Alþýðublaðið - 23.04.1947, Side 3
Miðvikudagur 23. apríl 1947.
ALÞÝÐU BIAÐ BÐ
3
LONDON 12. apríl.
ÞAÐ ER UNDARLEGT að
vera allt í einu kominn hing-
að til Lundúnaborgao: — al-
veg að hjarta veraldar vorr-
ar — eins og vel mætti kalla
þessa borg. Hingað liggja
flestir þræðir heimsstjórn-
málanna. og heimsfjármál-
anna og hér, í Whitehall og
Westminster, eru spunnir ör-
lagaþræðir margra land.a og
margra þjóða.
Maður þarf ekki að hafa
verið hér marga daga til þess
að finna það glögglega, að
Bretland er í miklum vanda
statt. Alþýðuflokksstjórnin
hér, sem óneitanlega hefur
réynt að samræma og sam-
stilla krafta Bretaveldis til
þess að mæta hinum miklu
vandamálum, sem stríðið
færði Bretuin að höndum,
hefur mætt alveg dæmalaus-
um örðugleikum. Þeir örðug-
leikar stafa ekki aðeins frá
stjórnmáláandstöðu þeirri,
sem stjórnin mætir, heldur
eru þeir utan að komandi og
óviðráðanlegir. Utananríkis-
pólitíkin er hrfið og þar ofan
á hefur bættst hið geysilega
tjón sem vetrarkuldarnir og
síðan stórflóðin hafa skapað.
Fyrir fám dögum gaf land-
búnaðarráðherrann þinginu
skýrslu um tjónið af harð-
indunum og afleiðingu þeirra.
Aðalefni hennar voru þessi:
1) Um 2 milljónir fjár hafa
drepist, týnst eða verið drepn
ar vegna frost&rina og flóð-
anna. 2) Um 30 þúsund stór-
gripir hafa týnst. 3) Um 600
þúsund ekrur sáðlands hafa
skemmst tvo að erfitt verður
að fá uppskeru af þeim á
þessu ári. 4) Um 70 þús. ekr-
ur vetrarkorns hafa eyði-
lagst af flóðum, en um 200
þús. af frosti. 5) Um 50 þús.
tonn af kartöflum eyðilögð-
ust í flóðunum, en 30 þús.
tonn af frosti. Þessar tölur
tala því máli, er allir mega
skilja.
Ofan á allt þetta bættist
svo það, að kolaframleiðslan,
sem er undirstaðan að öllum
iðriaði Bretlands er í mjög
svo slæmu ástandi síðan
stríðinu lauk. Eigendur kola-
námanna hafa trassað við-
hald þeirra og endurbætur og
kennt styrjöldinni um, en þó
mun þar hafa valdið mestu
um, að þeir bjuggust við því,
að 'ef Alþýðuflokkurinn næði
meirihluta myndu þær verða
þjóðnýttar. Var þeim þá auð-
vitað kærast að þær yrðu í
sem allra verstu ástandi og
sköpuðu þeim, er við tók, sem
aMra mesta erfiðleika. Svo
hefur það líka orðið; því
þrátt fyrir það, að verka-
menn í námunum hafa af-
kastað miklu meira eri á sam-
bærilegum tíma t. d. í fyrra,
þá eru kolavandræðin svo
rnikil að t. d. rafmagn verð-
ur að skammta ennþá að
miklu leyti.
En stjórnin er bjartsýn og
þó hún eigi við nokkra erfið-
leika að stríða iririah flokks-
ins vegna hinna svonefndu
„uppreisnarseggja“ (rebel-
ists) lítur hún fremur björt-
um augum á þessa hlið á mál-
efnum Bretaveldis, ef marka
má þær ræður, sem ráðherr-
arnir hafa haldið víðsyegar
nú um páskaria. Þeir teljá, —
og færa fyrir því allsterk rök
að því er virðist, — að nú
þegar á þessu ári muni ástnd
ið batna verulega og fara
batnandi úr því. Hið versta er
nú liðið hjá og batinn mun
koma —- að vísu ekki mjög
stórstígur, en því öruggari.
—- Á þessa leið er tónninn í
blcðum stjórnarinnar og leið
togum hennar.
