Alþýðublaðið - 08.10.1946, Page 7
Þriðjudaginn 8. okt. 1946.
ALÞY)>UBLAÐIÐ
Bærbn í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5.030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
ÚTVARPIÐ:
8.30—8.45 M'orgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30 — 1600 Miðd’égiisútvarp.
19.25 Þingréttir.
20.00 Fréttir.
20.30 Aldarminning Björns Jóns
sonar ritstjóra:
a) Erindi (Magnús Jóns-
son prófessor).
ib) Ein’Ieikur á fiðlu
(Björn Ólafsson).
c) Einsöngur (Einar
Kristjánsson).
d) Upplestur og tónleik-
ar.
21.40 Krirkjutónlist (plötur).
22.00 Fréttir.
22.30 Dagskrárl’Ok.
Ljósatími ökutækja
er frá kl. 7,30 að kvöldi til
kl. 7 að morgni. Ökumenn eru
áminntir um að hafa Ijósaút-
búnað bifreiða sinna í lagi.
Ejja
Hr-aðferð' til Ajkureyrar saim-
kvæmt áætlun föstudaginn
11. þ. m. Pantaðir farseðlar
pskart sóttir og flutningi
skilað á morgun.
Sverrir
Aukaferð til Sands, Ólafs-
vií’kur, Grundiarfjarðár og
(Stykkisihóðm's. Vörumóttaba
í dag.
Mínningarorð
Gestsson kennari
Félagslíf.
ÁRMENNINGAR!
íþróttaæfingar félagsins1 í
(kvöld verða þannig í í-
þróttahúsinu:
Minni salurinn:
Kl. 7—8, öldungar, fim-
leikar. Áríðandi að ailir
mseti.
Kl. 8—9, handiknattleikur,
telpur.
Stóri salurinn.
Kl. 7—8, I. fl. kvenna, fim-
leikar.
Kl. 8—9, I. fl. karla, fim-
ileikar.
Kl. 9—10, II. fl. karla, fim
leikar.
Skrifstofan er opin 1 kvöld
frá fcl. 8—10 síðd.
Stjó'm’ Ármanns.
IÍÞAKA nr. 194. Fundur í
kvöld klukkan 8.30.
Ulbreiðið
Alþýðublaðið.
ÞORÐUR GESTSSON var
fæddur 26. marz 1914, að
Dal í Miklaholtshreppi, son-
ur hjónanna Gests Þórðar-
sonar og Jónínu Sigurðar-
dóttur. Hann lézt í Lands-
spítalanum 27. september
eftir langa og þunga legu og-
er jarðaður í dag i Fossvogs-
kirkjugarði,
Snemma bar á góðum gáf-
um hjá Þórði, sérstaklega-
glöggri hugsun og skörpum
skilningi. Réðist hann þó ekki
strax til mennta, en vann
heima fram um tvítugsaldur.
Veturinn 1934—’35 var hann
við nám í Samvinnuskólan-
um. En þótt námið gengi að
óskum, mun hann brátt hafa
fundið að önnur störf mundu
falla sér betur en verzlun-
arstörf. Sneri hann því við
þlaðinu og gekk undir próf
í kennaraskólanum vorið
1935 og settist um haustið í
2. bekk.
Næstu tvo vetur var Þórð-
ur í kennaraskólanum og út-
skrifaðist þaðan vorið 1937,
með góðu prófi. Nokkru
seinna tók hann gagnfræða-
próf með þeim ásetningi að
halda lengra áleiðis á
menntahrautinni. Af því
varð þó ekki og lágu til þess
ýmsar orsakir. A meðan
Þórður stundaði nám kenndi
hann allmikið, bæði börnum
og unglingum. En árin 1938
og 1939 var hann fastur
kennari við héimangöngu-
skóla í Innri Akraneshreppi
og hafði auk þess unglinga-
skóla á Akranesi.
1. desember 1939 giftist
Þórður eftirlifandi konu
sinni, Þórdísi Gunnlaugs-
dóttur, ágætri konu, og eign
uðust þau 5 börn, sem öll
eru á lífi.
Hin síðari ár vann hann
hjá H. Ben. & Co., en i hjá-
verkum byggði hann þrjú
hús. Seldi tvö, en var nýflutt
ur í það þriðja, og þá ekki
fullsmíðað, þegar hann veikt
ist.
Þetta er þá í fáum drátt-
um ævisaga Þórðar Gests-
sonar.
Mér er ljóst, að hún er
ekki neitt sérstök, og að hér
voru ekki nein þau afrek
unnin, sem ljómi stafar af.
En þó var maðurinn sérstæð
ur og miklum hæfileikum
gæddUr. Það var þeim aug-
ljóst, sem hekktu hann bezt
og skildu. En hitt er önnur
saga, að þessir hæfileikar
höfðu aldrei fengið aðstöðu
til þess að njóta sín. Þórður
var ekki mikið fyrir að fara
troðnar brautir. Kom þar
fram sjálfstæði hans og ein-
urð, sem hann átti í svo rík-
um mæli. Menn með slíkt
skaplynd' eru ekki vænlegir
fil að hljóta höpp í fyrsta
spretti. Einurð hans var við-
brugðið. Aldrei hikaði hann
við að veita því máli lið, sem
hann taldi rétt og satt, hverj
ir sem á móti voru. Minnist
ég þess, að einu sinni á fjöl-
mennum og hörðum fundi
tók hann upp málstað þess,
sem halloka fór og gerði að
sinum. Drengilegri vörn og
sókn hef ég ekki heyrt.
