Alþýðublaðið - 21.08.1946, Qupperneq 7
Miðvikudagur 21. ágúst 1946
ALÞÝÐUBLAÐID
7
<D--------------------------
■ t'i ■ ■ ’
| Bærinn í dag.
~4-----------------—--------«
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturviörður er í Reykjavík-
•urapóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
'sími 1633.
ÚTVARPIÐ:
8,30—8,45 Morgunútvarp.
•12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Tónleikar: — Óperusöngv-
.20.00 Fréttir.
:,20.30 Útvarpsagan: „Blindle“
eftir Herbert Jenkins, XI
(Skúli Skúlason rít-
stjóri).
.fU.OO Egypzki ballettinn eftir
Luigini (plötur).
®1.15 Erindi: Viðreisnarstarfið í
Danmörku eftir stríðsár-
in. — Síðasta erindi (Chr.
Westergaard-Nielsen
magister).
221.40 Tónleikar: ’Tvöfaldur
kvartett (Jón ísleifsson
stjórnar).
322.00 Fréttir.
Létt lög.
I' Félagslíf. ;
FARFUGLAR
Um helgina verður hjól-
ferð um Grafning. Hjólað í
Þrastaskóg, upp Grafning að
'Úifljótsvatni, Heiðarbæ óg
heim Þingvallaveginn.
Skrifstofan er í Iðnsfcólan-
nm, opin ií kvöld kl. 8—10.
STJÓRNIN
Ferðafélag íslands ráðger-
ir að fara 3 skemmtiferðir
um næstu helgi.
1. Ferð um sögustaði Njálu.
Lagt af stað kl. 2 á laugar-
dag. Gist í tjöldum í Múla-
koti. Komið heim á sunnu-
dagskvöld. Séra Sigurður Ein
arsson verður leiðbeinandi,
en hann er nákunnugur og
sögufróður á þessum slóðum.
2. Hagavatnsför. Lagt af
stað á laugardaginn kl. 2 og
ekið austur Hellisheiði fram
hjá Gullfoss að sæluhúsi fé-
lagsins, sem er skammt frá
vatninu og gist þar. Á sunnu
daginn gengið upp á Langa-
jökul, á Hagafell og Jarls-
hettW i Komjð heim um
kvöldið.
3. Gönguför á Keili og
Trölladyngju. Lagt af stað á
sunnudagsmorgun kl. 9 og
tekið að Kúgagarði, en geng
ið þaðan á Keili og Trölla-
dvngju og á lúhn nýja Krisu-
vílcurveg, skammt frá Vatns-
skarði og ekið héimleiðís.
Farmiðar í aliar ferðirnar
seldir á sknfstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs til kl. 4 á fósíu-
dag.
Sjávarútvegurinn
1945
Framhald af 3 síðu.
og ekki tekið tillit til rýrn-
unar í flutningi. — Eins og
undanfarin stríðsár, var há-
marksverð á fiski í Bretlandi
og var það lækkað frá því,
sem það var árið áður. Sum-
arverð var sett á fiskinn 7.
apríl, mánuði fyrr en árið
áður, en verðið, sem gilti til
þess dags, var hið sama sem
á sama tíma 1944. Sumár-
verðið , sem gilti til 24. nóv-
ember, eða mánuði lengur en
áður, var líka óbreytt, að
öðru leyti en því, að verð á
ufsa lækkaði mikið og verð á
steinbít nokkuð. Vetrarverð-
ið var á öllum helztu fisk-
tegundunum, nema á stein-
bít, ákveðið lægra en árið
áður. Meðalverð á togara-
fiskinum yfir árið var kr.
1,43 á kg., á móti kr. 1,54
árið áður, og meðalverðið á
: fiski fiskkaupaskipanna var
kr. 1,58 á kg., en kr. 1,77 árið
áður. Hin mikla verðlækkun
á ufsa varð til þess, að togar-
arnir lögðu sig minna eftir
þeim fiski heldur en þei.r
gerðu áður. Af aflamagni
þeirra var 50 (38)% þorskur
og 25 (49)% ufsi. Enn sem
fyrr kvað þó mest að ufsa-
aflanum síðasta ársfjórðung-
inn. í nóvember komst hann
upp í 68 (75%) af togaraafl-
anum. — Snemma í janúar
1945 auglýsti Samninga-
nefnd utanríkisviðskipta,
samkvæmt fyrirmælum rík-
isstjórnarinnar, að fiskkaupa
skipin skyldu greiða 15% til
viðbótar hinu ákveðna lág-
marksútflutningsverði.
