Alþýðublaðið - 21.08.1946, Side 4

Alþýðublaðið - 21.08.1946, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 21. ágúst 1946 4 |U|>(|DnblaMd Útgefandi: Alþýðuflokkurinn Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Símar: Ritstjórn: 4901 og 4902. Afgreiðsla og auglýsingar: 4900 og 4906. Aðsetur . í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Verð í lausasölu: 40 aurar. Sett í Alþýðuprentsmiðjunni Prentað í Félagsprentsm. ♦—----------------------❖ Flugið SVIFFLUGFÉLAG ÍS- LANDS efndi til mikillar flugsýningar á Reyk.iavikur- flugvellinum siðast liðinn sunnudag, og sótti hana fjöldi manns. Var sýning þessi haldin i tilefni af tiu ára afmæli félagsihs, en það hefur haldið hér uppi merkri starfsemi og átt góðan þátt ’í þvi að vekja áhuga manna fyrir fluglistinni og mennta og þjálfa unga menn i henni. íslendingar hafa getið sér mikinn orðstir sem fiskveiða- og siglingaþjóð. Atvinnu- hættir þjóðarinnar, lega lands ins og framtakssöm og stór- huga sjómannastétt hafa valdið þeirri þróun íslenzks þjóðlífs, að sjávarútvegur- inn hefur orðið aðalatvinnu- vegur íslendinga. íslenzkur •sjávarútvegur mun enn taka stórfelldum framfþrum, og á sviði siglinganna munu ís- lendingar láta mjög til sín taka í framtíðinni. En jafn- tframt mun hið nýja farar- ■tæki, flugvélin, verða tekin i æ meiri notkun og valda tímamótum i sögu íslenzkra samgangna. ísland liggur á krossgöt- *um á flugöld þeirri sem nú er runnin upp. Það mun verða áningarstaður flugvél- anna, sem leggja leiðir sinar tnifci Ihins gamla þg nýja heims. En þessi aðstaða ís- Œands mun jafnframt verða þjóðinni hvöt þess að takast á hendur forustuhlutverk á vettvangi flugsamgangnanna. Þess veg'na ber að þakka starf þeirra manna, er gerð- »ust frumherjar fluglistarinn ar með þjóð okkar, vöktu á- huga fyrir henni og veittu ungum mönnum kost þess æáms og þéirrar þjálfunar, er hún krefur. Það er vissulega ástæða til þess að ætla, að íslend- ingar muni í ' framtiðinni verða athafnasamir frömuð- ir samganganna, annars veg ar um höfin græn, hins vegar *um loftin blá. íslendingar munu leggja áherzlu á að koma sér^upp miklum skipa- stól til þess að geta orðið atkvæðamikil fiskveiða- og siglingaþjóð. Jafnframt munu þeir efna til þeirra fram-. kvæmda, sem nauðsynlegar eru hverri þeirri þjóð, sem hyggst hafa forustu á sviði l’lugsamgangnanna. Undir- búningur þessa er hafinn. Og enginn efast um, að þjóðin hafi áhuga fyrir þessari þró- un málanna, sér í lagi unga fólkið’í landinu. Flugsýningin j á sunnudaginn færði mönn-1 íslendingar, sem vildu selja Unga fólkið — óvitar. — Æskulýðurinn og flugið Drepið á vandamál. — Hálfýrði eru hættuleg. — 20—40 tonna, eru vinsamlegast beðnir að FYRIR MÖRGUM ÁRUM las ég erlenda bók, sem liét „Æsku- lýður í neyð“. Hér var ekki ver- ið að ræða um atvinnulausan æskulýð eða ungt fólk, sem þurfti neitt sérstaklega að bera kvíðboga fyrir afkomu sinni, það var verið að ræða um unga fólkið sem ekki veit sitt rjúk- andi ráð, piltana og stúlkurnar á aldrinmn 14—18 ára. Ég minntist þessarar bókar þegar ég las í gærmorgun greinarkorn í Morgunblaðinu, þar sem talað var um nauðsvn þess að komið væri upp upplýsingastofnun fyr ir ungt fólk. Þetta greinarkorn er gott svo langt sem það nær. Hér er drepið á málefni, sem mikil nauðsyn er að veita at- hygli og ráða fram úr. ÞAÐ MÁ EKKI tala um þessi mál með hálfyrðum; þó að þau séu viðkæm. Við tölum oft u.m óvita og eigum þá venju-lega við ómálga börn. En mér finnst oft sem mestu óvitarnir séu ung- lingarnir á kynþroskaaldri. Litlu börnin fara sér ekki að voða,• enda koma þau til okkar með áhyggjur sínar og við ráð- um fram úr þeim. Unglingurinn á kynþroskaaildri kemur ekki til okkar með áhyggjur