Alþýðublaðið - 24.07.1946, Síða 7
Miðvikudagttrinu 24. júlí 1944}
ALÞYÐUBLADIÐ
—.—-----------------------♦
Bærinn í dag.
►■■■■■ - ------------------♦
| Næturlæknir er í Læknavarðstof
unni, sírni 5030.
Næturvörður er í Reykjavrkur-
apóteki.
Næturakstur annast B.S.R., sími
1720.
ÚTVAR.PIÐ:
8,30'—8,45 Morgurxútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.20—16.00 Miðdagisútvarp.
19.25 Tónleikar: — Óperusöngvar.
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Bindle" eftir
Herbert Jenkins, III (Páll
Skúlason ritstjóri).
21.00 Capriccio dTtaiien eftir
Tschaikowsky (plötur).
2.1.15 Upplestur: „Þegar blaðamað
urinn 'heimsótti mig“, smá-
saga eftir Mark Twain (Sig-
urður Kristjánisson frá Húsa
vik.
21.40 Þjóðkórinn syngur (plötur).
22.00 Préttir.
Létt Bg.
Ferðaskrifstofan efnir
til 7 ferða í þessari
viku
"O ERÐASKRIFSTOFAN efn-
*■ ir í þessari viku tii sjö
skemmti- og orlofsferða og hefj-
ast fimm þeirra um helgina, á
laugardag og sunnudag, en hin-
ar eru einsdagsferðir og er önn-
ur þeirra farin í dag, en hin verð
ur á morgun.
Ferðirnar verða farnar sem
hér segir:
Miðvikudags eftirmiðdag
verður farið til Kleifarvatns og
Krísuvíkur. Fimmtudag um
Grafninginn til LaUgarvatns.
Laugardag inn í Þórsmörk (viku
dvöl). Væntanlegir þátttakend-
ur tali við skrifstofuna fyrir
fimmtudag. Laugardags eftir-
miðdag verður farið til Þing-
valla og norður í Kaldadal.
Stoppað í Hoffmannaflöt og í
Bolabás. Laugardag kl. 8 hefst*
ferð inn í Dali. fjögra daga ferð.
1. dagur: Kaldidalur — Húsa-
fell — Reykholt — Hreðavatn
— Búðardalur — Ásgarður.
2. dagur: Ásgarður — Sælings-
dalur — Svínadalur — Saur-
bær — Ólafsdalur — Skógar —
Kinnarstaðir. 3. dagur: Kinnar-
staðir — Varmahlíð — Staðar-
fell. 4. dagur: Staðarfell ■—
Hvanneyri — Drangháls —
Hvalfjörður — Reykjavík.
Á sunnudaginn farið til Gull-
foss, Geysis, Skálholt og Laug-
arvatns.
Á sunnudaginn: Ferð austur í
Rangárvallasýslu — Fljótshlíð-
ina — Landeyjar komið við á
helztu stöðum, sem Njálssaga
fjallar um. Sögufróður maður
verðui' með í ferðinni.
Fólk, sem vill taka þátt í þess
um ferðum er mjög eindregið
hvatt til að snúa sér til skrif-
stofunnar sem fyrst, og tilkynna
þáttöku sína með góðum fyrir-
vara.
Ennfremur er fólk, sem
hyggst að taka þátt í ferðum
skrifstofunnar um verzlunar-
mannahelgina og hringferðum
í byrjun ágúst, ráðlagt að snúa
sér til skrifstofunnar mjög fljót-
lega.
Áætlanir og nánari upplýsnig
ar fær fólk á skrifstofunni og í
síma 7390.
Skrifstofan er oþin alla virka
daga frá 9—12 og 13—19,30
nema á laugardögum en þá er
hún opin frá 9—12 og 13—15.
Farþegabifreið velfur
við Gljúfurá.
