Alþýðublaðið - 14.05.1947, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.05.1947, Blaðsíða 4
4 Miðvikudagur 14. maí 1947 Útgefandi: Alþý'öuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson. Auglýsingar: Emilía Möller. Framkvæmdastjórasími: 6467. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Hégómaskapur, sem honum varð hált á ÚTVARPSUMRÆÐAN um fjárhagsráðið, sem fram fór í neðri deild alþingis í fyrrakvöld, varð mikil hrak- för fyrir kommúnista. Má með sanni segja, að mikil sé þrá Einars Olgeirssonar eftiir að heyra sjálfan' sig tala, að hann skuli ráðast í það að mæta til umræðu um mik- ils vert málefni í áheyrn al- þjóðar jafnilla undirbúinn og með jafnslæman málstað og hér var um að ræða, enda fékk hann háðulega útreið. Hafa flokksbræður Einars sjaldan gert honum meiri ó- greiða en að verða við þeirri ósk hans, að krefjast útvarps umræðu um fjárhagsráð til þess að hann fengi tækifæri til að þylja þuluna sína yfir þeim landsmönnum, sem nenntu að hlusta á hana einu sinni enn. :Js Einar Olgeirsson vann það þrekvirki' í þágu nýsköpunar- innar nú fyrir nokkrum dög- um að flytja um hana á al- þingi ræðu, sem stóð yfir á fimmta tíma. Þingmenn eru yfirleitt menn þrautgóðir og þolinmóðir, enda hljóta þing- störfin að þroska þá eigin- leika í ríkum mæli. En þessi langa og leiðinlega ræða Ein- ars var þeim ofraun. Entust flokksbræður Einars ekki tál þess að hlýða á þetta mál hans, hvað þá aðrir. Einaxi mun hafa þótt þetta mjög miður og látið flokksbræðr- um sínum skiljast það, að þetta hefði verið ein af sín- um beztu ræðum, enda kost- að sig mikla vinnu! Munu flokksbræður Einars hafa fallizt á tilmæli hans um út- varpsumræðu til að bæta honum lítið eitt þennan mót gang, þótt niðurstaðan yrði mjög á aðra lund en Einar hafði gert sér von um. En lítil kurteási var það af komm únistum, að ætla þjóðinni að hlusta á þá ræðu Einars, sem þeir sjálfir gátu ekki setið undir, jafnvel þótt hún væri stytt til'mikilla muna. Einar Olgeirsson endurtók við útvarpsumiræðuna blekk- ingar kommúnista um, að nú væri verið að stöðva nýsköp- un atvinnulífsins. Sú full- yrðing var þó sízt af öllu líkleg til árangurs við þetta tækifæri, þegar verið var að ALÞÝÐUBLAÐ.Ð Undarleg framkoma manns, sem er nýkominn heim eftir stranga útivist. — Hvað á þetta að þýða? — Skemmdir og maðkaðir ávextir. Sýning á miðvikud. ki. 20. „Ærsladraugurinn" Gamanleikur eftir Noel Coward. AnnaB kvöld kl. 8 Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 2 í dag. HEIM ER KOMINN frá Dan- mörku maður, sem setið hefur þar í fangelsi saklaus í eitt og hálft ár. Hann var einn þeirra, sem varð fyrir harðinu á hinni svokölluðu frelsishreyfingu eftir að Þjóðverjar höfðu gefist upp, en hún varpað í fangelsi miklum fjölda saklausra manna og þar á meðal nokkrum íslendingum. Maðurinn heldur því fram, að hann hafi verið algjörlega saklaus og hánn mun hafa verið það, enda þurfti ekki mikið, eftir uppgjöf Þjóðverja til þess að verða tekinn fastur í Danmörku, varpað í fangelsi og jafnvel drepinn. VIÐ BJÓÐUM þennan mann að sjálfsögðu velkominn heim og væntum þess, að honum vegni hér vel. En ég vil hér gera nokkuð að umtalsefni ein- kennilega og óviðeigandi fram- komu hans eftir heimkomuna. Hann hefur haft viðtal við blað hér í bænum og birtist það í fyrradag. Eftir lestur þess, varð mér að orði. „Hvað á þetta eiginlega að þýða?“ Hann slett- ir þar skít á Guðmund í. Guð- mundsson alþingismann, og, hvort sem það er óviljandi eða viljandi gert, reynir hann að gera Guðmund tortryggilegan. GUÐMUNDUR í. GUB- MUNDSSON fór, eins og kunn- ugt er, til Danmerkur sumarið 1945 til að sitja þar fund nor- ræna þingmannasambandsins. Var hann og beðinn þess af hálfu ríkisstjórnarinnar að at- huga eftir því, sem hann teldi heppilegast, mál, aðbúnað og kjör íslendinga, sem í fangels- um sætu í Danmörku, og þá sérstaklega farþeganna af Esju, sem teknir voru úr skip- inu, þegar það var að fara frá Kaupmannahöfn og varpað í fangelsi. Guðmundur í. Guð- mundsson gerði þetta eftir því sem frekast voru á tök, en öll- um er kunnugt um, að þessi mál voru ákaflega viðkvæm og erfið viðfangs. GUÐMUNDUR fékk strax að vita það, þegar hann kom út, að ekki mætti minnast einu orði á mál fanganna við þá og ekki ræða við þá um neitt nema veður og aðra markleysu. Það gat því ekki borið mikinn árangur að heimsækja þá og tala við þá — og gerði hann það þó að nokkru. Hann kynnti sér líka eftir föngum mál þessa tiltekna manns. Eg spurði Guð- mund í. Guðmundsson um þetta í gær, en hann svaraði: „Það er ósatt, sem maðurinn er að segja. Að öðru leyti vil ég ekki ræða mál hans.