Alþýðublaðið - 17.06.1947, Síða 1
Umtalsefniðs
Veðurhorfur:
Breytileg átt og hægviðri.
Úrkomulaust að mestu.
Alþýðublaðið
kemur næst út á fimmtu-
daginn.
Hið unga lýðveldi okkar,
— og ábyrgðarleysið, sein
ógnar því.
Forustugrein:
Eftir þrjú ár.
XXVII. árg.
Þriðjudagur 17. júní 1947
130. tbl.
Skymasterflugvélin Hekla
Hér sést Skymasterflugvélin Hekla skömmu eftir að hún
lenti á flugvellinum á sunnudag.
Verkamenn í Borgarnesi kolfelldu
samúðarverkfali kommúnista
------1------
Neituðu og að lýsa yfir afgreiðslubanni.
VERKALÝÐSFÉLAG BORGARNESS koifelldi á fé-
lagsfundi síðdegis á sunnudaginn áður gerða samþykkt
stjórnar og trúnaðarráðs félagsins um samúðarverkfall og
afgreiðslubann til stuðnings Dagsbrún í deilu þeirri, sem
kommúnistar hafa hrundið henni út í; en bað samúðar-
verkfall átti samkvæmt ákvörðun félagsstjórnar og trún-
aðarráðs að hefjast miðvikudagimi í þessari viku.
Fundurinn var fjölsóttur,
um 80 manns voru mættir í
fundarbyrjun, enda vitað eft
ir mótmæli 76 verkamanna
á staðnum gegn hinu boðaða
samúðarverkfalli, að átök
myndu verða þar. Stjórn
Dagsbrúnar hafði sent Ing-
ólf Gunnlaugsson á fundinn
til þess að tala þar máli
hennar.
Fundurinn stóð í hér um
bil fimm klukkustundir, og
var þá gengið til atkvæða, en
allmargir voru þá farnir af
fundi.
Samþykkti fundurinn,
með 47 atkvæðuni gegn 8,
tillögu frá Daníel Eyjólfs-
syni og Ingimundi Einars-
syni um að neita livort
lieldur að gera samúðar-
verkfall eða lýsa yfir af-
greiðslubanni til stuðnings
Dagsbrún, með því, að
með deilu hennar gæti að-
eins leitt til þess að
magna dýrtíðina í land-
inu, sem hagsmunum
verkamanna stafi stór
hætta af.
Er þessi ómerking félags-
fundar í Verkalýðsfélagi
Borgarness á boðuðu sam-
úðarverkfalli kommúnista
þar athyglisverð vísbending
um það, hvernig verkalýður-
inn lítur á hið pólitíska vérk-
gallsbrölt og hvernig sumar
hinar kommúnistísku yfirlýs-
ingar um samúðarverkföll
með Dagsbrún eru til komn-
ar.
Rannsóknarlögregian
iýsir eftir vitnum
LAUGARDAGINN 14. þ.
m. varð árekstur á Borgar-
túni, rétt hjá Fúlalæk, milli
bifreiðarinnar RE 2988 og
manns á reiðhjóli.
Maðurinn á reiðhjólinu
meiddist talsvert; marðist á
baki og síðum og hlaut
nokkrar skrámur.
, Rannsóknarlögreglan bið-
ur þá, sem kunna að hafa séð
atburð þennan, að gefa sig
fram; einkum stúlku, sem ók
á reiðhjóli, rétt á undan
manninum, sem fyrir slys-
inu varð, og mann þann, sem
tilkynnti lögreglunni slysið.
Fyrsta millllanda-
flugvél íslseidinga
Fer til HafBiar í dag
SKYMASTERFLUGVÉL-
IN HEKLA, fyrsta milli-
’andaflugvél Íslendinga, kom
til Reykjavíkur rétt fyrir kl.
brjú á sunnudag, og var
margmenni á flugvellinum
til be«s að fagna vélinni.
Loftleiðir h.f. eiga þessa
mikhx flugvél, en hún tekur
46 farþega og getur flogið
hvert sem er í heiminum.
Amerísk áhöfn er á flug-
vélinni, að undanteknum
öðrum flugmanni, sem var
Alfreð Elíasson, og flugfreyj
ur verða tvær íslenzkar,
Elinborg Óladóttir og Málm
fríður Ólafsdóttir. Flugmað
urinn er einn af reyndustu
flugmönnum Bandaríkjanna,
Byron Moore og hefur hann
flogið samtals 18 000 tíma
síðan 1923. Hann mun verða
flugstjóri enn um hríð, en
svo fljótt sem unnt er taka
íslenzkir flugmenn við vél-
inni.
Kristján J. Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Loftleiða,
flutti ræðu við komu vélar-
innar og Emil.Jónsson sam-
göngumálaráðherra tók einn
(Framhald á 8. síðu.)
Komin heim
eftir 59 ár
Elzti farþegi Heklu var
þessi gamla kona, Oddný
Ásgeirsdóttir, frá Lundum í
Borgarfirði. Hún fór vestur
um hafi árið 1888, þá 23 ára,
og hefur ekki komiö heim
síðan eða í 59 ár. Hún er nú
búsett í Winnipeg. en með
henni er dóttir hennar, frú
Lára Johnson.
Verkfallshótun kommúnista á
Siglufirði fer fyrir félagsdóm
-— -----------------*---------
STJÓRN SÍLDARVERKSMBÐJA RÍKISINS hefur nú
ákveðið að bera verkfallshótun kommúnist.a á Siglufirði
undir úrskurð féalgsdóms meó því að hún telur verkfalls-
hótunina brot á þeim kaup- og kjarasamningi, er Verka-
mannafélagið Þróttur gerði við síldarverksmiðjurnar með
allshe'rjaratkvæðagreiðslunni fyrir rúmri viku síðan, og
því ólöglega.
Sem kumiugt er samþykkti Þróttur við allsherjarat-
kvæðagreiðsluna miðlunartillögu frá sáttasemjara ríkisins
norðan lands með 164 atkvæðum gegn 32, og var rniðlun-
artillagan þar með orðin gildandi samningur milíi félags-
ins og síídarverksmiðjanna. En hin kommúnistíska stjóm
Þróttar hefur þrátt fyrir það boðað verkfall við verksmiðj-
urnar frá og með 20. júní og sýnir þar með, að hún ætlar
að hafa allsherjaratkvæðagreiðsluna í félaginu að engu.
Samúðarverkfall járniðnaðar-
manna samþykkf með 433
------*------
Kommúnistar þorðu ekki að spyrja fé-
lagsfund fyrr en verkfaliiS var hafið.
------4------
JÁRNIÐNAÐARMENN í REYKJAVÍK hófu í gær-
morgun samúðarverkfall með Dagsbrún samkvæmt fyrir-
skipun hinnar kommúnistísku stjórnar félagsins og trún-
aðarmannaráðs. En sjálfir vom þeir ekkert að spurðir fyrr
en á félagsfundi síðdegis í gær. Þar urðu harðar deilur út
af gerræði félagsstjórnarinnar, en samúðarverkfallið þó að
lokum samþykkt með 9 atkvæða meirihluta, — 43 atkvæð-
um gegn 34. Hafa kommúnistar ekki staðið svo tæpt við
neina meiriháttar atkvæðagreiðslu í Félagi járniðnaðar-
manna um áraskeið.
Hin kommúnistíska stjórn
járniðnaðarmann'afélagsins
og trúnaðarmannaráð sam-
þykkti fyrir viku að boða
samúðarverkfall með Dags-
brún frá og með deginum í
gær. En af ótta við vilja fé-
lagsmanna var þess vel gætt
að gefa þeim engan kost á að
ræða málið né taka sjálfir
ákvörðun um það fyrr en
verkfallið væri byrjað; enda
er það að minnsta kosti mjög
vafasamt, hvort samþykkt
stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs var lögmæt samkvæmt
lögum félagsins.
Á fundinum síðdegis í
gær, sem var haldinn í bað-
stofu iðnaðarmann^ og stóð
í fjórar klukkustundir, höfðu
kommúnistar jmalað eins og
þeir gátu; en auk þess höfðu
þeir sent á fundinn Jón
Rafnsson, hinn kommúnist-
íska framkvæmdastjóra Al-
þýðusambandsins, og Sigurð
Guðnason. formann Dags-
brúnar, til þess að tala fyrir
samúðarverkfallinu.
Harðar deilur urðu á fund
inum og áfelldust fimm
ræðumenn stjórn félagins
mjög fyrir framkomu henn-
ar; en Snorri Jónsson, hinn
kommúnistí'ski formaður fé-
lagsins, svaraði þeim með
skætingi og svívirðingum.
Þeir Jón Rafnsson og Sig-
urður Guðnason töluðu báð-
ir fyrir málstað kommún-
ista, — Jón Rafnsson tvisvar
og talaði hann síðastur allra
á fundinum.
Samt sem áður mörðu
kommúnistar samúðarverk-
fallið ekki í gegn nema með
aðeins 9 atkvæðamun. Féll-
ust 43 á gerðir félagsstjórn-
arinnar og trúnaðarmanna-
ráðsins og samþykktu þar
með verkfallið; 34 greiddu
atkvæði á móti og 3 sátu hjá.
Um 10 voru farnir af fundi,
og yfir helmingur félags-
manna sótti yfirleitt ekki
fundinn.
Verkamenn á Borð-
eyri sögðu nei
VERKALÝÐFÉLAG HRÚT
FIRÐINGA, Borðeyri, hefur
samþykkt að neita að verða
við tilmælum Alþýðusam-
bandsstjórnar bæði um upp-
sögn samninga og um samúð
arverkfall með Dagsbrún.