Alþýðublaðið - 10.04.1947, Síða 3
Fimmíudagur, 10. apríl 1947
ALÞÝÐUBLAÐ8Ð
3
Ávarp frá stjém Rangæingafélagsins
Reykjavik.
SVO SEM KUNNUGT ER,
gerðist sá válegi atburður að
morgni laugardagsins 29. f.
m., að Heklugos brauzt út.
Veður stóð af norðri og lagði
gosmökkinn til suðurs á tak-
mörkuðu svæði um Fljóts-
hlíö innanverða og Eyja-
fjallahreppa báða, en á þessu
svæði urðu skjót umskipti.
Á tæpum tveim klukkustund
um dyngdi þarna niður stór-
gerðum vikri og sandij svo að
hvergi sá hnjóta af jörð,
hvorki á túnum, engjum né
högum, þar sem mest kvað
að, en annars staðar hafa
þarna orðið stórkostleg spjöll
á landi. Alvarlegan hnekki af
þessum orsökum hafa þannig
hlotið um hundrað býli undir
Eyjafjöllum og um 15 bæir í
Fljótshlíð og Rangárvöllum.
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um það, hvert þjóðar-
tjón það er ef þetta mikla á-
fall skyldi verða þess vald-
andi, að byggð á þessu svæði
legðilst að einhverju eða
verulegu leyti niður, auk
þess persónulega tjóns og erf
á'ðleika, sem það hefur þegar
valdið ábúendunum á þess-
um slóðum. Augljóst er nú
þegar, að þó allt verði gert,
sem auðið er, til þess að
halda lífinu í fénaði og
hreinsa til, svo að gróður
megi fást af þeim blettum,
sem tiltækilegastir eru í
sumar, þá verða bændur eigi
að síður að stórfækka fénaði
sínum. Lífskjörin þrengjast
og hætt er váð, að mörgum
finnist hann standa svo hall-
ur í þessari baráttu, að hann
gefist upp og hverfi frá jörð
sinni1. En í þessari baráttu
getur drengileg aðstoð og
samhugur þe'irra, sem ekkert
tjón hafa beðið, algerlega
riðið baggamunilnn.
Fyrir því hefur stjórn
Rangæingafélagsins í Reykja
vík, ákveðið að gangast fyrir
fjársöfnun til styrktar ábú-
endunum á því svæði, þar
sem tjón þetta hefur orðið og
muri á sínum tíma afhenda
sýslúnefnd Rangæinga fé
það, sem safnast, til þeirirar
ráðstöfunar, sem hún telur
koma að beztum notum. Vér
megum ekki sætta oss við
það, að áfall slíkt sem þettá,
eyði byggilegustu héruðum
landsins fyrir augum vorum,
án þess að reyna af fremsta
megni að sporna við. Hér er
ekki um það að ræða að bæta
mönnum það tjón, sem þeir
.hafa þegar beðið, heldur
hitt, að létta þessu fólki bar-
áttuna í landvörn, sem nú
leggst þyngra á það, en
nokkra aðra þegna þjóðar-
innar. Þetta er. bæði metnað-
armál og drengskaparskylda.
Og vér erum þess fullvísir,
að skjót og drengileg hjálp
getur alveg ráðið úrslitum í
þessari baráttu.
Fyrir því heitir stjórn
Rangæingafélagsins á alla
Rangæinga búsetta hér í höf-
uðstaðnum og hvar sem er
annars staðar, að leggja fram
sinn skerf til þessarar fjár-
söfnunar, og sýna þannig í
verki rækt sína til ættar-
stöðvanna og hug sinn til
þeirra, sem þar berjast nú
sinni erfiðu landvarnarbar-
áttu. Og á sama hátt heitir
hún á alla góða íslendinga að
styðja þetta mál, því að það
er sorg og skaðií vor allra,
þegar óviðráðanleg náttúruöfl
kippa í svipinn grundvellin-
um undan starfi og lífsaf-
komu einhvers hluta þjóðar
vorrar. Það er sæmd íslend-
inga, að jafnan, er svo hefur
staðið á, hefur nú hin síðari
ár mátt- treysta þegnskap
þeirra og drenglund, að
bregðast vél við.