Þórður Gestsson
• Einhverju sinni ætlaði
mikilsráðandi maður, sem
komið hafði. auga á hæfileika
Þórðar, að gera hann að „sín-
um manni“. Skoðanir þeirra
höfðu áður að einhverju leyti
farið saman. Þeirri. vegsemd
hafnaði Þórður og þar með
vináttu þess mikla manns.
Þórður minnti oft á Halldór,
son Snorra goða, að festu og
einurð. Mun þeim báðum
hafa verið jafnfjarri skapi,
að gerast sannfæringaliprir
vikapiltar annarra. Ekki þó
svo að skilja, að hér væri um
þverúð eða þrjózku að ræða.
Samvinnuþíðari og skemmti-
legri mann hef ég tæpast
þekkt. Skapgerð hans var
hófsöm og styrk og æðruleys-
ið var honum í blóð borið.
En það, |sem ég held, að okk-
ur vinujm hans verði einna
minnistáeðast um hann, er
fyndni hans og kímnigáfa og
hin leiftrandi eldsnöggu til-
svör. li>essir kostir gerðu
hann : hverjum manni
skemmtilegri.
Öll var kímni hans þó
græzkulaus. Háð átti hann
ekki. tiL Aldrei vissi ég til
þess, að nokkrum væri í nöp
við Þórð. Verður það ekki
sagt um marga. Þórður var
afbragðs vel skáldmæltur.
Orti hann allmikið á unglings
árum sínum, en lagði. það svo
að mestu leyti niður. Til eru
eftir hann ágætar ferskeytl-
ur, sem kastað var fram við
i ýmis tækifæri. Auk kátlegra
kímnibraga, sem hvergi
komu fram nema í hópi nán-
ustu vina.
-----Þegar ég hugsa um
Þórð Gestsson, finnst mér
hann hafa verið maður, sem
fæddur var til mikilla átaka
og afreka. Ég beið þess — og
stundum með nokkurri ó-
þreyju, að hann fengi ao-
stöðu til þess að njóta hæfi-
leika sinna, aðstöðu til þess
að vinna að hugðarmálum
sínum og hugsjónum, að
hann kæmist út úr þeim
glórulausa þrældómi, sem
hann hafði kastað sér út í af
skyldurækni og illri. nauðsyn.
Ég var farinn að vona, að
þessi tími væri að nálgast. En
það fór á annan veg.
Ekki þýðir að sakast um
orðinn hlut. Sagan er búin.
þráðurinn slitinn. En illa get-
ur maður varizt þeirri hugs-
un, að; íslendingasögurnar
f
Konan mín og fósturmóðir okkar elskuleg,
Ástriur Pálmadótiir,
frá Bolungarví’k, andaðist í Landsspítalanumi, aðfaranótt:’
7. þessa mánaðar.
Fyrir okkar hönd og systkina hinnar látnu.
Guðmundur Jónsson. Unnur Sigurðardóttir.
Ragnar Pétursson.
Jarðarför
Gu^mysidar Hannessonar
fyrrv. prófessors,
fer fram frá dómkirkjunni máðvikudaginn 9. októfber kl. %
síðdegiis.
Þeir, sem hafa hugsað sér að senda blómi eða blóm-
sveiga, eru vmsamlega beðnir að láta andvirði þeirra.’
renna til Styrktarsjóðs ekkna og munaðarlausra barna ís-
'ienzkra lækna,.
Böm og tengdabörn hins látna.
Unglinga
vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í
eftirtöldum hverfum.
Njálsgötu
Auðarstræti
Norðurmýri
Skólavörðustíg
Þingholti
Tjarnargötu
Túngötu
Kleppsholti
Lindargötu
Grettisgötu.
Talið við afgreiðsluna.
Álþýðublaðið,sími4900
enda stundum enn þá á svip-
aðan hátt og áður.
Þegar ég heimsótti hann
síðast, 1 Vz sólarhring áður en
hann dó, sagði hann við mig;
„Nú finn ég að batinn er að
koma. Hann kemur eins og
vorið, — vor eftir langan
vetur —, sem kemur í al-
mætti sínu, svo allt verður
undan að láta.“
Og þegar ég tók hönd hans
og kvaddi hann í síðasta
sinn, sagði hann brosandi:
„Já, vorið er að koma.“
Þá skildi ég fyrst hvað
hann fór. Og þegar ég gekk
frá sjúkrahúsinu þennan hrá-
slagalega septembermorgun,
fannst mér lífið hafa breytt
|um svip. Ég hafði oft heyrt
um afburða karlmennsku og
þrek og lesið um það í ljóð-
um og sögum, en aldrei.
staðið andspænis því fyrr en
nú. Og hugur minn hvarflaði
ósjálfrátt til atburðarins á
Örlygsstöðum 1238, þegar
Þórir Jökull kvaddi lífið með
þessari karlmannlegu vísu:
Upp skaltu á kjiöl klífa,
köld er sjávar-drífa,
kostaðu huginn at herða,
hér muntu lífit verða
o. s. frv.
Skyldleikinn er auðsær. —
Æðruleysi. og ró, sem jafnvel
dauðinn fær ekki bugað.
Það var satt vinur! Vorið
var að koma. En annars lát-
um við vonina og trúna um
það. .En hitt er staðreynd, að:
sigri. þínar hugsjónir, þá
mun vissulega vora í mann-
heimi.
Jón Þórðarson.
Aðeins tveir söludagar eítir f 10. Ilokki, ~ Happdrætlið