“ MAÐURINN gefur í skyn, að Guðmundur hafi jafnvel verið meðal þeirra ,sem komu til þess að glápa á fangana og tónn hans er að öðru leyti fullur af hroka og steigurlæti. Mun mörgum finnast eins og mér, að það sé sízt viðeigandi við heimkomuna — og réttara hefði verið, að hugsa um ann- að meira en að koma af stað deilum um sjálfan sig, loksins, þegar hann sleppur úr prísund- inni og kemst til lands síns, vina og vandamanna. ÁVAXTAKAUP okkar ganga ákaflega böngulega. Svo virðist sem í hvert sinn, þegar við fá- um ávexti, sé mikið af þeim skemmt. Enginn gleymir eplun- um frá í vetur og nú síðast feng um við sendingu af þurrkuðum ávöxtum, sem voru maðkaðir. í hverju liggja mistökin? Mig furðar á því, ef kaupmennirnir vita ekki, að vara, sem þeir eru að selja, er skemmd. Það er úti lokað, að þeir viti ekki af því, ef þurrkaðir ávextir, sem þeir eru að afgreiða í búðum sínum eru maðkaðir, því að maðkar eru ekkert augnagróm. Fimmtudag kl. 4 e. h. BARNALEIKSÝNING rrÁlíafeMrr á morgun kl. 4. Aðgöngumiðasala í dag frá kl. 4—7. Auglýsið í Alþýðublaðiuu Hús i Laugarneshverfi til sölu, 7 herbergja íbúð getur verið laus til fbúðar nú þegar. Ólafur Þorgrímsson, hdl.f Austurstræti 14, sími 5332. ræða einmitt það frumvarp, sem tryggir áframhald ný- sköpunarinnar og treystir hana að miklum mun frá því, sem áður var. Þá staðhæfði Einar einnig, að núverandi stjórnarflokkar hefðu svikáð nýsköpunina með stjórnar- mynduninni. Þau ummæli eru hlægileg, en sér í lagi voru þau þó fíflsleg við þetta tækifæri, þegar verið var að ræða frumvarp stjórnarinn- ar, sem sker úr um það, að nýsköpun atvinnulífsins verði haldið. áfram og hún byggð á traustum grundvelli í framtíðinni. Málflutningur Einars um svikin við nýsköpunina blekk ir engan og er því þýðingar- laust orðagjálfur. Alþjóð er um það kunnugt, að komm- únistar hlupust brott úr fyrr verandi ríkisstjórn af allt annarri ástæðu en ágreiningi um nýsköpurtina. Og það voru ekki núverandi stjórn- arflokkar, sem sviku nýsköp unina. Þeir ætla þvert á móti að tryggja framgang hennar. En það voru kommúnistar, sem sviku þetta mál, sem þeir hafa þó fyrr og síðar reynt að.telja fólki trú um að væri hugsjón þei'rra. Þeir notuðu afgreiðslu alþingis á flugvallarsamningnum við Bandaríkin sem átyllu til þess að hlaupast brott úr fyrr verandi ríkisstjórn og kom- ast hjá þeirri ábyrgð, er hlaut að leiða af fyrirsjáan- legum erfiðleikum. Þeir vildu vera með í því að kaupa skip og ný framleiðslutæki, meðan nógur erlendur gjald- eyrir var fyrir hendi óg góð- æri í landi. En þegar reyndi á, voru þeir allir á bak og burt. Og þeim tekst aldrei að forða sér frá fyrirlitningu þjóðarinnar fyrir það, með því að endurtaka von úr viti hinar marghröktu fullyrðing ar sínar um, að núverandi stjórnarflokkar hafi svikið nýsköpun atvinnuveganna. * Annars skyldi maður ætla, að. kommúnistar væru orðnir þreyttir á þvaðri sjálfra sín um nýsköpunina. Þeirra ný^ sköpun er Falkurútgerðin, mjölskemman "hrunda á Siglufirði og nýju síldarverk smiðjurnar, sem hafa orðið helmingi dýrari en gert var ráð fyrir í upphafi og ósýnt er enn, hvenær verða starf- hæfar. Nýsköpun þeirra í verzlunarmálum er stjórn þeirra og rekstur á Kaupfé- lagi Siglfirðinga, meðan það laut yfirráðum Þórodds Guð- mundssonar og kappa hans. Nýsköpun þeirra í mennta- málum eru aðfarir Brynjólfs Bjarnasonar um val skóla- nefndaformanna, kennara og skólastjóra, meðan hann var menntamálaráðherra. Ný- sköpun þeirra í markaðs- og viðskiptamálum eru samtöl Áka Jakobssonar við rúss- neska fiskumskipunarmann- inn Semenov, vonin um sölu á 1600 jörpum hryssum til Póllands og tunnukaup þeirra Hauks Björnssonar og Andre as Gödtfredsens, umboðs- manna Áka Jakobssonar. Ný- sköpun þeirra í rekstri opin- berra fyrirtækja kom fram í yfirstjórn Áka Jakobssonar á landssmiðjunrii, og nýsköp- un þeirra í nýtni og ráðdeild arsemi ber skipaeikin hans Áka gleggst vitni! Menn, sem hafa unnið þessi afrek ein í þágu nýsköp unarinnar, ættu ekki að láta takmarkalausa löngun sína ti'l að heyra sjálfa EÍg tala leiða sig í þá hættulegu freistni, sem raun varð á um Einar Olgeirsson í fyrra- kvöld.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.