Alþýðublaðið - 21.08.1946, Blaðsíða 5
Miðvikudaguí 21. ágúst 1946
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
Hampden Jackson:
EFTIRFABANDI GREIN, sem er þýdd upp úr
Iiinu ágæta brezka tímariti „The Contemporary
Review“, lýsir vandamálum þeim og erffðleikum, sem
Finnar eiga nú við að stríða undir fargi hinna rúss-
nesku vopnalilésskilmála og við stöðuga íhlutun hins
volduga nágrannastórveldis.
AF ÖLLUM þeim löndum,
sem Rússar lögðu uridir sig,
var Finnland eina raunveru-
lega lýðræðisríkið, eina rík-
ið, sem hélt stöðugri tryggð
við hugsjónir og vénjur vest
rænnar menningar. Stjórnar
farsléga, fjárhagslega og
menningarlega var Finnland
fjarskyldara Sovétríkjunum
en nokkurt ’annað grann-
ríki þeirra. Ef til vill á þessi
staðreynd sök á hinum mikla
mismun, sem er á stefnu
Rússa gagnvart Finnum og
öðrum sigruðum nágranna-
ríkjum þeirra. En hvað sem
öllum skýringum líður, er
mismunurinn furðanlega
mikill. Rússar hafa aldrei
hernumið Finnland. Hinar fá
mennu rússnesku hersveitir,
sem í dag eru á finnskri
grund, eru vel siðaðar og
hafa sig litið i frammi. Finn
ar hafa ekki orðið að þola
hinar svæsnari tegundir rúss
nesks áróðurs. Þar fyrirfinn
ast hvorki áróðursspjöld, rúss
neskir fánar né vígorð á hús-
veggjum, og Rússar þeir,
sem sendir eru til Finnlands,
eru fremur söngvarar og
dansmeyjar en stjórnmála-
erindrekar. Finnsku kosning
arnar eftir vopnahléið voru
frjálsar i samanburði við
kosningar annars staðar i
Austur-Evrópu. Rússar létu
þær á yfirborðinu afskipta-
lausar, nema hvað þeir bann
færðu tylft frambjóðenda og
gáfu' í skyn, að kjör nýrra
manna væri bezta leiðin til
að sýna vinsamlega afstöðu
Finna. Þótt blöðin séu háð
finnskri ritskeðun, sem sting
ur undir stól gagnrýni í garð
Rússa, eru þau að öðru leyti
frjáls, og fylgir hvert biað
sinni stjórnmálastefnu, svo
sem verið hefur. Fræðslumál
in hafa ekki orðið fyrir
neirini íhlutun, og umbætur
þær, sem gerðar hafa verið
á þeim málum í Finnlandi
eftir stríðið, eru að vestrænni
fyrirmynd. Enskukennsla hef
ur t. d. jafnt og þétt verið
aukin í sliólunum. Ferðalang
ur i Finnlandi i dag gæti
ímyndað sér, að hann væri í
frjálsu, en fátæku landi, i
þúsund mílna fjarlægð fra
Sovétríkjunum.
Fátæktin er áberandi, ea
ekki skelfileg. Matur er ai'
skornum skammti, en dreif-
ingu hans vel fyrir komið.
Skömmtun feitmetis,' sykurs
og kjöts er naum, borið sam-
á'ri við brezku skömmtunina.
(Mánaðarkjötskammtur næg
ir til einnar góðrar máltið-
ar). Te, kaffi eða kakó er
ekki til, og ekki heldur ald-
inmauk, kökur eða sætindi.
Egg og fiskmeti, sem nú er
ekki lengur skammtað, er
rnjög dýrt. Hveitibrauð er
erfitt að ná í, en rúgbrauðs-
skammturinn er nokkurn
veginn fullnægjandi. Fóikið
er magurt og svangt, en þó
liggur hvergi nærri við fuil-
komnu hungri. Ungbarna-
dauðinn er Íítill, og heilsu-
fari barna hefur ekki hrakað
alvarlega. Lundúnabúar virð
ast ótrúlega vel klæddir í
samanburði við ibúa Hels-
ingjafoss, þar sem leðursói-
aðir skór og alullgrföt eru fá
gæt. En útlit fólksins er þó
alls ekki hneykslanlegt. Þjóð
arstolt þess býður þvi að
klæðast vandlegar og jafn-
vel hreinlegar en nokkru
sinni fyrr. Fljótt á litið virð-
ist andrúmsloftið vera sem i
frjálsu landi, þar sem fólkið
kýs sér sjáíft störf og félags-
skap og segir hug sinn allan.
