Alþýðublaðið - 20.12.1946, Page 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 20. desi 1946.
(U|>()ðublaHð
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Símar:
Ritstjórn: símar 4901, 4902.
Afgreiðsla og auglýsingar:
4900 og 4906.
Aðsetur
í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu.
Verð í lausasölu: 40 aurar.
Sett í Alþýðuprentsmiðjunni
Prentað í Félagsprentsm.
Hneyksli á alþingi.
FRAMKOMA SIGFÚSAR
SIGURHJARTARSONAR á
alþingi í fyrradag., þegar
hann veittist að forseta þing-
deildar þeirrar, sem hann á
sæti í, með upþlognum að-
dróttunum og ásökunum, er
einstakt hneyksli. Sigfús
missti stjórn á skapi sínu
vegna þess, að forseti neðri
deildar, Barði Guðmunds-
son, lagði til að frumvarpi,
sem Sigfús er fluitningsmað-
ur að, væri vísað til annarr-
ar nefndar en þeirrar, er Sig
fús vildi. Bar reiðin þennan
uppstökka og orðhvata þing-
mann ofurliði, svo að hann
fullyrti, að Barði Guðmunds
son vanrækti nefndarstörf
og að hann hefði ekki getað
valdið tungu sinni í forseta-
stól sakir ölvunar!
Þessum ásökunum Sigfús-
ar var svarað á eftirminni-
legan hátt, strax og hann
hafði látið sér þær um munn
.fara. Upplestur úr gerðabók
nefndar þeirrar, sem um
ræddi, leiddi í ljós, að á
f jórum fundum henrnar i vet-
ur mættu allir nefndarmenn,
og voru fundargerðir þessar
undirritaðar af Sigfúsi Sig-
urhjartarsyni sjálfum, en
hann er formaður nefndar-
innar. Fullyrðingum Sigfús-
ar um, að Barði Guðmunds-
son hefði verið ölvaður að
störfum sem forseti neðri
deildar, vísaði Barði alger-
ilega á bug og óskaði þess, að
ef einhver þingmaður hefði
séð vín á honum í forseta-
stól, þá lýsti hann því yfir
og bjargaði þannig Sigfúsi
frá því að verða opinber lyg-
ari. En enginn þingmaður
varð til þesaa, og varð Sigfús
bar með að una nafnbót ó-
sannindamannsins!
Það er sem betur fer ein-
stakur atburður í sögu al-
bingis, að þingmaður geri sig
beran að því hneyksli, sem
raun varð á pm Sigfús Sig-
urhjartarson í fyrradag, Öll-
um, sem fylgjast með störf-
um aiþingis, er um það kunn-
ugþ að. Barði Guðmundsson
rækir trúnaðarstarf sitt sem
forseti neðri deildar af skör-
ungsskap og samvi?.kusemi.
Maður, sem gerist til þess að
rísa upp á alþingi með. hætti
SigfúSar Sigurhjartarsonar í
tfyrradag og bera vísvitandi
ósannindi á þingmann, sem
að auki gegnir virðingarmiklu
trúnaðarstarfi við mjög góð-
an orðstír, ætti vissulega að
helga starfskrafta sína ann-
arri stofnun en löggjafarsam
homu þjóðarinnar.
Þetta hneyksli Sigfúsar
Skemmtilegt bréf frá stúlku í Félagi ungra jafn-
aðarmanna. — Samþykkt stúlknanna í Kvenna-
skólanum og afstaða mín.
SNAGGARALEG STÚLKA í
F. U. J. skriíar mér bréf, og þaS
er hálfgert skammarbréf. Ég er
ekki vanur því að fá skammar-
bréf frá stúlkum, því að flest-
ar skrifa þær mér ástarbréf,
svo að þetta er hressandi til
breyting. Einu sinni átti ég
margar kærustur í F. U. J., en
þær eru nú allar giftar og gengn
ar út, orðnar alvörugefnar hús-
mæður og farnar að fara með
menn, sem þær eiga sjálfar í
búðir og aka barnavögnum.
Ég hef ekki mátt vera að því
að sniglast í kringum nýju F.
U. J.-stúlkurnar og því er sem
er.
EN ÞAÐ ER BEZT að kom-
ast að efninu. F. U. J.-stúlkan
skrifar um samþykkt stúlknanna
í Kvennaskólanum, um að neita
að dansa við drukkna menn og
segir: ,,Ég hafði búizt við betri
stuðningi frá þér, þegar stúlk-
urnar létu loksins til sín taka
í þessum margumtöluðu áfeng-
ismálum. Ég varð bæði sár og
hneýksluð, er ég las pistilinh
þinn einn daginn. Þú birtir þar
háðsglósur frá ungum manni
út af samþykkt stúlknanna í
Kvennaskólanum. Fánnst þér
þetta svo fyndið, að það tæki
því að birta það? Ef svo er, þá
finnst mérað þú hafir ekki góð-
an smekk fyrir gamansemi, Mér
hefði fundizt það betur sæm-
andi af þér, sem margir telja
samvizku almennings, að gefa.