AÐ SLYS VILDI TIL um
þrjúleytið síðastliðinn laug
ardag, að stór farþegabifreið ók
út af veginum við Gljúfurá í
Borgarfirði. 15—18 af farþeg-
unum slösuðust, en þó enginn
svo, að lífshættulegt sé talið.
Bifreiðin, D. 11 var á leið frá
Reykjavík til Staðarfells, þegar
þetta vildi til. 22 farþegar voru
með bifreiðinni. Þegar bifreiðin
var að nálgast ána, ætlaði bif-
reiðarstjórinn að hemla, enn
komst þá að raun um að fót-
hemlar unnu ekki. Bifreiðin var
þá, að sögn hans á 20 km. hraða.
Hann taldi tvísýnt, að sér tæk-
ist að ná beygjunni að brúnni,
og tók því það tál ráðs, að aka
út af vegarbrúninni, hægra meg
in. Bifreiðin fór eina veltu, rúð-
ur brotnuðu, farþegar hlutu
meiðsl eins og áður er frá sagt,
en eldur kom upp í bifreiðinni.
Með aðstoð símamanna, sem
voru að vinna skammt frá, tókst
að bjarga farþegum úr henni, án
þess að þeir sködduðust af eld-
inum, en farþegaflutningur ó-
nýttist að mestu. Farþegarnir,
sem slösuðust voru fluttir til
Borgarness og þar gert að sár-
um þeirra. Átta farþeganna
urðu þar eftir og komu síðan
suður til Reykjavíkur, en hinir
héldu áfram ferð sinni.
SÍÐASTLIÐINN LAUGAR-
DAG var Sigurjón Ólafs-
son, til heimilis að Bergþóru-
götu 14 hér í bæ, í útreiðarferð
upp í Mosfellssveit, ásamt konu
sinni og fleira fólki. Vildi þá
það slys til, að hann féll af
hesti sínum, og var örendur,
þegar að honum var komið.
Ekki verður talið, að of hröð
ferð hafi getað verið orsök slyss
ins, því samkvæmt frásögn sam-
ferðafólksins, var hægt farið,
þegar það vildi til. Telur rann-
sóknarlögreglan mjög líklegt,
að Sigurjón hafi orðið bráð-
kvaddur, þar eð ekki eru neinir
þeir áverkar sjáanlegir á líkinu,
sem banaorsök geta talist, en þó
kveður hún, að ekhi verði úr
þessu skorið, fyrr en líkkrufn-
ing hefur farið fram.
Sigurjón heitinn var 47 ára
að aidri.
Til Siokkseyringa
helma og heiman
VERIÐ er að láta framkvæma
allmikla viðgerð á Stokks-
eyrarkirkju, sem var orðið mjög
aðkallandi Viðgerð þessi kostar
allverulega pennga, nú er kirkj-
an ekki fjárhagslega vel stæð,
og getur ekki af eiginrammleik
staðið straum af kostnaðinum.
Hefur því forráðamönnum
kirkjunnar komið til hugar að
leita til gamalla og ungra vel-
unnara kirkjunnar, ef vera
kynni, að einhverjir vildu létta
undir kostnaði, og ef svo
skyldi vera, þá hafa þau hr.
Sturlaugur Jónsson, Hafnar-
stræti 15, frú Stefanía Gísla-
dóttir, Hverfisgötu 39 og hr.
Þórður Jónsson, Grettisgötu 17,
góðfúslega lofað að veita slíku
móttöku í Reykjavík fyrir
kirkjunnar hönd og heima á
Stokkseyri hr. Eyþór Eiríksson.
Með fyrirfram þakklæti.
Sóknarnefndin.
Sítdarafli skipanna
Framhald af 2- síðu.
1318, Hafborg Borgarnesi 1625,
Hafdís Reykjavík 561, Hafdís
Hafnarfirði 407, Hafdis ísgfirði
1620, Hagbargur Húsavík 1421,
Hannes Hafstein Dalvík 2156,
Heimaklettur Vestmannaeyj.
