka stjórnin hefði gert allar ráðstafanir til þess, að slikt gæti ekki endurtekið sig, enda væri lögreglrannsókn inú á döf- inni vegna þessa máls. Yrðu gerðar allar ráðstafanir vegna þessa, og yrði ekki látið við svo búið standa. Gyðinga vera ódrengilegt og Truman, forseti Bandaríkj- anna, lýsti yfir því í gær, að Bandarikjastjórn hefði hina mestu andstyggð á atferli til- ræðismannanna í Jérúsalem. RannsÖknarför lil suðurskaufsins "C1 RÁ Washington berast þær fregnir, að í haust muni Bandaríkjamenn efna til rann- sóknarferðar til suðurskauts- landanna. Fyrirliði leiðangurs þessa verður Norðmaður, Finn Ronne að nafni. Mun leiðangur þessi fara á herskipi, sem flotamálaráðu- neytið leggur til. Finn Ronne, sem mun eiga að stjórna leið- angri þessum, hefur stunað nám í flotaborginn Horten. Annars hefur hann tekið þátL í Suður- pólsleiðangri Byrds aðmíráls á sínum tíma. Faðir Finn Ronne, hafði um 20 ára skeið náið samstarf við Roald Amundsen, hinn kunna heimskautafara Norðmanna, er fórst árið 1928 { flugferð til þess að letia að hinum ítölsku pólförum í loftskipinu „Italia“ er fórst þá. Allsherjarþingfundi sameinuðu þjóðanna freslað AÐ var tilkynnt í Lundúna útvarpinu í gærkveldi, að allsherjarþings hinna samein- uðu þjóða, sem átt að koma sam an 23. september næstkomandi, hefði verið frestað um óákveð- inn tíma. Ekki var þess getið, hvers vegna fundinum var frest að. Hækkandí verðlag í Bandaríkjunuui ÍUNDÚNAFREGNIR í gær- kveldi greindu frá því, að mikil óánægja væri ríkjandi í Bandaríkjunum vegna þess, hve verðlag þar hefur hækkað að undanförnu. Sögðu Lundúna- fregnir í gærkveldi frá því, að verðlag í Bandaríkjunum hefði hækkað upp úr öllu valdi frá því sem verið hefur. Var þess getið í fregninni, að búðarafgreiðslumenn í New York hefðu í hyggju að gera verkfall vegna þessa. Irygve Lie kominn fií Hoskva TRYGVE LIE, aðalritari .hinna sameinuðu þjóða, er kominn til Moskva. Kom hann þangað í fyrradag og tók Molotov, utanríkismála- ráðherva Rússa á móti honum á hlugveili í Moskva. r» imar á .brezkn herstððvaraar. -- ----4---- AÐ hefur nú komið í ljós, að það voru Egyptar, er vörpuðu sprengju inn í samkomuhús Breta í Kairo fyrir skemmstu. Hefir Sidky Pasha, forsætisráðherra Egypta flutt ræðu um þetta mál og harmaði hann í ræðu sinni, að .Egyptar hefðu verið að verki. Sidky Pasha sagði í ræðu sinni, að sér þætti mjög fyrir því, að það skyldi sannast á Egypta, að þeir hefðu verið að verki þarna. Komst hann svo að orði, að menn þessir mættu heita óvinir þjóðarinnar, en ekki landar hans. Sagði hann enn fremur, að slíkar ráðstafanir Egypta, að fara utan við lögin, væri ein- ungis til þess að spilla sambúð Egypta og Breta ,en nú væri verið að semja um mál þessara þjóða, og væru allar horfur á því, að þeir samningar tækjust vel. Brezka stjórnin tekur nú til athugunar uppkast að nýjum brezk-egypzkum sáttmála. Hollandsdroííning flyfur ræðu um ný- lendurnar WILHELMÍNA Hollands drott.ning flutti ræðu í gær og ræddi hún þar nokkuð um málefni nýlendna Hollend- inga, sem mikið hefur verið deilt um að undanförnu, eins og kunngt er. u Sagði drottningin meðal annars i ræðu sinni, að hol- lenzka stjórnin ynni nú að því að endurskoða stjórnarform ný- lendnanna. | UNDÚN AÚT V ARPIÐ í gærkveldi skýrði frá því, að samband indverskra póst- mahná hefði ákveðið að fresta verkfalli því, er ákveðið hafði verið að gera. Setja Bretar nýtt hraSbátsmet! VT ÝLEGA var frá greint f London, að hinn kunni í- þróttamaður Sir Malcolm Camp bell, hafi í hyggju að setja nýtt hraðamet í vélbáti, Hann átti sjálfur gamla metið, sem er um 227 krii. á klukkustund. Campbell hefur sagt í viðtali við blaðamenn, að hann muni nota sama bátinn sem hann setti metið í, en hann mun nota aðr- ar vélar að þessu sinni. Þegar hann setti metið voru í bátnum tvær 1800 hestafla Rolle Royce vélar, en að þessu sinni mun Campbell ætla að nota þrýsti- loftshreyfil og er búizt við, að hann nái miklu meiri hraða en til þessa hefir þekkzt um hrað- báta. Sir Malcolm Campbell er nú um sextugt, en hefur um árabil verið einhver snjallasti kapp- akstursmaður Breta og jafn- framt verið einhver öruggasti hraðbátastjóri Breta. SAMKVÆMT sænska blað- inu „Morgon-Tidningen“ féll nýlega dómur í máli norsks njósnara, kvenmanns nokkurs, Etbel Beltzersen að nafni, er gerzt hafði sek um að upplýsa Quisiingayfirvölin um ferðir Norðmanna yfir landamærin til Sviþjóðar. Var stúlka þessi dæmd í 5 ára fangelsisvist og svipt borgara- legum réttindum í Noregi um tíu ára skeið. Þessii mynd var tekin fyrir skemmstu af Tito marskálki og ein- ræðisherra Júgóslavíu, þar sem hann ber höndina að húfu sinni, er fvlgjendur hans ganga fylktu liði fram hjá honum í Belgrací. í baksýn er minnismerki, sem reist var til minn- ingar um fallna skæruliða í nýafstaðinni styrjöld. Vlðhafnarfcveðja

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.