EN ÞAÐ ER ÖNNUR BAR-
ÁTTA, sem nú er háð, sem
ekki verður ennþá séð fyrir
endann á,- hvernig muni
ljúka, og það ér baráttan
um Bretland sjálft, ef ég
mætti orða það svo.
Það er engum biöðum um
það að fletta að jafnframt
þeim umræðum um framtíð
Þýzkálands og Austurríkis,
sem nú fara fram í Moskva,
fara þar fram aðrar og e. t.
v. ekki þýðingarminni um-
ræður. Á þær er varla minnst
í enskum blöðurn, en við og
við drepið á þær í blöðum
Bandaríkjamanna. Þessar um
ræður eru um endurskoðun
brezk-rússneska sáttmálans.
Þegar Bevin fór til Moskva
fyrra hluta marzmánaðar,
var frá því skýrt, að hann
myndi eiga viðræður við
Stalíu um framlengingu
brezk-rússneska sáttmálans,
sem gerður var, þegar Þjóð-
verjar réðust á Rússa 1941,
og þá til 20 ára, skyldi um
það rætt að hann yrði end-
urskoðaður og látinn gilaa
um næstu 50 ár. Þessar yfir-
lýsingar Bevins voru gefnar
af því tilefni, að Moskvabiöð-
in höfðu látið í ljós þá skoð-
un, að raunverulega væri
brezk-rússneski samningur-
irin orðinn úreltur og Bretar
færu ekkert eftir honurií þar
sem þeir hölluðust í öllum
rnálum á sveif með Banda-
ríkjunum gegn Russum, en
hefði þó að nafrii til þenrian
vináttu og hernaðarbanda-
lagssáttmála við Rússland.
Þetta gerðist um það ieyti
sem Montgomery marskálkur
var í Moskva í boði Stalíns
og rússnesku herstjórnarinn-
ar. Bevin — eða brezka
stjórnin — andmælti þessum
ásökunum hinna rússnesku
blaða á þann sérkennilega
hátt, að Bevin skrifaði Stalin
persónulega bréf um málið
og Stalín andmælti síðan
þessum staðhæfingum hinna
rússnesku blaða opinberlega.
Var þá á almæli að Rússar og
Bretar myndu taka upp nýja
samninga um endurskoðun
hernaðarsáttmála Rússlands
og Bretlands, því Rússum
þykir núverandi sáttmáli allt
of óákveðinn, enda gerður í
flýti og í miðri stórstyrjöld
og undir allt öðrum kring-
umstæðum en nú eru orðnar.
SÚ SAGA ER SÖGÐ, að
þegar Montgomery marskálk
ur sat kveðjusamsætið hjá
Stalín í Rreml í byrjun fe-
brúarmánaðar s. 1., hafi Stal-
ín snúið sér að Montgomery
og sagit: „Hvernig litist yður
á það, herra marskálkur, að
Bretar og Rússar gerðu með
sér hernaðarbandalag?“
JONAS GUÐMUNÐS-
SON skrifstofustjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu, sem
nú dvelur í London, lief-
ur sent Alþýðublaðinu
fréttabréf það, sem hér
birtist. Mega lesendur
blaðsins máske vænta
þess, að sjá fleiri frétta-
bréf þaðan frá honum, því
að hann mun dvelja í
London eða annarsstaðar á
Englandi fram á sumar.
Montgomery á þá að hafa
svarað: „Þér munið þó lík-
lega, herra Stalín, að við er-
um nú þegar í hernaðarbanda
lagi“. Á Staiín þá að hafa
svarað: „Ég meina raunveru-
legt hernaðarbandaiag, en
'ekkert Bevinsbandalag“.
Lengri er sagan ekki og ó-
víst hvort hún er sönn. En
þegar Montgomery fór frá
Moskvu, fylgdi honum til
London, Frank Roberts, hinn
þrautreyndi ráðunautur
brezku stjórnarinnar við
sendisveitina í Moskva. Ro-
berts átti að tilkynna ríkis-
stjórn Bretlands hina réttu
meiningu í viðræðum Montgo
merys og Stalíns.