Skyldi andvirði þessa gjalds
renna í verðjöfnunarsjóð, er
síðar yrði varið til að bæta
upp það. verð., sem útgerðar-
menn fengju fyrir fiskinn,
hvort sem hann hefði farið í
fiskkaupaskip eða til hrað-
frystingar. Þessi ákvæði giltu
til 1. júní og hafði Fiskimála-
nefnd með höndum fram-
kvæmd þeirra. Nam heildar-
magn verðbætts afla frá 10.
janúar til 31. maí 86,3 þús
tonnum, að verðmæti 45,1
millj. kr., en meðalverðupp-
bót á öllu landinu nam 7,4426
% á -fiskverðið. Frá 1. júní
var hið sérstaka verð á fiski
ti.1 útflutnings fellt niður og
eftir það gilti aftur eitt verð
á bátafiski, hið sama sem ver
ið hafði frá 1. júlí 1942. í
marz 1945 voru sett lög um
að skip, er selt hefðu eigin
afla erlendis á árinu 1944
skyldu greiða í ríkissjóð 2%
af heildarsöluverði fiskjar-
ins, án nokkurs frádráttar á
sölukostnaði. Samkvæmt
verzlunarskýrslunum voru
flutt út 122 132 (143 705)
tonn af ísfiski, að verðmæti
103 635 (119 160) þús kr. Þar
af voru flutt til Belgíu 840
tonn, að verðmæti 1 091 þús.
kr., en allt hitt magnið fór
til Bretlands.
Hraðfrystihúsunum fjölg-
aði á árinu úr 64 í 67, en þar
af tóku 4 (5) hús ekki á móti
fiski til frystingar. Auk þess
sem byggð voru ný hús, voru
afköst nokkurra hinna eldri
aukin. Er talið, að afkasta-
geta húsanna allra hafi í síð-
ustu árslok verið 655 tonn af
flökiim á sólarhring, á móti
570 tonnum árið áður. Frystd-
húsin tóku á móti 60,9 (55,7
Röskur sendisveinn óskast
Upplýsingar kL 10-—12 og 1—3.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Rafmagnseflirlil ríkisins
Laugavegi 118, efstu hæð.
Kaj Smith og nemendur dansskóla hans
halda
fimmtudaginn 22. þ. m. kl. 9—2 í Sjálfstæðis-
húsinu.
Balleltsýning,
Ballett, barna'ballett, Stepp o. fl.
Samkvæmisdansasýning,
Tango, Victory-Walz, Rumba o. fl.
DANSLEIKUR HEFST KL. 10-2.
Aðgöngumiðar fást í Hljóðfærahúsinu, Banka-
stræti og H'ljóðfæraverzlun Sigríðar Helgia-
dóttur, Lækjargötu og einnig á fimmtu-
daginn '22. ágúst frá kl. 5—6 í Sjálfstæðishúsinu.
þús. tonnum af fiski, miðað
við slægðan fisk með haus, og
868 (842 tonnum af hrognum.
Af fiskmagninu var þorskur
89,8 (91,5%, steinbítur 3,8
(3,3) % og síld 1,8 (0) %. Síld-
in, sem tekin var ti.1 hrað-
frystingar, var Faxasíld, um
1 100 tonn, og var hér um al-
gera nýbreytni að ræða. —
Aðalstarfstími hraðfrystihús-
anna var mánuðina febrúar
til . maí. Á þessum fjórum
mánuðum tóku húsin á mótii
77,5 (75)% af heildarmagni
ársins. Eftir það var fiskmót-
taka húsanna mjög lítil, og
aðallega hjá frystihúsunum á
Vesturlandi og Norðurlandi.
— Mest var tekið til frysting-
ar í Sunnlendingafjórðungi,
68 (70) % af heildarmagninu,
í V estf irðingaf j órðungi 21
(20)%, í Norðlendingafjórð-
ungi 10 (8)% og í Austfirð-
ingafjórðungi innan við.1%
bæði árin. — í márz 1945 var
gerður samningur við brezka
matvælaráðuneytið um sölu á
freðfisframleiðslu ársins, allt
að 30 þús. tonnum, en þó
skyldi kaupanda heimilt að
kaupa meira en þetta, ef
framleiðslan færi fram yfir
hið tilgreinda magn. Selj-
anda var heimil að láta rúm
1 000 tonn af fyrrgreindu
magni 'ganga tii annarra
markaða. Verðið. var hið
sama og áður, en samningur-
inn var óhagstæðari að því
leyti, að þunnildin máttu
ekki fylgja flökunum. — Út-
flutningurinn á árinu nam 29
260 (21 717 tonnum, að verð-
mæti 63 573 (47 542 þús. kr.,
og skiptist þannig á lönd:
Bretland 25 374 (21 378 tonn,
fyrir 54 721 (46 732 þús. kr.,
Frakkland 2 513 (0) 'tonn, fyr
ir 5 417 þús. kr., Bandaríkin
1339 (339) tonn, fyrir 3 355
(810) þúsund kr. og Svíþjóð
34 tonn, fyrir 80 þús. kr. —
Af frystri síld voru flutt út
1 089 (50) tonn, að verðmæti
1 512 (35 þús. kr., og fór hún
til Frakklands, að undanskild
um 138 (50) tonnum, fyrir
123 (23) þús. kr., sem fóru til
Færeyja.
Niðurlag á morgun.
Americas Toughest Truck
vænlaniegir í seplember.
Þelr, sem hafa innkaupaheimild Nýbygg-
ingarráðs, og óska að fá þessa bíia, taii
við mig fyrir 25. þ. m.
SÝNINGARBÍLL Á STAÐNUM
Ingólfur Gíslason
Hafnarslræti 9.
Heimasími 5797.