Eftir þvi að dæma, hve viða
verður nú vart einlægrar
samúðar i garð Breta, mætti
ætla, að Bretar hefðu frels-
að Finna, i stað þess að þeir
voru i hópi sigurvegara
þeirra.
í raun og veru voru það
auðvitað Rússar, sem sigruðu
Finna. Afskipti jRússa' af mái-
um Finna hafa verið með
þrennu móti eftir sigurinn.
I fyrsta lagi hafa þeir lagt
undir sig finnsk lönd, i öðru
lagi heimtað skaðabætur, og
i þriðja lagi haft i frammi
nokkra óbeina pólitiska ihlut
un. Af þessu þrennu er land-
ránið ekki tilfinnanlegast.
Með því að taka Petsamo,
útilokuðu Rússar Finna frá
siglingaleiðinni um íshafið.
Með því að taka Porkkala-
skaga leigunámi náðu þeir
í herstöð i grennd við höfuð-
borg Finnlands og skáru á
járnbrautina milli tveggja
helztu borga iandsins. Með
töku Kyrjálahéraðs hlutu
þeir Viborg, skáru á Saimaa-
skurðinn, sem var aðalslag-
æð finnsks timburiðnaðar,
rændu Fin:na landi, sem hafði
gefið af sér 12% af korni
þeirra og kjöti, og ráku
tíunda hluta finnsku þjóðar-
innar frá heimilum sínum til
nýs landnáms i öðrum héruð
um Finnlands. Ef vopnahlés-
skilmálarnir frá september
1944 hefðu verið einskorðað-
ir við þetta, hefði Finnlandi
ekki verið unnið mjög mikið
tjón. Kyrjálabúar vildu held
ur yfirgefa heimiii siin éri
vera kyrrir i landi þvi, er
verða skyidi rússneskt. Þeim
er fengið jarðnæði i öðrum
héruðum með því að skipta
jörðum og ryðja nýtt land.
Húsnæði hefur þeim verið
útvegað í borgunum með hús
næðisskömmtun: eitt her-
bergi á manin í sambygging-
um og öðrum húsum i borg-
um og bæjum. Erfiðleikarn-
ir, sem af þessu hljótast,
mundu aðeins hafa orðið-um
stundarsakir, og. finnska þjóð
in sem heild hefði staðizt
þá.
Skaðabótakröfurnar eru
miklu alvariegra mái. *Upp-
hæðin er geysimikil: 300
milljónir dala (1950 milljcn
ir króna) sem greiðast skuiu
fyrir septemberlok 1952, Sið
ara ákvæði þar sem þess er
krafizt, að skaðabæturnar
skuli greiðasf i vörum, sem
metnar eru um það bil sam-
kvæmt v-erðlagi ársins 1938,
veldur þvi, að skuldafjárhæð
in tvöfaldast. Nokkra hug-
mynd um, hverjar afleiðing-
ar skaðabótagreiðslur þessar
hafa fyrir Finna, má veita
•rneð því að skýra frá, að upp
hæðin er 23/é sinnum meiri
en andvirði ársuppskerunn-
ar eða jafngildi allra skipa,
járnbrautarvagna, eimreiða,
vörubifreiða og lifandi bú-
peniings í Finnlandi eða í
þriðja lagi jafnvirði 6 millj.
timbureininga. Þetta sam-
svarar fimmta hluta allra
þjóðarteknanna fyrstu tvö j
árin og tíunda hluta þeirra
siðari árin. Skaðabæturnar,
sem Þjóðverjum var gert að
greiða eftir heimsstyrjöldina
1914—’18, voru aldrei meira
en 4% af þjóðartekjum
þeirra.
En þó er sjálf fjárupphæð-
in Finnum ekki éins þung-
bær og fyrirkomulag skaþa-
bótagreiðslanna. Af þeim
vörum, sem senda verður til
Rússlands, er rúmlega þriðj-
ungur (að verðmæti) timb-
urafurðir, þriðjungur skip og
kaðlar og þriðji hluti véiar.
Finnar geta auðveldiega orð-
ið við fyrstnefndu vörukrof-
unni. Af þvi leiðir þó, að þeir
verða að fresta húsbygginga
áfonpum sinum og hætta að
láta sig dreyma uiji hinn á-
batavænlega útfiutning til
hinna hefðbundnu markaða
á Vesturlöndum, en ao öðru
leyti er þetta ekki vandkvæð
um bundið. Afhending skipa
hefur miklu meiri erfiðleika
i för með" sér. Á fyrsta ár-
inu eftir vopnahleið sendu
Finnar 105 skip til Rússlands
þar á meðal beztu skip sin af
hverri tegund, allt frá far-
þegaskipum til ísbr.jóta. Af-
ieiðingin er fuiikominn skipa
skortur, þvi að tveir þrið.m
hlutar af skipastól Finna Þyr-
ir stríð hafa farizt i styrjöld-
inni eða verið afhentir i
Allar stærðir og gerðir af hinum heims-
frægu Champion kertum ávallt. fyrir-
liggiandi.
Einkaumiboðsmenn á íslandi.
Þinghúsið í Heisingjafossi
Margar byggingar í Heisingjafossi, höfuðborg Finnlands^
eru rómaðar f^rir stíifegurð. Ein þeirra er þinghúsið, sem
sést hér á myndinni.
stríðsskaðabætur. Nú eru
Finnar að smíða 406 ný skip
fyrir Rússa, skip af öllu tagi,
frá haffærum mótor- eöa
gufuskipum tii dráttarskipa
og fijótabáta. Við smiði sér-
hvers skips ákveða Rússar
gerð þeirra í smæstu atriö-
um, og oftast hefur það í för
með sér, að byggja verður
nýjar skipasmíðastöðvar og
koma á fót nýjum iðnrekstri.
Enn erfiðari viðfangs eru þó
kröfurnar um afhendingu
véla. í Finnlandi var i raun
og veru engin vélafram-
leiðsla fyrir stríð, og það
litla, sem framieitt var af
vélum, var ekki ætlað til út-
flutnings. Ekki var það held
ur ætlun Finna að koma á fót
slikum iðnaði, því að Finn-'
land skortir hráefni, þar sem
landið er járnlaust, og eids-
neyti, þar sem hvorki er þar
til olía né kol. Nú verða
Finnar að framleiða og af-
henda Rússum ógrynnl af
eimreiðum, vörubifreiðum,
lyftivélum, rafmagnsvélum
og allan vélaútbúnað i full-
komin iðjuver til framleiðslu.
á tréni, krossviði, pappírs-
deigi, pappír, spónum og
verksmiðjugerðum húsum_
Rússar hafa forsagnir um.
gerð þessara véla og kveða.
á um, hversu margar skuli.
vera af hverri gerð. Til dæm.
is eiga 26,000 rafmagns-
hreyflar að vera í iðjuverun-
um, og þar að auki á að áf-
hendá 34,000 hreyfla sérstak
lega.
(Niðurlag á morgunL
vantar að HÓTEL BORG.
Upplýsingar í skrifstofunni.
Hófe! Borg.
1
X
Nókkrar stúlkur vantar til skrifstofu-
starfa hjá Tryggingastofnun ríkisins og
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur frá næstu
mánaðamótum um óákveðinn tíma.
Eiginhandar umsóknir ásamit upplýsing- j
um um aldur, nám og starfsferil sendist |
fyrir 27. þ. m. til Sverris Þorbjörnsson-
ar, Tryggingastofnuninni.
Reykjavík, 20. á;;1946.
Auglýsið í Alþýðublaðinu