Alþýðublaðið - 18.10.1946, Blaðsíða 7
Föstudagur, 18. okt. 1946,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Næturlæknir er .í Læknavarð-
Etofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykja-
víkurapóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
8.30
12.10-
15.30-
18.30
19.00
19.25
20.00
20.30
21.00
21.15
21.40
22.00
22.05
23.00
UTVARPIÐ:
—8.45 Morgunútvarp.
—13.15 Hádegisúitvarp.
—16.00 Miðdegisútvarp.
fs'lerizkufcennsla, 2. fl.
í>ýzkukennsl'a, 1. fi.
Þingfréttir.
Fréttir.
Útvarpssagan: Konungs-
heimsóknin“ eftir Kaj
Munfc, II (Sigurður Ein-
arsson sfcrifstofustjóri).
Strokkvartett útvarpsins.
Erindi: Síldarvertíðin í
sumar (Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri).
Óperulög (plötur).
Fréttir.
Symfóníutónl. (plötur).
Dagskrárlok.
Námskeið fyrir eig- Gunnar Sigfryggsson
''endur jeppabíia.
VETRARSTARFIÐ
er hafið. Verið með frá
byrjun. Látið innrita ykkur
ihjá kennaranum eða í skrif-
istofunni í Í.R.-húsinu við
Túngötu. Skrifstofan er opin
á hverju kvöl'di kl. 5—7. Sími
4387.
í dag, föstudag: Kl. 7—8
I. fl. kvenna, fiml, kl. 8—9
I. fl. karla, fiml., kl. 9—10
ísl. glíma.
Á morgun, laugardag: Kl.
7—8 telpur, fiml., kl. 8—9
drengir, kl. 9—10 handb.
drengja.
Á mánudag: Kl. 2—3 frú-
arflokkur, kl. 6—7 old boys,
Skl. 7—8 2. fl. kvenna, fim'l.,
kl. 8—9 I. fl. kvenna, fiml.
kl. 9—10 III. fl. karla.
Stjórnin.
Guðspekifélagið.
Reykj avíkurstúkufundur
er í kvöld. Hefst hann kl.
8.30. Fundarefnd: Mögu-
leikar manna, Konungs-
yoga. Deildarforseti flytur.
Gestir eru velkomnir. —
STJÓRNIN.
NÝLEGA er hafið hér í
bænum námskeið fyrir eig-
endur jeppabíla og er það
Stillir, sem gengst fyrir nám-
skeiðinu. Gert er ráð fyrir
að hvert námskeið standi yf-1
ir í mánuð, og verða þannig
nokkur námskeið í náinni
framtíð.
Á námskeiðum þessum er
gefin tilsögn um viðhald á
bílunum og allar þær við-
gerðir, sem hægt er að fram-
kvæma utan verkstæðis.
Kemur þetta sér einkar vel
fyrir eigendur bifreiðanna,
sem flestir eru búsettir úti á
landi, en eins og kunnugt er,
hafa jepparnir verið fluttir
inn á vegum Búnaðarfélags-
ins og nýbyggingarráðs og
þeim úthlutað til bænda. Alls
munu hafa verið fluttir inn
frá því í vor um 500 jeppar,
og von er á 100 í næsta mán-
uði.
Á námskeiðum þeim, sem
áður getur, er bæði verkleg
og bókleg kennsla, og er ný-
komin út bók um jeppabila,
og er hún notuð við kennsl-
una. Er bók þessi mjög
nauðsynleg fyrir alla eigend-
ur jeppabíla og raunar alla
bifreiðarstjóra, þvi þar er svo
að segja gétið hvers einasta
hluta bifreiðarinnar, auk þess
sem þeir eru skýrðir með
myndum. Alls eru hátt á
annað hundrað myndir í
bókinni.
Eins og áður segir, er bók-
in einkum miðuð við jepp-
lana, enda þýdd eftir bók, sem
íverksmiðja sú i Ameriku, er
jframleiðir þá, hefur gefið út.
;Útgefandi bókarinnar er
Tækniútgáfan, en Gissur Er-
lingsson hefur býtt hana.