Dagblöðin í Reykjavík,
munu góðfúslega veita fjár-
framlögum í þessu skyni við-
töku, og má enginn hyggja
að skerfur hans sé svo lítill,
að hann geti ekki einnig orð-
ið að Mði.
Sveinn Sæmundsson,
Felix Guðmundsson,
Guðmundur Guðjónsson,
Sigurður Ingvarsson,
Gestur Gíslason.
Hifi hraunsins hefur verið mæidur
og er hann um 900 gráður.
----------------«--------
Viðtal við Pálma Hannesson rektor.
--------------------+--------
ÞEGAK VIÐ GENGIJM með dönsku og sænsku
jarðfræðingunum yfir volgt 'haunið og litum niður i
gígsprungumar, létum við okkur dreyma um. jarð-
eldarannsóknarstöð hér á íslandi, sem einhver aðiii
eins og Rockefellerstofnunin ætti að gefa, og svo
mætti halda uppi starfseminni með norrænum fram-
lögum, sagði Pálmi rektor Hannesson við blaðið í
gær. Bann og hinir jarðfræðingarnir eru nú komn-
ir til bæjarins með geysimikið efni, sem þeir hafa
safnað saman, og er þegar byrjað að vinna úr því af
fullum krafti.
Bazar
heldur Kvenfélag Laugarnes-
sóknar bazar í Goðtemplarahús-
inu, uppi, á morgun, föstud. 11.
apríl, kl. 3. Konur eru beðnar
að skila munum á bazarinn 1
dag frá kl. 1,30—5 í fundasal
félagsins í kirkjunni.
Unglinga
vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í
eftirtöldum hverfum.
Sólvallagötu
Hringbraut
Austurstræti
Lindargötu
Auðarstræti
Þverholti
Kleppsholti
Grettisgötu
Talið við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið, sími 4900
„Aldrei hefur nokkurn
tíma verið fylgzt eins vel
með náttúrufyrirbrigði hér
á landi“, sagði rektor. „Það
er ekki von á stórum upp-
götvunum við rannsókn eins
goss“, hélt rektor áfram,
,,en í hvert sinn bætist ofur-
lítil þekking í bú og ný þekk
ing er alltaf ómetanleg.“
ATOMORKA AÐ VERKI
„Það er íalið líklegast að
hinn mikli hiti í eidfjöllun
um, sem bræðir bergteg-
undirnar, sé til orðinn við
„radioaktivitet“ og er það
því atomorka, sem er að
verki“, sagði Pálmi enn-
fremur. „Þarna verða ýms
ar efnabreytingar, til dæm
is sameinast vetni og kol-
efni í sprengingu og til
verður nýtt (juvenilt)
vatn, sem rennur niður all
ar hlíðar. Mikið af auka-
efnum eru og í gosinu og
er mikilvægt að komast að
hver þau eru og hversu
mikið er af þeim“.
EINS OG ÚLVARSFELL
Hraunin, sem Hekla er bú-
in að gjósa að þessu sinni eru
sennilega um 200 millj. ten-
ingsmetrar, en þáð er álíka
mikið og til dæmis allt Úlv-
arsfell. Hiti hraunsins reynd-
ist vera um 900 gráður á Cel-
síus og mestan hraða þess
mældum við hálfan til einn
ríietra á sekúndu.
„Frá því: á miðvikudag
hefur gosið verið hægt en
svipað“, sagði rektor enn-
fremur, „oft einn eða tveir
gígar gjósandi, mökkur ekki
rnikill né heldur drunur.