sínar. Hann þykist RefnMega vita alla skap- aða hluti betur en eldra fólkið og leitar sízt af ölilu til skyld- menna sinna þó að eitthvað bjáti á. Mér sýnist sem þetta séu mestu óvitarnir og þeir fara sér oftast að voða. LÍKAMI ÞEIR-RA er í upp- námi, styrkurinn er mikill, lífs- gleðin eins og gos, en höfudið hefur ékki páð því valdi sem því ber. Ég hef séð litla stúlku- kjána 14—18 ára, sem auðveH er að brosa að, en bera um leið kvíðboga fyrir að þá og þegar stígi þær út af brúnni, sem þær fara dansandi um í ærslum og steypist á hlöfuðið út í hrigiðuna. Ég hef séð pilta á sama aldri ólm ast vilta og yitilausa og sýnast allir vegir færir, en ærslin verða að voða fyrir þá •— og svo líta þeir undrandi í kringum sig eft- ir ærslin — og vita ekki sitt rjúkandi rcáð. ÞAU FÓRU í FERÐALAG, þátttakendur í stóru hópferða- lagi. ílann var rúmlega 16 ára og hún 15. Þau voru saman. Þau sungu og lé'ku á gítar í skógar- rjóðri og það var sungið og spil- að og hlegið og flogist á fyrir utan tjaldið um langa bjarta nótt. Áflogin voru svo dásam- leg. — Svo leiddust þau upp í fjall cg komu heim í tjaldið um leið og bændurnir vo^u að fara á teiginn. Nokkrum vikum síðar grét hún nótt og dag. Faðir hennar ávitaði hana hörðum orðum, móðir hennar grét og barmaði sér. Hún gat ekki ver- ið með leiksystkinum sínum. Hann var þunglyndur. Heimili um heim sanninn um það, að íslandingar hafa ekki síð ur hug á því að geta sér frægð á sviði flugsamgangn- anna en við fiskveiðar og siglingar. Þessi tvíþætta þró hans 'komst á annan endann. Bjarta sumarnóttin, æskugleð- inn — allt það sem virzt hafði svo dásamlegt færði þeim kvöl, sem þau urðu 'bæði að bera. Hún skyggði upp frá því á allt líf þeirra. ! snúa sér til okkar. Skipa- og umboðssalan Norðragötu, Föroyar. Telegr. adr. Glæman. HYERNIG Á AÐ HJÁLPA þessum æskulýð? Hann er í neyð, þó að hann viti ekki af því. Þessir unglingar eru hinar raunverulegu óvitar, sem fara sér að voða. Djarfmæli fore'ldra strax í upphafi um 'þessi vanda- mál eru nauðsynleg, en þau nægja ekki. Einhvers konar i stofnun þarf að koma til. Til hennar eiga unglingarnir að geta leitað bréflega og án þess að eiga nokkuð á hættu, því að það er tómt mál að ætlast til þess’, að þessir unglingar komi beint fram. Opinber fræðsla í kennslubókum mun áreiðan- lega reynast bezt. Það sagði bókin sem ég las, foókin, sem skrifuð "var af miklum mann- vini og hét ,,Æskulýður í neyð.“ SÍÐASTI SUNNUDAGUR var flugdagur hér í Reykjavík. Hann sýndi okkur þann stór- kostlega gróður, sem nú er í ís- lenzku þjóðlífi: Flugtæknin hef- ur ’gripið hundruð íslenzkra æiSkumanna og það er mjög gott. í fyrstunni er þetta íþrótt fyrir unga fólkið, sv*o er flugið gert að atvinnugrein. Flugið hefur jafnvel rneiri þýðingu fyrir okk- ur ísilendinga en flestar aðrar þjóðir. Landið okkar er svo stórt og strjálbýlt. Hér þurfa að komast á fullkomnar flugsam- göngur um land allt. Landið okkar liggur svo afskekkt. Hér þurfa að komast upp fullkomnar fiugsamgöngur til annara landa." FYRIR MÖRGUM ÁRUM vildu allir smástrákar verða bif- reiðastjórar. Nú segjast allir smáistrákar vilja verða flug- menn. Þetta er gott. Æskulýður- inn er gagntekinn af fluginu. Ég hugsa líka að ísiendingar rnuni reynast góðir og djarfir flug- menn, því að yfirleitt erum við ákaflega djarfir. f fluginu liggur framtíðin fyrir okkur hvað snertir samgöngurnar. Við verð- ur að koma upp lendingarstöðv- um sem allra víðast umJandið. Heill ungu mönnunum sem ið'ka flug. Þeir eru að vinna fyrir framtíðina. Hannes á horninu. I GOTT E3 Gðp EIGN Guðl. Gislason ÚRVMIÐUR ÚAUGAV. 