Aða'lefni bókarinnar skipt-
ist þannig: Leiðbeiningar
fyrir ökumenn, __ Vélin,
Tengsli, Benzinkerfi, Útblást-
lurskerfi, Kælikerfi, Raf-
Imagn, Girkassi, Milligirkassi,
Drifsköft og hjörliðir, Fram-
■öxull, Afturöxul'l, Hemlar,
,Hj;ól — hjóllegur, Stýri,
Grind, Fjaðrir og höggdeyf-
ar, Yfirbygging, Fylgihlutir.
Bókin er samtals 145 blað-
^íður að stærð í stóru broti.
Fæddur 21. nóv. 1922,
Dáinn 9. okt. 1946.
og
GARÐASTRÆTI 2,
4. hæð.
Alþýðublaðið
Önnur skemmtun III
ágóða fyrir börn í
Hamborg.
NÆSTKOMANDI SUNNU
DAG verður haldin skemmt-
un í Trípólíleikhúsinu, til
ágóða fyrir fátæk börn í Ham
borg. Er þetta önnur skemmt
unin og jafnframt sú síðasta,
sem haidin er hér til styrktar
börnum í Hamborg; ágóðinn
af þeirri fyrri var 6000 krón-
ur, og má búast við að hann
verði ekki minni af þessari.
Á skemmtuninni verða
meðal annars þessir skemmti
kraftar: Brynjólfur Jóhann-
esson leikari, Pétur Á. Jóns-
son óperusöngvari, Lárus Ing
ólfsson leikari og Lúðrasveit
Revkjavíkur.
Ágóðanum af skemmtun-
um þessum verður varið til
kaupa á jólapökkum, sem
sendir verða fátækum börn-
> um i Hamborg.
Kveðja frá fósturfclður
hans.
Horfi ég á, er haustsins
hret beygja
laufi þrungna þöll.
Lætur þar lögmál
lífs og dauða
geigvænan dynja dóm.
Vissi .ég var þitt
vökult minnið
gróandans skammvinnt skeið.
Brosandi beið þar
blómskrúð þitt
sumarsins sólbjarta dags.
Hví eru harðúðug
hret á,ð brjóta
vænan og vaxinn meið?
Áttir þú ekki
óleysta raun
hins ljóssækna, lífsglaða
barns?
Spara ég að spyrja,
spurning vekur
trega og tár á ltinn,
er Iít ég þig látinn
lagðan á börur,
dáðríki drengurinn minn.
En þó mér þyki
þungt í skauti,
munu þó mömmu tár
fögur falla
fleiri og stærri
yfir „drengnum hennar,
sem dó“.
Þó munu þungbærust
þessi raun
henni, sem heitast þér
unni og átti
eftir að njóta
Iífs þíns Ijóss og yls.
Sofðu! Við syrgjum,
er við sjáum þig
horfinn á hærri svið.
Þú lifir þar í ljóði
Iífs og starfs.
Guð faðir fylgi þér.
vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í
eftiftöldum hverfum.
Þingholti
Seltjarnarnesi
Talið við afgreiðsluna.
Framhald af 5. síðu.
dýra, aftur og fram um ó-
mælisvídd jöklanna, og
fluttu vistir og margs konar
'j útbúnað, til hinna ýmsu
stöðva, sem þeir reistu með
dagleiðar millibili. Hinir
eldri þátttakendur voru skild
i.r eftir til þess að halda uppi
sambandinu milli þriggja
neðstu stöðvanna, meðan
hinir frískari stofnuðu til
þeirrar fjórðu, efst uppi; á
Norðurklifinu í 1000 m. hæð.
Mallory og þrír aðrir, voru
valdir til þess að gera fyrstu
árásina á tind Everest, og í
fylgd með nokkrum burðar-
körlum, hófu þeir, hinn 20.
maí, í dögun, leiðangurinn
upp í hinar óþekktu og ó-
snortnu hæðir. Hið fjarlæga
en freistandi. mark þeirra var
enn í 1800 metra hæð.
i Klukkustundum saman
fikruðu þeir sig áfram og upp
á við, upp hrygginn. Hinn
nístandi stormur lét þá óspart
finna fyrir sér, stóð án misk-
unnar í hlífðarföt þeirra og
beit þá í andlitið svo þá log-
sveið, en það sem verra var,
ar milli Norðurklifsins og
tindsins. Nú voru þeir 730
m. hærra uppi en nokkrir
aðrir menn höfðu áður kom-
izt. Það myndi. hafa verið að
steypa sér í opinn dauðann,
að halda áfram þegar svo var
áliðið dags, matarlausir og
án þess að hafa nokkurt
skjól, en þeir voru of upp-
gefnir, til þess að gera sér
grein fyrir vonbrigðum, eða
yfirleitt nokkurn hlut, þegar
þeir snéru við.