Norðurgígarnir virðast nú
liggja niðri og a.Ut hraun-
rennsli er þar hætt, en suð-
urgígarnir gjósa ennþá. Þar
nær sprunga miður í rætur
.fjallsins og endar í skeifu-
löguðum gig, sem myndaðist.
á öðrum degi gossins með
snöggri sprengingu. Gígur
þessi er opin til vesturs ög
streymir glóandi hráunið úr
honum eins og þykkur graut
ur, en rennur síðan eins og
á og hraunið verður krapa-
grátt af storknáðri iroðu.
. Neðar sígur þetta mikla
hraun áfram með einkenni-
legum dauðum nið, sem
minnir á vatnsfall neðanjarð
ar.
Þarna mun renna fram
á aðra milljón tenings-
metra hraun á sólarhring,
og er straumurinn á köfl-
um svo"að hann minnir á
Ölfusá þar sem hún er
lygn hvað hraðann snert-
Þeir gengu yfir
rennandi hraun-
sfraum.
ÞEGAR JARÐFRÆÐ-
INGARNIR gengu á suð-
urenda Heklu á annan í
páskum gengu þeir yfir
rennandi hraunstraum á
heimleiðinni. Nokkur gola
kældi hraunið, en „það var
svona ósköp notalega
heitt“ sagði Pálmi rektor
Hannesson um þetta. All-
mikið af grjóti lá ofan á
hrauninu, og þótí sýnt, að
þar sem þetta grjót ekki
sykki mundu menn ekki
sökkva, enda virtist eng-
inn möguleiki á slíku þeg-
ar út á hraunstrauminn
kom. Við og við sást þó
glóa undir, og „við viljum
ekki ráða mönnum til að
gera þetta, þótt þáð væri
hættulaust í þetta skipti,“
sagði rektor að-lokum.
Jarðfræðingarnir gsngu
upp að þessUm gíg á annan
í páskum og fannst ærið stór
feniglegt að sjá hina glóandi
berglind. Þarna var sterk
brennisteinsfýla og hvítar
gu’fur lagði víða upp úr hol-
um. Þarma fyrir ofan eru
fjórir gígar, sem ekki gjósa
nú orðið, og úr þeim trölls-
legt gliúfur í vesturátt.
Þykkur bláleitur mökkur lá
yfir gljúfrinu, en stöku sinn
um sást þar í eld um 100
metra niður, en veggirnir
voru þverhníptir.
DÝPT JARÐSKJÁLFTANS
Rektor sagði að lokum, að
það væri mikilvægt fyrir
jarðfræðinganja að fá sem
mestar fréttir af jarðskjáKt
anum, sem fór á undan gos-
inu. Kippurinn virðist hafa
verið álíka snarpur alllangt
frá fjallinu og nærri því, og
bendir það til þess, að spreng
ingin hafi legið djúpt í
jörðu.
ELDRANNSÓKNIR Á
HAWAII
Mestu eldfjallarannsókn-
arstöðvar heims eru á Haw-
áiieyjum og við Vesúvius,
og þyrfti að koma á sam-
bandi milli þeirra og rann-
sóknanna hér. A Hawaii er
tæknin óspart notuð til að
berjast við hraunflóðin, og
var itil. dæmis nýlega hraun-
flóði þar, sem ógnaði borg
illa, beint í annan farveg
með flugvélasprenginigum.
Féfag ungra jafnaðarmanna
heldur
.m**
í Rreiðfirðingahúð fösíudagimi 11. apríl
klukkan 8.30 e. h.
SKEMMTISKRÁ:
1. Kvikmyndasýning (innlendar og
t ú ' erlendar myndir).
2. Ræða: Ragnar Jóhannesson cand. mag.
3. Söngur með guitarundirleik
(stúlkur úr F. U. J.)
4. Gamanvísur (Ársæll Pálsson, leikari).
5. DANS.
Aðgöngumiðar verða seldir eftir kl. 3 á
föstudag í skrifstofu félagsins.
SKEMMTINEFNDIN
iHffif