2459, Heimir Seltjarnarnesi 972,
Heimir Keflavík 305, Hilmir
Keflavík 317, Hólmsberg Kefla-
vík 1000, Hrafnkell goði Vestm.
668, Hrefna Akranesi 2252,
Hrönn Siglufirði 1292 (163),
Hrönn Sandgerði 1000, Huginn
I ísafirði 2434, Huginn II ísa-
firði 2123, Huginn III ísafirði
2037, Hugrún Bolungavík 1268,
Hulda Keflavík 36, Ingólfur (áð
ur Thurid) Keflavík 2826, Ing-
ólfur Kelfavík 756, ísbjörn ísa-
firði 2123, íslendingur Reykja-
vík 2428, Jakob Reykjavík 619,
Jón Finnss. II Garði 542, Jón
Þorláksson Reykjavík 555, Jök-
ull Vestmannaeyj. 933 (104),
Kári Vestmannaeyj. 2516, Kefl-
víkingur Keflavík 3108 (299),
Keilir Akranesi 1606, Kristjana
Ólafsfirði 1588, Kristján Akur-
eyri 2173, Liv Akureyri 1126,
Magnús Neskaupstað 1644,
Málmey Reykjavík 1197, Már
Reykjavík 816, Minnie Árskóg-
sandi 2086 (152), Muggur Vest-
mannaeyj. 510, Mummi Garði
1137, Nanna Reykjavík 4074,
Narfi Hrísey 4074, Njáll Ólafs-
firði 3276, Nonni Keflavík
1308, Ólafur Magnúss. Kefla-
vík 1078, Olivette Stykkishólmi
450, Otto Akureyri 840, Ragnar
Siflufirði 2542, Reykjaröst
Keflavík 1946, Richard ísafirði
1459, Rifsnes Reykjavík 3614,
Sidon Vestmannaeyj. 390, Siglu
nes Siglufirði 2698, Sigurfari
Akranesi 1530, Síldin Hafnar-
firði 1840, Sjöfn Akranesi 1140,
Sjöfn Vestmannaeyj. 1043 (277),
Sjöstjarnan Vestmannaeyj. 585,
Skaftfellingur Vestmannaeyj.
1605, Skálafell Reykjavík 1626
(91), Skiðblaðnir Þingeyri 2331
(179), Skíði Reykjavík 1002,
Skógafoss Vestmannaeyj. 1008
(132), Skrúður Fáskrúðsfirði
382, Sleipnir Neskaupstað 2322,
Snorri Siglufirði 440, Snæfell
Akureyri 4447, Stella Neskaup-
stað 810 (440), Suðri Flateyri
1144, Súlan Akureyri 1004,
Svanur Reykjavík 806, Svanur
Akranesi 1062, Sæbjörn ísafirði
944, Sædis (áður Rúna) Akur-
.yri 1885, Sæfinnur, Akureyri
1564, Sæhrímnir Þingeyri 2269,
Sæmundur Sauðárkróki 1342
(809), Særún Siglufirði 878
(291), Sævar Neskaupstað 1344,
Trausti Gerðum 920, Valbjörn
Ísafirði 1141, Vísir Keflavík
2035 (149), Vébjörn ísafirði
2727, Vonin II Vestmannaeyj.
1084 (19), Vonin Neskaupstað
1366, Vöggur Njarðvík 724, Þor-
steinn Reykjavík 998, Þorsteinn
Dalvík 498 (116).