6S I un mun fylgj.ast að. Þá fær íslenzka þjóðin í framtíðinni notið þess að byggja land, sem liggur á krossgötum og býr yfir stórfelldum mögu- leikum. VÍSIR í fyrradag flytur forustugrein, er nefnist „Póli tískir mannasiðir“ og fjallar um skrif Þjóðviljans í tilefni af viðdvöl sendimanns Banda ríkjastjórnar hér á landi. Þar segir. „Það er fyrir lcngu kunnugt alþjóð, að kommúnistar kunna enga mannasiði í opinberu1 lífi. . Ruddaskapur þeirra og ósæmi- leg framkoma í ræðu óg riti gengur svo langt að furðu sætir og virðist svo sem menn þessir telji sig ékki bundna við neinar almennar siðareglur í íram- komu sinni við aðra menn. Þó færist skörin upþ í bekk- inn í leiðara Þjóðviljans á föstu- dag, sem er með þessari fyrir- sögn: ,,Hvað eru áhrifamenn Sjálfstæðisflokksins að gera á leynifundum með Cumming?-" Er í grein þessari ráðis á mjiöig ósiðlegan hátt að einum embætt- ismanni Bandaríkjanna, sem hér er staddur um þesisar mundir, og gefið í skyn, að hann sé hing- að kominn til að ,,kaupa“ landið, og að áhrifamenn úr Sjálfstæð- isflokknum, sem Þjóðviljinn setið á ráðstefnum með þessum ameríska embættismanni.“ Enn segir Vísir: ,,Ef tekið væri mark á mál- gagni kommúnisla, gætu slíkar greinar. sem þessi unnið íslenzku þjóðinni óbætanlegt tjón með því að koma henni út úr húsi hjá vinveittum stórþjóðum og skapa henni erfiðleika á alþjóða v-ettvangi. Hér er á ferðalagi mikils virlur maður í utanríkis- þjónustu Bandaríkjanna, sem hefur með höndum mál Norður- landa í utanríkisráðuneytinu. Þessi maður f-er oft í kynnisferð- ir til Norðurlanda til þess að kynnast persónulega málefnum þessara landa. Nú kemur hann í fyrsta sinn til íslands til þ-ess w að ikynnast hér mörinum og mál- efnum, en þá sýnir blað komm- únistanna þá „háttvísi" að skrifa um komu hans með ósæmileg- um dylgjum og algerum skorti á alménnri kurteisi. Þessi embætt ismaður er góður gestur. Hann er miRill vinur íslands og hefur sý.nt það á ófriðarárunum með drenigilegum stuðningi á ýmsan hátt, sem ekki verður fullþakk- að.“ Og ennfremur segir Vísir að lokum: ,,Það er ekki nýtt þó komm- únistarnir reyni að svívirða sjálfstæðismenn á ýmsan hátt í sambaridi við herstöðvamálið og beri þeim á brýn að þeir sitji á isvikráðum við land sitt og þjóð. En sú málafærsla kommúnist- anna, sem hér hefur verið gerð að umræðuefni, er svo alvar- legt eðlis, að það hlýtijr að verða krafa allra sjálfstæismanna, að flokksstjórnin ta'ki nú þegar til athugunar hvort flokkurinn geti sóma síní vegna verið lengur í sam'vinnu við slíka menn'. Er vansæmandi ef þeir halda á- fram sama háttalagi og þeir hafa gert til þessa. Framkoma þeirra öll er óbein árás á þann ráð- herra sem fer með utanríkismál in og sýnir óheilindi þeirra í samvinnu. Starf þess ráðherra, sem fer með viðkvæmustu mál- in, er beinlínis gert tortryggilegt með slikum skrifum meðan kommúnistar taka þátt í ríkis- stjórn. Ef þeir vilja hafa leyfi til að skrifa um utanríkismál landsins á siðlausan og dólgsleg'- an hátt, þá ættu þeir áð minnsta kosti að sýna þá smekkvísi að draga ráðherra sína úr ríkis- stjórninni. En hætt er við að nokkur bið kunni að verða á slíku, þar sem kommúniistar vita, sem er að meðan ráðherr- um kommúnista er haildið í rík- isstjórninni er jafnframt haldið lífi í flokki þeirra en, lengur ekki.“ Það er ekki að furða, þótt Sjálfstæðismönnum blöskri sú hógvarð, sem fram kemur í því, að kommúnistum skuli haldast uppi að ráðast svo að segja daglega á ríkis- stjórn, sem þei.r eiga tvo ráð- herra í, en þá sér í lagi for- sætis- og utanríkismálaráð- herra, án þess að það verði til efni til neinna eftirmála. Droltningln fer í DRONNING Alexaudrine leggur af stað frá Eeykja- vík .kl. 8 í kvöld áieiðis til Færeyja og Kaupmannahafn ar. Skiuið er fullskipað far- pegum út.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.