Hernaðarsáttmáli sá, sem
nú er til milli Rússa og Breta
var svo til eingöngu gerður
gegn Þýzkalandi. Þar heitir
hvor aðilinn að styðja hinn,
ef Þjóðverjar eða einhverns-
konar ríkjasamsteypa, sem
Þjóðverjar taka þátt í, ræðst
á annað hvort ríkið. Nú er
þessu tæpast til að draifa
fyrst um siriri, því hvort
tveggja er, að Þýzkaland er
gjörsigrað og rúið ölium
vopnum, og svo hitt, að þvi
hefur nú þegar raunverulega
verið skipt á milli stórveld-
anna, svo þar verður tæþast
um nokkra sjálfstæða þjóð
að ræða fyrst um sirin. Rúss-
um er því sama um þennan
samning, því hann er ein-
skisvirði í beim átökum, sem
nú fara frarn. Þess vegna
vilja þeir fá samningnum
breytt.
Og þá er komið að hinni
miklu spurningu:
Hvað er það, sem þeir
viija fá éinn í hann, sem þar
er ekki nú?
Þó undarlegt megi virðast
er mjög hljótt um það, hver
þessi þýðingarmiklu atriði
eru, sem Rússar vilja fá inn
í samninginn En þegar á allt
er litið, getur tæpast verið
nema um eitt atriði að ræða
og það er þetta: Rússar vilja
fá inn í samninginn ákvæði
sem tryggja það, að Bretar
a. m. k. siíji hjá, eða — vafa-
laust helzt — veiti sér hern-
aðarlegan stuðning, ef til á-
taka skyldi koma milli Rúss
lands og Bandaríkjanna.
í stórblaðinu „Times“ var
í gær (11. apríl) grein þar
sem segir, að „New York
Times“ hafi hinn 10. þ. m.
birt orðsendingu frá Moskva
þess efnis, að samkomulags-
tilraunirnar milli Rússa og
Breta um framléngingu og
endurnýjun brezk-rússneska
sáttmálans hafi strandað
vegna þess, að Bretar hafi
neitað að ganga inn á, að upp
í samninginn yrði tekið á-
kvæði, sem „raunverulega
eineinangrar Bretland stjórn
málalega frá Bandaríkjun-
um.“ Blaðið bætir því við, að
Rússar hafi krafizt þess að
Rretar skyldu ekki styðja
málstað neins þess ríkis, sem
væri f jandsamlegt Rússlandi,
menningarsamband land-
anna — Rússlands og Bret-
lands skjddi styrkt og aukið
— og ríkin skyldu gagn-
kvæmt skuldbinda sig til
að bæla niður sérhvern
fjandsamíegan áróður, sem
hafður yrði í frammi gagn-
vart hvoru fyrir sig, innan vé
banda þeirra. Myndi þetta
þýða það, segir blaðið, að
Bretum yrði ókleift að styðja
málstað Bandaríkjanna, t. d.v
í deilunni um Tyrka og tyrk-
neska lánið, eða að styðja
pólitík Bandaríkjanna gagn-
vart Kína, því að stefnu
Bandaríkjanna gagnvart þess
um löndum telur Rússland
vera sér fjándsamieg.
Blað . Alþýðuflokksstjórn-
arinnar hér, „Daily Herald“,
birtir í dag (12. apríl) í sam-
bandi við viðræður þær, sem
fram fara í Moskva, .eftirfar-
andi athugasemd: ' .
„Sir Maurice Peterson sér-
stakur sendiherra Breta í
Moskva og Vyshinsky full-
trúi Molotovs, áttu tveggja
stunda viðræður í dag í til-
efni af endurskoðun brezk-
rússneska samningsins. Við-
ræður fóru vinsamlega frarn
og voru líkastar viðræðum
um viðskiptaleg málefni. Á
þessu stígi umræðnanna er
enn ágreiningur milli aðil-
anna. Eins og gera má ráS
fyrir hljóta að koma fyrir í
samningum þessum viðkvæm
ákvæði er þarfnast nákvæm-
ar athugunar (carefal exanim
atiön) frá báðúm hliðum.
Frásagnir amexískra blaða
Framhald á 7. síðu.
Nýtt fyrirkomulag bifreiðatrygginga, er lækkar iðgjöldin
á þeim bifreiðuni, sem sjaidan valda tjóni.
Tryggirigarbeiðnuni veitt móttaka í síma 7080 eða í skrif-
s'tofu vorrL Sambandshúsinu. 2. hæð.
nnufry