Mótorbátar (2 um nót):
Anvari—Sæfari 159 (37), Ár-
sæll—-Týr 939 (254), Ásbjörg—
Auðbjörg 852 (259), Barðinn—
Pétur Jónsson 888 (146), Björn
Jörundsson—Leifur Eiríksson
1317 (315), Bragi—Einar Þver-
æingúr 199, Egill Skallagríms-
son—Víkingur 1038, Freyja—
Svanur 358, Frigg—Guðmund-
ur 913, Fylkir—Grettir 515 (83)
Gullveig—Hilmir 758, Gpnnar
Páls—Vestri 602 (439), Gyllir
—Sægeir 24 (124), Helgi Há-
varðsson—Pálmar 313, Hilmir
—Kristján Jónsson 1137, Hilm-
ir—Villi 423 (126), Jón Finns-
son—Víðir 751, Jón Guðmunds-
son—Hilmir 180, Jörundr
Bjarnason—Skálaberg 348,
Milly—Þormóður rammi 482,
Róbert Dan—Stuðlafoss 538,
Færeysk skip:
Bodasteinur 1653, Fugloy 206,
Grundick 367,. Kyrjasteinur
2570, Lt. Verines 644, Mjóanes
2525, Suderoy 224, Svinoy 496,
Von 804.
; Félagslff.
FRAMARAR!
Handknattleiksæfing kvenna
í kvöld kl. 8.
FARFUGLAR!
Um næstu helgi verður farið
í Þórisdal og gengið á Þórisjök-
ul (1350 m). Þórsmerkurfarar,
sem ætla iað dvelja á vegum
Farfugla í Þórsmörk næstu
viku, eru beðnir að mæta í skrif
stofunni í kvöld kl. 9 og þeir,
sem ekki hafa tekið farmiða
sína i þessa ferð, eru beðnir að
taka þá í kvöld. Enn eru nokkur
sæti laus í Þórsmerkurferðina
um næstu helgi. Upplýsingar í
I skrifstofunni í Iðnskólanum kl.
i 8—10 i kvöld.
I Stjórnin.
Teppahreiiisarar
ný tegund.
Verzl. N 0 V A.
Barónsstíg 27.
Sími 4519.
fhrifstofustúlha
óskast 1. ágúst n. k.
Bifreí$asfö@
Steindórs.
Vfðtal við Franz Neumann
Frh af 5 síðu.
og svipist um, er þar enga lif-
andi veru að sjá, að undantekn-
■uim tötraliegunu Berlínaribúum,
sem laumast að jeppanum og
hvísla hásum rómi: — „Vill
náðug frúin kaupa úr, ljós-
myndavél, 1 j ósmyndaþynnu ?
Getur náðug frúin selit nokkra
vindling.a?“ Þá nær hin evróp-
iska auðn þeim óhugnanlegu
tökum á manni, sem seintt monu
hverfa að áhrifum.
Franz Neum'ann er einn af
þessum dökkeygðu og þrórt-
miklu Þjóðverjum, sém talar
hægt, og ber í allri framkomu
vi.tni uim skapstyrk og sjálfs-
aga, er hann í fám orðum skýr-
ir frá, með hvaða hætti flokks-
bræðrum hans tókst að koma í
veg fyrir, að Rússarnir fengju
vilja sínum að ölllu Iieyti fram-
gengt í viðskipitum sínum við
þýzka jafnaðarmenn.
„Fyrir fráhvarf Grotewohls
vort: jafnaðarmennirnir í Berlín
m 66000 talsins. Nú teljum
50,000 í vesturhverifunum,
og blað okkar, „Der Social-
Demokrat“ er eina blaðið, sem
hefur hlotið stjórnmálaliega viö-
urkenningu á hernáimissvæðun-
um þar, því öll þau blöð önn-
ur, er þar koma út, hafa aðeins
hlotið persónubundna viður-
kenningu. Á flokksráðsfundi, er
háður var í marzmánuði, var
sitefnan mörkuð. Grotewohl
barðist fyrir sameiningu í 2ja
klukk'ustunda ræðu, en ég svar-
aði með 25 mínútna ræðu. Við
atkvæðagreiðslu, sem síðan fór
fram á öllum hernámBsvæðum
borgarinnar nema þeim rúss-
nesku, greiddu 82% flokksmeð-
lima stefnu minni jáyrði. Því
næst gengum við úr tengslum
1 við hina og tókum að starfa
| sjálfstætt“.
