Alþýðublaðið - 07.09.1946, Side 3
Lawgardagur, 7. sepL 1946,
ALÞYÐUBLAÐIÐ
»■
órnm
Vlðlal við William Smih frá Færeyjum, er
hér með dönsku samninganeindinni.
MEÐAL fulltrúa Færey-
inga við samningana milli
Dana og íslendinga hér, er
William Smith, einn af þing
mönnum Al'þýðuflokksins á
lögþingi Færeyja, 35 ára
gamadl, framkvæmdastjóri
fyrir hlutafélagi um útgerð
og fiskverzlun í Vág á Suður
ey.,
Ég átti viðtal við hann i
gær fyrir Alþýðublaðið og
spurði hann fyrst og fremst
um ástandið í atvinnumál-
um Færeyinga og viðhorf i
stjórnmálum þar.
— Eiga verkamenn fyrir-
tæki þáð, sem þú veitir for-
stöðu?
,,Já, að mestu leyti. Það er
stofnað af tveimur verka-
mannafélögum, og er annað
þeirra í Vág, en auk félag-
anna efga einstaklingar hluti
í þvi. Félagið rekur útgerð
og fiskverzlun, en hvörugt er
enn í stórum stíl. .Við erum
að byggja þetta upp úr styrj-
aldarástandinu og vonum, að
iþað eigi eftir að vaxa mjög
á næstu árum. Yfirleitt reyn-
ir færeysk alþýða að byggjia
upp svona fyrirtæki til þess
að tryggja atvinnu sína og
afraksturinn af henni. Allt,
sem við höfum gert til þessa
í þessu efni, hefur blessast
hjá okkur. Félag mitt gerir
út kútter, og það á einnig
togara, en hann er sem stend
ur í viðgerð í Danmörku.“
—- Hefur verið atvinnu-
leysi í Færeyjum?
„Atvinnan hjá okkur er
tímabundin, eins og mér
skilst að hafi til skamms
tíma verið hér á íslandi. At-
vinnan hefur verið næg á ver
tíðum, en svo koma atvinnu-
leysiskaflar á milli. Það ríð-
ur að sjálfsögðu á miklu fyr-
ir þjóðir, sem þannig er á-
statt um, að þær geti fyllt
upp í þessi tómu rúm, skap-
að stöðuga vinnu fyrir. allar
'hendur, því að með því eign
ast alþýðan öryggi, og af-
koma þeirra, sem ekkert hafa
nema hendur sínar til að
vinna með, batnar.“
— Var atvinnuleysi á
stríðsárunum?
„Ég get varla sagt það.
Mér er enn ekki kunnugt um
það, hvað mikið var af
brezku. setuliði í Færeyjum,
en . það. stjórnaði allmikilli
vinnu og réði til sín innlenda
menn. Ég- skal geta þess til
dæmis, sað í Vág var mikil
loftskeytastöð til leiðbeining
ar fyrir flotann og flugvél-
arnar. Við byggingu hennar
og vegakerfis vegna hennar
unnu rnjög margir Færeying
ar, og námu vinnulaunin um
80.0: þúsund krónum. Það er
mikil... upphæð hjá okkur.
Þetta var stgersta fyrirtækið.
En. ,auk þess hófu Bretar
byggingu flugvallar annars
staðar og unnú “Færeyingar
við han»> erí býggingu hans-
varð ekki | lokið. ...Hrelar
greiddu að fuhu'taxtiá’verkþ-
Íýðsfélaganna og kom aldrei
til neinna árekstra miíli
þeirra og verkamanna út af
launakjörum.
Margir Færeyingar hafa
farið hingað til íslands og
þar á meðal mjög margir af
hinum beztu handverksmönn
um okkar. Þessi útflutningur
'hefur haft það í för með sér,
að nú vantar okkur hand-
verksmenn á nær öllum svið
um. En hér þykjast þeir hafa
iþað betra, og þó að dýrtið sé
'hér mikil, eru Iaunakjör hér
miklu betri en heima, svo að
erfiðlegia gengur að fá þá
heim til sín til starfa, að
minnsta kosti sem stendur."
— Hvaða kaup hafa verka-
menn, og hvernig hefur kaup
gjald breytzt síðan fyrir
strið?
„Grunnkaup er hið sama
og það var fyrir stríðið, 1,00
kr. á klukkustund. Én svo
'kemur vísitalan og hún er
nú 150, þannig að tímakaup
verkamanna er nú kr. 2,50.
Það er mikill munur á því
og hér, en vöruverð er líka
allt annað í Færeyjum en á
íslandi.“
— Nefndu mér dæmi um
verðlag.
„Húsaleiga er tiltölulega
ihá hjá okkur, sérstaklega i
Þórshöfn, en þar er allmikil
húsnæðisekla. —- Mánaðar-
greiðsla fyrir þriggja her-
bergja íbúð mun vera frá
125 kr. upp í 150 kr. En ég
vil vekja athygli á því, að
húsaleiga er miklu lægri
annars staðar, úti í byggðun
um. Og ég vil minna á það,
að flestir Færeyingar eiga
hús sín. — Kiló af dilkakjöti
kostpr kr. 5,00. Smjörkiló
kostar kr. 6,50. Góð föt kosta
kr. 350,00. Góðir skór 40—50
kr. Einn pakki af brezkum
sígarettum (20) stk. kostar
1,80.
— Þið misstuð mörg skip
á stríðsárunum?
,,Já, mjög mörg. Og nú er
það verkefni okkar að endur
skapa flotann. Við höfum
keypt um 20 togará, en þeir
>eru allir gamlir. Við gerum
ráð fyrir að fá 30 togara alls,
en þar af að-eins 3 nýja frá'
Englandi. Auk þessa kaupum
við nýja vélbáta. Ef þessi ný-
sköpun tekst vel hjá okkur
og markaður verður sæmileg
ur fyrir fiskinn þurfum við
Færeyingar engu að kvíða i
atvinnulegu tilliti.“
— Alþýðuflokkurinn vann
á við síðustu kosningar?
„Já, og ég trúi á vöxt hans.
Sem stendur erum við 6 Al-
þýðuflokksmennirnir i lög-
þinginu, 6 Sambandsmenn og
11 frá Fó lka l'lokk nu m. — Nú
stendur fyrir dyrum þjóðar-
atkvæðagreiðsla um stjórnar
farslega afstöðu. Færevja. Af-
staða Alþýðuflokksíns stjórn
ast af þessu: Alþýðuflokkur-
ínn hefur s^ft'ð luigsað sér
meira sjálfst||ði fyrirjj-Fser-r
eyjar en -frattf keráur í til-
'boði... ríki.&tjÓTnarin,nar?:. Við
höfufe .Jtfitjs végar aldrei bar*;
•izf' .fyrir.aígeriim skilnaöi frá
Diuimörku. fíAðalalriðiðí
stéfnuskrá fiokksins, hvað
þetta snertir, er það, að við>
viljum ráða öllum þeim mál-
um, sem við sjálfir stöndum
WiIIeam Smith.
fjárhagslega straum af. Hins
vegar stefnum við að sjálf-
sögðu að því. að við getum
orðið fullkomlega. fjárhags-
lega sjálfstæðir, og þá leiðir
hitt af sjálfu sér. Stjórn Al-
þýðuflokksii-s er ^Vi fvlgji-
andi í dag. rð titöcðiö nái
sartíþykki i__auuta kjós-
endanna. hun teiur, að nú sé
ekki um annað að velja.
hluti af Sambandsflokknum
hefur þá afstöðu, að honum
finnst tilboðið ganga of
langt, en er þvi samt fylgj-
andi, og á Lögbinginu hsfur
flokkurinn ásamt Aliþýðu-
flokknum samþykkt það. Af-
staða Fólkaflokksins virðist
vera sú, að hann sé óánægð-
ur með tilboðið; þyki það
ganga af skammt, og muni
neita því, þótt hann viroist
ekki vi-lja algeran skilnað.
Svo er til félagsskapur, sem
berst fyrir því, að tilbcðið sé
felt. Og hygg ég að í þaitn
félagsskap sé eitthvað af
kjósendum úr öllum póli-
tísku flokkunum, nema Sam-
bandsflokknum..“
— Hvernig lízt þér á þig
hér?
„Mér lízt vel á mig hérna.
Ég dáist að áræði ykkar og
framtaki, en ég skil líka ótta
ykkar við framtíðina. Ég vil
gjarna mega segja það við
þetta tækifæri, að ég vona
að fullkomin, bróðurleg sam
vinna og samstarf geti tekizt
um öll mál milli Færeyinga
og Islendinga. Við erum
■bræður, og hagsmunir okkar
og viðhorf í hinum stóra
jheimi eru þau sömu. Það
myndi verða mikið fagnaðar
efni heima, ef þeir samning-
ar, sem nú standa hér, gætu
ertdað til hagsmuna fyrir báð
ar ‘þjóðirnar og þannig, að
þeir ryddu brautina fyrir
menningarlegum ' og atvinnu
legum tengslum. Ég vil svo
færa öllum, sem ba-fa sýnt
mér álúð og vinsemd, innileg
ustu þakkir mínar.“
VSV.
Okkur vantar nokkra duglega og reglusama
strax.
Daníel Þorcíeinsson & Co. hf.
Duglegur
óskast. — Upplýsingar í afgreiðslu AL
þj'ðublaðsins. — Sími 4900.
1
Sketmimtistiiðurinn er
*£. § w
’ •>*. Y':
i.l opÖjh* . áll'á^daga fr.'i
É A y H y
;■ ki. "2 4: S. •' f V v
Fjöíbreýtt skemmtiaðriði
SKEMMTIFELAG ÍÞRÓTTAMANNA.
verður haldinn í Samkomiusal Mjó.lkurstöðvarinn-
-ar í KVÖLD, laugardaginn 7. isept. Hefst kí. 10 sd.
Aðgöngnmiðar seldir í anddyri hússins frá kl. 5—7
í dag. ÖLVUN BÖNNUÐ.
áfmennur dansieikur
í Breiðfirðingabúð í kvöid kl. 18.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins
eftir kluk-kan 8.
Dansleikur
GÖMLU DANSARNIR
verða haldnír að Hótel „ÞRESTIRh i
Hafnarfirði í kvöld klufckan 1.0,
Að'gönigumiða -mé p-anta á síima 9175 frá klútkkah 4
—6 e. h., en efitir klukkan 9 verða þeir seldir vi'5
innganginn.
BALLNEFND K.S.V.H.
Heimilisiðnaðarfclags íslands byrjar mánu
daginn 7. október næstkomandi.
Kennt verður, eins og' að undanförnu, frá kh 2—0
óg 8—10.
Allar upplýsingar gefiu*
Fri SiirÍEi PéSuriáóir,'
Skólavörðustíg 11A, sími 3345, frá kl. 2—5.
• á hótel aáti’ á landi u>m sfcemmri eða lengri
tíma. Úpplýsingar í síma 6975 frá kl. 10—1
daglega.