Ný tilraun var gerð næsta
dag, með óþreyttum mönn-
um, sem settu niður stöð V.
í 7800 m. hæð. Þeir höfðu
með sér súrefnisgrímur ti.l að
auðvelda andardráttinn, en
það kom í ljós, að þær voru
frekar til tafar en gagns, því
hver, sem með þær var, varð
að bera 13—14 kg. þungt
tæki á hryggnum, sem þeim
fylgdu. Tveir þeirra komust
svo hátt, að þeir áttu tæplega
580 metra ófarna upp á topp-
inn, þegar þeir urðu að gef-
ast upp. Líkamir þeirra og
heilar voru að þrotum komn
ir, limir þeirra hlýddu ekki
var það, að eftir því, sem ofar leiGur’ Þeim, dapraðist
dró, var ætíð erfiðar um and- j sJ!onu?j Þeir ,blðu osl*ur- eins
ardrátt. í 1600 m. hæð neyddi °§. felfg°r Þfirra/ abur en
kuldinn og þreytan þá til|Þ?™ bafðl teklzt að set}a
þess að nema staðar Þeir nytt kllfarmet’ sem var 8302
sendu burðarmennina til
Nýju vatnsveitopíp-
i
ÚT AF FYRIR3PURN,
sem fram kom á bæjarstjórn
arfundi. í gær út af hinni nýju
vatnsveitulagningu, upplýsti
borgarstjóri, að ekki væri
von á því að pípumar, sem
nota á í vatnsveituna yrðu til
búnar til afhendingar í Eng-
landi fyrr en í fyrsta lagi. síð-
ast í febrúar í vetur, og er því
auðsýnilegt, að vatnsveitan
getur ekki verið komin í notk
unn fyrr en á næsta sumri.
stöðvar IV slógu tjaldi sínu
þar sem afdrep var, skriðu
inn í það og tróðu sér í svefn-
poka sína.
Þegar í dögun voru þeir
aftur komnir á kreik, og
þrömmuðu * áfram gegnum
'Snjó og þoku. Hver smágust-
ur þyrlaði snædrifinu um þá.
Eftir einnar klukkustund-
ar klifur, var einn þeirra að
þrotum kominn, hann varð
að snúa við. En Mallory og
hinir tveir, sem eftir voru
með honum, héldu áfram.
Þeir brutust fram með
lönvum hvíldum en miklum
erfiðismunum örstuttan spöl
í senn. Það leið ekki á löngu,
áður en hendur þeirra og
fætur voru dofnar af kulda,
og beir gripu andann á lofti
með galopinn munninn. Síð-
ar sögðu beir frá því, hversu
mjÖ!í súrefnisvöntunin hefði.
orkað á hugsanir þeirra og
öll skilningarvit, hvernig
þeir hefðu orðið sljóir og
viljalausir, en gengið eins og
í svefni, vélrænt, áfram.
Seinni hluta dags voru
þeir komnir í 8200 m. hæð,
og höfðu farið tvo þriðju
hluta hixmar snarbröttu leið-
metrar.
Ákveðnir í að gera hina
síðustu t'ilraun, hófu þrír
Englendingar og 14 burðar-
menn göngu sína frá hinu
lægri stöðum til efstu stöðv-
arinnar í Norðurklifinu. En
skyndi'lega rauf ógurlegur
hávaði kyrrðina, allt skalf
og titraði, og feikna snjó-
flóð fór að þeim með geysi-
hraða. Helmingur burðar-
mannanna þyrluðust fram.
af jökulbarminum og hurfu
í einu vetfangi.
Áhlaupið á Everest 1922
hafði farið út um þúfur, og
bví lauk ekki aðeins með
ósigri, heldur með voveif-
legum hætti.
(Niðuriag á morgun).
Mteningarspjöld
Bamaspítalasjóðs
Hringsins
Minningarspjöldin verða
fyrst um sinn afgreidd í
LITLU BLÓMABÚÐINNI
Bankastræti 14.