Neumann talar hægt og
nefnir aðeins opiuberar stað-
reyndar. Hann minnist ekki á
moldvörpustarfsemi kommún-
ista fyrir friðslátin, né undir-
róður Rússa, sem með loforðum
og hótunum reyndu að hafa á-
hrif á 'koisningarnar. Og ekki
minnist hann heldur á þá
sbefjalausu yfirlýsi.n,gu' komm-
únista, að aillir þeir, sem ekki
greiddu atkvæði, 'skildu teljast
með sam'einingunni, eða það, að
hann og þeir, sem honum fylgdu,
voru öfiu fremur reknir úr
flokksráðinu, heldur en að þeir
segðu sig úr því. En hann tek-
ur skýrt til orða, er hann ræðir
núverandi starfsviðhorf flokks-
ins.
Við erum nú sterkur flokkur
í Berlín, viðurkenndur af eftir-
litsráði bandamanna. Við kref j-
uimist þess, að jafnaðarmanna-
flokknumi verði og leyft að
stairfa á rússneska hernáms-
svæðinu. Eg hef nýskeð borið
þær kröfur fram við hernáms-
ráð Rússa, að þeir viðurbenndu
deildarforystumenn í áítta starfs
svæðurn, en þeir neituðu og
báru fram' þá gagntillöigu, að
þeir fengju í hendur lista með
nöfnurn 5—6 manna í hverri
deild, sem þeir gætu svo valið
úr, eða öllu heldur ráðið vaili á.
Því neitaði ég, og við það situr
enn, en við höfum ákveðið að
neita allrar orku, til þess að
geta hafið raunverulegt starf á
hemámssvæði þeirra. Kosning-
ar fara fram í hau'st. Við verð-
um að skipuleggja kosningahar-
áttu okkar nú þegar, ef um
raunverulegt kosningafrelsi
verður þar að ræða.
Síimán.n á skrifborði Neu-
mannis hri.ngir. RúsS'neski yfir-
maðurinn á hernámssvæði
þéirra, æskir þess, að Neumann
tali við hann. Og ég minnist
þess, að Neumann sagði mér
frá því, er Rússar handtóku
hann og höfðu 'hann í haldi
hálfa nótt, fyrir það eitt, að
hann tók þátt í fundi. trúnaðar-
ráðs jaf'naðarmian.na í Prentz-
lauer Bern á rússneska her-
námsisvæðinu. Sjlalífur segir
hann:
Við erum eyvirki á hernáms-
svæði Rússa, og miki.ð er undir
vörn okkar þar kiomið. Enn
hölfum við haldið virkinu, og ég
vona, að okfcur takizt það
framvegis. Missum við það, er
yonlaust um viðgang og vörn
jafn.aðarmanna og lýðræðis, —
bæði í Þýzkalandi og annars
staðar í Evrópu. Að minnsta
kosti álítum við, að þá mundi
vonlaust aam lýðræðislega endur
reisn Þýzikalands.
Bifreið stolið
ASUNNUDAGSNÓTT var
bifreiðinni RE 77, eign Eyj-
ólfs Jóhannssonar, framkv.stj.,
stolið, og ekið utan í steinvegg,
svo að hún stórskemmdist
Seytján ára unglingur undir
áhrifum víns var sá, er verkið
vann.
np VEIR bifreiðastjórar voru
teknir fastir um helgina
fyrir að aka undir áhrifum á-
fengis.
Annar þeirra ók bifreið utan
í hús á Bræðraborgarstígnum,
en hinn ók bifreið út af vegi
inn í Kleppsholti.
Þá ók bifreið á ljóskerastaur
við Skólavörðustíginn, og er tal-
ið, að bifreiðarstjórinn muni
hafa verið ölvaður, en hann ná&*
ist ekki.