þessum. pilti einn „gúmqrep ,á
latínu“ heldur.en, að birta bréf
hans athugasemdalaust.“
„EN EF. .TIL VILL er þetta
misskilningur hjá mér, Ef ; til
vill vilt þú alls ekki fá sterkt
almenningsálit á móti, bölvuðu
áfenginu, sein. .allf er að eyði
leggja og enginn kann að um-
gangast, án þess að fara sér og
sínum að voða. Ég álít að
svona peyjar, eins og þessi bréf
ritari þinn, væru bezt kornnir
við selveiðar í suðurhöfum, ein-
angraðir bæði frá víni og kon-
um. — Samþykkt stúlknanna
var ágæt og væri vel að. sem
fléstar styddu að því að gera
hana áhrifamikla. Ég skora líka
á allar stúlkur að neita að dansa
við drukkna menn. Við eigum
að koma því inn í hausinn á
piltunum, að það sé fullkominn
dónaskapur að bjóða stúlku í
dans og vera undir áhrifum á-
fengis. Ég er líka .svq reið við
þig, að mér dettur ekki í hug
að dansa við þig á næstu.
skemmtun í F. U. J., jafnvel þó
að þú sért ekkert fullur. Ég. set
sig- í sama flokk og þá fullu
fyrst þú birtir þetta skammar-
lega bréf.“
AÐ VISSU LEYTI verð ég að
viðurkenna, að þetta er réttmæt
ádrepa. Hins vegar var ég bú-
inn að taka ákveðna afstöðu með
Kvennaskólastúlkunum. Ég
sagði: „Húrra fyrir þeim.“ Ég
prísa þær ‘fyrir samþykkt
þeirra og vildi óska að allar
stúlkur fylgdu eftir samþykkt
þeirra. En veistu, vina mín og
félagi — því að ég er heiðurs-
félagi í F. U. J. og nýt þar af-
reka í fyrndinni, hvers vegna
ég birti bréfið, sem þú ert svo
reið út í? Ég birti það eingöngu
vegna þess að til eru stúlkur,
sem drekka á skemmtunum og
haga ser alls ekki betur en sum
ir piltanna. Mér datt ekki í hug,
að vilja draga úr áhrifum sam-
þykktar stúlknanna í Kvenna-
skólanum. Ég vildi, með því að
birta bréfið, hitta stúlkurnar,
sem drekka beiat í hjartastað.
ÞETTA VAR og tilgangur
piltsins, sem skrifaði mér bréf-
ið. Hann er mikill reglumaður
og ákaflega hrifinn af samþykkt
stúlknanna, eins og allt sæmi-
legt fólk er. Hann. vildi ekkert,
síður gera en að draga úr mætti
þeirrar öldu, sem Kvennaskóla-
stúlkurnar hafa vakið, og sem
ég vona að beri sem allra mest-
an árangur. Ég segi. Dansið
aldrei við drukkinn mann. Ef.
þið finnið að herrann ykkar er
undir. áhrifum áfengis, þegar
þið. eruð byrjuð að dansa, þá
skuluð þið bara yfirgefa hann
á miðju gólfi. Og segja. ,,Ég
dansa aldrei við drukkinn
mann. Verið þér sælir.“
EN ÞAÐ ER aálítið annað,
sem ég vil tala við þig um, vina
mín. Það sæmir ekki góðum fé-
laga í F. U. J., að reiðast því,
þó að aðrar skoðanir fái að |
koma.fram en hann sjálíur sam
þykkir. Það á að vera — og'
er — aðalsmerki okkar jafnað-
armanna að leyfa málfrelsi alls
staðar, þar sem við höfum
nokkuð að segja, að vera umburð
arlyndir gagnvart skoðunum og
afstöðu annarra, Það eru bara
nazistar og bræður þeirra
kommúnistar, sem vilja hneppa
skoðana — og málfrelsi í f jötra.
— Fleldvirðu nú ekki að þú
verðir svolítið góð við mig á
næstu skemmtun í F. U. J.?
veist; að . það er ekki leyft að
hafa vín um hönd á skemmtun-
um, bar,.
Kannes á hornintn
Sigurhjartarsonar er kannski
sér í lagi vítavert, þegar að
því er gætt, að hann er á-
hrifamaður í bindindishreyf
ingunni hér á landi og gegn-
ir fyrir hana trúnaðarstörf-
um. Það liggur sem sé í aug-
um uppi, að með þessari
framkomu sinni hefur Sig-
fús sér í lagi brotið af sér
gagnvart binddndishreyfing-
unni. Henni er hollt að hyggja
að því á hverjum tíma, að
hinn góði' málstaður hennar
hlýtur skaða og iskömm af
framkomu ofstækismanna,
sem kunna sér ekki hóf sak-
ir heiftar. Sigfús Sigurhjart
arson hefur því með ósann-
indum sínum og aðdróttun-
um í garð Barða Guðmunds-
sonar ekki aðeins gert sig
beran að vítaverðu frum-
hlaupi, sem setur blett á virð-
inigu alþingis. Hann hefur
jafnframt og ekki síður brot-
ið af sér við bindindisheyf-
inguna og málstað hennar.
fil kl. 22 laugardaginn 21. desember.
fil kl. 24 á Þorláksmessu, mánudaginn
23. desember.
fil kl. 13 á aðfangadag, þriðjudaginn
24. desember.
til kl. 13 á gamlársdag, þriðjudaginn
31. desember.
I ÍðílÚ
verða sölubúðir vorar lokaðar allan daginn
vegna vörutalningar.
Félag malvörukaupmanna.
Félag vefnaðarvörukaupmanna.
ana.
Félag búsáhalda- og járnvörukaupm.
r
Bóksalafélag Islands,
iag Reykjavíkur og nágrennis.
áuglýsið í Alþýðubiaðinu
Áætlunarferðir á leiðinni Reykjavík—-Sandgerði
verða framvegis:
Frá Reykjgvík kl. 10 árd. og kl. 1 s. d.
Frá Sandgerði kl. 1 og kl. 5 s. d.
Farþegum skal sérstakíega bent á hina hentugu
ferð frá Reykjavík Id, 10 árd.
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS.